Morgunblaðið - Sunnudagur - 31.05.2015, Qupperneq 14
14 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 31.5. 2015
F
ranska þingið samþykkti samhljóða
hinn 21. maí síðastliðinn lög sem
skylda stórmarkaði til að gefa
óseldan en ætan mat til hjálp-
arsamtaka eða nota í dýrafóður.
Nýju lögin banna stórmörkuðum að vilj-
andi spilla óseldum mat þannig að ekki sé
hægt að borða hann. Stærri verslanir, þ.e.
yfir 400 fermetrar að stærð, munu þurfa að
gera formlega samninga við hjálparsamtök
fyrir júlí 2016 en greiða allt að 11,34 millj-
ónir króna í sektir eða eyða allt að tveimur
árum í fangelsi ella.
Markmið frönsku ríkisstjórnarinnar er að
minnka matarsóun um helming fyrir árið
2025. Umrædd lög eru hluti af víðtækari að-
gerðum franskra stjórnvalda til þess að ná
þessu markmiði. Talið er að meðal-Frakkinn
fleygi 20-30 kílóum af mat árlega en mat-
arsóun kostar frönsku þjóðina hátt í 300
milljarða króna árlega, eftir því sem kemur
fram í frétt The Guardian um málið. Lögin
gera líka ráð fyrir fræðslu um matarsóun í
skólum og fyrirtækjum. Þá verða engar
„best fyrir“-dagsetningar á ferskum mat-
vörum frá og með febrúar 2016.
Samtök verslunar og dreifingar í Frakk-
landi, sem sinna hagsmunagæslu fyrir eig-
endur stórmarkaða þar í landi, eru ósátt við
lögin. Bent er á að stórverslanir séu á bak
við aðeins 5% matarsóunar í landinu og
margar þeirra hafi nú þegar gert samninga
við góðgerðarsamtök um matargjafir.
Ráðuneytið styrkir um 1,8 milljón
Ekki hefur verið gengið svo langt á Íslandi
að skylda verslanir til þess að gefa hjálp-
arsamtökum gamlan eða útrunninn mat.
Hins vegar ákvað umhverfis- og auðlind-
aráðherra sl. föstudag að að ráðuneytið
skyldi verja 1,8 milljónum króna til að gera
nokkrar af tillögum starfshóps um mat-
arsóun að veruleika. Starfshópurinn, sem var
skipaður af ráðherra haustið 2014, skilaði af
sér þrettán tillögum í apríl síðastliðnum um
hvernig mætti draga úr sóun matvæla. Þær
tillögur sem ráðuneytið styrkir varða m.a.
fræðslu um geymsluþolsmerkingar matvæla
og geymsluaðferðir matvæla, undirbúning
vefsíðu með upplýsingum um matarsóun og
framkvæmd spurningarkönnunar um mat-
arsóun. Ingveldur Sæmundsdóttir, aðstoð-
armaður ráðherra, segir að þó svo að ekki
hafi verið ákveðið að styrkja allar tillögur
hópsins séu sum hver í undirbúningi. Því
verði flest verkefnin að veruleika.
Má gefa mat samkvæmt lögum
Til að koma í veg fyrir að ætum mat sé hent
selja nú fjölmargar verslanir mat á síðasta
söludegi með góðum afslætti og einhverjar
þeirra gefa hjálparsamtökum slíkar mat-
vörur.
Samkvæmt 10. gr. reglugerðar um miðlun
upplýsinga um matvæli til neytenda ber selj-
andi ábyrgð á því að matvæli, sem seld eru
þegar þau eru komin fram yfir dagsetningu
lágmarksgeymsluþols, séu neysluhæf.
Að sögn Eggerts Ólafssonar í atvinnu- og
nýsköpunarráðuneytinu að ekki bæri að
skilja orðalagið of bókstaflega. Greinin kæmi
ekki í veg fyrir að matvæli, sem komin eru
fram yfir dagsetningu lágmarksgeymsluþols,
séu gefin. Þó skuli ekki gefa matvæli sem
ekki eru örugg, þ.e. heilsuspillandi eða óhæf
til neyslu.
Engin skilgreining í lögum
Matvæla- og landbúnaðarstofnun Sameinuðu
þjóðanna (FAO) áætlar að þriðjungur mat-
vælaframleiðslu, eða um 1,3 milljarðar tonna
matvæla, fari til spillis. Líkur eru til þess að
matarsóun sé líka stórt vandamál á Íslandi
en ekki eru til nákvæmar tölur yfir hlutfallið
hér á landi.
Í nýlegu svari umhverfis- og auðlinda-
ráðherra við fyrirspurn Brynhildar Péturs-
dóttur þingmanns kemur fram að matarsóun
hafi ekki verið skilgreind sérstaklega hér á
landi í lögum eða reglugerðum. Almennt
megi segja að matvæli fari forgörðum af
ýmsum ástæðum í virðiskeðjunni, allt frá
frumframleiðslu til fullbúinna afurða, þ.m.t.
öll rýrnun framleiðslu til manneldis frá
frumframleiðslu til neytenda. Bent er á að
sóun matvæla samkvæmt FAO vísi til þess
hluta matarsóunar sem nýta hefði mátt til
manneldis.
Engar tölur yfir sóun hér
Þá segir einnig í svari ráðherra að ekki séu
til áreiðanlegar tölur um umfang matar-
sóunar hér á landi. Hins vegar hafi Sorpa
bs. kannað innihald blandaðs heimilisúrgangs
í tunnum við heimili á höfuðborgarsvæðinu.
