Dagblaðið Vísir - DV - 19.06.2009, Blaðsíða 41
föstudagur 19. júní 2009 41Sport
200
9
aði því með annarri tillögu og hef-
ur FIA nú borið enn aðra tillögu
á borð. Útgjaldaþakið verður sett
í 100 milljónir punda fyrir næsta
tímabil samþykki liðin að lækka það
í 45 milljónir punda fyrir tímabilið
2011. Einnig bauð hann að leyfa
dekkjahitara áfram og ekki verði
tvöföld reglugerð eins og Mosley
vildi ná fram fyrir ný lið.
Massa pirraður
Felipe Massa, ökumaður Ferrari,
sem varð annar í keppninni um
heimsmeistaratitilinn á síðasta ári
er orðinn vel pirraður á deilumál-
um keppnisliða og FIA. Massa hót-
aði um daginn að hætta þátttöku í
Formúlunni. „Staðan er ekki góð
eins og er en ef samkomulag næst á
milli FIA og FOTA á Formúlan fram-
tíð fyrir sér. Ef það tekst ekki verður
að skoða rækilega hver besti kostur-
inn er í stöðunni. Keppnisliðin virð-
ast samheldin hvað sín mál varð-
ar og þá gæti verið tími til þess að
skoða eitthvað annað sem gæti ver-
ið betra fyrir íþróttina,“ segir Massa.
„Hvað sem gerist í keppn-
inni á Silverstone um
helgina verður
aksturinn alltaf í
skugga pólitík-
urinnar í kring-
um hann. Þegar
ég stýri bílnum
kemst ekkert
annað að hjá
mér. Utan bíls-
ins hefur þetta
ástand auðvit-
að áhrif á mig
enda varðar
þetta framtíð
mína sem
ökumaður
í Formúlu
1. Við höf-
um allir
áhyggjur
og fylgj-
umst
rækilega
með hvað
er að ger-
ast. Þetta er samt í höndum þeirra
sem stjórna Formúlunni og liðun-
um. Ég einn get litlu breytt,“ segir
Felipe Massa.
SíðaSta keppnin
á SilverStone
Bretlands-kappaksturinn
2008
efstu menn
1. Lewis Hamilton, McLaren
2. nick Heidfeld, BMW
3. rubens Barrichello, Honda
4. Kimi raikkonen, ferrari
5. Heikki Kovalainen, McLaren
ráspóll 2008
Heikki Kovalainen - 1:21:049
Fljótastur í einstökuM
hring 2008
Kimi raikkonen, ferrari - 1:32:150
BrautarMet
Michael schumacher, ferrari
- 1:18:739
Fyrri sigurvegarar
2005: juan Pablo Montoya, McLaren
2006: fernando alonso, renault
2007: Kimi raikkonen, ferrari
2008: Lewis Hamilton, McLaren
HeiMiLd: KaPPaKstur.is
stigakeppni ökuManna
1. jenson Button, Brawn gP - 61 stig
2. rubens Barrichello, Brawn gP - 35
stig
3. sebastian Vettel, red Bull - 29 stig
4. Mark Webber, red Bull - 27,5 stig
5. jarno trulli, toyota - 19,5 stig
6. timo glock, toyota - 15 stig
7. nico rosberg, Williams - 11,5 stig
8. felipe Massa, ferrari - 11 stig
9. fernando alonso, renault - 11 stig
10. Kimi raikkonen, ferrari - 9 stig
11. Lewis Hamilton, McLaren - 9 stig
stigakeppni BílasMiða
1. Brawn gP - 96 stig
2. red Bull - 56,5 stig
3. toyota - 32,5 stig
4. ferrari - 20 stig
5. McLaren - 13 stig
6. Williams - 11,5 stig
7. renault - 11 stig
8. BMW - 8 stig
9. toro rosso - 5 stig
10. force india - 0 stig
Max Mosley Á í hörðum deilum við fOta.
Íslenski bardagaíþróttamaður-
inn Gunnar Nelson verður á með-
al þátttakenda á ADCC-mótinu
í uppgjafarglímu sem fram fer í
september. Þetta er í fyrsta skipt-
ið sem Íslendingar eiga keppn-
ismann á mótinu sem er talið það
erfiðasta í heiminum. Til þess að
komast á mótið þarf að vinna eitt-
hvað af undanmótunum fyrir það
eða fá boð. Gunnar fékk boð enda
hefur árangur hans í brasilísku jiu
jitsu að undanförnu verið ómann-
legur. Hann vann stærsta mót árs-
ins, Pan-meistaramótið, og opna
bandaríska mótið og rétt missti svo
af gullverðlaunum á sjálfu heims-
meistaramótinu fyrr í júní.
ADCC er keppni sem fær til sín
bestu glímumenn heims úr mis-
munandi bardagalistum svo sem
jiu jitsu, júdó, fjölbragðaglímu,
sambo og fleirum og keppa þeir
undir sameiginlegum reglum
þannig að hver getur notað sinn
stíl. Keppendur ráða því hvort þeir
klæðist galla, ekki ósvipuðum þeim
og notaður er í júdó, og ráða einnig
hvort þeir keppi í glímuskóm.
Keppninni var komið á laggirn-
ar af Sjeik Zayed og er ætluð sem
eins konar heimsmeistarakeppni í
gólfglímu. Keppt er annað hvert ár
og verður afar fróðlegt að sjá hvort
Gunnar haldi sínum magnaða ár-
angri áfram. tomas@dv.is
gunnar Fékk boð
á erFiðasta mótið
gunnar nelson keppir á erfiðu móti í Barcelona:
gunnar nelson
Boðin þátttaka í
erfiðasta glímu-
móti í heimi.