Dagblaðið Vísir - DV - 19.06.2009, Page 22

Dagblaðið Vísir - DV - 19.06.2009, Page 22
Húsbrot Orðið húsbrot fékk alveg nýja merkingu 17. júní þegar óðalsbóndi á Álftanesi sótti sér skurðgröfu og braut og bramlaði íbúðarhús sem hann hafði misst í hendur bankans síns. Húsið hafði hann byggt með eigin höndum og kaus að rífa það sjálfur frekar en horfa á eftir því í fasteignasafn bank- ans. Óhætt er að segja að blessað- ur maðurinn hafi slegið í gegn með þessu uppátæki sínu og þrátt fyrir að um skýlaust lögbrot sé að ræða nýtur hann samúðar fjöldans enda eru þeir líklega vandfundnir Íslendingarnir sem bera hlýjan hug til banka þessa dagana. Og breytir þá engu hvort bankarnir kalli sig skilanefndir eða beri forskeytið „nýi“. Drjúgum fjölda fólks, sem nú leigir sér þak yfir höfuðið af bönkunum eftir að lán þess urðu óyfirstíganleg, finnst sjálfsagt bankarnir hafa gert sig seka um húsbrot og sér því eitthvert dás- amlegt ljóðrænt réttlæti í því að hús- eign peningastofnunar hafi fallið fyrir hendi fyrri eiganda sem koxaði eftir efnahagshrunið. Svarthöfði sér húsbrotið á Álfta-nesi fyrst og fremst sem gjörn-ing. Einhvers konar listaverk sem á miklu frekar erindi á tvíæringinn í Feneyjum frekar en einn vitleysingur að mála annan í sunds- kýlu á hverjum degi í hálft ár. Rústirn- ar á Álftanesi með númerslausan bíl í ómerktri gröf sem toppaði alveg tak- markalausa snilldina er listaverk sem allur almenningur skilur. Það er tákn- rænt á svo mörgum plönum og höfðar til skynjunar, skynsemi og óheflaðra tilfinninga. Brakið á Álftanesi er jafn- rökrétt framhald af „Helvítis, fokking fokk“ og Rocky III var af Rocky II. Þrátt fyrir að almenningi virð-ist yfirleitt finnast húsbrot-ið bráðsniðugt eru auðvitað ekki allir á einu máli og eitt- hvað er verið að hártogast um hversu skynsamlegt þetta var. Hvort þetta sé réttlætanlegt og hvort þetta sé til eftirbreytni. Einhverjir óttast meira að segja að þetta verði að álíka trendi og að berja búsáhöld þannig að hér sé umhverfisslys í uppsiglingu. Að hvert sem litið verði muni húsarústir blasa við eftir því sem fleiri heimili falla bönkunum í skaut. Svarthöfði hugsar ekki eftir þessum brautum og honum er nákvæmlega sama hvort gjörningurinn á Álftanesi sé upphafið að einhverju eða endir. Í bókum Svarthöfða skiptir það engu máli enda metur Svarthöfði hluti og fólk bara út frá því hvort þeir séu hallærislegir eða töff. Og húsbrotið á Álftanesi var mjög töff. föstudagur 19. júní 200922 Umræða Sandkorn n Hátekjuskatturinn sem Steingrímur J. Sigfússon og samherjar í ríkisstjórn boða að eigi að leggjast á tekjur yfir 700 þúsund krónum. Hægri- bloggarinn Friðjón R. Frið- jónsson lék sér að því að kanna muninn á hátekju- skatti og þingfar- arkaupi fyrr og nú og komst að þeirri niðurstöðu að laun þingmanna eru alltaf rétt undir „velsæmismörkum“ eins og hann nefnir mörk- in þar sem hátekjuskattur- inn leggst á. Þegar hátekju- skattur var lagður á 1992 var þingfararkaup 89,9 prósent af töfratölunni þar sem há- tekjuskatturinn leggst á. Nú er þingfararkaupið 74 prósent af töfratölunni og 85 prósent ef álag sem þingflokksfor- menn, varaforsetar Alþingis og nefndaformenn fá. n Frægð Ástu Ragnheiðar Jóhannesdóttur rís senni- lega hærra nú eftir að hún varð forseti Alþingis en nokkru sinni fyrr á stjórn- málaferli hennar. Kraftmikill einleikur hennar á bjöllu for- seta þegar hún stöðvaði Sig- mund Davíð Gunnlaugsson, formann Framsóknarflokks- ins, af í ræðustól Alþing- is vakti það mikla athygli í fréttatímum sjónvarpsstöðv- anna í vikunni að það hefur varla farið framhjá mörgum. Bjallan átti þó aftur eftir að hljóma í vikunni og þegar Birgitta Jónsdóttir spurði for- sætisráðherra spjörunum úr á fimmtudag sló Ásta Ragn- heiður taktfast í bjölluna