Morgunblaðið - 24.04.2015, Qupperneq 33
MENNING 33
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. APRÍL 2015
» Jazzhátíð Garða-
bæjar hófst í gær
með tónleikum Tríós
Sigurðar Flosasonar
saxófónleikara í Kirkju-
hvoli, safnaðarheimili
Vídalínskirkju. Tríóið
lék lög af nýrri plötu
sinni, Lady Day, sem
hefur að geyma valin lög
sem Billie Holiday
hljóðritaði á ferli sínum.
Auk Sigurðar skipa tríó-
ið Eyþór Gunnarsson á
píanó og Lennart Gin-
man á kontrabassa.
Lög Billie Holiday flutt við upphaf Jazzhátíðar Garðabæjar
Píanó Eyþór Gunnarsson spilaði af fingrum fram.
Íhugun Gestir fengu tónlistina beint í æð og nutu stundarinnar í botn.
Saxófónn Sigurður Flosason fór fyrir tríóinu.
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Kontrabassi Lennart Ginman lék við hvern sinn fingur.
Eintökum leikara af handriti kvik-
myndarinnar Avengers: Age of Ul-
tron var eytt smám saman meðan á
tökum myndarinnar stóð til að
koma í veg fyrir að upplýsingar um
myndina lækju í fjölmiðla, að því er
segir á vef breska ríkisútvarpsins,
BBC. Leikkonan Elizabeth Olsen
segir að ströngum öryggisreglum
hafi verið fylgt til að koma í veg
fyrir leka og að sá hluti handritsins
sem búið var að taka eftir á degi
hverjum hafi verið tekinn af leik-
urunum og tættur. Leikarinn Paul
Bettany segist aldrei hafa fengið
handritið sent í tölvupósti. Örygg-
isvörður hafi fært honum það út-
prentað.
Leynd Elizabeth Olsen á frumsýningu
Avengers: Age of Ultron í Lundúnum.
Eyddu handrits-
síðum daglega
AFP
Kvikmyndin En chance til eftir
danska leikstjórann Susanne Bier,
verður frumsýnd í dag. Handritið
skrifaði Anders Thomas Jensen en
hann skrifaði einnig handrit kvik-
myndanna Hævnen, Brødre og Ef-
ter brylluppet sem Bier leikstýrði.
Í En chance til segir af lögreglu-
manninum Andreas sem er ráð-
settur eiginmaður og faðir. Líf
hans tekur stakkaskiptum þegar
hann sinnir útkalli heim til pars
sem er djúpt sokkið í eitur-
lyfjaneyslu og finnur, sér til mik-
illar skelfingar, nokkurra mánaða
son þeirra grátandi inni í skáp.
Hefst þá afdrifarík og óvænt at-
burðarás.
Í aðalhlutverkum eru Nikolaj Cos-
ter-Waldau, Ulrich Thomsen og
Nikolaj Lie Kaas.
Metacritic: 35/100
Drama Nikolaj Coster-Waldau í kvikmyndinni En chance til.
Bíófrumsýning
Annað tækifæri ÍSLENSKT TAL
POWERSÝNING
KL. 10
Sími: 553-2075
www.laugarasbio.is
SÝNINGARTÍMA MÁ NÁLGAST Á
LAUGARASBIO.IS, MIDI.IS
EINNIG Á SÍÐUNNI HÉR TIL VINSTRI
- bara lúxus