Morgunblaðið - 08.05.2015, Blaðsíða 10
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. MAÍ 2015
Skipholt 50c • 105 Reykjavík • 582 6000 • www.computer.is
Síðan 1986
Flott í ferðalagið
König spjaldtölvufesting
USB hleðslutækiGenius HS-970BT Bluetooth heyrnartól
Sweex gæðatöskur fyrir spjaldtölvur
Hægt að festa aftan á
höfuðpúða eða með
sogskál á rúðu
Styður m.a.
snjallsíma og
spjaldtölvur
Þráðlaust yfir í
snjalltæki með
Bluetooth eða
með snúru
Þrjár stærðir:
7, 8 og 10 tommu
Virkar einnig sem
standur
Verð 3.990 kr.
Verð 2.190 kr.Verð 9.990 kr.
Verð frá 1.490 kr.
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
Það var haldin lýðræðislegkosning milli nemenda umhvaða verk fengi aðskreyta vegginn hér fram-
an við Sómalíu. Ég sendi inn skissu
og er auðvitað ánægður með að hafa
unnið, en tíu nemendur sendu inn til-
lögur. Við vorum tvö sem fengum
flest atkvæði, baráttan stóð því á
milli mín og einnar stelpu, myndin
hennar fékk um 350 atkvæði en mín
fékk 380, svo það var mjótt á mun-
um,“ segir Aron Bjarklind, 17 ára
nemandi í Menntaskólanum við
Hamrahlíð, sem hefur nýlokið við að
klára myndverk á umræddum
stórum vegg framan við Sómalíu
sem er sjoppa skólans þar sem nem-
endur geta keypt sér ýmislegt slik-
kerí, mat og bakkelsi.
Kókómjólkin og Langi Jón
Aron segir myndina spegla lífið
í skólanum og það sem fæst í Sómal-
íu.
„Hér í Sómalíu fæst kókómjólk
og hún er mjög vinsæll drykkur
meðal nemenda, og sama má segja
um kleinuhringslengjuna Langa
Jón. Það er ástæðan fyrir því að ég
hafði þetta tvennt með á myndinni.
Textinn „I’m in love with the koko“,
er tilvísun í grín sem Björn Bragi
kom með á sínum tíma, en kókó-
mjólkurkötturinn Klói var í því
myndbandi.“
Fyrir miðju á verkinu er mynd
af Lárusi H. Bjarnasyni, rektor skól-
ans, og er hann með geislabaug. Ar-
on brosir og segir að Lárus hafi ver-
ið mjög sáttur með þessa mynd af
sér. Annar maður dekkri yfirlitum
Myndlist er helsta
ástríða mín í lífinu
Aron Bjarklind, nemandi í Menntaskólanum við Hamrahlíð, hefur verið að
teikna frá því hann man eftir sér og ætlar að halda því áfram. Hann hefur selt þó
nokkuð af myndum og stefnir á nám í myndlist. Fyrirmynd hans í listsköpun er
bandaríski kvikmyndaleikstjórinn Stanley Kubrick.
Listamaður Aron fyrir framan eitt af mörgum listaverkum sínum.
Morgunblaðið/Eggert
Sómalíuveggurinn Hér má sjá verkið í heild sinni og hversu stórt það er.
Á bókasafni Seltjarnarness verður
boðið upp á ritlistarnámskeið í næsta
mánuði fyrir börn fædd 2006-2001
eða 9-14 ára. Umsjón námskeiðsins
verður í höndum Gerðar Kristnýjar
rithöfundar og verður það dagana 11.-
19. júní. Í tilkynningu segir að allir
geti skrifað sögur og ljóð og haft
gaman af því líka. Um árabil hefur
Gerður Kristný rithöfundur kennt
börnum í ýmsum skólum og bæjar-
félögum hvernig komast má á skálda-
bragðið í stuttum og hnitmiðuðum
námskeiðum. Á örskotsstundu er
ímyndunaraflið virkjað og þátttak-
endur leiddir inn í heim skáldskap-
arins. Í tilefni þess að árið 2015 er
þess minnst að 100 ár eru liðin frá
því konur hlutu kosningarétt er við-
fangsefni námskeiðsins frelsi. Frelsi
til að hugsa og frelsi til að tjá sig eru
forsendur þess að geta leyft sköp-
unarkraftinum að blómstra. Skráning
fer fram á heimasíðunni seltjarnar-
nes.is undir „Mínar síður“.
Vefsíðan www.seltjarnarnes.is
Morgunblaðið/Golli
Skáld Gerður Kristný ætlar að koma krökkunum á skáldabragðið í sumar.
Ritlistarnámskeið fyrir krakka
Vorin eru tími söngsins, þegar ótal
kórar um land allt halda tónleika til
að leyfa fólki að njóta afraksturs
vetrarstarfsins. Í Karlakór Hreppa-
manna eru söngglaðir karlar sem
ætla að blása til söngskemmtunar og
dansleiks í kvöld kl. 21 í Félagsheimili
Hrunamanna á Flúðum. Þar verður
léttleikinn og gleðin allsráðandi og
sérstakir gestir eru Lögreglukór
Reykjavíkur og feðgarnir Labbi í
Glóru og Bassi „kærasti“, en þeir
tveir munu halda uppi fjörinu fram
eftir nóttu á dansiballinu. Hægt er að
koma eingöngu á söngskemmtun fyr-
ir þá sem ekki nenna að dansa, og
einnig getur fólk komið eingöngu á
ballið. Frítt fyrir 67 ára og eldri.
Endilega …
… njótið söngs
og dansið
Morgunblaðið/Skapti Hallgríms
Stuð Labbi í Glóru á fullu á sviðinu.
Þær eru margar sögurnar sem til eru
af ömmum og nú ætlar Silja Bára
Ómarsdóttir, aðjunkt í stjórnmála-
fræði að segja frá ömmu sinni í dag
kl. 12 í hádegisfyrirlestri í stofu 132 í
Öskju við Sturlugötu í Reykjavík. Silja
Bára segir frá móðurömmu sinni,
Sigurbjörgu Helgadóttur, Boggu,
húsmóður í Ólafsfirði. Hún fæddist í
Ólafsfirði árið 1919 og var næstelst
tólf systkina og er henni lýst sem víð-
sýnni, ákveðinni og fróðleiksfúsri.
Hún aflaði sér fjár til að ganga í
kvennaskóla á Laugalandi í Eyjafirði
og síðar réði hún sér kennara til að
læra erlend tungumál. Bogga starfaði
síðan um skeið á Akureyri en flutti
aftur til Ólafsfjarðar þar sem hún
gekk að eiga Brynjólf Sveinsson og
eignaðist með honum fjögur börn.
Árið 1964 fékk Bogga heilablóðfall og
lamaðist hægra megin á líkamanum.
Hún bjó við þá fötlun og mikla skerð-
ingu lífsgæða það sem eftir var æv-
innar, þótt hún gæti í augum barna-
barnanna allt nema gengið niður
stiga. Silja Bára ætlar að skoða lífs-
sögu Boggu í ljósi þessarar reynslu.
Fyrirlestraröð RIKK: Margar myndir ömmu
Silja Bára segir frá ömmu sem
gat allt nema gengið niður stiga
Morgunblaðið/Frikki
Silja Bára Ómarsdóttir Hún ætlar að segja frá Boggu, föðurömmu sinni.
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.