Morgunblaðið - 24.04.2015, Page 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. APRÍL 2015
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson ritstjorn@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Þórunn Kristjánsdóttir
thorunn@mbl.is
Um síðustu áramót var tekin sú
ákvörðun í Ljósinu, endurhæf-
ingar- og stuðningsmiðstöð fyrir
fólk sem hefur fengið krabbamein,
og aðstandendur þeirra, að setja
ákveðin mörk á hversu lengi fólk
geti nýtt sér þjónustu Ljóssins.
Brugðið var á það ráð að útskrifa
fólk úr Ljósinu sem hafði nýtt sér
þjónustuna í áraraðir og gat nýtt
sér aðrar leiðir sem voru í boði í
samfélaginu, að sögn Ernu Magn-
úsdóttur, forstöðuiðjuþjálfa og eins
af stofnendum Ljóssins.
Síðustu ár hefur ásóknin í Ljósið
aukist mikið og því þurfti að for-
gangsraða í þágu þeirra sem þurfa
mest á þjónustunni að halda, segir
Erna.
Í fyrra sóttu rúmlega 1.000 ein-
staklingar þjónustu í Ljósið en
heimsóknirnar eða komurnar voru
alls um 14.000. Árið 2013 sóttu 970
einstaklingar þjónustu í Ljósið og
árið 2012 voru þeir 934 talsins.
Erna nefnir að oft sé fullbókað á
þau námskeið sem Ljósið býður
upp á og í auknum mæli hafi þeir
aðilar sem mest þurfa á þjónust-
unni að halda, þ.e. ný- og end-
urgreindir ekki komist að.
Sársaukafull aðgerð
„Auðvitað er sársaukafullt að
fara í svona aðgerðir, en hafa verð-
ur í huga að við erum ekki að vísa
neinum frá sem sannarlega þarf á
stuðningi og endurhæfingu að
halda. Við reynum eftir fremsta
megni að reka Ljósið á hag-
kvæman hátt og höfum til þess
takmarkað fjármagn. Starfsemin
er fjármögnuð að mestu leyti með
styrkjum frá fyrirtækjum og ein-
staklingum, en að hluta til með
framlagi frá hinu opinbera. Við
leggjum mikla áherslu á fag-
mennsku í starfi þar sem meg-
inmarkmiðið er að hjálpa fólki að
komast aftur út á vinnumarkaðinn
eða út í hið daglega líf. Ljósið er
því fyrst og fremst viðkomu-
staður,“ segir Erna.
Miðað er við að fólk geti nýtt sér
þjónustu Ljóssins í fimm ár frá
greiningu, en Erna bendir á að það
sé erfitt að miða við árafjölda í því
sambandi og nauðsynlegt að skoða
hvert tilvik fyrir sig. „Sumir nýta
sér Ljósið í stuttan tíma, en aðrir
lengur, t.d. ef þeir greinast aftur.
En við reynum að hjálpa öðrum að
komast í önnur úrræði. Auðvitað
væri gott að geta þjónustað alla
alltaf, en það gengur einfaldlega
ekki upp.“
Nokkurrar óánægju gætti með
þessa ákvörðun stjórnar um fyrr-
greindan tímaramma.
Ljósið slokknað
Í Ljósinu er boðið upp á ýmis
námskeið sem félagsmenn geta
sótt gegn lágu gjaldi, t.d. í leirlist,
myndlist, bútasaumi, o.fl. Um ára-
bil hefur verið boðið upp á svokall-
að prjónakaffi en það var ekki á
dagskrá eftir áramótin. Þar hittust
einstaklingar sem tóku m.a. þátt í
stofnun Ljóssins fyrir um 10 árum.
„Á kynningarfundinum á dag-
skránni eftir áramót fengum við að
vita að þetta væri ekki á dagskrá
án þess að það væri útskýrt frek-
ar. Stuttu síðar var okkur tilkynnt
reglan um fimm árin. Þetta var
eins og köld vatnsgusa,“ segir
Ingibjörg J. Helgadóttir en hún
hefur komið reglulega í Ljósið
undanfarin ár þar sem hún er með
ólæknandi blóðsjúkdóm en hún
greindist með krabbameinsæxli
fyrir sjö árum.
„Þetta er mjög neikvætt fyrir
starfsemina og allt það góða starf
sem hefur farið þarna fram. Þetta
er orðið eins og stofnun og í mín-
um huga hefur ljósið slokknað eftir
þessar breytingar,“ segir Ingi-
björg.
Ekki lengur en
5 ár í Ljósinu
Forgangsraðað í þágu þeirra sem
þurfa mest á þjónustunni að halda
Áhugi Síðustu ár hefur ásóknin í
Ljósið aukist mikið.
Andri Steinn Hilmarsson
ash@mbl.is
Rútufyrirtækið Gray Line, sem hefur
á undanförnum árum haft aðstöðu á
Kolaportsplaninu svonefnda, vinnur
nú að því að finna nýja staðsetningu
fyrir rútur fyrirtækisins. Fyrsta
skóflustungan að fjölbýlis-, verslun-
ar-, og skrifstofuhúsnæði var tekin í
gær og hefur bílastæðinu við Tollhús-
ið verið lokað, þar sem áður voru um
200 bílastæði.
