Morgunblaðið - 08.05.2015, Side 39
MENNING 39
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 8. MAÍ 2015
Þrjár sýningar verða opnaðar í dag
á Hjalteyri, í Hrísey og á Siglufirði
og eru þær afrakstur samstarfs-
verkefnis nokkurra franskra og ís-
lenskra listaskóla sem ber heitið
Delta Total. Samstarfið varir í tíu
daga og koma ungir listamenn,
listanemar og
kennarar þeirra
saman til að
skapa list.
Sýningin á
Hjalteyri verður
opnuð kl. 12 í
dag í Verksmiðj-
unni en hún ber
heitið Hjalteyri
chose toujours,
sýningin Minimal
Bancal à Hrísey
kl. 16 í Sæborg í Hrísey og Mingle,
Sigló, Mingle verður opnuð kl. 20 í
gömlu Síldarverksmiðju ríkisins á
Siglufirði. Auk þess verða lítil verk
sýnd í Herhúsinu á Siglufirði. Sýn-
ingarnar í Hrísey og Siglufirði
standa aðeins yfir í tvo daga en
sýningin á Hjalteyri lengur, til 7.
júní.
Að sögn Gústavs Geirs Bollason-
ar, eins aðstandenda Delta Total,
eru flestir þátttakenda frá frönsku
listaháskólunum L’École Supér-
ieure d’Art et Design Le Havre –
Rouen, L’École supérieure d’art de
l’agglomération d’Annecy, L’École
Supérieure des beaux-arts de Nan-
tes og Listaháskóla Íslands og
Myndlistarskólanum á Akureyri.
Auk þeirra eru nokkrir nemendur
frá öðrum löndum, svo sem Tékk-
landi og Þýskalandi. „Þetta verður
því nokkuð fjölþjóðlegt,“ segir
Gústav.
Koma þátttökuskólanna er
styrkt af Menningarráði Eyþings,
Slippfélaginu, Húsasmiðjunni,
Ásprenti, CCPgames, Bústólpa,
Hörgársveit, Fjallabyggð, Rauðku
ehf., Síldarminjasafni Íslands,
Svörtu kríunni og Fiskbúð Siglu-
fjarðar. Einnig tekur Herhúsið á
Siglufirði á móti þátttakendum.
Ólík tjáningarform
,,Þó að það sé viss undirliggjandi
hugmynd um hvernig þau eiga að
leita forma og leiða í listsköpun-
inni, verður tjáningarformið mjög
ólíkt enda koma þátttakendur úr
ólíkum áttum. Þau munu þannig
mála, búa til myndbönd, sýna
gjörninga og margt fleira,“ segir
Gústav spurður um hvers konar
verk muni verða á sýningunni og
bætir við að verkin verði eflaust
falleg og margvísleg.
Hann bendir á að verkin verði
flest til í því umhverfi sem þau eru
sýnd í. Einhverjir listamenn muni
búa til verk úr endurvinnanlegu
efni en þeim séu einnig veittir ein-
hverjir fjármunir til að kaupa efni
til að vinna úr. „Mest eru unnið út
frá aðstæðum á sýningarstaðnum.
Margir eru líka að mynda og gera
kvikmyndir, sem eru teknar upp á
staðnum.“ brynja@mbl.is
Sameiginleg sköpun
listamanna og nema
Delta Total opnað á þremur stöðum í dag á Norðurlandi
Herhúsið Franski listamaðurinn David Artoud fyrir framan Herhúsið á
Siglufirði. Hann er einnig þátttakandi á Delta Total í ár.
Gústav Geir
Bollason
Í dag og á morgun
heldur Sinfóníu-
hljómsveit Íslands
bíótónleika í Eld-
borg í Hörpu. Þar
verður kvikmynd
Chaplins Nútíminn
sýnd á stóru tjaldi
og sveitin flytur
tónlistina undir
stjórn Franks
Strobels.
Í dag, föstudag, hefjast bíó-
tónleikarnir kl. 19.30 en á morgun
verður boðið upp á þrjúbíó.
Nútíminn sem er frá árinu 1936 er
talinn til helstu afreka Chaplins og
eitt af vinsælustu verkum hans.
Chaplin kemur þar fram sem færi-
bandsþræll í stórri verksmiðju en
kemur við á sjúkrahúsi og í tukthúsi.
