Morgunblaðið - Sunnudagur - 17.05.2015, Page 28
Sturla Sigurðsson er höfundur verksins „Og aftur hló mávur-
inn,“ sem fjallar um samfélagið, hvaðan það kom og hvert það sé að
fara. Sturla segir verkið, sem er videoverk varpað á vegg, einnig
vangaveltur um það hvað við gerum við samfélagið og okkar arfleið.
„Verkið er innblásið frá internetinu og net-
heimum,“ segir Sigurður Ýmir og segir hann
verkið tilraun með samspil milli leturs og mynda.
„Orðin sem ég vel eru svolítið ofnotuð og er ég
að gefa þeim nýjan vettvang. Þetta eru orð sem
að eiga svolítið heima á internetinu og mest not-
uð þar, enda er ég af þessari internet-kynslóð.“
Sigurður segir orðin jafnframt mikið notuð í
netspjalli og „kommentum,“ og myndirnar þótti
honum fara vel við orðin.
* Rúmlega 50 nemendur ísjónlistadeild sýndu verksem þeir hafa unnið að
undanfarnar vikur. Berglind Brá Jóhannsdóttir sýndi vatnslitaverk þar sem hún rýnir í umfjall-
anir um umhverfismál í fríblöðum sem dreift er um Reykjavík. Þar flokkar hún
efnistök dagblaðanna eftir litum og sýnir með appelsínugulum lit hvar umfjall-
anir og fréttir um umhverfismál er að finna í blöðunum.
Anna Andrea Winther vann rannsókn um það hvernig hag-
kerfið vinnur á móti umhverfinu. Verkið heitir verðmæti og snýst
um gerviverðmæti og gervigildi sem við erum búin að búa til í
samfélaginu s.s. peningar og þessi grunngildi. Síðan eru það alvöru
verðmætin sem að halda í okkur lífinu og snýst verkið um hvernig
þetta gervigildi hefur tekið yfir. „Við erum svolítið að eyðileggja
umhverfið með þessum gervigildum sem taka yfir og á endanum
eru það þau sem standa eftir í líflausum heimi.“ Í verkinu tákna gull,
silfur og brons grunnin af peningalegu gildi í bland við
náttúruperlur.
Úlfur Bragi Einarsson vann ákveðna rannsókn á umheiminum. „Ég komst að
því að ég gat búið til græju heima hjá mér til þess að skoða öreindir sem koma
úr geimnum. Mér finnst áhugavert að maður geti þvingað ósýnilegan raunveru-
leika inn í okkar raunveruleika. Ég tók það upp á vídeó og varpaði því síðan á
gólfið á svarta gifsplötu.“
Úlfur fékkst við mikla rannsóknarvinnu samhliða verkinu og las bók eftir Pál
Skúlason, Umhverfing. „Þar talar Páll um mismuninn á náttúru og umhverfi.
Náttúra er það sem hún býr til en umhverfi er manngert og það var það sem
ég gerði, umhverfi, til þess að skoða öreindir sem koma úr geimnum.“
Guðrún Sigurðardóttir vann með þyngdaraflið
í verki sínu. „Hugmyndin var sú að þyngdaraflið er
sá þáttur sem heldur okkur á jörðinni og birtist í
glímunni við efnið og þyngdaraflið. Innblástur af
efnisvalinu var efniviðurinn sem var á staðnum í
rýminu. Rafmgnsgrindur, vírar og fleira,“ segir
Guðrún og bætir við að meginbirtingarform verks-
ins er teikning í rými. „Í staðin fyrir að teikna á tví-
víðan hlut þá notaði ég efnið til að teikna þrívítt.“
28 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17.5. 2015
Heimili og hönnun
HÚSGAGNAHÖLLIN • Bí ldshöfða 20 • Reykjav ík • OPIÐ Virka daga 10-18, laugard . 11-17 og sunnud. 13-17
50
1965–2015
ÁRA
Vaxandi vöruúrval –
MIDSOMMER
25%
AFSLÁTTUR
MAÍ-TILBOÐ 25%AFSLÁTTUR
MIDSOMMER BORÐ
Sófaborð, hornborð, lampaborð o.fl.
Margar gerðir, há og lág, svört eða hvít.