Morgunblaðið - 24.04.2015, Qupperneq 16
ÞÓR HF
Reykjavík:
Krókháls 16
110 Reykjavík
Sími 568-1500
Akureyri:
Lónsbakka
601 Akureyri
Sími 568-1555
Vefsíða:
www.thor.is
Réttu tækin fyrir verktaka
Wacker Neuson
Beltavagnar upp í 3 tonn og hjólavagnar
(dumperar) upp í 10 tonn. Allt sem viðkemur
jarðvegsvinnu.
Wacker Neuson
Smágröfur og beltagröfur frá
800 kg upp í 15 tonn.
Hjólagröfur upp í 10 tonn.
Erummeð sýningarvélar í sýningarsal okkar að Krókhálsi 16
í Reykjavík. Kíkið við - sjón er sögu ríkari!
16 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. APRÍL 2015
Deutsche Bank hefur verið gert að
borga sekt að upphæð rösklega tveir
milljarðar evra. Að sögn Bloomberg
er bankanum einnig gert að reka sjö
starfsmenn, sex í London og einn í
Frankfurt, sem tóku þátt í því að
hafa óeðlileg áhrif á þróun Libor-við-
miðunarvaxta.
Breska eftirlitsstofnunin FCA,
Financial Conduct Authority segir
að samtals hafi 29 starfsmenn bank-
ans komið að Libor-svindlinu, flestir
þeirra á skrifstofum bankans í Lond-
on en einnig starfsmenn í Frankfurt,
Tókýó og New York. Rannsókn
leiddi einnig í ljós að enginn af
stjórnarmeðlimum bankans, hvorki
fyrrverandi né núverandi, vissu af
eða tóku þátt í svindlinu.
Voru seinir til svara
Rannsakendur saka bankann um
að hafa brugðist hægt og illa við og á
köflum reynt að villa um fyrir eft-
irlitsaðilum og hafi það dregið rann-
sóknina á langinn.
Libor vextir (e. London Interbank
Offered Rate) eru millibankavextir
ákvarðaðir á meðal leiðandi banka í
London. Eru millibankavextirnir
notaðir til viðmiðunar í lánasamning-
um víð um heim og ákvarða vexti
lána upp á þúsundir milljarða banda-
ríkjadala.
Fleiri bankar tóku þátt í Libor-
svindlinu og hefur málið verið rann-
sakað af stofnunum bæði í Banda-
ríkjunum og Bretlandi.
Árið 2012 og 2013 greiddu Barcla-
ys, UBS og Royal Bankof Scotland
sektir að fjárhæð samtals 3,5 millj-
arða dala vegna Libor-málsins. Er
sekt Deutsche Bank stærsta Libor-
sektin til þessa. Fyrra met átti UBS
sem greiddi 1,5 milljarða dala árið
2012.
Deutsche Bank hafði þegar ráð-
stafað 3,2 milljörðum dala í varasjóð
til að standa straum af mögulegum
sektargreiðslum. Hefur bankinn
varið 7,1 milljörðum evra í mála-
rekstur á undanförnum árum og
standa enn yfir rannsóknir á meint-
um afbrotum bankans er snúa m.a.
að gjaldeyrisviðskiptum, fasteigna-
lánum, og brotum á viðskiptahöftum.
ai@mbl.is
Deutsche Bank fær risa-
sekt vegna Libor-svindls
Sjö starfsmenn í London og Frankfurt verða reknir
AFP
Turnar Höfuðstöðvar Deutsche Bank í Frankfurt. Libor svindlið fór einkum
fram á skrifstofum bankans í London en teygði sig víða.
Aðalfundur Landsvirkjunar var
haldinn á miðvikudag og var þar
samþykkt tillaga fjármála- og efna-
hagsráðherra um kjör aðalmanna
og varamanna í stjórn fyrirtækis-
ins. Voru allir stjórnarmeðlimir
endurkjörnir.
Aðalmenn eru Jónas Þór Guð-
mundsson, formaður stjórnar og
hæstaréttarlögmaður, Helgi Jón
Jóhannesson hæstaréttarlögmaður,
Jón Björn Hákonarson, varafor-
maður stjórnar og forseti bæjar-
stjórnar Fjarðabyggðar, Þórunn
Sveinbjarnardóttir, framkvæmda-
stýra Samfylkingarinnar, og Álf-
heiður Ingadóttir líffræðingur.
