Dagblaðið Vísir - DV - 07.08.2009, Side 2
Óvíst er hvort Jóhanna Sigurðardóttir mætir á Gay
Pride um helgina. Forsætisráðuneytið neitar að svara þeirri
spurningu. Embættistaka Jóhönnu vakti heimsathygli enda fyrsti
samkynhneigði forsætisráðherrann í heiminum. Heimir Már Pét-
ursson, framkvæmdastjóri Gay Pride, segir Jóhönnu velkomna á
Gay Pride eins og alla landsmenn en skilst að hún verði ekki í
bænum.
hitt málið
Þetta helst
- þessar fréttir bar hæst í vikunni
Lánabók opnast
Leyniskjöl lánanefndar Kaup-
þings, sem tekin voru saman
fyrir fund rétt fyrir hrun og voru
birt á netinu, hafa verið mál mál-
anna. Skjölin sýna skuldsetningu
ýmissa fyrirtækja sem fengu lán
hjá bankanum og hvernig tryggingum og
veðum virtist oft ábótavant. Þá varð sú
ákvörðun bankastjórnar Kaupþings og
skilanefndar gamla Kaupþings að fara
fram á og síðan fá lögbann á fréttaflutn-
ing Ríkisútvarpsins til þess að mikil reiði
braust út í samfélaginu. Einn þeirra sem
fengu mikil lán hjá Kaupþingi er Skúli
Þorvaldsson, sonur Þorvaldar í Síld og
fisk. Hann er með mikinn rekstur erlendis en fékk líka lánað gegn
hlutabréfum í Kaupþingi og Exista.
MikiL áhættusókn
Bjarni Ármannsson var rekinn úr stöðu bankastjóra skömmu eftir
að nýir eigendur tóku yfir Glitni vegna þess að hann þótti of varkár
í rekstri bankans. Lárus Welding var ráðinn hans í stað og hóf nýja
stórsókn sem fólst í því að stórauka útlán. Starfsmenn á lánasviði
fengu bónusa fyrir útlán til fyrirtækja og gátu þar
með hækkað laun
sín til mikilla muna.
Nýir ráðandi eigend-
ur mörkuðu sér nýja
stefnu. Þegar Jón Ás-
geir Jóhannesson og
félagar náðu yfirhend-
inni í Glitni var strax
ljóst hvert átti að fara.
Stækka bankann og
það verulega.
óvinsæLL nefskattur
Margir hafa orðið til að kvarta
undan nefskattinum til
Ríkisútvarpsins sem blasti við á
álagningarseðlum um síðustu
mánaðamót. En það eru ekki
eingöngu einstaklingar sem greiða nef-
skattinn. Það gera líka hin margvíslegustu
félög og fyrirtæki. Í húsinu við Suður-
landsbraut 18 eru 259 fyrirtæki skráð til
húsa. Hvert þessara fyrirtækja þurfti að
greiða 17.200 krónur í útvarpsgjald til
RÚV. Því fær RÚV tæpar fjórar og hálfa
milljón króna frá þessu eina hús.
