Morgunblaðið - 24.04.2015, Síða 14
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. APRÍL 2015
SVIÐSLJÓS
Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
Golfklúbbur Reykjavíkur, GR,
stendur fyrir kynningarfundi í golf-
skálanum í Grafarholti nk. þriðju-
dagskvöld. Fundarefnið er framtíð
Grafarholtsvallar en fyrir liggur
skýrsla skosks arkitekts, Tom Mac-
kenzie, um hvernig beri að end-
urbæta völlinn á næstu árum. Í
skýrslunni eru lagðar til miklar
breytingar á vellinum en stjórn og
félagsmenn GR þurfa að gera upp
við sig hvaða leið á að fara, m.a.
hvort loka eigi
vellinum alfarið
meðan á fram-
kvæmdum stend-
ur eða að taka
verkið í áföngum
yfir lengri tíma.
Niðurstaða gæti
legið fyrir á aðal-
fundi klúbbsins í
lok þessa árs.
Garðar Eyland
Bárðarson, fram-
kvæmdastjóri GR, segir könnun
hafa farið fram á afstöðu félags-
manna og hún verði birt á næstunni
og mögulega kynnt á félagsfund-
inum 28. apríl nk.
Samskonar fundur var haldinn
fyrir um ári, þar sem Tom Macken-
zie mætti og kynnti skýrsluna. Hún
hefur nú verið þýdd á íslensku og
birt á vef GR.
Grafarholtið barn síns tíma
„Það er alveg ljóst að á sínum
tíma var völlurinn lagður af van-
efnum. Miðað við kröfur nútímans
til golfvalla sem vilja vera í fremstu
röð þá þarf að betrumbæta völlinn.
Við fengum Mackenzie til verksins
en hann er vel þekktur fyrir endur-
hönnun á gömlum golfvöllum. Hann
skoðaði völlinn ítarlega og kom í
framhaldinu með hugmyndir um
endurbætur. Með fundinum núna
viljum við rifja málið upp og gera
okkar félagsmenn meðvitaða um
hver staðan er og hvað þarf að
gera,“ segir Garðar.
Hann telur góðan hljómgrunn
vera meðal félagsmanna fyrir nauð-
syn þess að laga Grafarholtsvöll.
„Völlurinn er barn síns tíma. Við
höfum mörg undanfarin ár verið að
berjast við grjót í brautunum, flat-
irnar eru ekki allar eins, þannig að
hægt sé að meðhöndla þær eins. Við
þurfum að endurnýja vökvunar-
kerfið, laga staðsetningu á teigum
brautum og flötum og í raun að taka
völlinn algjörlega í gegn, eins og
Mackenzie leggur til,“ segir Garðar.
Af einstökum tillögum skoska
arkitektsins þá yrðu mestar breyt-
ingar á legu 17. og 18. brautar. Á 17.
braut yrði leikið yfir aðra og stærri
tjörn og mikil færsla gerð á byrjun
18. brautar. Á öðrum brautum er í
flestum tilvikum gerð tillaga um
nýjar flatir og teiga. Mikilvægt er
talið að koma upp nýju vökv-
unarkerfi og grjóthreinsa allar
brautir.
Tillögur um nýjar útlínur brauta
sjást nánar á meðfylgjandi korti. Þá
myndi völlurinn lengjast um tæpa
200 metra ef tillögurnar ná fram að
ganga.
Lokað í tvö og hálft ár?
Samkvæmt skýrslunni telur Skot-
inn tvo kosti í stöðunni. Fljótasta og
ódýrasta leiðin sé að loka vellinum í
tvö og hálft ár og opna hann aftur
þegar hann sé tilbúinn. Hinn mögu-
leikinn sé að hafa 9 holur opnar allan
framkvæmdatímann en þá geti
verkefnið dregist í meira en fimm
ár.
Spurður hvort skiptar skoðanir
séu meðal félagsmanna um breyt-
ingarnar segir Garðar engan ágrein-
ing vera um hvort ráðast eigi í þær.
Allir vilji endurbætur en spurn-
ingin sé fyrst og fremst á hve
löngum tíma eigi að vinna þetta.
Bendir Garðar á að gróðurtími hér á
landi sé stuttur og af þeim sökum
geti reynst erfitt að klára allt verkið
á tveimur og hálfu ári. „Mín tilfinn-
ing er sú að þetta muni taka lengri
tíma en styttri en tek fram að engar
ákvarðanir hafa verið teknar um
hvernig að þessu verður staðið,“
segir hann.
Grafarholtsvelli verði gerbylt
Félagar í Golfklúbbi Reykjavíkur ræða skýrslu um breytingar á Grafarholtsvelli Annar kynn-
ingarfundur næsta þriðjudag Spurning um framkvæmdatíma Mestu breytt á 17. og 18. braut
Grafarholtsvöllur
Tillögur um breytingar
Nýjar útlínur brauta
Stefna á braut af hvítum teig
Heimild Mackenzie & Ebert/Golfklúbbur Reykjavíkur
16
15
18
1
2
3
4
8
7
6
5
9
17
10
12
14
13
11
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Golf Grafarholtsvöllur var tekinn í notkun fyrir rúmri hálfri öld. Urð og grjóti var breytt í grasi vaxinn golfvöll.
Garðar Eyland
Bárðarson
Golf í rúm 80 ár
» Golf á Íslandi á sér yfir 80
ára gamla sögu, sem rakin er
til stofnunar Golfklúbbs Ís-
lands í desember árið 1934.
» Síðar var nafni klúbbsins
breytt í Golfklúbb Reykjavíkur,
þegar fleiri klúbbar höfðu bæst
við hérlendis.
» Fyrsta golfmótið fór fram
sumarið 1935 í Laugardal.
» Árið 1963 var Grafarholts-
völlur tekinn í notkun.
» Nærri 3.000 félagsmenn
eru í GR og í Grafarholti eru
spilaðir 33 þúsund hringir á ári
á brautunum 18.
Nánari upplýsingar á www.heilsa.is
Fæst í apótekum og heilsuvöruverslunum
Oft er talað umMagnesíum sem„anti –stress“ steinefni
því það róar taugarnar og hjálpar okkur að slaka á. Magnesíum stjórnar og virkir um
300 ensím sem gegna mikilvægum hlutverkum í eðlilegri virkni líkamans. Það er
nauðsynlegt fyrir frumumyndun, efnaskipti og til að koma á jafnvægi á kalkmyndun
líkamans og fyrir heilbrigða hjartastarfsemi. Magnesíum er líka afar hjálplegt við
fótaóeirð út af vöðvaslakandi eiginleikum þess. Mjög gott er að taka magnesíum í
vökvaformi fyrir svefn til að ná góðri slökun og vakna úthvíldur.
Magnesium vökvi
• Til að auka gæði svefns
• Til slökunar og afstressunar
• Hröð upptaka í líkamanum
• Gott til að halda
vöðvunummjúkum
Virkar strax