Bókasafnið - 01.05.2012, Qupperneq 51

Bókasafnið - 01.05.2012, Qupperneq 51
51 Eigendur fágætra handrita og bóka hafa frá örófi alda gætt þeirra sem sjáaldurs augna sinna. Það sætir því engri furðu að snemma hafi menn reynt að merkja sér þessi djásn, og má nefna að í virtum söfnum á borð við British Museum, Louvre og Yale University Gallery er að finna smágerðar glerungshúðaðar plötur af egypskum uppruna, frá því um 1400 fyrir Krist, sem festar voru við papírushandrit, og er ritað á þær að þær tilheyri bókasafni faraóans Amenhóteps III. Segja má að um sé að ræða elstu bókamerki sögunnar, eða Ex libris. Allar götur síðan eru þekkt dæmi um að höfðingjar hafi látið mála skjaldarmerki sín inn í dýrmæt handrit í von um að fyrirbyggja þjófnað. Upphaf bókamerkja í nútímaskilningi má hins vegar rekja til fyrri hluta fram að miðbiki 15. aldar, og hefur tímabilið 1440- 1450 verið nefnt í því sambandi. Er þá horft til þess að um það leyti litu dagsins ljós nokkur bókamerki í norðanverðri Evrópu, sum handmáluð en önnur skorin í tré. Í síðarnefnda flokkinn fellur elsta bókamerkið sem vitað er um, merki Þjóðverjans Johannesar Knabensberg, einkaprests Schönstett-ættarinnar. Knabensberg var kallaður Igler, sem þýðir broddgöltur á þýsku, og lét hann gera sér bókamerki er sýnir broddgölt í lágu grasi og þar fyrir ofan er áletrun: „Hans Igler að broddgölturinn megi kyssa þig.“ Má að líkindum lesa úr þessu einhverja hótun til handa fingralöngum, enda broddarnir hvassir. Er bókamerkið talið frá því um 1450. Aðrir telja að eitt fyrsta bókamerkið hafi tilheyrt munkinum Hildibrandi (eða Hilprand) Brandenburg, kenndum við Sindri Freysson EX LIBRIS „Hver sá er stelur þessari bók lokar hliðum Himnaríkis“ Biberach, sem gaf klaustri karþúsareglunnar í Buxheim í Bæjaralandi bókasafn sitt og þar á meðal bókamerki, skorin í tré og handmáluð eftir þrykkingu, er talin eru frá 1470- 1480. Bókamerki Brandenburgs er af ætt skjaldarmerkja. Meðfylgjandi var ritað eigin hendi staðfesting þess að hann gæfi bókasafninu bækurnar og bað hann lesandann um að biðja fyrir sálu hans og þeim sem stóluðu á hann. Einnig má nefna bókamerki eignað Wilhelm von Zell frá svipuðum tíma, og merki eignuð kirkjunnar manni að nafni Jakob Hainrichmann, en það er handmáluð tréstunga með stöfunum S.M.C, eða Spes Mea Christus; Von mín Kristur. Af þessum dæmum má sjá að lítill vafi leikur á að ex libris-merki eigi rætur að rekja til Þýskalands. Gutenberg hóf tilraunir með laust prentletur á fjórða áratug 15. aldar og á árunum 1455-1456 varð fyrsta Gutenberg- biblían að veruleika, kölluð svo þótt hún væri tæknilega séð úr smiðju lánadrottins Gutenbergs, Johanns Fust að nafni, og leturhönnuðar hans, Peters Schoeffer. Eftir það fór prentverk eins og eldur í sinu um lönd Evrópu með tilheyrandi fjölgun bókverka. Eigendur sístækkandi bókasafna vildu að vonum sýna eignarrétt sinn á verkunum og þar eð óheyrilegur kostnaður var samfara því að láta handmála ex libris merki inn í hvert eintak, var gripið til þess ráðs að fá listamenn til að rista mynd – oftast skjaldarmerki ættarinnar – á málm- eða tréplötu til þrykkingar. Þessi myndmót voru síðan þrykkt á bækur og handrit. Notkun bókamerkja fékk byr undir báða vængi þegar lærisveinn Michail Wohgemut (er gerði sjálfur nokkur merki), hinn hæfileikaríki listamaður Albrecht Dürer (1471-1528), útbjó tréskurðamyndir í þessu skyni, alls um tuttugu talsins. Má segja að Dürer hafi lagt línuna fyrir þróunina í þessum efnum alla tíð síðan. Auk hans má nefna hóp listamanna er gjarnan var nefndur „Kleinmeistern“, eða litlu meistararnir, vegna smæðar verka þeirra. Eldri aðferðir voru hins vegar seinlegar og kostnaðarsamar og síðar meir, eða á 18. öld, urðu koparstungur allsráðandi og svokallaðar raderingar, en með aukinni tækniþróun margvíslegar aðrar aðferðir, svo sem grafík, steinþrykk og prentun og fleiri. Með
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Bókasafnið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bókasafnið
https://timarit.is/publication/245

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.