Dagblaðið Vísir - DV - 19.06.2009, Side 50
Fyrir brjósta-
miklar konur
Bikinítoppur
sem bundinn
er um hálsinn.
föstudagur 19. júní 200950 Lífsstíll
Góð ráð við appelsínuhúð til eru alls kyns skamm-
tímalausnir til að koma í veg fyrir appelsínuhúð. Haltu þig frá
mat sem inniheldur mikið salt. Borðaðu prótín- og trefjaríkari
fæðu. tómatar og kál og sítrusávextir eru sérstaklega góðir.
Einnig er gott að drekka grænt te. farðu í ræktina reglulega og
mundu eftir því að nudda verstu svæðin á utanverðu lærinu. Ef
þú ert á leið út á lífið í stuttum kjól er einnig gott að setja á sig
búnkukrem. Það hylur oft appelsínuhúðina – um stund allavega.
Umsjón: úlfar finnbjörnsson.
Mynd: Karl Petersson
Á sumrin má finna grilllykt á hverju
götuhorni, enda eru Íslendingar afar
duglegir að grilla yfir sumartímann.
Fátt er betra á fallegum sumardegi
en grillað kjöt eða fiskur og dásam-
legt meðlæti. Íslendingum hættir þó
oft til að vera svolítið einhæfir í grill-
mennskunni en í nýjasta hefti tíma-
ritsins Gestgjafans, sem kemur út
í næstu viku, má finna ógrynni af
bráðskemmtilegum og öðruvísi upp-
skriftum fyrir hina fullkomnu grill-
veislu. Úlfar Finnbjörnsson, mat-
reiðslumeistari Gestgjafans, deilir
einni slíkri með lesendum DV.
10 2x2x8 cm laxalengjur
10 grillspjót
Teriyaki-sósa:
1 dl teriyaki-sósa
1 tsk. engifer, smátt saxað
2 hvítlauksgeirar, smátt saxaðir
½ chili-aldin, fræhreinsað og smátt
saxað
1 msk. hunang
Setjið allt í skál og blandið saman.
Þræðið laxinn á grillspjótin og penslið
með helmingnum af sósunni. grillið á
vel heitu grilli í 40-60 sek. báðum megin.
Berið fram með afganginum af sósunni.
Girnileg sumaruppskrift úr Gestgjafanum:
laxa-teriyaki með enGifer,
hvítlauk oG chili
umsjón: Hanna EiríKsdóttir, hanna@dv.is
frábærar
ferðir um
viðey
Hægt er að skreppa í frábærar
fjölskylduferðir til Viðeyjar í sumar. í
boði eru skemmtilegar göngur um
eyjuna fallegu og á þriðjudaginn
næstkomandi verður haldin
nokkurs konar jónsmessuganga
og verður hún sú lengsta sem af er
árinu. Leiðsögn er í höndum örlygs
Hálfdanarsonar bókaútgefanda
og mun hann fræða áhugasama
um eyjuna fallegu. Áhugasömum
gefst þá tækifæri til þess að skoða
einn fallegasta stað borgarlandsins
þegar sól er sem lægst á lofti undir
miðnætti.
Einnig geta göngugarpar stoppað
við í Viðeyjarnausti og fengið sér
hressingu. siglt er frá skarfabakka
klukkan 19.15 og er heimferðartími
miðaður við lengd göngunnar. gjald
í ferjuna er eitt þúsund krónur fyrir
fullorðna og fimm hundruð fyrir
börn sex til 18 ára. frítt er fyrir börn
yngri en sex ára. Leiðsögnin sjálf
er ókeypis. Þátttakendur fá gefins
Kristal sódavatn frá ölgerðinni.
Mikilvægt er að þekkja líkama sinn
vel. Mjög fáar konur eru með hinn
fullkomna líkama og þess vegna er
mikilvægt að vera meðvituð um að
velja sér fatnað sem hylur líkamspart-
ana sem ekki eru í sínu besta standi
og ýta undir það fallega. Þú átt eftir að
njóta sumarins svo miklu betur.
