Læknablaðið - 01.11.2015, Blaðsíða 30
530 LÆKNAblaðið 2015/101
■ ■ ■ Hávar Sigurjónsson
okkur enn frekar kleift að fylgjast með
þroska og þróun námsins hjá hverjum og
einum. Við erum stöðugt að fylgjast með
og meta framvindu og frammistöðu. Matið
er 360 gráður þar sem allir sem starfa með
sérnámslækninum leggja sitt mat á vogar-
skálarnar. Handleiðarinn fer svo reglulega
yfir þetta með sérnámslækninum og
leiðbeinir um áherslur í framhaldi náms-
ins með hliðsjón af þessu. Einu sinni á
ári ritar handleiðarinn svo kennslustjóra
sérnámsins bréf þar sem ítarlega er farið
yfir framvinduna og hvar helstu veik-
leikar og styrkleikar námslæknisins liggja.
Sérnámslæknirinn metur svo sjálfan sig
árlega og á fundi með kennslustjóra fer
hann yfir hvernig staðið er að náminu á
sinni heilsugæslustöð.“
Krítísk hugsun, teymisvinna
og kostnaðarvitund
Stundaskrá sérnámsins er mjög ítarleg en
Alma tekur þó sérstaklega fram að þetta
sé starfsþjálfun en ekki kennsla í læknis-
fræði. „Mikilvæg þjálfun fer fram á hverri
heilsugæslustöð þar sem við kennum
nálgun heimilislæknis við vandamálum
skjólstæðinga okkar – hvetjum til krít-
ískrar hugsunar og leggjum mikið upp úr
teymisvinnu og samvinnu við aðrar fag-
stéttir sem við vinnum með. Við gerum
miklar kröfur um kostnaðarvitund og
að allar rannsóknir og lyfjaávísanir séu
nauðsynlegar, nákvæmar og markvissar.
Þjálfun í samtölum við sjúklinga fer fram
með myndbandsupptökum þar sem sér-
fræðingur fer yfir viðtal sérnámslæknisins
við sjúkling með fullu samþykki sjúk-
lingsins að sjálfsögðu.“
Eftir 12-18 mánuði á heilsugæslunni fer
sérnámslæknirinn út á spítala og kemur
svo aftur inn á heilsugæsluna. „Við slepp-
um ekki hendinni af sérnámslæknunum
okkar þó þeir séu úti á spítala og þeir hitta
sjúklinga sína áfram í tvo hálfa daga í
mánuði á heilsugæslustöð og sækja áfram
kjarnafyrirlestra. Einnig hittir sérnáms-
læknirinn handleiðarann sinn reglulega.
Við förum í námsferðir með hópinn bæði
innanlands og erlendis. Dæmi um náms-
ferðir eru námskeið í dreifbýlislækningum
á Egilsstöðum, heimsókn á bakmeðferð-
arklíníkina á sjúkrahúsinu í Stykkishólmi,
meðferð fólks úr hópslysum, náttúrulækn-
ingar á Heilsustofnuninni í Hveragerði og
bráðalækningar á Akureyri.“
Ekki verður því annað séð en námið sé
fjölbreytt og spennandi og Alma Eir segir
varla hægt að leggja nægilega áherslu á
hversu mikilvægt sé að beina ungu lækn-
unum inn í sérnám í heimilislækningum.
„Þar verða allir að leggja hönd á plóginn
og við erum alltof hógvær þegar kemur að
því að auglýsa sérnámið okkar. Það er með
því besta sem býðst og við eigum að vera
ófeimin við að segja það.“
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
-
A
c
ta
v
is
4
1
2
1
2
1
Vaxandi
háþrýstingur?
