Morgunblaðið - 08.05.2015, Qupperneq 11
Morgunblaðið/Eggert
Aron Hann er stoltur af myndinni sinni við Sómalíu þar sem meðal annars má sjá rektor skólans með geislabaug.
er á hægri væng myndverksins,
bandaríski tónlistarmaðurinn DJ
Khaled, og fyrir neðan hann er
textabrot sem er tilvísun í texta úr
tónlistarmyndbandi hans.
„DJ Khaled er einna frægastur
fyrir að gera mislukkaða hluti og það
hefur verið gert þó nokkurt grín að
honum. Allir í MH vita hver hann
er,“ segir Aron og hlær. Neðst til
hægri á myndinni eru nöfn nokkurra
hljómsveita, Pink Floyd, The Doors,
Led Zeppelin og fleiri, og segir Aron
að sumar þeirra séu í uppáhaldi hjá
sér en aðrar ekki, en þetta vísi í þá
staðreynd að í Sómalíu sé ávallt spil-
uð tónlist, sá sem afgreiðir þar
hverju sinni geti komið með spilalist-
ann sinn og látið tónlistina hljóma.
Stærstan hluta myndflatarins
þekur nafn Sómalíu, en Aron teikn-
aði sjálfur letrið og lætur hann staf-
ina renna saman og verður það til
þess að við fyrstu sýn er ekki svo
auðvelt að sjá hvað stendur.
„Mér finnst að list eigi að vera
þannig að fólk þurfi að staldra aðeins
við og jafnvel rýna í myndina.“
Málað verður yfir myndina
Aron hefur verið í fjórar vikur
að vinna verkið, með námi og öðru,
en honum finnst þeim tíma ekki hafa
verið vel varið í ljósi nýlegra tíðinda.
„Því miður fær myndin ekki að
lifa lengi, því komið hefur í ljós að
það verður málað yfir hana fljótlega.
Ástæðan er sú að skólastjórnin er
ekki sátt við hana, þeim finnst af ein-
hverjum ástæðum að myndin bjóði
fólk ekki velkomið í Sómalíu, að hún
sé ekki nógu heilsteypt, að þetta sé
ekki list heldur gjörningur og fleira í
þeim dúr. Mér og mörgum öðrum
finnst þetta vanvirðing við þá lýð-
ræðislegu kosningu sem nemendur
efndu til í vali um mynd á vegginn.
Við héldum að lýðurinn fengi að ráða
þessu, en svo virðist ekki vera. En ég
fæ að koma með nýja skissu að nýrri
mynd og þá kemur í ljós hvort
stjórnin leggur blessun sína yfir
hana, ef ekki þá verður einhver ann-
ar en ég fenginn til að mála nýja
mynd í upphafi nýs skólaárs í haust.“
Listsköpunin er gjörningur
Aron var á myndlistarbraut í
Borgarholtsskóla og segir að námið
þar hafi verið frábært en félagslífið
ekki eins og hann vænti.
„Þess vegna skipti ég yfir í MH
og kann mjög vel við mig hér, þó það
sé reyndar ekki myndlistarbraut, en
ég er á opinni braut og get verið í
myndlistaráföngum. Ég stefni á að
útskrifast sem stúdent frá Mynd-
listaskóla Reykjavíkur,“ segir Aron
og bætir við að ekki sé ólíklegt að
hann fari í Listaháskólann hér
heima eða í skóla í útlandinu.
„Hvað sem ég geri, þá veit ég að
ég mun alltaf teikna og mála. Þetta
er í blóðinu. Það er mikið um lista-
fólk í föðurættinni minni og ég hef
verið að teikna síðan ég man eftir
mér. Þetta er helsta ástríða mín í líf-
inu,“ segir Aron sem hefur selt tölu-
vert af myndum.
„Ég er að byrja á nýrri mynd-
röð núna þar sem listsköpunin sjálf
er gjörningur, frekar en að það sé
einhver fyrirfram hugmynd að baki.
