Læknablaðið - 01.11.2015, Qupperneq 19
LÆKNAblaðið 2015/101 519
Inngangur
Geðklofasjúkdómur er einn af alvarlegustu geðsjúk-
dómum sem mannkynið berst við.1 Einkennum sjúk-
dómsins er skipt í tvo flokka; jákvæð einkenni (rang-
hugmyndir, ofskynjanir og truflun á hugsunum) og
neikvæð einkenni (takmarkaðar tilfinningar, fátæklegt
tal, minni samskipti við vini og fjölskyldu, framtaks-,
aðgerðar-, og almennt áhugaleysi).2 Þunglyndi og kvíði
eru jafnframt algengir fylgifiskar sjúkdómsins3 og lífs-
gæði þessara sjúklinga hafa verið metin minni en hjá
almennu þýði.1
Rannsóknir hafa sýnt að geðklofasjúklingar deyja
yngri en heilbrigðir einstaklingar og eru allt að tvisvar
til þrisvar sinnum líklegri til að deyja úr lífsstílstengd-
um sjúkdómum.4 Þeir hreyfa sig minna, neyta óhollari
fæðu, reykja meira og lifa almennt óheilsusamlegra lífi.5
Samkvæmt nýlegri íslenskri rannsókn er líkamsástand
einstaklinga með geðklofa hér á landi slæmt og hætta á
hjarta- og æðasjúkdómum mikil.6 Ofþyngd og offita er
algengt vandamál hjá geðklofasjúklingum, sérstaklega
eftir tilkomu annarrar kynslóðar geðlyfja.7 Aukaverk-
anir geðrofslyfja geta valdið mikilli þyngdaraukningu
sem vinnur gegn einstaklingnum, bæði hvað varðar
einangrun, félagsleg samskipti og hreyfigetu.8
inngangur: Einstaklingar með geðklofa eru líklegri til að tileinka sér óheil-
brigðan lífsstíl og deyja fyrir aldur fram. Rannsóknir benda til þess að
hreyfing hafi jákvæð áhrif á einstaklinga með geðklofa. Markmið þessarar
rannsóknar var að meta áhrif íhlutunar á einkenni geðklofa hjá ungu fólki
og skoða áhrif íhlutunarinnar á hreyfingu, þunglyndi, kvíða, holdafar,
blóðþrýsting og hvíldarpúls. Að auki var markmiðið að öðlast dýpri skiln-
ing á upplifun þátttakenda á íhlutuninni með einstaklingsviðtölum.
Efniviður og aðferðir: Sautján geðklofasjúklingar á geðdeild Landspítala
á aldrinum 21-31 árs tóku þátt í 20 vikna íhlutunarrannsókn. Þátttakendur
hreyfðu sig að lágmarki tvisvar í viku undir handleiðslu íþróttafræðinga og
fengu fræðslu um heilbrigðan lífsstíl einu sinni í viku. Þátttakendur svör-
uðu jafnframt spurningalistum (PANSS, dASS, Rosenberg, CoRE-oM,
BHS, QoLS) fyrir og eftir íhlutun. Í upphafi og lok íhlutunar voru
hæð, þyngd, blóðþrýstingur, mittisummál og hvíldarpúls mæld og líkams-
þyngdarstuðull reiknaður. Tekin voru einstaklingsviðtöl við 6 þátttakendur
og þeir spurðir um upplifun sína á íhlutuninni.
niðurstöður: Á íhlutunartímabilinu dró marktækt úr neikvæðum og
almennum einkennum geðklofa, þunglyndi, kvíða og streitu, og einnig juk-
ust lífsgæði, hreyfing og virkni (p<0,05). Þar að auki lækkaði hvíldarpúls
þátttakenda (p<0,05) en holdafarsmælingar og blóðþrýstingur héldust
óbreytt í lok íhlutunartímabils.
Ályktun: Niðurstöður benda til þess að íhlutun sem þessi sé gagnleg fyrir
unga einstaklinga með geðklofa. Þátttakendur hreyfðu sig meira, þeir
þyngdust ekki og leið betur andlega að lokinni íhlutun. Regluleg hreyfing
og leiðsögn um heilbrigðan lífsstíl gætu verið áhrifarík viðbót við meðferð
einstaklinga með alvarlega geðsjúkdóma.
ÁgrIp
Rannsóknir hafa staðfest fjölþætt gildi hreyfingar
fyrir heilsu fólks og vellíðan.9 Vísbendingar eru um að
hreyfing geti dregið úr neikvæðum einkennum geðklofa
þar sem samskipti verða betri, virkni eykst og jafnvægi
kemst á tilfinningar. Þá eiga sjúklingar oft auðveldara
með að hafa stjórn á jákvæðum einkennum, til dæmis
ranghugmyndum, truflun á hugsunum og ofskynjunum
þó að einkennin minnki ekki.10,11 Hreyfing er viðurkennt
meðferðarúrræði fyrir mild til miðlungs alvarleg tilfelli
þunglyndis og kvíða,12,13 og gæti einnig gagnast einstak-
lingum með geðklofa.14 Sýnt hefur verið fram á að reglu-
bundin hreyfing getur minnkað líkur á lífsstílstengdum
sjúkdómum hjá þessum hópi, auk þess að stuðla að sterk-
ara stoðkerfi.9
Regluleg hreyfing getur vart komið í staðinn fyrir
hefðbundna lyfjameðferð, en rannsóknir benda til þess
að hreyfing geti verið hluti af meðferðinni.10 Mikilvægt
er því að finna leiðir sem hvetja til heilsusamlegs lífsstíls
og auka hreyfingu þessa hóps.
