Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.05.2015, Page 32
32 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24.5. 2015
Matur og drykkir
GÓMSÆTIR ÞJÓÐARRÉTTIR
Matur að hætti
sigurvegara
LÍKLEGUSTU SIGURLÖNDIN Í EUROVISION ÁRIÐ 2015 SAM-
KVÆMT VEÐBÖNKUM ERU SVÍÞJÓÐ, RÚSSLAND, ÍTALÍA OG
ÁSTRALÍA, Í ÞESSARI RÖÐ. AF TILEFNI ÞESSARAR MÖGULEGU
VELGENGNI VERÐA HÉR BIRTAR GÓÐAR OG GEGNAR UPP-
SKRIFTIR SEM ERU DÆMIGERÐAR FYRIR LÖNDIN FJÖGUR.
Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is
Pavlova með sítrónu-
kremi og berjum
Guy Sebastian er sá
fyrsti sem keppir
fyrir hönd Ástralíu.
ÁSTRALÍA
dl af sykri við. Breiðið úr mar-
engsinum á bökunarpappír (18-
24 eftir smekk). Bakið í 1 klst og
10 mín. Slökkvið á ofninum og
leyfið pavlovunni að kólna í ofn-
inum.
SÍTRÓNUKREM
3 eggjarauður
3/4 dl sykur
1 sítróna (nota börkinn af
heilli sítrónu og safann af
hálfri sítrónu)
Hrærið saman eggjarauðurnar,
sykurinn, sítrónubörkinn og saf-
ann í skál yfir vatnsbaði þangað til
blandan þykknar. Leyfið kreminu
að kólna áður en það er sett á
marengsbotninn
SAMSETNING
PAVLOVUNNAR
Marengs
sítrónukrem
2,5-3 dl rjómi
1 tsk vanillusykur
ber: jarðarber, hindber, vínber,
blæjuber (eða það sem mann
lystir)
Þrátt fyrir að það sé deilt um
hvort pavlova sé upprunnin í
Ástralíu eða á Nýja-Sjálandi
verður Ástralíu tileinkaður þessi
magnaði eftirréttur að þessu
sinni. Enda tilefni til; Ástralía tek-
ur þátt í Eurovision í fyrsta sinn.
Fulltrúi Ástralíu er Guy Sebast-
ian og er hann einn vinsælasti
tónlistarmaður landsins en hann
hefur selt yfir þrjár milljónir
platna. Guy fæddist í Malasíu en
fluttist með fjölskyldu sinni til
Ástralíu þegar hann var sex ára.
Hann byrjaði 14 ára gamall að
syngja.
Þetta er einstaklega góð útgáfa
af pavlovu með sítrónukremi en
uppskriftin er af vinotek.is. Það
er sniðugt að gera sítrónukrem
um leið og pavlovu, því þá fara
eggjarauðurnar ekki til spillis.
3 stórar eggjahvítur
2 dl sykur
1 tsk borðedik
Hitið ofninn í 130 gráður
Stífþeytið eggjahvítur, edik og
1 dl af sykri, bætið síðan öðrum
Ljósmynd/vinotek.is
Il Volo er magnað ítalskt tríó sem syngur einhvers
konar óperupopp. Meðlimir í því eru hjarta-
knúsararnir Piero Barone, Ignazio Boschetto og
Gianluca Ginoble. Þeir hafa ferðast um allan heim
og selt yfir milljón plötur og finnst áreiðanlega allt-
af gott að koma aftur til heimalandsins og fá bragð-
góðan ítalskan eftirrétt á borð við panna cotta.
Berglind Guðmundsdóttir höfundur mat-
arbloggsins Gulur, rauður, grænn & salt, grgs.is,
segir þennan panna cotta-eftirrétt vera sparilegan
og einfaldan og hvetur fólk til að prófa. Hægt er að
gera hann með góðum fyrirvara og vekur hann
ávallt mikla lukku.
500 ml rjómi
150 ml mjólk
100 g hvítt súkkulaði, brytjað niður
25 g sykur
4 matarlímsblöð, látin liggja í volgu vatni í 5
mín og vatnið síðan kreist frá
1 poki af blönduðum berjum, frosin
2-3 msk agave síróp
Hitið rjóma og mjólk í potti við meðalhita þar til
blandan fer næstum því að malla. Lækkið þá hitann
og hrærið súkkulaðinu og sykrinum saman við og
hrærið þar til það er leyst upp og blandast saman
við rjómann
Takið af hitanum og setjið matarlímsblöðin sam-
an við. Hærið þar til þau eru uppleyst. Geymið nú
þar til blandan hefur kólnað. Setjið þá í form og í
frysti. Gott er að nota sílíkonform eða láta plast-
filmu í önnur form þannig að það náist almennilega
úr. Geymið í frysti í amk. tvo tíma.
Hitið berin í potti og setjið agave-síróp saman
við. Hitið þar til berin eru farin að maukast. Takið
panna cotta úr formunum og látið á disk og berið
fram með berjasósunni.
Panna cotta með
hvítu súkkulaði
Strákarnir í óperu-
popptríóinu Il Volo.
ÍTALÍA
Ljósmynd/Gulur, rauður, grænn & salt
Sviðið er stórt og löndin mörg
sem reyna að syngja til sigurs
en þessi fjögur sem hér eru tal-
in upp hafa líkurnar með sér.