Könnun frá nóvember 2014 sýni að flokk-
urinn „lífrænn niðurbrjótanlegur eldhús-
úrgangur“ sé um 40% innihaldsins og flokk-
urinn „annar lífrænt niðurbrjótanlegur
úrgangur“ sé um 5%. Á árinu 2014 söfnuðust
um 30.000 tonn af þessum tveimur úrgangs-
flokkum frá 84.000 heimilum með tæplega
209.000 íbúum á höfuðborgarsvæðinu, eða
sem nemur um 65 kg á íbúa. FAO áætlar
hins vegar að hver íbúi í Evrópu og Banda-
ríkjunum hendi 95-115 kílóum af mat á
hverju ári.
Þá er vísað til norskrar skýrslu frá árinu
2013 þar sem fram kemur að heildarumfang
sóunar sé alls 361.000 tonn. Þar af sé
231.000 tonna matarsóun hjá neytendum eða
um 64%, 68.000 tonn í verslunum (19%),
60.000 tonn í matvælaframleiðslu (16,6%) og
2.000 tonn hjá heildsölum (0,6%).
Fyrsta íslenska rannsóknin
Landvernd vinnur nú að forrannsókn á mat-
arsóun með stuðningi Reykjavíkurborgar en
um er að ræða fyrstu rannsókn á matarsóun
á Íslandi. „Við erum með tvo starfsnema úr
umhverfis- og auðlindafræði við HÍ sem
vinna að þessu en við eigum von á niður-
stöðum í júní,“ segir Rannveig Magnúsdóttir
hjá Landvernd og bætir við að heimasíðan
matarsoun.is haldi utan um öll þessi matar-
sóunarverkefni og verði m.a. notuð til að
birta niðurstöðurnar.
Hún bendir á, að matarsóun snúi aðeins að
mat sem hefði mátt nýta en er hent. Þar af
leiðandi séu úrgangsrannsóknir Sorpu að
vissu leyti ónákvæmar en þar sé ekki gerður
greinarmunur á bananahýði og beinum og
raunverulegum matarleifum. „Við erum ekki
með neinar tölur um matarsóun á Íslandi en
það breytist þegar niðurstöðurnar koma.“
Þarf hugarfarsbreytingu
Hún segir frábært ef frönsku lögin yrðu tek-
in upp á Íslandi. Hins vegar séu verslanir
hér farnar að gefa matarsóun meiri gaum en
áður. „En betur má ef duga skal. Samtal
skortir á milli verslana og birgja um þessi
mál.“
Þá bendir hún á, að svokallaðir matar-
bankar geti haft töluverða kosti. Þá geti
verslanir og birgjar t.d. gefið matarbönk-
unum mat, sem tæpur sé á dagsetningum, í
stað þess að greiða fyrir flutning og urðun
matvæla. Annað fyrirkomulag leiði til þess
að umframframleiðsla smitist út í verðlagið.
„Okkur langar að stækka verkefnið og
fara í herferð á hótel og veitingahús og fleiri
vígstöðvar. Þetta er gífurlega stórt verkefni
að glíma við og við þurfum nauðsynlega á
hugarfarsbreytingu að halda,“ segir Rann-
veig.
Kjöt og fiskur gefa mat
Ýmsar verslanir og birgjar hafa tekið
þennan boðskap til sín á undanförnum árum
og gripið til margvíslegra aðgerða.
Eigendur verslunarinnar Kjöts og fisks
við Bergstaðastræti vöktu athygli í apríl
síðastliðnum þegar þeir hófu að gefa mat
sem annars yrði hent. Vörur sem komnar
eru á síðasta söludag og aðeins þreyttar
ferskvörur liggja frammi í körfu og geta
viðskiptavinir tekið þær með sér án þess
að greiða fyrir þær. Pavel Ermolinskij,
verslunarstjóri Kjöts og fisks, sagði í sam-
tali við Sunnudagsblaðið að viðbrögðin
Oft er mat hent þó svo að
hann sé fyllilega ætur ennþá.
Selja, gefa
eða henda
matnum?
ÁÆTLAÐ AÐ ÞRIÐJUNGUR FRAMLEIDDS MATAR ENDI Í RUSLINU. UM-
HVERFIS- OG AUÐLINDARÁÐHERRA FÓL STARFSHÓP AÐ MÓTA TILLÖGUR
TIL AÐ VINNA GEGN MATARSÓUN EN RÁÐUNEYTIÐ MUN VERJA 1,8
MILLJÓNUM TIL AÐ HRINDA NOKKRUM AF TILLÖGUNUM Í FRAMKVÆMD.
Brynja Björg Halldórsdóttir brynja@mbl.is
Matarsóun
Matarsóun í heiminum
30% af
kornmeti sem
ræktað er
enda í ruslinu
45% af ávöxtum og græn-
meti sem vex í
veröldinni endar
á haugunum
20% af fram-
leiddum
mjólkurvörum
fara í ruslið
Alls enda 20% af
öllu kjöti í
ruslinu
35% fisks og sjávar-
afurða er
hent
Heimild: Food & Agriculture Organization
of the United Nations.
Um 1/3 matar sem framleiddur er til
manneldis endar í ruslinu
1,4 milljörðum tonna af mat er hent
á hverju ári
Meðalneytandi í Evrópu og Bandaríkju-
num sóar 95-115 kílóum af mat árlega
Í iðnríkjum er sóunin
mest hjá neytendum, í
þróunarlöndum er
hún í sjálfu fram-
leiðsluferlinu