1
BJÖRN THORS
Í HLUTVERKI
BLAÐAMANNS
F r j á l s t , ó h á ð d a g b l a ð
Skúli ÞorvaldSSon fékk risalán hjá kaupþingi:
MILLJARÐA
MAÐURINN
dv.is
MIÐVIKUdAgUR Og fIMMTUdAgUR 5. – 6. ágúst 2009 dagblaðið vísir 109. tbl.99. árg. – verð kr. 347
n SKULdAR TUgI MILLJARÐA
UMfRAM EIgNIR
nÁTTI 3% Í KAUPÞINgI
nfAÐIR HANS EINN RÍKASTI MAÐUR
LANdSINS UM ÁRABIL
n gAgNRÝNdI ÓÁBYRg ÚTLÁN
BANKA HARÐLEgA
n„ÞAÐ VANTAR AgA Í SAMfÉLAg OKKAR“
„SVO TÓK Ég ÁKVÖRÐUN
UM AÐ KEYRA ÞARNA INN“
nVEIKUR MAÐUR fÉKK EKKI SJÚKRAHÚSVISTUN Og KEYRÐI INN Í LÖgREgLUSTÖÐ
ICELANdAIR
RUKKAR
ÖMMU UM
40 ÞÚSUNd
fRÉTTIR
ReykIR
í sJóNUM
SVIÐSLJÓS
nJACK NICHOLSON
HRESS Á ÁTTRæÐISALdRI
RÚV FÆR
FJóRAR
MILLJóNIR
ÚR eINU HÚsI
fYRIR AÐ BREYTA
fLUgI ÖMMUBARNSINS
fÓLK
FeNGU BORGAÐA
BóNUsA FyRIR AÐ
AUkA skULDIR
ngLITNIR fÓR Í
STÓRSÓKN UNdIR STJÓRN
LÁRUSAR WELdINg
n BJARNI ÁRMANNSSON
VAR REKINN
fRÉTTIR
NEYTENdUR
2
2 miðvikudagur 5. ágúst 2009 fréttir
Í byrjun apríl 2007 tóku að berast frétt-
ir af því að fram undan væru breyting-
ar á eignarhaldi Glitnis, sem þá var í
meirihlutaeigu Fl-Group og Miles-
tone. 4. apríl sagði Ríkisútvarpið frá
því að Hannes Smárason hefði í félagi
við Jón Ásgeir Jóhannesson tryggt sér
stuðning margra hluthafa og að þeir
ætluðu sér aukin áhrif í bankanum.
Viðskiptin urðu svo að veruleika strax
nokkrum dögum síðar, en ljóst var að
fleira var í aðsigi.
Sögusagnir fóru á kreik um að
Bjarna Ármannssyni, þáverandi for-
stjóra bankans, yrði bolað út af nýj-
um meirihlutaeigendum. Bjarni var
spurður út í þennan orðróm í frétt-
um Stöðvar 2 og svaraði svona: ,,Ja,
það á auðvitað bara eftir að koma í
ljós hvaða áhrif og áherslur hluthaf-
ar hafa.... en ég hef áhuga á að vera
áfram forstjóri bankans.“ Aðeins 20
dögum síðar var þetta allt breytt.
Bjarni hættur sem forstjóri og við tók
Lárus Welding. Viðhorf Bjarna virtist
hafa breyst á örskömmum tíma og
nú sagði hann í fréttum: ,,Ég hef nú
verið í þessu starfi í tæpan áratug og
kannski nú lengur heldur en ég ætlaði
í upphafi en ég held að það sé hægt
að segja það þannig að, að svona að
undanförnu verða miklar breytingar í
manns nánasta umhverfi þá fer mað-
ur nú svona að velta fyrir sér hvort,
eða hugleiða það hvort það séu kom-
in kaflaskil, hvort það sé kominn nýr
þáttur og eftir svona, leggjast aðeins
yfir þetta, komst ég að þeirri niður-
stöðu að líklega væri best fyrir mig að,
að segja þessum kafla lokið.“
Bjarna var vikið úr starfi
Út á við var því harðneitað að Bjarni
hefði verið rekinn og opinbera skýr-
ingin var að hann hefði viljað breyta
um kúrs í lífinu. Samkvæmt afar
traustum heimildum DV er
þetta rangt. Hátt sett-
ir heimildarmenn
innan úr röð-
um Glitnis sem
þekkja mál-
ið út og inn
fullyrða að
Bjarni hafi
verið rekinn
af nýju eig-
endunum og
þar hafi Jón
Ásgeir ráðið
mestu. Ástæð-
an var fyrst
og fremst sú að
Bjarni þótti
of varkár og var ekki tilbúinn að fara
í þá vegferð sem nú átti að fara í með
bankann. Við ætlum að rekja þá sögu
hér á eftir. Máltækið segir ,,sá hlær
best sem síðast hlær“ og það á líklega
við í þessu tilviki. Bjarni seldi alla hluti
sína í Glitni á 7 milljarða um leið og
hann hætti. Hann harmar þá ákvörð-
un líklega ekki í dag. Þarna flæddi allt
í peningum og nýi forstjórinn, Lárus
Welding, fékk 300 milljónir fyrir það
eitt að skrifa undir, ákvörðun sem
var töluvert gagnrýnd á sínum tíma,
enda fáheyrt í íslensku viðskiptalífi
að menn fengju slíkar upphæðir fyrir
það eitt að hefja störf.
