Fréttablaðið - 04.04.2015, Qupperneq 76
4. apríl 2015 LAUGARDAGUR| LÍFIÐ | 52
BAKÞANKAR
Jóns Sigurðar
Eyjólfssonar
Sýningartímar á
midi.is og laugarasbio.is
GLEÐILEGA PÁSKA
OPIÐ ALLA PÁSKANA!
siSAM
SERIAL (BAD) WEDDINGS
MYNDIN SEM ALLIR ERU AÐ TALA UM
SÝND ÁFRAM VEGNA FJÖLDA ÁSKORANA
Í HÁSKÓLABÍÓI OG BORGARBÍÓI AKUREYRI!
Sýnd með
íslensku tali
í 2D og 3D
Sýningartímar á
eMiði.is og miði.is
Opið alla
páskana!
GLEÐILEGA BÍÓPÁSKA
Grátbólgin móðir fer með bænir frammi fyrir líkneski af Maríu mey,
hún biður fyrir syni sínum sem er á
sjónum. Þegar hún snýr sér við til
að fara á brott má sjá tár renna úr
augum líkneskisins því það veit að
sonurinn drukknaði.
ÞESSA harmþrungnu sögu
sagði gríska skáldið Konstantí-
nos Kavafís í einu ljóða sinna.
Kemur það ætíð í koll mér
um páskahátíðina þegar
líkneski eru borin um bæi
og borgir hér í Andalús-
íu. Þó að ég sé genginn af
trúnni tala ég til líkneskis
Jesús enda fer þar frum-
mynd frönsku byltingar-
innar. „Njóttu þess að vera
borinn á höndum,“ segi ég.
„Þú afhjúpaðir hræsnarana sem gátu
stjórnað með því að halda lýðnum í
fávisku og þröngsýni. Sagðir prestunum
að hjartalag skækjunnar væri betra en
þeirra, faríseunum að líta inn á við áður
en þeir dæmdu og yfirvaldinu sagðir
þú að til væri annað yfirvald sem ekki
stjórnaði af hégóma, vopnum, vélráðum
og veraldlegu prjáli. Þú sem hentir gráð-
ugu kaupmönnunum út úr musterinu.“
HÉR á Spáni var alþýðunni stjórnað
með þessu hætti. Veraldleg og andleg
yfirvöld ásamt landeigendum héldu
henni í heljargreipum fáfræðinnar og
óttans. Hvað hafast þessir menn við í
dag?
SVO var það einn daginn að ég las
páskapistil Jóns Baldvins Hannibals-
sonar sem kynnti sér páskaprjál sveit-
unganna hér í Andalúsíu að ég fór að
leiða hugann að því hverjir það eru sem
bera líkneski Krists um borgir og bæi.
Það er einmitt aðallinn sem hann atti
kappi við forðum, farísear nútímans,
andlega og veraldlega yfirvaldið, land-
eigendurnir sem héldu lýðnum í fávisku-
vistarböndum, leifarnar af fylgismönn-
um Francos og afturhaldsöflin sem taka
nýjum og ferskum vindum eins og ógn
við vald sitt. Reyndar leggur Antonio
Banderas sínar herðar til í páskaprjálinu
í Málaga en látum það liggja milli hluta.
ÉG held áfram að tala við líkneskið eftir
þessa uppgötvun. Ég er reyndar farinn
að biðja eins og sjómannsmóðirin forð-
um. Ég bið „fyrir alla muni, Súlli minn,
ekki líta niður“. En ég sé það á þjáning-
unni í svip hans að hann er löngu búinn
að komast að því hverjir halda á honum.
Kaldhæðnisleg örlög Krists
Dagana 9. til 12. apríl fer fram heim-
ildar- og stuttmyndahátíðin Reykja-
vík Shorts&Docs Festival í Bíó
Paradís við Hverfisgötu. Á hátíðinni
ægir saman stórum erlendum heim-
ildarmyndum og nýjum íslenskum
heimildar- og stuttmyndum.