Finndu rétta bikiníið
Ef þú vilt ekki vera í sundbol í sum-
ar er til endalaust úrval af bikiníum.
Maður þarf einfaldlega að gefa sér
tíma til að finna það rétta.
Stór að ofan
Finndu þér bikiní sem hylur vel og
reyndu að sýna eins litla skoru og
mögulegt er. Mundu að stuðningur
er afar mikilvægur. Bikiní sem bundin
eru aftur fyrir háls eru mjög góð fyr-
ir brjóstastórar konur. Það sama má
segja um sundboli.
Grönn að ofan
Í þessu tilviki er mikilvægt að finna sér
bikiní sem ýtir undir brjóstin og býr til
flotta brjóstaskoru. Ef þú ert ekki hrif-
in af að sýna brjóstaskoru er alltaf flott
að velja sér bikinítopp án banda.
Grannt mitti
Hér er mikilvægt að velja sér bað-
fatnað sem ýkir línurnar. Konur með
grannt mitti taka sig einnig vel út í
sundbolum án hliða.
Breitt mitti
Sundbolir og bikinítoppar bundnir
um hálsinn. Forðastu mynstruð bik-
iní og veldu liti sem vinna með lík-
ama þínum og húðlit. Konur með
ljósari húð eiga að ganga í sterkari lit-
um en þó fara dekkri litir bæði ljósum
og dökkum konum vel.
Langir leggir
Finndu þér töff stuttbuxur eða stutt-
pils. Þau gera mikið fyrir
leggjalangar konur.
Stuttir leggir
Finndu þér bikiní sem
nær hátt upp á mjaðmir.
Ímyndaðu þér sundbol-
ina úr Miami Vice-þátt-
unum. Einnig er sniðugt
fyrir leggjastuttar konur
að finna sér bikiní með
láréttum röndum. Rend-
urnar lengja leggina.
Beinar línur
Sundbolur eða bikiní
með belti eða eitthvað
sams konar til þess að
búa til mitti.
Finndu rétta
bikiníið
Sumarið er komið og þá draga konur fram baðfötin sín. Margar konur kvíða mikið
fyrir þessum tíma árs enda er leitin að réttu baðflíkinni ávallt erfið. Mörgum kon-
um líður betur í sundbol, en jafnvel þá er erfitt að finna. DV tók saman nokkur góð
ráð til þess að hafa í huga þegar farið er í hinn árlega baðfataleiðangur.
Sumarið er komið
Og þá þarf að huga
að baðfatnaði.
Laxa-teriyaki slær í gegn
í hvaða veislu sem er.
HaFðU þeTTa í HUGa
Það er alltaf gott að hafa einhvern með sér í verslunarleiðangurinn. Einhvern sem er ekki hræddur við að vera hreinskilinn. að fá álit einhvers byggir upp sjálfstraustið. Eins er gott að hafa það í huga að taka ekki gagnrýni illa. manneskjan er að reyna að hjálpa þér.
Vertu stolt hvort sem þú ert 50 kíló eða 150 kíló. sjálfsöryggi er 80 prósent af líðan þinni. fólk tekur eftir svona hlutum, miklu frekar heldur en aukakílóunum þínum. Ein góð regla er að standa fyrir framan spegilinn og segja við sjálfa þig: „Ég er falleg.“
Haltu þér í góðu formi með því að borða hollan mat og æfa reglulega. Á sumrin er um að gera að kíkja í sund, fara út að hjóla eða í góða göngutúra. Ekki gleyma að þótt þú sért ekki í toppformi ertu að hreyfa þig og það byggir upp sjálfstraustið. Lífið er til þess að njóta þess.
Fyrir konur
með lítil
brjóst Þessi
toppur sem
Eva Longoria
er í er frábær.
Fullkominn sundbolur
fyrir konur með grannt mitti.