,,Back on track“
Þegar Jón Ásgeir og félagar náðu yfir-
höndinni í Glitni var strax ljóst hvert
átti að fara. Stækka bankann og það
verulega. Heimildarmenn DV segja
að Jón Ásgeir hafi viljað að efnahags-
reikningurinn yrði fimmfaldaður á 5
árum. Þegar þarna var komið hafði
Glitnir þegar bólgnað verulega út árin
á undan. Um aldamótin var efna-
hagsreikningur Glitnis í kringum 400
milljarðar, en var orðinn 3.800 millj-
arðar haustið 2008 þegar bankinn
hrundi. Jón Ásgeir og aðrir sem stýrðu
bankanum voru harðákveðnir að fara
af stað í hraða stækkun og Bjarna var
því sparkað. Hann hafði þegar stað-
ist nokkur áhlaup áður og virtist eiga
9 líf í bankanum, en nú var ljóst að
ekki yrði aftur snúið. Heimildarmenn
DV úr innsta kjarna Glitnis segja að
strax og Lárus tók við hafi allt breyst.
Áhættusæknin varð algjör og öllum
sparnaðarprinsippum var hent. Skýr-
asta dæmið um nýja stefnu
Glitnis mátti meðal annars
sjá í 9 mánaða uppgjöri
bankans árið 2007 og
á fleiri stöðum, þar
sem lykilvið-
skiptavinum
voru kynnt
skilaboðin
„back on
track“ til
marks um
það að nú
ætti að hefja
sókn á nýj-
an leik eftir þá
stöðnun
sem hafði ríkt misserið þarna á und-
an. Þá hafði bankinn verið í ákveð-
innni varnarbaráttu og ekkert stækk-
að um nokkuð skeið. Mánuðina
eftir að Bjarni fór úr bankanum tínd-
ust þaðan út allir hans helstu sam-
starfsmenn, sem voru yfir lykilsvið-
um bankans og nýir menn voru settir
inn í staðinn. Með öðrum orðum var
á örskömmum tíma komin algjörlega
ný áhöfn í brúna, sem hafði allt aðrar
áherslur en þeir sem áður höfðu stýrt
bankanum.
Fékk 70% launahækkun
án þess að biðja um hana
Einn heimildarmaður DV sem starf-
aði fyrir Glitni segir svo frá: „Þegar
Lárus tók við voru launin mín hækk-
uð um 70% og ég hafði ekki einu sinni
beðið um launahækkun. Þegar Bjarni
stýrði bankanum var mottóið alltaf að
enginn væri ómissandi. Góðir starfs-
menn fengu vel borgað, en ekki um-
fram ákveðið þak.“ Sami heimildar-
maður segir að þegar Lárus hafi tekið
við hafi launapíramídi bankans verið
flattur algjörlega út og enginn hafi far-
ið frá bankanum, því að allir sem hafi
eitthvað verið farnir að ókyrrast hafi
verið keyptir til að vera um kyrrt.
Verðbréfamiðlari á tugmilljóna
króna bíl á kostnað Glitnis
Fleiri dæmi um breytingar á bank-
anum mátti sjá á bílaflotanum. Í tíð
Bjarna Ármannssonar keyrði hann
sjálfur um á dýrasta bílnum. Flottum
Toyota Landcruiser. Eftir að Lárus tók
við streymdu dýrindis bílar á bílastæð-
in. Allt á kostnað bankans. Svæsnasta
dæmið um þetta var verðbréfamiðlari
sem fékk BMW M5 sportbíl til afnota
á kostnað bankans. Slíkur bíll kostar
yfir 20 milljónir í dag. Þessi lúxusbíla-
kaup bankans voru samþykkt af nýja
forstjóranum, Lárusi Welding.
