Morgunblaðið - Sunnudagur - 31.05.2015, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - Sunnudagur - 31.05.2015, Blaðsíða 17
ert hverjar viðtökurnar yrðu þeg- ar hann lagði af stað með átakið. Ævar hrærði vel og lengi í lestr- armiðasúpunni og dró upp tvær stelpur og þrjá stráka sem voru frá Kópavogi, Reykjavík, Hafn- arfirði, Egilsstöðum og Húsavík. Þessi fimm fengu að vera sögu- hetjur í bókunum. Strák breytt í grameðlu „Fjórir af sigurvegurum lestrar- átaksins eru krakkar í bókinni, en svo valdi ég eitt barn af handahófi sem fékk að vera gra- meðla. Það er sem sagt strákur frá Egilsstöðum sem fær að háma í sig mann og annan í bók- inni, sem er að sjálfsögðu ekki amalegt. Svo eiga allir sitt hetjumóment, meira að segja gra- meðlan.“ Ævari er annt um að auka lestur barna en segir að það megi ekki bara hamra á þeim skilaboðum að börn lesi ekki. „Minnkandi lestraráhugi barna er mikið og stórt vandamál og að sjálfsögðu þarf að ræða það, en ef þú ert barn og heyrir ekkert annað en að krakkar vilji ekki lesa getur það varla verið mjög hvetjandi,“ segir hann og vill senda jákvæðari skilaboð til krakkanna enda lesa mörg börn greinilega mikið eins og lestr- arátakið sannar. „Það þarf að finna einhverja gulrót til að gera lesturinn girni- legan. Það er erfitt að keppa við farsíma sem allt er inni á; krakk- arnir eru með allan heiminn í vasanum.“ Á hinn bóginn er góð bók heill heimur út af fyrir sig. „Al- gjörlega og við þurfum að minna á það,“ segir hann og lestrarátak er ein leið til þess. Átakið var einkaframtak og fékk Ævar vini, kunningja, fé- lagasamtök og nokkur fyrirtæki í lið með sér. „Ég innkallaði alla greiða sem ég átti og er svo bú- inn að koma frítt fram í þónokkr- um barnaafmælum síðan þá til að borga hinum til baka,“ grínast hann. „Það eru eitthvað um 180 skól- ar á landinu og um 130 tóku þátt,“ segir Ævar sem er ánægð- ur með þátttökuna og útskýrir að bókasafnsfræðingar og kennarar um allt land hafi haldið átakinu lifandi og að þeir eigi „stóran hlut í þessari mögnuðu tölu af lesnum bókum. Ég geri það sem ég get gert en það þarf að halda þessu að krökkunum og þar unnu starfsmenn grunnskólanna ómet- anlegt starf.“ Framhaldssaga, annað lestr- arátak og nýr útvarpsþáttur Hann ætlar að standa fyrir öðru lestrarátaki sem hefst 1. janúar 2016 og tilkynnir það í bókinni. „Ég ákvað að láta það standa aft- ast í bókinni að von væri á nýju átaki á næsta ári svo ég gæti ekki hætt við það,“ segir Ævar sem seinkar átakinu á skólaárinu til þess að það skarist ekki á við svipuð verkefni og verður það styttra í þetta skiptið, ekki í fjóra mánuði heldur tvo. „Ef þetta fer eins og planið er verða verðlaunin af svipuðum toga nema bókin verður ekki um risaeðlur heldur verður annað þema sem verður gefið upp síð- ar.“ Honum fannst hann verða að endurtaka leikinn fyrst þetta gekk svona vel. „Ég er þessa dagana að sækja um styrki fyrir átakinu, svo maður sé ekki að borga þetta úr eigin vasa. Viðtök- urnar verða vonandi góðar.“ Þá situr Ævar ekki auðum höndum, heldur er hann strax byrjaður á næstu bók. Sú er framhald af hinni geysivinsælu Þinni eigin þjóðsögu, sem Ævar gaf út fyrir síðustu jól. ,,Ég byrj- aði að skrifa hana daginn eftir að ég skilaði handritinu að risaeðl- unum,“ segir Ævar. Þá byrjar hann sömuleiðis með vikulega út- varpsþætti fyrir börn á Rás 1 frá og með næsta miðvikudegi, sem heita Vísindavarp Ævars. Fyrir þá sem vilja vita meira um það sem Ævar er að gera má benda á heimasíðurnar www.visindamadur.is og www.aevarthor.com. 31.5. 