Morgunblaðið - 24.04.2015, Side 28
28 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. APRÍL 2015
Trésmiðja GKS ehf, Funahöfða 19, sími 577 1600, gks@gks.is, gks.is
Gæði - Kunnátta - Sveigjanleiki
Nýjar hagstæðar lausnir í innréttingum.
Nútímaleg hönnun, glæsilegt útlit og
örugg gæði frá fagmönnum.
Verktakar – húsbyggjendur
ÍSLENSK
FRAMLEIÐSLA
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Þú ert fær með tölur og færð snilldar-
hugmynd til að bæta núllum aftan við launin
þín. Misstu ekki móðinn þótt það reynist
erfiðara en sýnist í fljótu bragði.
20. apríl - 20. maí
Naut Óvænt ástarævintýri og skapandi tæki-
færi geta gert þetta að góðum degi. Líkur eru
á því að athyglin beinist að þér og því gott að
vera undir það búinn.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þér er ekki hlátur í hug í dag og
glens og gaman á ekki upp á pallborðið. Láttu
góðvild þína ekki verða á þinn eigin kostnað.
Ekki taka ákvörðun fyrr en þú hefur náð átt-
um.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Reynið að létta á spennunni sem ríkir
í kringum ykkur. Bíddu ekki eftir öðrum held-
ur taktu strax til þinna ráða. Forðastu öll
óþarfa útgjöld, það eru þau sem skemma
fyrir þér.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Þú þarft að leita fleiri leiða til þess að tjá
hug þinn. Að hugsa um sjálfan sig felst í fleiru
en að mæta grunnþörfunum.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Láttu ekki tilfinningarnar byrgja þér
sýn í ágreiningi þínum við aðra. Alls konar
sambönd verða skyndilega til fyrir vikið.
23. sept. - 22. okt.
Vog Ástin hefur á sér mörg snið. En í dag
ertu þeim mun áhugaverðari, þeim mun
minna sem þú gerir. Ef þú þarft á meðmælum
að halda, vitnisburði eða traustsyfirlýsingu
hefur þú heppnina með þér.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Þú færð að líkindum tækifæri til
þess að klára mál sem tengjast sköttum,
skuldum, tryggingum, sameiginlegum eigum
og dánarbúum. Njóttu kvöldsins í faðmi fjöl-
skyldu og vina.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Þú ættir að ná takmarki þínu, þar
sem þú leggur svo hart að þér. Gættu þess
bara að ofmetnast ekki, því dramb er falli
næst.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Þú smitar alla í kringum þig með
léttlyndi og glaðværð. Mundu að aðstoð get-
ur borist úr ólíklegustu áttum.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Það getur tekið á að þurfa stöðugt
að sýna einbeitni gagnvart öðrum. Reyndu að
virðast hress og jákvæður.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Það er einhver maðkur í mysunni en
þér finnst þú ekki geta fest hendur á hvað
raunverulega er að. Margar hendur vinna létt
verk. Pældu í hæfileikum sem þú er gæddur!
Jón Karl Einarsson skrifaði íLeirinn:
Einhver finnst mér eigi að kanna,
hvort eitthvað hefur skolast úr
Vaðlaheiðarvegamanna-
verkfærageymsluskúr.
Hér prjónar Jón Karl framan við
gamlan botn. Jakob Ó. Pétursson
sagði frá því í Íslendingi árið 1958
og hafði eftir Karli Friðrikssyni yf-
irverkstjóra að vísan væri eftir Sig-
urð K. Pálsson, verkstjóra í Vaðla-
heiðarvegi, og hefði hann kennt sér
hana svo:
Fyrr á hausti svanir sungu
sælt í moll og dúr.
Vaðlaheiðarvegamanna-
verkfærageymsluskúr.
Jakob segir frá því að á þessu
sama sumri voru menn að keppa
um, hver gæti búið til lengst orð, og
mun vísan af þeim toga spunnin og
höfundur vísunnar því sennilega
höfundur hins langa orðs.
Fía á Sandi segist hafa heyrt vís-
una öðruvísi, eignaða Hringi Jó-
hannessyni listmálara.
Gjarna vildi eg konu kanna
og klæða hana úr
í Vaðlaheiðarvegavinnumanna-
verkfærageymsluskúr.
Hallmundur gamli sér landslagið
þannig:
Sýnist mér af sama meiði,
svipuð þeirra gjörðin,
Vaðlarnir í Vaðlaheiði
og Vaðlarnir við fjörðinn.