Fyrirtækjasviðið sprengdi
alla áhættuskala
Heimildarmenn DV, sem þekkja
starfsemi Glitnis út og inn, segja
að mesta og alvarlegasta
breytingin hafi verið
á fyrirtækjasviði
bankans, sem
var sérstakt
áhugasvið
hins nýja
for-
stjóra.
Þar
jókst
áhættusæknin til allra muna með
alvarlegum afleiðingum. Glanna-
leg útlán á fyrirtækjasviði eru ein
stærsta ástæða þess að bankinn féll
að lokum. Á sviðinu unnu rúmlega
20 manns árið 2007 og þeir fengu nú
aukið svigrúm til að lána án þess að
bera það undir yfirmenn. Bónusar
þessarra starfsmanna námu oft um
10% af þóknun bankans, sem var oft
3-4% af heildarútláni. Þannig gátu
starfsmenn nú án nokkurs
fyrirvara lánað allt að 200
milljónir til fyrirtækja og
fengið í sinn snúð 5-700
þúsund krónur fyrir einn
slíkan samning. Safnast
þegar saman kemur og
heimildir DV herma að
nokkrir starfsmenn hafi
allt að tífaldað laun sín
með bónusgreiðslum
þegar best lét. Þessi inn-
byggða áhættusækni var
svo eitt af því sem varð bank-
anum að falli. Starfsmenn
græddu á því að lána sem mest,
alveg sama hvort lántakand-
inn gat greitt lánin
eður ei. Um
þessa
inn-
byggðu áhættusækni í bankakerfi alls
heimsins hefur mikið verið rætt og
ritað og eru sérfræðingar sammála
um að hún sé lykilþáttur í þeirri al-
varlegu stöðu sem nú er uppi um all-
an heim. Íslensku bankarnir létu sitt
ekki eftir liggja í þessu, eins og hef-
ur mátt sjá í tekjuuppgjörum síðustu
ára hérlendis, þar sem tugir banka-
manna hafa margfaldað laun sín
með veglegum bónus-
greiðslum.
Ítrekað far-
ið framhjá
lánanefnd-
inni
En aftur að
Glitni. Í
bankan-
um starf-
aði lána-
nefnd, sem
þurfti að
samþykkja öll
stærstu útlán.
Lánanefnd
bank-
FENGU BÓNUSA FYRIR AÐ LÁNA
Bjarni Ármannsson var rekinn úr stöðu bankastjóra skömmu
eftir að nýir eigendur tóku yfir Glitni. Lárus Welding var ráðinn
í hans stað og hóf nýja stórsókn sem fólst í því að stórauka útlán.
Starfsmenn á lánasviði fengu bónusa fyrir útlán til fyrirtækja
og gátu þar með hækkað laun sín til mikilla muna.
„Þegar Lárus tók
við voru launin mín
hækkuð um 70%
og ég hafði ekki
einu sinni beðið um
launahækkun.“
Helstu eigendur glitnis
rétt áður en ríkið yfirtók bankann
1. FL GLB Holding B.V. 13,34%
2. FL Group Holding Netherlands B. 11,13%
3. FL Group hf 5,79%
4. Þáttur International ehf 5,59%
5. GLB Hedge 5,01%
6. Saxbygg Invest ehf 5,00%
7. Glitnir bank hf. 4,52%
8. Landsbanki Luxembourg S.A. 2,37%
9. Salt Investments ehf 2,32%
10. Lífeyrissjóðir Bankastræti 7 2,18%
11. Sund ehf. 2,04%
12. Rákungur ehf. 2,00%
13. IceProperties ehf. 1,75%
14. Kristinn ehf. 1,71%
15. LI-Hedge 1,32%
16. Gildi-lífeyrissjóður 1,30%
17. Icebank hf. 0,96%
18. Langflug ehf. 0,91%
19. Bygg invest ehf. 0,88%
20. Stím ehf. 0,87%
kúlulán í glitni
n Ólafur Þór Hauksson, sérstak-
ur saksóknari, sagði í samtali við
DV í mars að kúlulán
til starfsmanna
bankanna yrðu
„klárlega“ til
skoðunar hjá
embættinu.