Uppljóstranir um njósnir Banda-
ríkjamanna, pólsk fjallgöngugoð-
sögn, trommuhringur og ísgerð í
eftirleik þjóðarmorðsins í Rúanda
auk rokks í Neskaupstað og á Græn-
landi er meðal þess sem myndir
hátíðarinnar fjalla um.
Óskarsverðlaunamyndin Citizen-
four eftir Lauru Poitras er meðal
mynda sem verða sýndar. Myndin
var valin besta heimildarmyndin
bæði á Óskarsverðlaunahátíðinni
og BAFTA-hátíðinni.
Lisa Fruchtmann kemur til
landsins og fyrsta leikstjórnar-
verk hennar, Sweet Dreams, verð-
ur sýnt á hátíðinni. Fruchtmann
hlaut Óskars verðlaun fyrir klipp-
ingu myndarinnar The Right Stuff
og klippti einnig Apocalypse Now og
Godfather III. Bæði Fruchtmann og
Poitras munu vera með námskeið á
hátíðinni.
Þetta er í þrettánda skipti sem
hátíðin fer fram en í gegnum tíð-
ina hefur hún verið á hinum ýmsu
stöðum. Þar má nefna Háskólabíó,
Norræna húsið, Regnbogann og Kex
hostel.
Miðasala er í Bíói Paradís og afar
takmarkaður fjöldi miða er í boði.
Nánari upplýsingar má finna á
shortsanddocsfest.com. - jóe
Óskarsverðlaunahafar og ísgerð í Afríkuríki
Heimildar- og stuttmyndahátíð fer fram í Reykjavík í þrettánda skipti. Úrval mynda á hátíðinni er þó nokkuð.
CITIZENFOUR Óskarsverðlaunamynd um Edward Snowden er sýnd á hátíðinni.
FRÉTTABLAÐIÐ/AFP
Wild Frontier–
The Prodigy
Sjötta plata Íslandsvinanna í The
Prodigy kom út í lok mars. Á henni
má finna nokkur ágæt lög.
Malaika– Retro Stefsson
Fyrsta lagið af fjórðu plötu sveitar-
innar. Var upphaflega samið fyrir
Young Karin en hentaði betur fyrir
Stefson.
Headlights– Robin Schulz
Þýski plötusnúðurinn gerði allt vit-
laust í fyrra með laginu Prayer In C.
Headlights þykir líklegt til afreka
þetta sumarið.
To Be Young–
Kassasin Street
Fimmmenningar frá Southsea
skammt frá Portsmouth. Grípandi
gítarstef og viðlög einkenna fyrstu
lög sveitarinnar.
Need You Know– Hot Chip
Sjötta plata Hot Chip hefur fengið
nafnið Why Make Sense? Þetta er
önnur smáskífan af þeirri plötu.
Forest Fires– Axel Flóvent
Húsvíkingnum hefur verið líkt við
Justin Vernon, söngvara Bon Iver,
og honum bregst ekki bogalistin í
þessu lagi.
Buried– Shlohmo
Önnur plata Shlohmo, Dark Red,
kemur út í næstu viku. Buried verð-
ur að finna á henni.
2Shy– Shura
Shura lék á Húrra á síðustu Iceland
Airwaves-hátíð. 2Shy hefur vakið
verðskuldaða athygli.
Serve It Up– Cakes Da Killa
Rapparinn frá New Jersey hefur
aldrei verið hræddur við að fara
ótroðnar slóðir.
nO less– SBTRKT
SBTRKT spilaði á Sónar-hátíðinni í
Hörpu í febrúar. Hann hefur verið
að senda frá sér efni á Soundcloud-
síðu sinni.
10 ný lög
sem við
mælum með
0
3
-1
2
-2
0
1
5
2
3
:3
9
F
B
0
8
8
s
_
P
0
8
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
7
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
7
6
8
-9
B
2
C
1
7
6
8
-9
9
F
0
1
7
6
8
-9
8
B
4
1
7
6
8
-9
7
7
8
2
8
0
X
4
0
0
3
B
F
B
0
8
8
s
_
3
_
4
_
2
0
1
5
C
M
Y
K