Chaplin-tón-
leikar Sinfó
Charlie Chaplin
Kínverskir tónlistarmenn leika um
helgina á ævaforn kínversk hljóð-
færi á tvennum tónleikum sem bera
heitið Ómur sálarinnar.
Fyrri tónleikarnir verða haldnir í
Hofi á Akureyri í kvöld, föstudags-
kvöldið 8. maí, kl. 20-22 en þeir
seinni í Iðnó á sunnudaginn, 10.
maí, kl. 20-22. Aðgangur er ókeypis
á hvora tveggja tónleikana.
Deng Hong leikur á qin, fornt
strengjahljóðfæri, og Chen Sasha
leikur á kínverska flautu, xiao. Í
rúmlega 2.000 ár var qin algeng-
asta strengjahljóðfærið á meðal
menntamanna kínversku yfirstétt-
arinnar. Xiao varð hins vegar til
löngu áður en ritaðar heimildir
urðu til. Blástursopið vísar í áttina
frá flautuleikaranum sem myndar
tón á svipaðan hátt og þegar blásið
er í flösku. Á tónleikunum verður
Cecilia Lindqvist, sænskur rithöf-
undur og Kínafræðingur, í hlut-
verki sögumanns sem leiðir hlust-
andann um veröld tónlistarinnar
með fræðslu um tónskáldin og upp-
runa verkanna. Sjálf lærði hún á
qin þegar hún stundaði nám við
Pekingháskóla árið 1961 og bók
hennar um hljóðfærið hlaut Aug-
ust-verðlaunin árið 2006.
Kínatónar í Hofi og Iðnó
Tónlistarkonan Chen Shasha leikur á qin.
Þá verða haldnir galatónlelikar á
sama stað, kl. 20 á sunnudaginn,
þar sem nemendur sem sækja há-
tíðina geta komið fram.
Einnig munu listamenn hátíð-
arinnar líta inn í lokasyrpu hennar.
Auk tónleikahalds verður boðið
upp á námskeið í samstarfi við
Listaháskóla Íslands og munu Vér-
onique van Duurling, Harold Gret-
ton, Ögmundur Þór Jóhannesson
og Tal Hurwitz bjóða upp á nám-
skeið.
Ögmundur Þór Jóhannesson og
Svanur Vilbergsson eru listrænir
stjórnendur hátíðarinnar.
Miðar á hátíðina verða seldir við
innganginn og er miðaverð 2.500
kr.
Gítarhátíðin Midnight Sun Guitar
Festival hefst í dag, 8. maí, og
stendur fram á sunnudagskvöld en
hún er nú haldin þriðja árið í röð.
Fyrstu tónleikar hátíðarinnar
fara fram í kvöld í Sölvhóli,
Listaháskóla Íslands, kl. 20 en þar
leikur Tal Hurwitz frá Ísrael ásamt
Ögmundi Þór Jóhannessyni.
Á morgun, laugardaginn 9. maí,
mun dúóið Duo Amythis, sem sam-
anstendur af Véronique van Duurl-
ing frá Belgíu og Harold Gretton
frá Ástralíu, halda tónleika á sama
stað, Sölvhóli í Listaháskóla Ís-
lands, kl. 20.
Duo Amythis var stofnað árið
2008 og hefur komið fram í fjöl-
mörgum löndum.
Gítarhátíð miðnætur-
sólarinnar hefst í dag
Duo Amythis Dúettinn kemur fram
á hátíðinni en hann hefur spilað víða.
Billy Elliot (Stóra sviðið)
Fös 8/5 kl. 19:00 Mið 20/5 kl. 19:00 Sun 31/5 kl. 19:00
Lau 9/5 kl. 19:00 Fim 21/5 kl. 19:00 Mið 3/6 kl. 19:00
Sun 10/5 kl. 19:00 Fös 22/5 kl. 19:00 Fim 4/6 kl. 19:00
Mið 13/5 kl. 19:00 Mán 25/5 kl. 13:00 Ath kl
13
Fös 5/6 kl. 19:00
Fim 14/5 kl. 19:00 Mið 27/5 kl. 19:00 Lau 6/6 kl. 19:00
Fös 15/5 kl. 19:00 Fös 29/5 kl. 19:00 Sun 7/6 kl. 19:00
Sun 17/5 kl. 19:00 Lau 30/5 kl. 19:00 Mið 10/6 kl. 19:00
Fjölskyldusýning í hæsta gæðaflokki - ósóttar pantanir seldar daglega
Lína langsokkur (Stóra sviðið)
Sun 10/5 kl. 13:00 Sun 17/5 kl. 13:00
Síðustu sýningar leikársins
Er ekki nóg að elska? (Nýja sviðið)
Fös 8/5 kl. 20:00 19.k Mið 13/5 kl. 20:00 22.k. Fös 22/5 kl. 20:00
Lau 9/5 kl. 20:00 20.k. Fim 14/5 kl. 20:00 23.k. Fim 28/5 kl. 20:00
Sun 10/5 kl. 20:00 21.k Fös 15/5 kl. 20:00 aukas.