„Við getum verið þarna á svæðinu
eitthvað örlítið lengur og erum að
vinna að því að koma okkur fyrir ein-
hvers staðar annars staðar,“ segir
Sigurdór Sigurðsson, framkvæmda-
stjóri Gray Line.
Fyrsta skóflustungan í gær
Í gær tóku Dagur B. Eggertsson
borgarstjóri, Gísli Steinar Gíslason og
Guðni Rafn Eiríksson hjá Landstólp-
um fasteignafélagi og Helgi S. Gunn-
arsson, forstjóri Regins, fyrstu
skóflustunguna að byggingum sem
munu rísa á Hörpureitum 1 og 2, á
Kolaportsplaninu við Tollhúsið við
Austurbakka í miðborg Reykjavíkur.
Gísli Steinar Gíslason hjá fast-
eignaþróunarfélaginu Landstólpum,
sem er framkvæmdaraðili verkefnis-
ins, segir fornleifagröft hefjast á
svæðinu á næstu dögum og fram-
kvæmdirnar í kjölfarið. Þriðjungur
bygginganna verður skrifstofur,
þriðjungur íbúðir og þriðjungur
verslanir en Reginn hefur þegar
keypt upp allt verslunarrýmið.
Íbúðafjöldinn verður á bilinu 75 til
80 og verða íbúðirnar frá 50 fermetr-
um upp í 200 fermetra að stærð.
Hönnunarferlið tók um það bil eitt ár
og er áætlað að framkvæmdum á
reitnum ljúki árið 2018.
Morgunblaðið/Eva Björk Ægisdóttir
Framkvæmdir Guðni Rafn Eiríksson hjá Landstólpum, Dagur B. Eggertsson borgarstjóri, Gísli Steinar Gíslason hjá
Landstólpum og Helgi S. Gunnarsson, forstjóri Regins, tóku fyrstu skóflustunguna að framkvæmdunum í gær.
Rútufyrirtæki kveð-
ur Kolaportsplanið
Fornleifagröftur á Hörpureitum 1 og 2 við það að hefjast
Kolaportsplanið Á Hörpureitum 1 og 2 mun rísa fjölbýlis-, verslunar- og
skrifstofuhúsnæði og er áætlað að framkvæmdum ljúki árið 2018.
Blakdeild Þróttar, Neskaupstað,
hefur fest kaup á þremur upp-
blásnum íþróttahúsum. Þorbjörg
Ólöf Jónsdóttir, formaður blakdeild-
arinnar, segir að húsin hafi verið
keypt þar sem ekki hafi verið nógu
margir keppnisvellir í Neskaupstað
til þess að hægt hefði verið að halda
öldungamótið í blaki en um 970
keppendur taka þátt í mótinu í ár
með 133 liðum og hefst mótið á
fimmtudaginn kemur.
Húsin þrjú kostuðu í heildina um
10 milljónir króna komin hingað til
lands og segir Þorbjörg að ekki sé
búið að ákveða hvað gert verði við
húsin þrjú að móti loknu. Samvinnu-
félag útgerðarmanna í Neskaupstað
styrki blakdeildina um tvær og hálfa
milljón króna til kaupanna og
Fjarðabyggð um 750 þúsund krón-
ur.
„Á síðasta móti voru um 150 lið
sem kepptu á mótinu sem þýðir að
það var verið að keppa á 10 til 12
völlum í þrjá daga. Við búum við það
í Neskaupstað að vera með eitt
íþróttahús með þremur völlum og
þurftum við því að finna aðrar lausn-
ir,“ segir hún. Þorbjörg bætir við að
vissulega séu fleiri íþróttahús í
Fjarðabyggð sem hefði verið hægt
að keppa í en skipuleggjendur töldu
það ekki henta mótsskipulaginu að
hafa vellina á víð og dreif um sveit-
arfélagið.
„Það er bæði leiðinlegra fyrir leik-
menn að dreifa keppnisvöllunum um
Fjarðabyggð og okkur langaði að
hafa alla keppnisvellina í mekka
blaksins, í Neskaupstað,“ segir hún
en tvö húsanna eru 25 sinnum 28
metrar að stærð og stærsta húsið er
25 sinnum 40 metrar. Öll húsanna
eru með 10 metra lofthæð og rúmast
tveir keppnisvellir í hvoru minni
húsanna og þrír keppnisvellir í
stærra húsinu en húsin þrjú munu
standa á gervigrasvellinum í Nes-
kaupstað á meðan á mótinu stendur.
Kosið verður á milli þriggja móts-
staða næsta öldungamóts á öldunga-
þingi sem verður haldið samhliða
mótinu: Vestmannaeyja, Garða-
bæjar og Mosfellsbæjar.
Keppt í blaki í þremur uppblásnum húsum
Ljósmynd/Haraldur Egilsson
Hús Blakdeildin hefur ekki ákveðið hvað gert verður við húsin að móti loknu en þau kostuðu um 10 milljónir króna.
Blakdeild Þróttar í Neskaupstað
heldur 40. öldungamótið eftir viku