og áminnti þingmanninn í sífellu um hvernig bæri að ávarpa forseta og ráðherra. n Stutt hlé varð þó á tón- um bjöllunnar þegar Ásta Ragnheiður Jóhannesdótt- ir, forseti Alþing- is, upp- götvaði að næsti þingmað- ur sem hafði kvatt sér hljóðs var ekki í þingsaln- um. Beið hún því stutta stund þar til Guðlaugur Þór Þórðar- son skundaði léttum skrefum í þingsal til að spyrja forsæt- isráðherra spjörunum úr. Eitt sem vakti ekki minni athygli áhorfenda en spurningarn- ar var ný hárgreiðsla þing- mannsins sem var orðinn svo snöggklipptur að einhverj- ir veltu fyrir sér hvort þarna væri kominn fyrsti snoð- klippti þingmaður sögunnar. LyngháLs 5, 110 reykjavík Útgáfufélag: útgáfufélagið Birtíngur ehf. Stjórnarformaður: hreinn Loftsson framkvæmdaStjóri: elín ragnarsdóttir ritStjórar: jón trausti reynisson, jontrausti@dv.is og reynir traustason, rt@dv.is fréttaStjórar: Brynjólfur Þór guðmundsson, brynjolfur@dv.is og Þórarinn Þórarinsson, toti@dv.is auglýSingaStjóri: ásmundur helgason, asi@birtingur.is dv á netinu: dv.is aðalnÚmer: 512 7000, ritStjórn: 512 7010, áSkriftarSími: 512 7080, auglýSingar: 512 70 50. umbrot: dv. Prentvinnsla: Landsprent. dreifing: árvakur. dv áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð. „KR hefur öllu að tapa.“ n Ásmundur Haraldsson, þjálfari Gróttu, um leik liðanna í 32 liða úrslitum bikarsins. - DV „Þetta er ein af æðstu stöðum innan menning- arlífs á Íslandi.“ n Sigurður Kaiser hefur verið hvattur til að sækja um stöðu þjóðleikhússtjóra. - Fréttablaðið „Lazarov leit út eins og tíu ára stelpa á vellin- um.“ n Landsliðsmarkvöðurinn Björgvin Páll Gústavsson pakkaði stórskyttu Makedóna, Kiril Lazarov, saman í Höllinni. - RÚV „Fyrrverandi stjórnendur Landsbankans bera alla ábyrgð á Icesave.“ n Framsóknarmaðurinn og fyrrverandi Iðnaðarráðherra, Jón Sigurðsson, veit hverjir eiga sökina. - pressan.is „Ég var einu sinni handtekinn fyrir að reyna að brjótast inn í bíla í beinni útsendingu en ég var bara að þykjast.“ n Jón Gnarr rifjar upp hressandi fíflagang Tvíhöfða á sínum tíma. - Morgunblaðið Til varnar tortryggni Leiðari Þeir sem vilja eyða tortryggni og endurvekja samstöðuna á Íslandi mættu athuga að brennt barn sem ekki forðast eldinn er að öllum lík- indum greindarskert. Það er ekkert að því að vera greindar- skertur eða glaðlyndur í hvívetna, en sá sem mælir fyrir slíku viðhorfi fyrir heila þjóð ætti með réttu að vera tortryggður. Allt bend- ir nefnilega til þess að það hafi verið skort- urinn á tortryggni sem gerði yfirvöldum og bönkum kleift að stefna almenningi í mesta fjárhagstjón síðari ára. Undanfarið hefur verið töluverður áróður gegn tortryggni og afsprengi hennar, gagn- rýni. Sigríður Benediktsdóttir í rannsóknar- nefnd um efnahagshrunið átti að víkja vegna þess að hún gagnrýndi hið augljósa, að hér- lendis hefði vantað eftirlit. Annaðhvort vant- aði eftirlitið, eða eftirlitið sá það sem var að og gerði ekkert í því. Það er vægari skoðun að telja eftirlitið hafa stundað gáleysi, frekar en vanrækslu að yfirlögðu ráði. Eva Joly, ráðgjafi í rannsókninni, átti líka að víkja, meðal annars vegna þess að hún væri að ala á tortryggni. Það er þekkt í rannsóknum félagsfræð- innar að hópur sem mætti kalla yfirstétt svarar öðruvísi um álitamál í þjóðfélaginu en aðrir borgarar. Þessi hópur er tiltölulega fámennur, en samanstendur af stjórnendum og þeim sem hafa mun hærri tekjur en hinn venjulegi maður. Taka mætti dæmi af stýrivöxtum. Háir vextir eru góðir fyrir þá sem eiga mikið fé, því þeir auka vaxtagróðann á sparifénu. Þeir eru vondir fyrir þá sem skulda, því þeir hækka skuldirnar. Áhrif stýrivaxta eru afstæð eftir því hvaða stétt þú tilheyrir. Svo vill til að hóp- ur þeirra sem hagnast á háum vöxtum er fá- mennur og í tilfelli