184 328 800 994 800 170 800
BI
RN
A
EI
NA
RS
dÓ
tt
IR
HA
Uk
UR
G
UÐ
jÓ
NS
So
N
jÓ
HA
NN
ES
B
AL
dU
RS
So
N
kR
IS
tI
NN
G
EI
RS
So
N
RÓ
SA
Nt
M
ÁR
to
RF
AS
oN
St
EF
ÁN
SI
GU
RÐ
SS
oN
VI
LH
EL
M
M
ÁR
Þ
oR
St
EI
NS
So
N
söLVi tryGGVason
blaðamaður skrifar solvi@dv.is
skipt út Varkárni Bjarna
var illa séð af nýjum
ráðamönnum bankans.
Meira og stærra Þegar Jón Ásgeir
og félagar náðu yfirhöndinni í Glitni
þótti strax ljóst hvert átti að fara.
Stækka bankann og það verulega.
stórtækur Hannes var í
bandalagi við Jón Ásgeir
um að ná völdum í
bankanum vorið 2007.
fréttir 5. ágúst 2009 miðvikudagur
3
ans tók allar stærri ákvarðanir um
lán, en í neyð mátti samþykkja lán
án samþykkis nefndarinnar. Fram til
ársins 2007 var þetta neyðarúrræði
nær eingöngu notað í neyð, en með
nýjum eigendum og stjórnendum
var farið afar frjálslega með þetta
leyfi til að fara framhjá nefndinni
að sögn heimildarmanna DV. Sem
fyrr segir var áhættusæknin sérstak-
lega áberandi á fyrirtækjasviði, þar
sem stærstu lánin voru veitt. Lár-
us Welding veitti blessun sína fyrir
því að sviðið mætti vaxa verulega.
Yfir fyrirtækjasviðinu á þessum tíma
var Guðmundur Hjaltason. Í hans
tíð veitti Glitnir mjög há lán til Mil-
estone, sem nú er til rannsóknar
eins og þekkt er orðið. Guðmundur
hætti hjá Glitni vorið 2008 og var þá
ráðinn til Milestone. Rétt er að taka
fram að Lárus Welding var undir
miklum þrýstingi frá yfirstjórn bank-
ans um að stækka hann og stækka.
Heimildarmenn DV bera Lárusi vel
söguna, hann hafi verið hinn ágæt-
asti náungi, en segja að hans mistök
hafi falist í því að láta undan öllum
kröfum aðaleigenda bankans. Einn
hátt settur heimildarmaður úr Glitni
orðar það svo: ,,Eigendur Glitnis
voru mjög skuldsettir og illa staddir
og vildu búa til eftirspurn og stækka
efnahagsreikning bankans. Lárus
var undir mikilli pressu að stækka og
stækka bankann eins mikið og hægt
væri. Fram að tíð Lárusar hafði Jóni
Ásgeiri og hans félögum að mestu
verið haldið frá lánum í bankan-
um, en þarna breyttist það.“
Þyrluferðin yfir New York
Eins og DV hefur greint frá jókst
kostnaður Glitnis vegna veislu-
halda líka verulega í tíð Lárus-
ar. Þegar hefur verið sagt frá ferð
Glitnis til New York, þar sem 350
farþegum var boðið til New York
á Saga Class. Einn heimildar-
maður DV segir að allir sem
hafi fengið boðskort í ferðina hafi
mátt taka maka með sér á kostnað
Glitnis, sem hafi fram að þessu verið
óþekkt. Eftir þá ferð fóru nokkrir lyk-
ilmenn í Glitni í þyrluferð yfir Hud-
son-ánni í New York, sem mun hafa
kostað skildinginn. Eftir hryðju-
verkaárásirnar 11. september 2001
er mjög erfitt að fá leyfi til að fljúga
yfir New York-borg, en í krafti pen-
inganna tókst Glitni að fá slíkt leyfi.
