Morgunblaðið - Sunnudagur - 03.05.2015, Qupperneq 39
3.5. 2015 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 39
Vísindin efla alla dáð,
orkuna styrkja, viljann hvessa,
vonina glæða, hugann hressa...
Jónas Hallgrímsson
Tölvuleikjaframleiðandinn Glu Mo-
bile hefur gert samkomulag við
poppsöngkonuna Britney Spears
um útgáfu á tölvuleik sem byggist á
lífi hennar. Glu Mobile rennir ekki
alveg blint í sjóinn í þessu efni en
fyrirtækið hefur hagnast um 100
milljónir bandaríkjadala á leik sem
byggist á lífi annars frægðarfljóðs,
Kim Kardashian. Ekki er komið
nafn á leikinn, sem kemur á markað
snemma á næsta ári, en mögulega
verður það Úps, getið þið gert það
aftur?
Um er að ræða samning til átta
ára og Glu Mobile heitir því að þeir
sem spila leikinn geti upplifað allt
sem afþreyðingarbransinn hefur
upp á að bjóða, glans og glamúr.
Áhersla verður á fyrstu ár Spears í
sviðsljósinu, þegar hún var ein vin-
sælasta poppsöngkona í heimi, og
endurkomuna í Las Vegas. Minna
verður gælt við árin þar á milli þeg-
ar Spears vegnaði ekki alveg eins
vel.
„Britney Spears hefur notið vel-
gengni í meira en áratug. Hún nýtur
vinsælda um víðan völl, ekki bara á
Vesturlöndum heldur ekki síður á
mörkuðum sem eru í örri þróun,“
segir framkvæmdastjóri Glu Mo-
bile, Niccolo de Masi. „Við munum
nota samstarfið við hana til að fá
nýtt fólk að leikjaborðinu. Fólk sem
ekki hefur spilað tölvuleiki áður. “
Tölvuleikur byggður á lífi Britney Spears
Poppsöngkonan Britney Spears hefur lifað viðurburðaríkara lífi en við flest.
Reuters
Hvert snúa læknar sér þegar þeir
hafa ekki hugmynd um hvað amar
að þér? Leita þeir til kollega, blaða í
skræðum eða gramsa á netinu?
Kanadískt hugbúnaðarfyrirtæki
vill nú létta þeim róðurinn enn
frekar með því að setja á markað
Instagram fyrir lækna sem búa að
iPhone- og Android-símum. Þannig
geta þeir deilt myndum af áverkum
eða sjúkdómseinkennum og mögu-
lega komist fyrr að niðurstöðu.
Öllum til heilla. Auðveldlega má
tengja menn saman milli heims-
horna.
Skilvirk og örugg leið
Dr. Joshua Landy, einn höfunda
appsins sem kallast Figure 1, segir
lækna nú þegar deila myndum í
þúsundavís í Bandaríkjunum gegn-
um smáskilaboð eða tölvupóst.
Instagram sé á hinn bóginn mun
skilvirkari og öruggari leið.
„Langt er síðan læknisfræðin tók
samskiptatæknina í sína þjónustu,
má þar nefna boðtæki og síma. Nú
viljum við hjálpa læknum að deila
myndum. Þannig getum við auð-
veldlega fengið álit fleiri lækna á
sama málinu en um leið tryggt ör-
yggi og aukið þekkingu,“ segir
Landy.
Hann segir öryggisþáttinn mjög
mikilvægan og tryggt verði að að-
eins heilbrigðisstarfsmenn hafi að-
gang að appinu, það er læknar og
hjúkrunarfræðingar.
Appið virkar þannig að fljótlega
eftir að mynd hefur verið send fara
viðbrögð sérfræðinga að berast.
Læknar geta síðan rætt greininguna
betur sín á milli við aðra lækna sem
eru staðfestir notendur appsins.
Instagram hjálpar við sjúkdómsgreiningar
AFP
Áhugi á Apple-úrinu lofar góðu en
úrið er væntanlegt á markað í júní
þótt hægt sé að kaupa það nú þeg-
ar á netinu. Þó gæti eitt sett strik í
reikninginn, en púlsmælir tækisins
virðist ekki virka sé fólk með húð-
flúraðan handlegg og raunar er það
ekki í fyrsta skipti sem púlsmælar á
þess lags tólum og tækjum sem
hægt er að hafa á sér virka ekki.
Púlsmælar eru afar vinsælir, ekki
aðeins hjá hinum fjölmörgu sem
stunda hlaup og göngutúra heldur
er forvitið skrifstofufólk gjarnan
með slíka mæla. Í ljósi þess hversu
vinsælt húðflúr á framhandleggjum
er orðið þykja þetta heldur slæm
tíðindi. Púlsmælirinn virkar síður
eftir því sem húðflúrið er búið til
úr dekkri litum og þá eru jafnvel
áhöld um hvort hann virki því verr
sem eiginlegur húðlitur fólks er
dekkri.
Húðflúraðir
handleggir hafa
komið í veg
fyrir að púls-
mælar virki.
Húðflúr hindrar
virkni úrsins
Birt með fyrirvara um prentvillur og verðbreytingar.
*Tilboð gildir til 4. maí 2015 eða meðan birgðir endast.
iPhone 6Plus
16GB
Tilboðsverð
124.990.-*
Fullt verð: 139.990.-
Grár | Gull | Silfur