Fréttablaðið - 04.04.2015, Page 86

Fréttablaðið - 04.04.2015, Page 86
4. apríl 2015 LAUGARDAGUR| LÍFIÐ | 62 Íslendingurinn Hjördís Ösp Ottósdóttir innanhúss- arkitekt tekur þátt, ásamt unnusta sínum Russell Schaper-Kotter, í stærsta raunveruleikaþætti sem framleiddur hefur verið í Kanada, Game of Homes. Í þættinum er keppt um að gera upp gömul hús sem átti að rífa, og fær sigurvegarinn húsið að launum. „Vinnufélagi minn benti okkur á að það væri verið að leita að fólki í þáttinn. Ég hugsaði strax að það væri ekki séns að ég fengi frí í vinnunni í fimm vikur, en unnusti minn sagði að við myndum bara víst fá frí,“ segir Hjördís og hlær. Parið sótti um og fór í prufur, en þau voru ekki valin. Sólarhring fyrir fyrsta þáttinn fengu þau Hjör- dís og Russell símtal frá framleiðandanum, sem sagði að það væri óvissa með eitt parið og þau væru líkleg- ust til að koma í staðinn. „Það fór allt á fullt. Við vorum bæði að vinna ann- ars staðar og vorum send með næsta flugi heim. Þar var okkur skutlað upp á hótel þar sem við áttum bara að vera, máttum ekki tala við neinn eða neitt,“ rifjar Hjördís upp. Daginn eftir var þeim tilkynnt að þau hefðu verið valin. „Við fengum 20 mínútur til þess að fara heim og pakka fyrir fimm vikur. Svo var haldinn neyðarfundur með fjölskyldunni, svo voru símarnir teknir af okkur eftir það.“ Hjördís segir vinnuveitanda sinn hafa verið mjög skilningsríkan og gefið henni frí, en Russell var ekki eins heppinn og missti vinnuna í kjölfarið. Fyrir þáttinn voru fjögur gömul hús sem átti að rífa, flutt í miðbæ Vancouver og girt af. „Þegar við komum á staðinn áttum við að velja okkur hús, en til þess að fá það þurftum við að smíða lykil að húsinu í kapp við tímann og hina keppendurna,“ segir Hjördís. Í þessar fimm vikur bjuggu þau svo í húsinu sem þau voru að gera upp og í hverjum þætti gerðu þau upp eitt herbergi. „Það var rosalega skrýtið að hafa allt í einu myndavélar að fylgjast með þér allan sólarhringinn, en það vandist fljótt. Við vorum oft að vinna alla nótt- ina og svo var þátturinn tekinn upp strax morguninn eftir, þannig að maður var orðinn of þreyttur til að taka eftir þeim,“ segir Hjördís. Í lokaþættinum sem ekki er búið að taka upp, kemur svo í ljós hvaða par er sigurvegari. „Svona hús og lóð er mjög verðmætt hér í Vancouver og kostar mikið, þannig að það væri magnað að vinna,“ segir Hjördís. Þriðji þátturinn af Game of Homes var sýndur í Kan- ada á þriðjudag, og nú þegar hafa Hjördís og Russell unnið eina keppni í þættinum, um besta eldhúsið. Fyrir það fengu þau ferð til Parísar. Hjördís segir það pínu skrýtið að sjá allt í einu auglýsingar með sér úti um allt. „Við fórum svo í bankann um daginn og allt í einu voru allir í bankanum búnir að fatta hver við værum og allt í einu var allt starfsfólkið komið og farið að spyrja. En það er bara gaman.“ adda@frettabladid.is Keppir í Game of Homes í Kanada Hjördís Ösp Ottósdóttir keppir í raunveruleikaþættinum Game of Homes í Kanada, ásamt unnusta sínum, en í þáttunum gera þau upp gamalt hús. ALLT Á FULLU Hjördís Ösp Ottósdóttir og Russell Schaper-Kotter sjást hér vera að gera upp eldhúsið en þau unnu keppnina um besta eldhúsið. SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR– AUGLÝSINGASTJÓRI: Svanur Valgeirsson svanur@365.