Í þyrluferðinni voru meðal annarra
Jón Ásgeir Jóhannesson, Hannes
Smárason og Lárus Welding.
Lokaorð Lárusar
Lárus Welding hefur engin viðtöl
veitt eftir að hinir íslensku bankarnir
hrundu, þrátt fyrir ítrekaðar beiðnir.
Síðustu orð hans í íslenskum fjöl-
miðlum voru í höfuðstöðvum Glitn-
is, daginn sem bankinn var þjóð-
nýttur. Þá harðneitaði hann því að
bankinn hafi verið á leiðinni í þrot
fyrir þjóðnýtinguna. „Alls ekki, alls
ekki. Það var fyrirsjáanlegur lausa-
fjárvandi sem leystur er í öllum til-
vikum eins og við sjáum úti um all-
an heim með þá seðlabönkum og
ríkisstjórnum þess ríkis. Þetta eru
atburðir sem eru að eiga sér stað úti
um allan heim. Við erum náttúrlega
að fást við alþjóða fjármálakrísu og
í þessu tilviki var þessi lausn til hér
á margan hátt sambærileg við það
sem við erum að sjá erlendis og við
erum í raun bara sáttir við þá niður-
stöðu að ríkissjóður hefur ákveðið
að koma inn í bankann með þessum
hætti.“
I
„Allir bankarnir voru með einhvers
konar bónus- og kaupaukakerfi.
Ég þekki ekki hvernig það var í út-
lánadeildunum en einhvers kon-
ar umbunarkerfi var ein skýring-
in fyrir því að bankamenn höfðu
svona ofboðslegar tekjur á undan-
förnum árum,“ segir Gylfi Magnús-
son, viðskiptaráðherra.
Gylfi hefur ekki upplýsingar um
hvernig slíkum kerfum var hagað
í tilteknum bönkum en segir bón-
usa af þessu tagi mjög varasama.
„Það er alveg augljóst og vel
þekkt dæmi víða annars staðar frá
að svona bónuskerfi sem hvetur
menn til að veita sem flest lán og
eru einhvern veginn tengd afköst-
um er mjög varhugavert í banka-
rekstri. Eiginlega af augljósum
ástæðum. Það getur hvatt menn
til, eins og í þessu tilfelli, að lána
meira en góðu hófi gegnir og fá
bónusinn greiddan. Síðan kem-
ur ekki í ljós fyrr en eftir einhvern
tíma að lánveitingin var mjög van-
hugsuð, lánið fer í vanskil og lána-
stofnunin tapar stóré,“ segir Gylfi.
Hann segir bónuskerfi eins og það
sem tíðkaðist í Glitni vera mikið í
umræðunni vestan hafs.
„Í Bandaríkjunum hafa menn
á undanförnum mánuðum verið
mjög hugsi yfir einmitt þessu því
þeir sem voru að selja svokölluð
undirmálsfasteignalán höfðu hag
af því að lána sem flestum sem
mest og oft langt umfram það sem
var eðlilegt í ljósi fjárhagsstöðu og
fyrirsjáanlegrar greiðslugetu lán-
takandans og innheimtuþóknun-
ar af þessum lánveitingum. Þeir
greiddu starfsmönnum sínum
bónusa en síðan kom skellurinn
ekki fyrr en seinna þegar í ljós kom
að lántakendur gátu ekki staðið í
skilum.“
Gylfi vill ekki leggja mat á
hvort bónuskerfið hafi verið ein af
stærstu ástæðum þess að Glitnir
varð gjaldþrota. Hann segir kerfið
samt sem áður stórhættulegt.