Þessi vísa gaf Fíu á Sandi tilefni
til athugasemdar: „Nú skilur maður
loks nafnið á heiðinni. Hefði mátt
skoða áður en farið var í göngin.“
Og Skírnir Garðarsson bætti því við
að hann væri ættaður frá Hallandi,
bæ sem kúrir þarna á stalli, og
skyldur Hallands-Möngu, en lang-
amma sín hefði farist í vatnsflaumi
þarna og svæðið varasamt. –
„Ekkert er nýtt undir sólinni!“
Davíð Hjálmar Haraldsson hefur
samúð með móður náttúru:
Vaðlaheiði, mjúk og móðurleg,
í miðjuna fær göng og breiðan veg
en eins og mey sem hefur fengið fang
fær hún æluskot og niðurgang.
Jón Arnljótsson sér þessa lausn
fyrir sér:
Þó fossi vatn um fjöllin blá,
fljótt má lækka sönginn,
því að nú skal ferju fá,
að fara þar um göngin.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Vaðlaheiðargöng
og vegavinnuskúrar
Í klípu
HANN VAR LAUS FYRR EN VARÐI, MEÐ
NÝJA SÝN Á LÍFIÐ OG HREINT BORÐ.
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„ÉG HELD AÐ ÞETTA TÁKNI HINA EILÍFU
BARÁTTU MANNSINS FYRIR FRELSI.“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... ást eins og okkar.
ELLEN, FYRIR ÞIG MYNDI
ÉG SYNDA Í DÝPSTA
HAFI HEIMS...
HVAÐ
SAGÐIRÐU? ÞÚ ÞIGGUR ÞAÐ
AÐ ÉG SYNDI?
LÖNG LEIÐ
FYRIR
HUNDASUND MEÐ
KÚTA!
ÉG ER FARINN TIL
SKOTLANDS Í LEIT AÐ FRÆGÐ
OG FRAMA!
...OG NOKKRUM LOTUM AF
GOLFI OG VISKÍ!
Datt Dagur á höfuðið ofan í holu?spurði vinnufélagi Víkverja í
gær, þegar borgarstjórinn tók við
gjöf fyrir hönd barna og ungmenna
í höfuðborginni.
x x x
Eins og alþjóð veit og einnig hefurvakið athygli utan landstein-
anna hefur meirihlutinn í borg-
arstjórn Reykjavíkur barist með
kjafti og klóm á móti gjöfum til
grunnskólabarna og þannig hafa
áratugahefðir verið brotnar á bak
aftur.
x x x
Svo lengi sem elstu menn munahafa Gídeonfélögin gefið grunn-
skólabörnum Nýja testamentið en
tekið var fyrir það af borgarstjórn.
x x x
Um árabil gaf Kiwanishreyfinginbörnum í fyrsta bekk reið-
hjólahjálma merkta Eimskip, þar til
Dagur tók í taumana í ársbyrjun. Í
könnun Capacent Gallup kom fram
að rúmlega 5% svarenda fylgdu
meirihluta borgarstjórnar að mál-
um.
x x x
Tannlæknafélag Íslands, tann-læknadeild Háskóla Íslands og
Embætti landlæknis stóðu fyrir ár-
legri tannverndarviku í febrúar og
gáfu börnum í 10. bekk tannbursta,
tannkrem og tannþráð frá mismun-
andi framleiðendum. Öllum nema
börnum í Reykjavík vegna þess að
Dagur og félagar tóku fyrir það.
x x x
Í ársbyrjun sagði Sveinbjörg BirnaSveinbjörnsdóttir, borgarfulltrúi
Framsóknarflokksins, meirihluta
borgarstjórnar kominn í andstöðu
við sjálfan sig í sambandi við gjafir
til skólabarna og spurði hvort
spjaldtölvuvæðing í skólum stuðlaði
að Apple-væðingu þjóðfélagsins. Þá
varð fátt um svör, en svo bar við í
vikunni að skátar gáfu börnum í 2.
bekk grunnskóla landsins íslenska
fánaveifu fyrir sumardaginn fyrsta
eins og þeir hafa gert árlega frá
1994. Börn í Reykjavík fengu líka
fána að gjöf. Því kemur Víkverja
ekki á óvart að spurt sé hvort borg-
arstjóri hafi dottið á höfuðið ofan í
eigin holu. víkverji@mbl.is
Víkverji
Jesús Kristur er í gær og í dag hinn
sami og um aldir. (Hebreabréfið 13:8)