Fólk getur þá horft á mynd og séð
listina í myndinni sjálfri en ekki hug-
myndinni. Myndirnar sem ég er að
vinna að núna eru „spontant“, þær
verða til í gjörningi augnabliksins.“
Fyrirmynd hans í listsköpun er
bandaríski kvikmyndaleikstjórinn
Stanley Kubrick, en myndirnar hans
hafa orðið til þess að hann hugsar
öðruvísi um listina.
„Stanley Kubrick var umdeild-
ur á sínum tíma og er það enn. Hann
fór sínar eigin leiðir og lét ekki aðra
segja sér fyrir verkum.“
„Hvað sem ég geri, þá
veit ég að ég mun alltaf
teikna og mála. Þetta er
í blóðinu.“
Nýjustu myndir Arons Þar er listsköpunin sjálf gjörningur, frekar en að það sé einhver fyrirfram hugmynd að baki.
Hægt er að skoða verk Arons á
Facebook-síðu hans: aronbjarklind
Íslendingar eru fjörug og fallegþjóð og eiga landsmenn ýmisáhugamál. Ekkert sameinarþó Frónbúa meira en líflegar
umræður um veðrið. Hvort sem það
er nýafstaðið veður, veðurspáin eða
veðrið í Danmörku sem er auðvitað
svo miklu betra en heima í Norð-
lingaholti. Umræður um úrkomuspá
næstu viku hafa eflaust bjargað fjöl-
mörgum misvel heppnuðum stefnu-
mótum og vandræðalegum þögnum
í matarboðum hjá tengdó.
Í ljósi þessa vil ég varpa fram
þeirri kenningu að veðurfarið hafi
talsverð ómeðvituð áhrif á sálarlíf
okkar Íslendinga. Nýafstaðinn
vetur var harður og einkennd-
ist af stormum, lokuðum
Hellis- og Holtavörðuheiðum
og miklum hagnaði rúðusköfu-
framleiðenda. Í takt við þetta
hefur umræðan verið helst til
stormasöm. Netverjar
keppast við að lýsa
því yfir hvað
Kaupþingsmenn
hafi gott af því
að dvelja í
litlum og lús-
ugum fanga-
klefum,
benda á hvað
Biggi lögga
sé nú mikill
bjáni og ræða
hvernig ýmsar
starfsstéttir megi
fara norður og nið-
ur. Sjálfur legg ég
stund á lögfræði (ljúgfræði) og kem
því til með að tilheyra einhverri
óvinsælustu starfsstétt sem fyr-
irfinnst. „Hersir, sem vill bera þig
út úr húsinu þínu og græða á því“ –
væri eflaust viðeigandi auglýsing
fyrir framtíðarsjálfið.
Nú höfum við hins veg-
ar vaknað í glampandi sól
síðastliðna daga og það er
ennþá nokkuð bjart þegar
ég hætti að hugsa um að
bera fólk út og skríð upp í
rúm um ellefuleytið. Hvort
það mun birta yfir hinni
myrku umræðu net-
heima með hækk-
andi sól verður tím-
inn að leiða í ljós.
Ég ætla að spá
því að það verði
heiðskírt og hita-
tölur yfir frost-
marki á kom-
mentakerfinu í
komandi viku.
Maður má alla-
vega vona.
»„Hersir, sem vill beraþig út úr húsinu þínu
og græða á því“ – væri ef-
laust viðeigandi auglýsing
fyrir framtíðarsjálfið.
HeimurHersis
Hersir Aron Ólafsson
hersir@mbl.is
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. MAÍ 2015
www.smyrilline.is
Stangarhyl 1 · 110 Reykjavík
Sími: 570-8600 · info@smyril-line.is
Fjarðargötu 8 · 710 Seyðisfjörður
Sími: 472-1111 · austfar@smyril-line.is
Taktu
bílinn með
til Færeyja og
Danmerkur 2015
Færeyjar
2 fullorðnir með fólksbíl
Netverð
á mann frá 34.500
Danmörk
2 fullorðnir með fólksbíl
Netverð
á mann frá 74.500
Bókaðu
núna!