Íslands eru flestir þeirra erlendis. Samstaða á ekki við í þessu tilfelli, en samt er þetta eitt mikilvægasta álitamálið í landinu. Svo vill til að hefðbundnum fjölmiðlum er jafnan stjórnað af stétt stjórnenda, og slíkt fólk er yfirleitt fengið til að veita álit sitt í fjöl- miðlum. Vald hefðbundinna fjölmiðla hef- ur hins vegar farið þverrandi, vegna þess að skoðanavaldið hefur dreifst á netinu. Skortur á tortryggni hentar til dæmis þeim sem vilja aðhafast án eftirlits og þeim sem hafa unnið gegn hagsmunum almenn- ings. Tortryggni upp að einhverju marki er hins vegar nauðsynleg í hagsmunagæslu fyr- ir almenning. Enginn getur heimtað traust. Það ávinnst með hæfni og heiðarleika. Vegna hrunsins hefur almenningur myndað með sér eina virka móteitrið gegn spillingu yfirvalda og ranggjörðum gegn fjöldanum. Það er heilbrigt að almenn- ir borgarar tortryggi yfirvöld. Þeir ættu að fylgjast með hverri einustu aðgerð yfirvalda, ekki síst rannsókninni á misgjörðum þeirra sem nærðust á krosseignatengdum gervi- viðskiptum sem almenningur borgar nú fyr- ir. Það gagnrýna lífsviðhorf sem Íslendingar hafa öðlast síðustu níu mánuði er of mikil- vægt til að því verði eytt með ástæðulausri samstöðu og blindu trausti. Tortryggni er ekki vandinn, hún er lausn- in. Jón trausti reynisson ritstJóri skrifar. Tortryggni er ekki vandinn, hún er lausnin. bókStafLega Kreppan gerir kröfur Kreppa er yndislegur tími og gefur manni svo ótrúlega margt. Allir fá sítt að aftan, vegna þess að menn hafa ekki augu í hnakkanum og sjá svo illa til þegar hnakkalubbinn er klippt- ur með óæfðum handtökum. Maður gerir þetta bara sjálfur og það besta er að maður hefur bara yndi af. Og eftir að hafa klippt hárið sjálfur fer maður á rúntinn með strætó, fer í göngutúr um hverfið eða situr á tröppunum heima og horfir á tré og runna, fugla, flugur og jafnvel frjálsa ánamaðka sem skríða yfir gangstéttina. Arfi og fíflar verða hið ótrúlegasta augnayndi þegar buddan leyfir ekki bíóferðir. Já, og allt er þetta nánast ókeypis. Að vísu kostar eitthvað örlítið að fara í strætó. En það besta er að maður ræður sjálf- ur hversu langt maður fer. Óáreittur situr maður í vagni sem malar eins og saddur og ofalinn köttur. Ég skal segja ykkur það, kæru landsmenn, að ég á nágranna sem ég vissi ekki einu sinni að væru til og ég hef upp á síðkastið verið sóttur heim af ættingjum sem ég hafði aldrei heyrt af. Það koma meira að segja til mín skólafélagar og tala um bekk sem ég var aldrei í og ég heyri af kennurum sem áttu nafnnúmer en fengu aldrei kennitölu. Í dag er bruðlið bannað og ilmur af ódýru sápustykki er sá svitalyktareyð- ir sem í boði er. Núna er vatnið besti drykkurinn og maður er að smakka mat sem bragðast bara þokkalega, jafnvel þótt slíkt óæti hefði varla þótt hæfa til manneldis hér í eina tíð. Núna er jafnvel yndislegt að hlusta á heimska framsóknarmenn. Ég er svo glaður að ég horfði fimm sinnum á litla strákinn sem talar eins og kálf- ur á súlfalyfjum. Æ, hann þarna sem er alltaf að lofa öllu fögru og er búinn að gleyma allri vitleysunni sem Finn- ur Ingólfsson, Halldór Ásgrímsson og Valgerður Sverrisdóttir unnu hér um árið. Já, ég fór á netið og kíkti á ruglu- dallinn og sá hann verða sér og sín- um til ævarandi skammar með því að þráast við eins og óþekkur krakki á meðan forseti Alþingis reyndi að reka hnokkann úr ræðustóli. Já, þegar maður hefur meira að segja yndi af fíflum þá hefur kreppan öðlast gildi sem gefur og gleður. Nú gleymist fólk sem gráðugt hló er góðærið hér varði og nú má jafnvel finna fró hjá fíflum útí garði. kristján hreinsson skáld skrifar „Núna er jafnvel yndislegt að hlusta á heimska fram- sóknarmenn.“ SkáLdið Skrifar Svarthöfði

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.