Morgunblaðið - 24.04.2015, Side 13
FRÉTTIR 13Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. APRÍL 2015
Sumardagurinn fyrsti var haldinn
hátíðlegur um allt land í gær. Á höf-
uðborgarsvæðinu var víða sum-
arlegt um að litast enda skein sólin.
Nokkuð hlýtt var við suðurströndina
en kaldara um landið norðanvert.
Hlýjast var í Skaftafelli þar sem hiti
mældist 6,7 gráður en kaldast í
Húsafelli eða -7,3 stig. Vetur og
sumar frusu saman um stóran hluta
lands í fyrrinótt, en frostlaust var
með ströndum sunnanlands. Örlítið
frost mældist í innsveitum sunnan
heiða.
Samkvæmt þjóðtrú boðar það gott
ef vetur og sumar frjósa saman.
Sumardagurinn fyrsti er ávallt á
næsta fimmtudegi eftir 18. apríl.
Hann er almennur frídagur og einn
af íslensku fánadögunum. Á Vís-
indavef Háskóla Íslands segir að
dagurinn sé hluti af misseristalinu
sem tíðkast hefur hér á landi frá
landnámi. Árinu er þar skipt í tvo
nærri jafnlanga helminga: Sum-
arhelming og vetrarhelming.
Morgunblaðið/Hafþór
Blómleg hestaferðamennska
Hressilegur gustur og hvít jörð mættu reiðmönnum nærri Húsavík að sögn Bjarna Páls Vilhjálmssonar hjá Hestamiðstöðinni í Saltvík sem hér er í far-
arbroddi fjögurra reiðmanna. Að sögn hans hefur hestaferðamennskan verið með blómlegra móti í vetur. Að auki eru allar ferðir sumarsins uppseldar.
„Ég verð með 15 ferðir í sumar sem eru frá þremur og upp í tíu daga. Ég verð því í hnakknum í allt sumar,“ segir Bjarni.
Morgunblaðiði/Skapti
Sumar á Akureyri Í fyrrinótt snjóaði aðeins, þannig að jörð var hvít og kalt í veðri. Þetta hlý-
lega og skemmtilega spjald er í garðinum við Minjasafnið á Akureyri þar sem gjarnan er tekin
mynd af börnum sem bæta sér í veisluna. Þessi brostu í kuldanum.
Sumar og
vetur frusu
víða saman
Gott veður var á höfuðborgarsvæðinu á fyrsta sumardegi
Morgunblaðið/Sigurjón
Vetrarlegt Ísfirðingum brá í brún í gærmorgun, en 12 sentmetra jafnfallinn jólasnjór lá þá yfir
bænum. Á bílastæðunum við flugvöllinn á Ísafirði voru bílar með snjóhettu um miðjan dag og
Dash-flugvél Flugfélags Íslands var veðurteppt þar í nokkrar klukkustundir í gær.
Morgunblaðið/Ómar
Sumarlegt Þessir hressu strákar nutu blíð-
viðris í Vestmannaeyjum og fóru í sund.
Morgunblaðið/Kristinn
Spenna í loftinu Mettþátttaka var í Víðavangshlaupi ÍR sem fór fram í 100. skipti í gær. Veður var ágætt og ný hlaupaleiðin þótti skemmtileg.
Morgunblaðið/Kristinn
Á Klambratúni Andlitsmálun tilheyrir á
hátíðisdögum eins og fyrsta sumardegi.