Fréttablaðið - 04.04.2015, Blaðsíða 32
4. apríl 2015 LAUGARDAGUR| HELGIN | 32
Gyða Lóa Ólafsdóttir
gydaloa@frettabladid.is
Það verður gaman að sjá hvernig það verður að búa hérna í sumar, maður fær nú þegar mikla birtu í augun,“ segir Lóa og hlær þegar sólin skín óhindrað inn um stóra gluggana í stofunni en fjölskyldan er tiltölulega nýflutt úr miðbænum.Lóa á stórt safn af fígúrum sem hún hefur safnað frá
barnsaldri og heimilið er fullt af ýmiss konar hlutum sem
Lóa hefur sankað að sér á ferðalögum með hljómsveitinni
FM Belfast. „Bara eitthvað sem er fínt og eitthvað persónu-
legt sem tengist einhverju,“ segir Lóa þegar hún er spurð
að því hvernig hún velji helst hluti inn á heimilið áður en
hún tekur til við að sýna okkur sína fimm uppáhaldshluti.
BJART OG AUTT BORÐ Uppáhaldsstaður Lóu er við borðstofuborðið og ástæðurnar eru einfaldar. „Af því það er rosalega bjart og hér
er borð,“ segir hún og hlær. Á skenknum fyrir aftan hana má sjá glitta í páskaskraut. „Ég var að páskaskreyta í fyrsta skipti á ævi minni, ég
var að hugsa að ég vildi að barnið mitt myndi eiga minningar um páskaskraut, alveg grillað,“ segir hún og skellir upp úr. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
LAMBAGRASIÐ HANS Lóa deilir vinnustofu í miðbænum með mynd-
listarmönnunum Loja Höskuldssyni, Helgu Páleyju Friðjónsdóttur og
Ragnheiði Maísól Sturludóttur og er verkið Lambagrasið hans verk eftir
Loja og vísun í samnefnt verk Eggerts Péturssonar.
SÍMAHULSTUR „Litla frænka mín teiknaði þessa mynd af símahulstrinu sínu, mér
finnst hún svo ótrúlega flott,“ segir hún hlæjandi og bætir við: „Hún er tólf ára, mér
finnst þetta alveg sjúklega fínt.“
HEIMURINN
Hálsmenið fékk
Lóa að gjöf frá
Árna og er það einn
af fáum skart-
gripum sem hún
hefur fengið að
gjöf frá fermingu.
„Við erum búin
að ferðast mikið
saman og þá passar
það svo vel.“
HLUTI AF SAFNINU Fígúran
er úr málverki eftir Hieronymus
Bosch og færðu foreldrar Lóu
henni hana að gjöf. „Það
eru ekki allir sem
tekst að kaupa
kalla sem ég fíla,
þetta er svolítið
svona sérvisku-
safn.“
Safnar persónu-
legum hlutum
Lóa Hlín Hjálmtýsdóttir, teiknari, tónlistarkona
og meistaranemi í ritlist, er búsett ásamt
hljómsveitarfélaga sínum úr FM Belfast
og kærasta, Árna Rúnari Hlöðverssyni,
auk tveggja og hálfs árs gamals sonar
þeirra, Fróða, í bjartri, fallegri og rúm-
góðri íbúð sem stendur við Rauðalæk.
FRÁ MÖMMU
Mamma Lóu prjónaði
teppið handa barna-
barninu og er það í
miklu uppáhaldi hjá
mæðginunum. „Mér
finnst það ótrúlega flott,
litirnir og munstrið og
hann er alveg ennþá að
nota það.“
U
PPÁH
ALD
S Í H
O
SILÓ
LÓ
A H
LÍN
H
JÁLM
TÝSD
Ó
TTIR
TÓ
N
LISTARKO
N
A
➜ STAÐURINN
0
3
-1
2
-2
0
1
5
2
3
:3
9
F
B
0
8
8
s
_
P
0
7
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
5
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
7
6
8
-3
3
7
C
1
7
6
8
-3
2
4
0
1
7
6
8
-3
1
0
4
1
7
6
8
-2
F
C
8
2
8
0
X
4
0
0
2
A
F
B
0
8
8
s
_
3
_
4
_
2
0
1
5
C
M
Y
K