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR SÍMI 512-5401: Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Stein- grímsson hlynur@365.is, Hjalti Egilsson hjalti@365.is, Laila Awad laila@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI: 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Bryndís Hauksdóttir bryndis@365.is, Gunnhildur Geira Dan Þorláksdóttir geira@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Jónatan Atli Sveinsson jonatan@365.is, FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is Firði Hafnarfirði Sími 555 6655 - 662 5552 • kokulist@kokulist.is /Kokulist *P re nt m ið la kö nn un C ap ac en t o kt ób er –d es em be r 2 01 2 – hö fu ðb or ga rs væ ði 2 5- 54 á ra Innskot í Fréttablaðið skilar árangri! MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI* Fréttablaðið er mest lesna dagblaðið með glæsilegt forskot á keppinautana. Meðallestur Fréttablaðsins í aldurshópnum 25-54 ára er 73% á höfuðborgarsvæðinu.* Við bendum auglýsendum á að notfæra sér forskotið þegar þeir velja dreifingarleið fyrir fjölpóst sinn. Við dreifum sex daga vikunnar til heimila á stærsta markaðssvæði landsins. Hafðu fjölpóstinn þinn inni í Fréttablaðinu. Það er áhrifarík leið til að koma skilaboðum um vöru eða þjónustu beint inn á heimilin. Kannaðu dreifileiðir og verð í síma 512 5448 eða í tölvupóstfangi fjolpostur@frettabladid.is HAFÐU FJÖLPÓSTINN ÞINN Í FRÉTTABLAÐINU GAME OF HOMES Þau Hjördís Ösp Ottósdóttir og Russell Schaper-Kotter eru staðráðin í að vinna Game of Homes. MYND/SARA ROGERS LÝKUR ÞRÍLEIKNUM Jón Gnarr, leikari, skemmtikraftur og fyrrverandi borgarstjóri Reykjavíkur, vinnur nú að þriðju og síðustu bók- inni í þríleik sínum. Sú fyrsta heitir Indjáninn og í kjölfarið fylgdi Sjóræninginn. Þriðja bókin mun heita Útlaginn en þetta upplýsti hann í samskiptum við Gísla Martein Baldursson á Twitter. Jón stefnir að því að ljúka bókinni í sumar. - jóe LAG Í LÆKNAÞÁTTUM Lag Ásgeirs Trausta Was There Nothing? var notað í nýjasta þætti banda- rísku læknaþáttanna Grey‘s Anatomy. Lagið er ensk útgáfa lagsins Hljóða nótt af fyrstu plötu kappans. Ás- geir hefur undanfarið spilað víða um heim en hann kemur fram á tón- leikum í Hörpu þann 16. júní næstkomandi. - jóe STYTTU SÉR STUNDIR Föstudagurinn langi er mesti sorgar- dagur kirkjuársins og hafa hvers kyns skemmtanir og gleði löngum verið bönnuð á deginum. Sá siður virðist vera á undanhaldi en á meðal fjölmargra landsmanna sem lyftu sér upp í gær má nefna þingmenn- ina Höskuld Þórhalls- son og Jóhönnu Maríu Sigmundsdóttur. Höskuldur renndi sér á skíðum á Akur- eyri en Jóhanna skemmti sér á vélsleða í sinni heimabyggð. - jóe „Þið vitið hvernig börn eru. Þau vilja nýja fótboltaskó, þau vilja nýja strigaskó. Það kom að því að hann varð 14 ára og ég hugsaði: Ef þig langar í eitthvað, farðu að vinna og þá eignast þú þína eigin peninga.“ DAVID BECKHAM TALAÐI UM NÝTT STARF ELSTA SONAR SÍNS, BROOKLYNS, SEM VINNUR Á FRÖNSKU KAFFI- HÚSI Í NÁGRENNI VIÐ HEIMILI BECKHAM-FJÖLSKYLDUNNAR. 0 3 -1 2 -2 0 1 5 2 3 :3 9 F B 0 8 8 s _ P 0 8 6 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 7 5 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 0 3 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 1 4 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 7 6 8 -7 8 9 C 1 7 6 8 -7 7 6 0 1 7 6 8 -7 6 2 4 1 7 6 8 -7 4 E 8 2 8 0 X 4 0 0 3 A F B 0 8 8 s _ 3 _ 4 _ 2 0 1 5 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.