Markmið þessarar rannsóknar var að meta áhrif 20
vikna íhlutunar á einkenni geðklofa hjá ungu fólki. Einn-
ig voru áhrif íhlutunar á þunglyndi, kvíða, hreyfingu,
holdafar, blóðþrýsting og hvíldarpúls skoðuð. Að lokum
Greinin barst
29. maí 2015,
samþykkt til birtingar
8. október 2015.
Höfundar hafa
útfyllt eyðublað um
hagsmunatengsl.
Áhrif hreyfiíhlutunar á einkenni
geðklofa, andlega líðan og
líkamssamsetningu hjá ungu fólki
Kristjana Sturludóttir1,2 íþróttafræðingur, Sunna Gestsdóttir2 doktorsnemi, Rafn Haraldur Rafnsson1 íþróttafræðingur,
Erlingur Jóhannsson2 lífeðlisfræðingur
1Landspítala, 2íþrótta-,
tómstunda- og þroska-
þjálfadeild, menntavísinda-
sviði Háskóla Íslands.
Fyrirspurnir
Erlingur Jóhannsson
erljo@hi.is
http://dx.doi.org/10.17992/lbl.2015.11.51 R A N N S Ó K N
Til meðferðar við miðlungsalvarlegum til alvarlegum
þrymlabólum (acne vulgaris).
NÝTT LYF
Lymecycline
Actavis 300 mg
Lymecycline Actavis 300 mg
(Hvert hylki inniheldur 408 mg af lymecýklíni sem jafngildir 300 mg af tetracýklíni.)
Lymecycline Actavis 300 mg, hart hylki. Virkt innihaldsefni: Hvert hylki inniheldur 408 mg af lymecýklíni sem jafngildir 300 mg af tetracýklíni. Ábendingar:
Lymecýklín er ætlað til meðferðar við miðlungsalvarlegum til alvarlegum þrymlabólum (acne vulgaris). Hafa skal í huga opinberar leiðbeiningar um viðeigandi notkun
sýklalyfja. Skammtar og lyfjagjöf: Fullorðnir: Venjulegur skammtur við langtímameðferð gegn miðlungsalvarlegum til alvarlegum þrymlabólum er 1 hylki á dag tekið
með a.m.k. hálfu glasi af vatni í uppréttri stöðu. Hylkið skal taka með léttri máltíð án mjólkurafurða. Meðferð skal haldið áfram í a.m.k. 8 vikur til 12 vikur, en hins vegar
er mikilvægt að takmarka notkun sýklalyfja við eins stutt tímabil og hægt er og hætta notkun þeirra þegar frekari bati er ólíklegur. Meðferð skal ekki haldið áfram í
meira en 6 mánuði. Aldraðir: Eins og á við um önnur tetracýklín er ekki þörf á sértækri skammtaaðlögun.Börn: Notkun er ekki ráðlögð hjá börnum yngri en 12 ára.
Börnum eldri en 12 ára má gefa fullorðinsskammt. Skert nýrnastarfsemi: Útskilnaðarhraði tetracýklíns minnkar þegar um skerta nýrnastarfsemi er að ræða og geta
venjulegir skammtar þannig valdið uppsöfnun. Ef um skerta nýrnastarfsemi er að ræða er ráðlagt að minnka skammtinn og hugsanlega að hafa eftirlit með þéttni í
sermi. Frábendingar: Lymecycline Actavis má ekki nota þegar um er að ræða ofnæmi fyrir lymecýklíni eða öðrum tetracýklínum eða einhverju hjálparefnanna,
sjúklinga með alvarlega skerðingu á nýrnastarfsemi, börn yngri en 12 ára, meðgöngu og brjóstagjöf, samhliðameðferð með retínóíðum til inntöku og notkun er tengist
altækum retínóíðum. Upplýsingar um aukaverkanir, milliverkanir, varnaðarorð og önnur mikilvæg atriði má nálgast í sérlyfjaskrá – www.serlyfjaskra.is.
Pakkningar og hámarksverð í smásölu (september 2015): 300 mg, 100 stk: 7.366 kr. Afgreiðsluflokkur: R. Greiðsluþátttaka: 0. Markaðsleyfishafi: Actavis Group PTC ehf.
Frekari upplýsingar: www.actavis.is, s: 550 3300. Dagsetning síðustu samantektar um eiginleika lyfsins: 10. febrúar 2015. September 2015.
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
/
A
ct
av
is
5
1
9
0
1
2