Fréttablaðið


Fréttablaðið - 04.04.2015, Qupperneq 20

Fréttablaðið - 04.04.2015, Qupperneq 20
4. apríl 2015 LAUGARDAGUR| HELGIN | 20 Við fáum þó nokkuð af fyrirspurnum og pöntunum með sér-óskum. Það er róm-antík í þessu, sett ástarbréf og jafn- vel trúlofunarhringar. Við erum með eitt svoleiðis egg í ár. Svo eru sum eggin skreytt með skilaboðum til ástvina, til dæmis „Til bestu mömmu í heimi“, þetta er að færast í aukana,“ segir Hafliði sem hefur undanfarnar vikur unnið myrkranna á milli við súkkulaðieggjaframleiðslu. „Það er til dæmis einn lítill strákur hérna hjá mér núna sem er með mjólkur- og glútenóþol. Hann kemur með nammi sem hann má borða og við setjum það í egg sem er búið til úr hreinu súkkulaði.“ Undanfarin ár hefur land- inn fengið aukinn áhuga á öðru súkkulaði en ljósu, sykursætu mjólkursúkkul- aði. „Mjólkursúkkulaðið er alltaf vinsælt en ég sérvel það frá Belgíu og svo er ég með karmelíserað hvítt súkk- ulaði sem er mjög vinsælt. Annars er dökka súkkulaðið alltaf vinsælast. Ég vel alltaf sérstaklega súkkulaðið sem ég nota í eggin á hverju ári þannig að það skapast líka spenna hjá súkkulaðiunn- endum að sjá hvað er í boði hverju sinni.“ Hafliði heldur þó fast í hefðina um að hafa málshátt í eggjunum. „Það er eitthvað sem við Íslendingar viljum. En það er vandmeðfarið að finna málshætti og sumir geta vissulega verið kaldr- analegir. Fólk sem er ekki sátt við málsháttinn sinn hefur haft samband við mig. Maður þarf svo sannarlega að huga vel að þessu.“ Dagur B. Eggertsson borgarstjóri Bústaður með mömmu og pabba Ég ætla í sumarbústaðinn til mömmu og pabba með fjölskyldunni. Þetta er paradís fyrir krakkana og ekki verra að hestarnir eru með í för. Við Arna konan mín förum þó væntanlega fyrr í bæinn því hún er á vakt á Landspítalanum á páskadag og annan í páskum. SÚKKULAÐIKÓNGURINN Hafliði Ragnarsson segir að um tuttugu manns hafi samband árlega og vilji setja eitthvað sérstakt í eggin til ástvina sinna. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR Erla Björg Gunnarsdóttir erlabjorg@frettabladid.is Auður Jónsdóttir, rithöfundur Íkornar og nesti Ég ætla að fara í lautarferð með Þóru Tómasardóttur, mökum og börnum. Eitthvað út í skóg, rétt út fyrir Berlín og helst við vatn, þar sem við getum horft á íkorna og borðað nesti. Ugla Egilsdóttir, nemi og hlaðvarpsstjarna Þjáningar og drykkjukennsla Ég ætla fyrst og fremst að íhuga þjáningar Krists, fara í Ríkið fyrir unga ættingja og kenna þeim að drekka. Svo hangi ég á Facebook og dæmi fólk eftir fegurð barna og stjórnmálaskoðunum. Sigríður Björg Tómasdóttir, almannatengill Kópavogs Skíði á Akureyri Ég verð með fjölskyldunni og vinum á Akureyri um páskana. Við ætlum á skíði og að njóta lífsins í höfuð- stað Norðurlands. Fara í sund, borða páskaegg og spóka okkur í bænum. Á TUNGL- KVÖLD VI í Kling og Bang í kvöld klukkan 20.00 þar sem fagnað verður tveimur nýjum bókum. Höfundar þeirra eru Óskar Árni Óskarsson og Dóri DNA. Á ELSKU MÍÓ MINN eftir Astrid Lindgren í Útvarpsleik- húsi RÚV. Annar og þriðji hluti sögunnar verða fluttir á morgun og annan í páskum. NÝJA BÓK VILBORGAR DAVÍÐS- DÓTTUR, Ástin, drekinn og dauðinn, sem veitir innsýn í veröld krabbameins og djúpa sorg þess sem hefur elskað og misst. Á THE LEGO MOVIE á Stöð 2 klukkan 19.35. Skemmtileg mynd fyrir alla fjölskylduna. HELGIN 4. apríl 2015 LAUGARDAGUR FARÐU HLUSTAÐU LESTU HORFÐU... Upphaf páskaeggsins má rekja til þess að á miðöldum þurftu leiguliðar í Mið- Evrópu að gjalda landeigendum skatt í formi eggja fyrir páska. Um páska- leytið á vorin voru egg mjög eftir- sóknarverð því þá voru hænurnar nýbyrjaðar að verpa á ný eftir vetrarhléið. Snemma skapaðist sú hefð að landeigendur gáfu fimmtung af þessum eggjum til bágstaddra. Sá siður að gefa börnum páskaegg er dreginn af þessari hefð. Fljótlega var farið að blása úr þeim, þau skreytt og notuð til gjafa á páskum. Á barokktímanum byrjaði yfirstéttarfólk að gefa hvert öðru skreytt egg og oftar en ekki var lítið gat gert á skurnina og litlu spakmæli, rímu eða ljóði stungið í eggið. Sælgætisframleiðendur hófu páskaeggjagerð í Mið-Evr- ópu á 19. öld en á Íslandi urðu þau ekki algeng fyrr en í kringum 1920 enda engin hefð í kringum páskaegg, enginn páskaeggjaskatt- ur og fyrst og fremst fáar hænur. Heimild: Vísindavefurinn SAGA PÁSKAEGGSINS HEFÐ Á ÍSLANDI Í TÆP 100 ÁR Trúlofunarhringir í eggjunum Hafliði Ragnarsson gerir handgerð páskaegg. Það færist í aukana að fólk sé með séróskir og vilji lauma sínum eigin málshætti í eggin, ástarbréfum eða jafnvel trúlofunarhringjum. ● Það þarf um 400 kakóbaunir til að búa til 450 grömm af súkkulaði. ● Á hverri sekúndu borða Bandaríkjamenn um 45 kíló af súkkulaði. ● Stærsta súkkulaðistykki í heimi vó um 5.792 kíló. ● Að borða dökkt súkkulaði á hverjum degi minnkar líkurnar á hjartasjúkdómum um þriðjung. ➜ Staðreyndir um súkkulaði 0 3 -1 2 -2 0 1 5 2 3 :3 9 F B 0 8 8 s _ P 0 6 9 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 6 0 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 2 0 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 2 9 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 7 6 8 -D B 5 C 1 7 6 8 -D A 2 0 1 7 6 8 -D 8 E 4 1 7 6 8 -D 7 A 8 2 8 0 X 4 0 0 4 B F B 0 8 8 s _ 3 _ 4 _ 2 0 1 5 C M Y K
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.