Varamenn eru Páley Borgþórs-
dóttir, Teitur Björn Einarsson,
Ásta Björg Pálmadóttir, Skúli
Helgason og Steinþór Heiðarsson.
Var jafnframt samþykkt á aðal-
fundinum tillaga stjórnar um arð-
greiðslu til eigenda fyrir árið 2014
að fjárhæð 1,5 milljarðar króna.
ai@mbl.is
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Kraftur Ein af borholum Lands-
virkjunar á Þeistareykjum.
Landsvirkjun greiðir
1,5 milljarða í arð
Stjórn endurkjörin á aðalfundi
Bandaríska kleinuhringjaveldið
Dunkin’ Brands Group tilkynnti á
fimmtudag að bæði tekjur og
hagnaður á fyrsta fjórðungi ársins
hefðu verið umfram væntingar.
Hækkaði fyrirtækið hagnaðarspár
ársins úr 5-7% upp í 6-8%. Áætlar
Dunkin’ að hagnaður verði á
bilinu 1,87 til 1,91 dalir á hlut.
Fyrirtækið þakkar árangurinn
aukinni áherslu á drykkjarsölu á
sölustöðum sínum og samstarfi við
Smucker Co. og Keurig um að
selja K-Cups-skyndikaffi undir
merkjum Dunkin Donuts í versl-
unum víða um Bandaríkin.
Undanfarin misseri hefur slag-
urinn verið harður á morgunverð-
armarkaði vestanhafs og Dunkin’
brugðist við m.a. með því að gera
afgreiðslu hraðari með end-
urhönnuðu vinnusvæði af-
greiðslufólks. MarketWatch grein-
ir frá að einnig hafa verið gerðar
breytingar á matarframboðinu
með aukinni áherslu á heilsu-
samlegri rétti og morgunverð-
arsamlokur. ai@mbl.is
Batnandi horfur
hjá Dunkin’ Donuts
Þægindi Keurig skyndikaffið hefur
reynst Dunkin’ Donuts vel.
Innkaupastjóravísitölur voru birtar
víða um heim á fimmtudag og þóttu
niðurstöðurnar neikvæðar á öllum
stöðum. Bloomberg segir að í Jap-
an, Kína, Frakklandi, Þýskalandi
og Bandaríkjunum hafi vísitalan
mælst lægri en markaðurinn hafði
reiknað með. Í Japan, Kína og
Frakklandi mældist vísitalan undir
50 stigum sem þýðir að samdráttur
átti sér stað milli mælinga.
Innkaupastjóravísitölurnar þykja
til marks um hvort framleiðsla er
að aukast eða dragast saman.
Í tilviki Kína og Japans er sam-
drátturinn nú í takt við þróun síð-
ustu mælinga sem hafa verið á nið-
urleið en í tilviki Þýskalands og
Bandaríkjanna markar lækkunin
umskipti því þar hafa vísitölurnar
verið á uppleið það sem af er ári.
ai@mbl.is
AFP
Samdráttur Innkaupastjórarnir halda að sér höndum. Verksmiðja í Kína.
Innkaupastjóravísitölur
valda vonbrigðum
● Samkomulag hefur náðst um að
sænska félagið AdvInvest kaupi 32%
eignarhlut Framtakssjóðs Íslands í Adv-
ania. Í tilkynningu segir að af þessu leiði
að AdvInvest sé nú skuldbundið til að
bjóða til kaups þá hluta sem eftir standa
af öðrum hluthöfum. Verður Advania
væntanlega að öllu leyti í eigu AdvInvest
eftir kaupin. Í tilkynningunni segir enn
fremur að Advania verði áfram íslenskt
fyrirtæki með höfuðstöðvar á Íslandi
enda lögð áhersla á að byggja upp starf-
semi fyrirtækisins hér á landi auk þess
að skrá félagið í kauphöll bæði í Reykja-
vík og Stokkhólmi.
ai@mbl.is
Framtakssjóðurinn selur hlut sinn í Advania