Læknablaðið

Årgang

Læknablaðið - 01.11.2015, Side 34

Læknablaðið - 01.11.2015, Side 34
534 LÆKNAblaðið 2015/101 U M F J Ö L L U N O G G R E I N A R „Þetta er mjög stórt verkefni sem unnið verður í samstarfi ýmissa aðila. Miðstöð verkefnisins er á Landspítala en mikilvægasti samstarfsaðili okkar er sjúkrahúsið Vogur með læknana Þórarin Tyrfingsson og Valgerði Rúnarsdóttur í broddi fylkingar,“ segir Sigurður Ólafsson sérfræðingur í lifrarsjúkdómum á Landspítala. „Innan Landspítala hafa margir komið að undirbúningi en auk okkar lifrarlæknanna vil ég sérstaklega nefna vísindadeild Landspítala undir forystu Magnúsar Gottfreðssonar yfirlæknis deildarinnar og Maríu Heimisdóttur lækni og framkvæmda- stjóra fjármálasviðs spítalans. Það er lykilatriði að fylgjast vel með því hvernig til tekst með þetta verkefni sem hefur sérstöðu í heiminum. Því fer fram viðamikil faraldsfræðileg rannsókn samhliða meðferðarátakinu. Þarna er ekki um lyfjarannsókn að ræða. Faralds- fræðilegir þættir sem mikilvægt er að rannsaka eru hvernig okkur muni ganga að draga úr nýgengi sjúkdómsins og hvort unnt sé að upp- ræta lifrarbólgu C í heilu samfélagi með samstilltu átaki, hvernig okkur Markmiðið er að útrýma lifrarbólgu C ■ ■ ■ Hávar Sigurjónsson Það sætti nokkrum tíðindum þegar spurðist í haust að banda- ríska lyfjafyrirtækið Gilead hefði ákveðið að leggja til ný og mun öflugri lyf við lifrarbólgu C í tengslum við fyrirhugað meðferðarátak þar sem öllum Íslendingum sem smitaðir eru af veirunni verður boðin lyfjameðferð. Fyrr í sumar hafði sprottið upp kröftug umræða um að íslensk heilbrigðisyfirvöld drægju lappirnar í að taka ákvörðun um að veita sjúklingum með lifr- arbólgu C aðgang að nýju lyfjunum og þá aðallega vegna mikils kostnaðar við lyfin en rangt væri að forgangsraða sjúklingum vegna kostnaðarsjónarmiða. Engu var líkara en lyfjafyrirtækið Gilead hefði séð sér leik á borði og höggvið á þennan hnút og gerst um leið stór vel- gjörðamaður íslensku þjóðarinnar en að sögn mun svo ekki vera; verkefnið hefur verið í undirbúningi í eitt ár og er ótengt því hvort íslensk heilbrigðisyfirvöld myndu fjármagna nýju lyfin eða ekki. Tímasetningin var engu síður afskaplega vel heppnuð. Íslensk heilbrigðisyfirvöld munu síðan veita 150 milljónum á ári til verkefnisins sem meðal annars verður varið til blóð- rannsókna og annarrar þjónustu sem tengist meðferðarátakinu. Talið er að sýktir einstaklingar hér á landi séu 800-1000 talsins. Þeir læknar sem Læknablaðið ræddi við um þetta mál hafa ennfremur lagt áherslu á að hér sé ekki um tilraun með lyf að ræða; lyfin eru þegar prófuð og gagnsemi þeirra staðfest í læknisfræðilegum tilraunum; hér er um að ræða viðamikið meðferðarátak en samhliða fara fram faraldsfræðilegar rann- sóknir á árangri og áhrifum þess til skemmri og lengri tíma, meðal annars hvort takist að ráða niðurlögum veirunnar í heilu samfélagi með því að bjóða lyfjameðferð öllum sem bera veir- una án tillits til þess hversu langt sjúkdómurinn er genginn. Ber öllum saman um að þetta séu stærstu tíðindi þessa árs í heilbrigðismálum þjóðarinnar og ef markmið verkefnisins næst, að útrýma lifrarbólgu C veirunni úr íslensku samfélagi, gæti það haft veruleg áhrif á alla nálgun að meðferð sjúkdóms- ins á heimsvísu. „Allir fá meðferð með nýju lyfjunum“ – segir Sigurður Ólafsson sérfræðingur í lifrarsjúkdómum

x

Læknablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.