Þri 12/5 kl. 20:00 aukas. Fim 21/5 kl. 20:00
Nýtt verk eftir Birgi Sigurðsson höfund hins vinsæla leikrits Dagur vonar
Kenneth Máni (Litla sviðið)
Lau 16/5 kl. 20:00 Fös 29/5 kl. 20:00
Stærsti smáglæpamaður Íslands stelur senunni
Beint í æð (Stóra sviðið)
Lau 16/5 kl. 20:00
Síðasta sýning!
Peggy Pickit sér andlit guðs (Litla sviðið)
Lau 9/5 kl. 20:00 Sun 17/5 kl. 20:00 Fös 22/5 kl. 20:00
Sun 10/5 kl. 20:00 Fim 21/5 kl. 20:00 Lau 30/5 kl. 20:00
Urrandi fersk háðsádeila frá einu umtalaðasta leikskáldi Evrópu
Hystory (Litla sviðið)
Fös 8/5 kl. 20:00 auka. Fös 15/5 kl. 20:00 Sun 31/5 kl. 20:00 auka.
Fim 14/5 kl. 20:00 Mið 20/5 kl. 20:00 auka.
Nýtt íslenskt verk eftir Kristínu Eiríksdóttur
Blæði (Stóra sviðið)
Þri 19/5 kl. 20:00 Mán 25/5 kl. 20:00 Fim 28/5 kl. 20:00
Aðeins þessar þrjár sýningar
Billy Elliot –★★★★★ , S.J. Fbl.
leikhusid.is
FJALLA-EYVINDUR OG HALLA – ★★★★ – SV, MBL
HVERFISGATA 19551 1200 LEIKHUSID.IS MIDASALA@LEIKHUSID.IS
Fjalla - Eyvindur og Halla (Stóra sviðið)
Lau 9/5 kl. 19:30 14.sýn Fim 21/5 kl. 19:30 15.sýn
Allra síðustu sýningar.
Kuggur og leikhúsvélin (Kúlan)
Sun 10/5 kl. 13:30 lokas.
Síðasta sýning.
Svartar fjaðrir (Stóra sviðið)
Mið 13/5 kl. 19:30 Frums. Mið 20/5 kl. 19:30 3.sýn Sun 31/5 kl. 19:30 6.sýn
Fös 15/5 kl. 19:30 2.sýn Lau 30/5 kl. 19:30 5.sýn
Leitin að Jörundi (Þjóðleikhúskjallarinn)
Sun 10/5 kl. 20:00 Sun 17/5 kl. 20:00
Sápuópera um hundadagakonung
Tjarnargötu 12 | 101 Reykjavík | sími 527 2100 | tjarnarbio.is
Eldhúsið (Salurinn)
Lau 23/5 kl. 14:00
Síðbúin rannsókn (Aðalsalur)
Þri 12/5 kl. 20:00 Fös 15/5 kl. 20:00
Both Sitting Duet og Body Not Fit For Purpose (Salurinn)
Lau 30/5 kl. 20:00
The Border (Salurinn)
Mán 18/5 kl. 20:00 Þri 19/5 kl. 20:00
Endatafl (Salurinn)
Fös 8/5 kl. 20:00 Sun 17/5 kl. 20:00 Fös 29/5 kl. 20:00
Fim 14/5 kl. 20:00 Sun 24/5 kl. 20:00
Lau 16/5 kl. 20:00 Fim 28/5 kl. 20:00
Hávamál (Salurinn)
Mið 27/5 kl. 20:00 Sun 31/5 kl. 16:00 Sun 31/5 kl. 20:00