Morgunblaðið - 24.04.2015, Blaðsíða 15
FRÉTTIR 15Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. APRÍL 2015
Félagið MÍR, Menningartengsl Ís-
lands og Rússlands, minnist nú í
vorbyrjun þess að 70 ár eru liðin frá
stríðslokum í Evrópu. Dagskrá
verður af þessu tilefni í MÍR-
salnum, Hverfisgötu 105, dagana
25. apríl til 10. maí.
Sýning á ljósmyndum og sov-
éskum veggspjöldum, plakötum,
frá stríðsárunum verður opnuð í
MÍR-salnum laugardaginn 25. apríl
kl. 15. Sendiherra Rússneska
sambandsríkisins, Anton V. Vasi-
liev, flytur ávarp og opnar sýn-
inguna formlega, Jón Júlíusson
leikari les ljóð, sýnd verður stutt
sovésk heimildarkvikmynd, sem
gerð var þegar 40 ár voru liðin frá
einni mestu orrustu heimsstyrjald-
arinnar, orrustunni um Kúrsk-
bugðuna sumarið 1943, segir í frétt
frá MÍR. Myndasýningin verður op-
in á virkum dögum kl. 13.30-15 og 2
tímum lengur 1. maí.
Kvikmyndasýningar verða í MÍR-
salnum 26. apríl, 28. apríl 5. maí og
10. maí.
MÍR minnist stríðs-
loka í Evrópu
Bæjarráð Akranesbæjar hefur ákveðið að
óska eftir leiðbeiningum frá heilbrigðisnefnd
Vesturlands vegna endurálagningar sorp-
gjalda fyrir síðasta ár. Ekki hefur verið
ákveðið hvort bærinn uni úrskurði áfrýj-
unarnefndar sem ógilti álagningu sorpgjalda
fasteignaeigenda vegna þess að láðst hafði að
leita umsagnar heilbrigðisnefndar.
Bærinn hefur ekki endurgreitt umræddum
fasteignaeiganda eða öðrum enda standa
bæjaryfirvöld í þeim sporum að þurfa að
ákveða hvort farið verði í mál í þeim tilgangi
að fá úrskurðinn ógiltan eða fella niður
álagninguna og leggja gjöldin á að nýju. Reg-
ína Ásvaldsdóttir bæjarstjóri segir nauðsyn-
legt að leita leiðbeiningar heilbrigðisnefndar
og ráðuneytis.
„Við viljum stíga næsta skref varlega,
þannig að ekki leiki neinn vafi á um réttmæti
álagningarinnar,“ segir Regína.
Ósammála niðurstöðunni
Lögfræðingar Sambands íslenskra sveitar-
félaga virðast ekki sammála niðurstöðu úr-
skurðarnefndarinnar. Í minnisblaði þeirra
sem lagt var fyrir fund bæjarráðs Akraness
kemur fram það álit að verulegir annmarkar
þurfi til að koma til þess að stjórnvalds-
ákvörðun verði ógilt. Færð eru rök fyrir því
að þótt láðst hafi að afla umsagnar heilbrigð-
isnefndar við setningu gjaldskrár sem ein-
göngu snýr að endurskoðun fjárhæða með til-
liti til verðlagsbreytinga geti það vart talist
verulegur annmarki á málsmeðferð.
Ef Akranesbær ákveður að una úrskurð-
inum og leggja sorpgjöldin á að nýju benda
lögfræðingarnir á þann möguleika að leggja
til grundvallar gjaldskrá frá nóvember 2012
og fara með hana í lögformlegt ferli. Hún fæli
í sér 870 kr. lækkun á gjöldum hvers fast-
eignaeiganda og að tekjur bæjarins myndu
lækka um 2,7 milljónir. helgi@mbl.is
Óskað eftir leiðbeiningum heilbrigðisnefndar
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Akranes Óvissa ríkir um sorpgjöldin.
Akranesbær metur hvort úrskurði um sorpgjöld verði vísað til dómstóla eða gjöldin lögð á að nýju
Fyrir tíu árum
var fyrsta Flug-
messan haldin í
Grafarvogs-
kirkju. Nú hefur
flugfólk á Íslandi
ákveðið að halda
aðra flugmessu
kl. 11:00 sunnu-
daginn 26. apríl.
Hátíðarhöldin
hefjast með því að þyrla Landhelg-
isgæslunnar lendir við Grafarvogs-
kirkju kl. 10:30 með presta og fleiri
sem taka þátt í messunnni. Arn-
grímur Jóhannsson flugstjóri flytur
hugvekju og Flugfreyjukórinn syng-
ur undir stjórn Magnúsar Kjart-
anssonar.
Organisti er Ólafur W. Finnsson
flugstjóri. Séra Vigfús Þór Árnason
sóknarprestur mun þjóna fyrir alt-
ari. Eftir messu er boðið upp á kaffi
og meðlæti. Allir eru velkomnir en
„flugfólkið“ er beðið um að mæta í
einkennisklæðnaði sínum.
Þyrla lendir
með prestana
í flugmessu
Grafarvogskirkja
Þjóðgarðsvörður hefur tekið þá
ákvörðun að loka tímabundið flest-
um gönguleiðum á Skaftafellsheiði.
Mjög mikil bleyta er á svæðinu eftir
snjóþungan vetur og því ekki for-
svaranlegt, hvorki fyrir gróður né
ferðamenn, að hafa þessar leiðir
opnar, að því er segir á heimasíðu
Vatnajökulsþjóðgarðs. Ekki er ljóst
að svo stöddu hvenær unnt verður
að opna þær aftur.
Opið er frá Skaftafellsstofu að
Svartafossi, Sjónarskeri og Seli,
merkt S2 á korti. Aðrar leiðir á
heiðinni eru lokaðar, en leiðir í
Morsárdal eru opnar, sem og
gönguleiðin að Skaftafellsjökli.
Gönguleiðum í
Skaftafelli lokað
vegna bleytu