Morgunblaðið - Sunnudagur - 24.05.2015, Síða 52
52 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 24.5. 2015
staf sem aftur þýddi að flytti fólk
sig yfir sýslumörk varð bæði að til-
kynna um flutning á heimili til raf-
veitu, Pósts og síma og bifreiðaeft-
irlitsins. Fá jafnframt nýtt
sýslunúmer á bílinn og láta það
gamla af hendi. Það var mörgum
þung raun.
Svo kom að því að kerfinu þurfti
að breyta meðal annars vegna fjölg-
unar bíla í Reykjavík. Einnig var
fyrirkomulagi á skoðun bíla breytt.
Bifreiðaeftirlit ríkisins lagt niður og
verkefni þess færð til einkafyr-
irtækja. Eigi að síður var breyting á
umferðarlögum árið 1987, þar sem
fastnúmerakerfið var tekið upp, mál
sem kallaði á talsvert ströggl á Al-
þingi, kannski sakir þess að nokkr-
ir þeirra sem á þingi sátu voru
með tveggja og þriggja stafa
númer á bílum sínum sem á sinn
hátt var stöðutákn.
Reykvíkingar
lögðust á flautuna
Sparnaður og hagræði
var meðal röksemda fyr-
ir einkanúmerkerfinu
sem tók gildi 1. janúar
1989. Einföldun var
annað sjónarmiðið og
svo að landsbyggð-
arnúmer voru ekki alltaf
V
íða á vegum úti sjást
eftirhreytur birtingar-
myndir þess sem
stundum var kallað ís-
lenski aðallinn. „Ég
álít yður mikinn gæfumann að eiga
þetta bílnúmer,“ sagði forstjórinn
Ægir Ó. Ægis við Gunnar Hámund-
arson leigubílstjóra í leikritinu Del-
eríum búbónis eftir bræðurna Jónas
og Jón Múla Árnasyni sem var á
fjölunum fyrir hálfri öld eða svo.
Því nær sem núllinu
númer þitt er
Setning þessi endurspeglar tíðar-
anda og sýnir á margan hátt
tröppuganginn í mannvirðingarstiga
þjóðfélags sem er okkur löngu horf-
ið.
Með einföldun og öllum fyrir-
vörum var staðan samt sú að eftir
því sem talan var lægri, var fólk í
betri málum. Oft var bíl númer 1 í
hverju umdæmi í eigu sýslumanns
eða bæjarfógeta, en eftir það var
röðin tilviljanakenndari. Og þó:
„Veraldargengi þitt vaxandi fer / því
nær sem núllinu númer þitt er,“
ortu Múlabræður í söngleiknum
góða.
Gamla bílnúmerakerfið miðaðist
við sýsluskiptingu síns tíma. Hvert
lögsagnarumdæmi hafði sinn bók-
Gæfumaður
að eiga þetta
bílnúmer
Forystumenn áttu gjarnan lág bílnúmer. Steingrímur Her-
mannsson fer frá Geir Hallgrímssyni sem átti R - 32.
GAMLA BÍLNÚMERAKERFIÐ Á ÍSLANDI MIÐAÐIST VIÐ
SÝSLUMÖRK. ÞAÐ ÞÓTTI SÝNA GOTT VERALDARGENGI
MANNA HEFÐU ÞEIR SEM LÆGST NÚMER Á BÍLUM SÍNUM.
ÞAR FÓRU SÝSLUMENN FREMSTIR. UM 1.500 BÍLAR Á
GÖMLUM NÚMERAPLÖTUM ERU ENN ÚTI Á VEGUNUM.
Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is
R - Reykjavík
E - Akranes
M - Borgarfjörður
P - Snæfellsnes- og Hnappadalssýsla
D - Dalasýsla
B - Barðastrandarsýslur
Í - Ísafjarðarsýslur
T - Strandasýsla
H - Húnavatnssýslur
K - Skagafjörður
F - Siglufjörður
Ó - Ólafsfjörður
A - Akureyri
Þ - Þingeyjarsýslur
S - Norður-Múlasýsla
N - Neskaupstaður
U - Suður-Múlasýsla
Z - Skaftafellssýslur
V - Vestmannaeyjar
L - Rangárvallasýslur
X - Árnessýslur
G - Gullbringu- og Kjósarsýsla og
Hafnarfjörður
Ö - Keflavík
Y - Kópavogur
VL -Varnarliðið
Sýslur landsins höfðu
hver sinn bókstafinn
Saab austan úr Suður-Múlasýslu í skemmtiakstri Fornbílaklúbbsins á 17. júní.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Þingeyskur Mercedes Benz við kaupfélagið í Varmahlíð í Skagafirði.
Stífbónaður eðalbíll frá Akureyri og að sjálfsögðu á gömlum númerum.
Ómar Ragnarsson á
rúntar með barnabörnin
á númeragóðum Fiat.