Fréttablaðið - 04.04.2015, Qupperneq 71
LAUGARDAGUR 4. apríl 2015 | MENNING | 47
STÆRÐ 30/40
HUMAR
STÆRÐ 18/24
HUMAR
STÆRÐ 12/15
HUMAR
STÆRÐ 7/9
HUMAR
Gleðilega
páska
FISKIKÓNGS
INS
SKELFLETTUR
- BEINHREINSUÐ
OPIÐ
Í DAG
LAUGARDA
G
4. APRÍL
10-15
Ath. aðeins
á Sogavegi
BÆKUR ★★★ ★★
Gleymdu stúlkurnar
HÖFUNDUR: SARA BLÆDEL
ÞÝÐING: ÁRNI ÓSKARSSON
BJARTUR
Gleymdir og grafnir glæpir gegn
konum eru glæpasagnahöfund-
inum Söru Blædel hugleiknir í
nýrri bók hennar, Gleymdu stúlk-
unum.
Aðalsöguhetja bókarinnar er
rannsóknarlögreglukonan Louise
Rick og heimahagar Söru sjálfrar
eru sögusviðið, skógi vaxið strjál-
býli í Austur-Danmörku, Hvalso.
Sara Blædel hefur sjálf sagt að
sagan um Gleymdu stúlkurnar
sé byggð á sönnum atburðum.
Blædel starfaði reyndar um
áraraðir sem blaðakona og
býr því yfir ákveðnum styrk-
leika þegar kemur að heim-
ildavinnu og úrvinnslu sam-
félagslegra mála sem auka
tvímælalaust á trúverðug-
leika í verkum hennar
almennt.
Í upphafi bókar tekur
aðalsöguhetjan Louise
hvatvísa ákvörðun um
að taka að sér að stýra
nýrri deild sem rannsakar
mannshvörf. Tilraunaverkefni
sem er ekki víst að gangi upp. En
fyrsta málið leiðir hana til fortíð-
ar þar sem hvíla sorgir og óleyst
persónuleg mál.
Saga Söru fjallar um kaldrana-
legt samfélag fortíðar þar sem
fólk með andlega fötlun átti sér
ekki viðreisnar von. Saga af ótrú-
legri grimmd, eða er hún svo ótrú-
leg? Svo virðist sem grimmdin
blómstri oft á stöðum þar sem
varnarlausir og saklausir dvelja.
Aðalsöguhetjan Louise er dauf
og einræn. Ekki á heillandi máta,
eins og sérlundaðar erkitýpur
norrænu glæpasagnanna, Wall-
ander Mankells,
Smilla
hans Peters Hoeg og Lisbeth
Salander hans Stiegs Larson. Frú-
strering Louise er allt annað en
heillandi, félagslegu flækjurnar
minna okkur of mikið á hversdag-
inn. Í lífi hennar er eilífur mánu-
dagur. Mér virðist þyngra yfir
henni en í fyrri bókum, en það er
ef til vill ætlunin. Höfundur virð-
ist meðvitaður um þetta og reyn-
ir að rífa upp stemninguna með
líflegum starfsfélaga, Eik, sem
er frjáls í sinni sérvisku. Breysk-
ur en líflegur, þótt klisjan um
drykkfellda snillinginn sé þreytt.
Ef til vill má rekja norræna
glæpasöguæðið til ársins 1992,
þegar út kom bókin Smil-
las sense of snow eftir
Peter Høeg. Þetta endur-
tekna stef einrænu og and-
félagslegu konunnar virð-
ist enduróma úr bók Peters
til dagsins í dag. Fallegt stef
og kraftmikið, en þegar það
er endurtekið svo oft fer það
líklega að þreytast. Dauflynd-
ar, bældar, stífar og félagslega
bæklaðar konur.
Veikleikar sögunnar felast
þó ekki endilega í lægðinni sem
hvílir á Louise eða persónugerð
hennar, því ekki er víst að öllum
þyki hún þreytandi.
Brestirnir eru í persónulegri
sögu Louise sem höfundur flétt-
ar inn í glæpasöguna. Hana skort-
ir dýpt og er að auki óljós. Þetta
kemur þó ekki verulega að sök
þar sem aðalatburðarásin er hag-
anlega fléttuð. Að auki er efnið
trúverðugt. Hér á Íslandi höfum
við líka þurft að horfast í augu við
glæpi gegn börnum og ungu fólki á
barnaheimilum á vegum ríkisins.
Þessi tenging höfundar við eigin
samtíma og eigin uppruna gerir
söguna sterka og þess virði að
lesa en hún líður aftur á móti fyrir
helst til einsleita og grunna pers-
ónusköpun. Kristjana Björg Guðbrandsdóttir
NIÐURSTAÐA: Grípandi bók og
ágætis afþreying en aðalsöguhetjan
er heldur dauf.
Þar sem grimmdin blómstrar
0
3
-1
2
-2
0
1
5
2
3
:3
9
F
B
0
8
8
s
_
P
0
7
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
5
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
7
6
8
-5
6
0
C
1
7
6
8
-5
4
D
0
1
7
6
8
-5
3
9
4
1
7
6
8
-5
2
5
8
2
8
0
X
4
0
0
2
B
F
B
0
8
8
s
_
3
_
4
_
2
0
1
5
C
M
Y
K