Lerkanidipin Actavis
– Sértækur kalsíumgangaloki með aðalverkun á æðar
13
0/
90
12
0/
80
Virkt innihaldsefni: Hver 10 mg filmuhúðuð tafla inniheldur 10 mg af lerkanidipín hýdróklóríði, sem samsvarar 9,4 mg af lerkanidipíni. Hver 20 mg filmuhúðuð tafla inniheldur 20 mg af lerkanidipín
hýdróklóríði, sem samsvarar 18,8 mg af lerkanidipíni. Ábendingar: Lerkanidipin Actavis er ætlað til meðferðar við vægum til meðal háum háþrýstingi (essential hypertension). Skammtar og lyfjagjöf:
Til inntöku. Ráðlagður skammtur er 10 mg einu sinni á dag a.m.k. 15 mínútum fyrir mat. Auka má skammtinn upp í 20 mg eftir einstaklingsbundinni svörun hvers sjúklings. Skammtabreytingar ætti að gera
í skrefum þar sem liðið geta u.þ.b. 2 vikur þar til blóðþrýstingslækkandi áhrif lyfsins eru að fullu komin fram. Sumir einstaklingar, sem ekki tekst að stilla með fullnægjandi hætti með einu blóðþrýstings-
lækkandi lyfi, gætu haft gagn af því að bæta lerkanidipíni við meðferð með betablokka, þvagræsilyfi (hýdróklórtíazíði) eða angíótensín breytiensíma hemli. Þar sem svörunarferill skömmtunar er brattur
en stöðugur við skammtastærð milli 20 og 30 mg, er ólíklegt að verkun aukist við stærri skammta, en hætta er á auknum aukaverkunum. Aldraðir: Þó gögn um lyfjahvörf og klínísk reynsla bendi ekki til að
þörf sé á aðlögun skammtastærða ætti að gæta sérstakrar varúðar við upphaf meðferðar hjá öldruðum. Börn og unglingar: Ekki er mælt með notkun lerkanidipíns fyrir börn og unglinga yngri en 18 ára þar
sem ekki er nein klínísk reynsla af notkun þess hjá þeim. Skert starfsemi nýrna eða lifrar: Gæta þarf sérstakrar varúðar þegar meðferð sjúklinga með meðal til alvarlega nýrna- eða lifrarbilun er hafin. Þó
þessir sjúklingar þoli hugsanlega venjulegan ráðlagðan skammt, þarf að fara varlega við aukningu skammta í 20 mg á dag. Blóðþrýstingslækkandi áhrif geta verið meiri hjá sjúklingum með skerta
lifrarstarfsemi þannig að fyrir þá þarf að meta hvort aðlaga þurfi skammta. Ekki er mælt með lerkanidipíni fyrir sjúklinga með alvarlega lifrar- eða nýrnabilun
(kreatínín úthreinsun < 30 ml/mín.). Lyfjagjöf: Töflurnar ætti að taka með vatni a.m.k. 15 mínútum fyrir mat. Frábendingar: Ofnæmi fyrir virka efninu, einhverju
díhýdrópyridíni eða einhverju hjálparefnanna. Hindrun á útflæði frá vinstri slegli. Ómeðhöndluð hjartaþröng (congestive cardiac failure). Óstöðug hjartaöng.
Minna en mánuður frá stíflufleyg í hjartavöðva. Alvarlega skert starfsemi nýrna eða lifrar. Samhliða notkun með: Sterkum CYP3A4 hemlum, ciclosporíni,
greipávaxtasafa. Meðganga og brjóstagjöf. Konur á barneignaaldri nema notaðar séu virkar getnaðarvarnir. Upplýsingar um aukaverkanir, milliverkanir,
varnaðarorð og önnur mikilvæg atriði má nálgast í sérlyfjaskrá – www.serlyfjaskra.is. Pakkningar og hámarksverð í smásölu (desember 2014): 10 mg,
28 stk.: 1.905 kr., 10 mg, 98 stk.: 3.550 kr., 20 mg, 98 stk.: 5.665 kr. Afgreiðsluflokkur: R. Greiðsluþátttaka: G. Markaðsleyfishafi: Actavis Group PTC ehf.
Frekari upplýsingar: www.actavis.is, s: 550 3300. Dagsetning nýjustu samantektar um eiginleika lyfsins: Desember 2014. Desember 2014.
10 mg og 20 mg filmuhúðaðar töflur.
14
0/
10
0
15
0/
110
Work in Denmark
Personalhuset Agito HealthCare provides an exciting
alternative to traditional employment.
Working with us in denmark will give you a perfect oppor tunity to work in a new environment of personal as well as professional growth.
All our employments are 6 months or longer, with flexible scheduling of shifts depending on your personal wishes and lifestyle.
Many of our doctors choose to work three weeks and then be vacant for nine consecutive days or work four days in a week with Friday off so
that you can commute back. Strong compensation and benefit package:
More free time at a great salary
More clinical and less administrational work
Working in a dynamic international environment
Flexible working schedules
Expanding your horizon and your professional know-how
Learning how to work with your field of expertise in a different country
We are currently working in denmark within the following medical specialties: anesthesia, psychiatry, child and adolescent psychiatry,
radiology, pathology, geriatrics, internal medicine, cardiology, pulmonary medicine, Medical gastrointestinal, neurology, oncology, orthopedic
surgery, and ophthalmologist.
Good knowledge of danish, Swedish or Norwegian is required.
Please contact Recruitment Consultant
Emma Lundkvist Richkin
for more information.
By phone 0046760067978 or email
emma.lundkvist.richkin@personalhuset-sg.com
U M F J Ö L L U N O G G R E I N A R