2015 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17 Myndlistarmaðurinn Guðrún Benónýsdóttir leiðir listsmiðju í tengslum við sýn- inguna Birting sem stendur nú yfir í Gerðarsafni. Í smiðjunni búa þátttakendur til eig- in bók og kynnast möguleikum bókverksins með því að bretta saman pappír, teikna, lita og sauma. Listsmiðjan hefst kl. 15 á laugardag og tekur um klukkustund. Listsmiðja í Gerðarsafni* Þegar ég lék í Star Wars leið mér einsog rúsínu í risastóru ávaxtasalati. Mark Hamill Rakel Garðarsdóttir, Vest- urportskona og talsmaður samtakanna Vakandi, sem vilja vitundarvakningu um sóun matvæla, svarar spurningum um eftirlæti fjölskyldunnar þessa vik- una. Eiginmaður hennar er Björn Hlynur Haralds- son leikari og leikstjóri. Börnin tvö eru 12 og 14 ára og á heimilinu búa ennfremur tvær kisur. Þátturinn sem allir geta horft á? Fortitude, Simpsons og allir ís- lenskir þættir. Maturinn sem er í uppáhaldi hjá öllum? Melabúðarkjúlli og franskar. Skemmtilegast að gera saman? Spila, ferðast og bara al- menn samvera. Borðið þið morgunmat saman? Allavega um helgar … Hvað gerið þið saman heima ykkur til dægrastyttingar? Við spilum, tölum saman, erum í garðinum, leikum við kisurnar, horfum á kvikmyndir og sjónvarp og svo margt annað. EFTIRLÆTI FJÖLSKYLDUNNAR Rakel Garðarsdóttir Melabúðarkjúlli og íslenskir þættirDyslexie er leturgerð sem auð-veldar lesblindum að lesa texta. Höfundur þess er grafíski hönn- uðurinn Christian Boer frá Hol- landi. Hann er sjálfur lesblindur og þróaði hann stafina fyrir sjálfan sig í fyrstu. Leturgerðin læknar ekki lesblindu heldur er hún hjálp- artæki. Hugmyndin á bak við Dyslexie er að gera stafina ólíkari en þeir eru í öðrum leturgerðum. Í okkar latneska stafrófi eru svo margir stafir líkir sem er erfitt fyrir les- blinda. Stafirnir hjá Boer eru hins vegar þeirrar gerðar að stafir sem hægt er að spegla eins og d og b eru ekki lengur spegilmynd því hann breytir þeim á þann hátt að þeir séu misþykkir. „Þegar lesblint fólk les speglar það og skiptir ómeðvitað á stöf- um. Hefðbundnar leturgerðir ýta undir þetta því hönnun eins stafs byggist á öðrum og skapar þannig „tvíburastafi“ sem auðveldara er að rugla saman,“ sagði Boer við dagblaðið Guardian. Hann gerir stafina „rassþunga“ þannig að þeir sígi í átt að línunni sem gerir það að verkum að ólík- legra er að lesblindur einstakl- ingur snúi honum á hvolf. Til viðbótar eru hástafir í byrjun setningar og punktar feitletraðir sem gerir það auðveldara að átta sig á því hvar setningin byrjar og endar. Boer þróaði leturgerðina í loka- verkefni sínu frá Listaháskólanum í Utrecht árið 2008 en síðan þá er búið að rannsaka hana betur í Há- skólanum í Amsterdam og Há- skólanum í Twente. Þessar rannsóknir leiddu í ljós að 84% gátu lesið hraðar með Dyslexie en hefðbundinni let- urgerð og 77% gerðu færri mis- tök. Leturgerðin var kynnt í TED- tali árið 2011 og frá þeim tíma hafa komið til sögunnar aðrar let- urgerðir fyrir lesblinda eins og OpenDyslexic og Spellex DysLex. Leturgerð fyrir lesblinda Leturgerðin Dyslexie er fyrir lesblinda. Grant Thompson sem heldur úti YouTube-rásinni The King of Ran- dom setti í vikunni inn sérlega skemmtilegt myndband um hvernig hægt sé að gera heimagert legó- nammi. Innihaldsefnin eru jello, sír- óp og gelatín og til viðbótar þarf að eiga sílikon-legómót sem til dæmis eru ætluð fyrir klaka. Myndbandið er með mjög góðum leiðbeiningum. Hægt er að sjá öll myndbönd Thompson á thekingofrandom.com. FYRIR BARNAAFMÆLIÐ Heimagert legóhlaup Thompson bjó til nammi í mörgum litum. Hægt er að byggja úr því. ÁLÞAKRENNUR Viðhaldslitlar Þegar hús eru klædd með „viðhaldsfrírri“ klæðningu er nauðsynlegt að nota „viðhaldsfríar“ þakrennur Rennurnar frá Grövík Verk í Noregi eru gerðar úr 0.9 mm áli og tærast ekki, ryðga né brotna. Fyrsta rennan var framleidd árið 1956 og er enn í notkun. Litir til á lager: Svartar, hvítar, gráar, rauðbrúnar og ólitaðar. Seljum einnig varmaskiptasamstæður, loftræstistokka og tengistykki. Smiðjuvegi 4C Box 281 202 Kópavogur Sími 587 2202 Fax 587 2203 hagblikk@hagblikk.is www.hagblikk.is HAGBLIKK ehf.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.