„Mér þykir alls ekki ólíklegt
að þegar menn fari yfir þessi mál
verði það niðurstaðan að bónus-
kerfin, hvort sem það var í útlán-
um eða öðru, hafi verið stórhættu-
leg. Og hvatt menn til þess að gera
hluti sem litu vel út á pappírum
til skamms tíma en enduðu síðan
með ósköpum þegar öll kurl voru
komin til grafar.“
En viðgangast bónuskerfin í
bönkunum í dag?
„Ég hef ekki nákvæmar upplýs-
ingar um það hvernig menn inn-
an bankanna hafa hugsað að gera
þetta í framtíðinni. Ég veit það al-
veg að vilji minn stendur til þess
að það verði farið yfir þessi mál og
sérstaklega séð til þess að bank-
arnir séu ekki með kerfi, hvort sem
þau eru kölluð kaupaukakerfi eða
eitthvað annað, sem hvetja til þess
að menn fari fram úr sér.“
liljakatrin@dv.is
Gylfi Magnússon viðskiptaráðherra:
ALLIR BANKAR
MEÐ BÓNUSKERFI
Vilhjálmur Bjarnason, lektor
við Háskóla Íslands, segir bón-
usa starfsmanna á fyrirtækjasviði
Glitnis hafa orðið til þess að bank-
inn fór í þrot.
„Er ekki bankinn kominn á
hausinn? Og ég fæ ekki séð að
menn hafi unnið fyrir kaupinu
sínu þarna. Er þetta ekki bara aug-
ljóst mál? Þegar ég var bankaúti-
bússtjóri fékk fólk enga bónusa.
Bein afleiðing af svona bónusum
er gjaldþrot bankans.“
Vilhjálmur veit ekki til að þess
að fleiri bankar hafi verið með slík
bónuskerfi. Hann segir banka hafa
verið með svokölluð economic
value added-kerfi (EVA) sem felst
í því að starfsmenn fái borgað eftir
arðsemi fyrirtækisins.
„Með slíku kerfi voru menn að
reyna að verðleggja útlán og tekj-
ur en það er ekki hægt að verð-
leggja og horfa í tekjur á útlánum
sem eru veitt því þau taka mörg
ár að koma inn. Það er ekki hægt
að segja: „Vegna þess að ég veitti
þessi útlán á ég rétt á einhverjum
tekjum.“ Það er hægt að moka út
útlánum og greiða út bónusa en
svo koma útlánin aldrei inn. Svona
bónuskjör eru bara til að auka á
áhættusækni.“
liljakatrin@dv.is
Vilhjálmur Bjarnason lektor:
BÓNUSAR SETTU
GLITNI Á HAUSINN
Aukin áhætta Boginn var
spenntur meira en áður hafði
verið gert eftir að Lárus Welding
kom til sögunnar.
2 föstudagur 7. ágúst 2009 fréttir
3
Greiðslukortin
eftir í Eyjum
Mikið var að gera hjá lög-
reglunni í Vestmannaeyjum í
gær. Að sögn varðstjóra voru
lögreglumenn á kafi í týndum
munum frá Þjóðhátíðinni. Þar
á meðal eru símar, mynda-
vélar, veski og greiðslukort.
Lögreglan fór með bunka af
debet- og kredikortum í Spari-
sjóðinn í gærmorgun sem
mun koma kortunum í hend-
ur réttra aðila.
Auk þess virðist sem marg-
ir gestir Þjóðhátíðarinnar hafi
skilið tjöldin sín eftir í dalnum
og hafði varðstjórinn á orði að
það væri eins og það væri enn
góðæri í landinu – slíkt væri
magnið.
4 miðvikudagur 5. ágúst 2009 fréttir
„Hann er ennþá í öndunarvél og á
gjörgæslu. Sárin líta mjög vel út en
lungun eru rosalega hæg, þannig
að það er rosalega svipað ástand og
áður,“ segir Helga Katrín Stefánsdóttir,
eiginkona Sigfúsar Þórs Sigurðssonar.
Hann slasaðist alvarlega í sprengingu
á Marbakkabraut í Kópavogi í júní.
Hann brann illa á líkamanum og eft-
ir að hann var lagður inn á gjörgæslu
fékk hann sýkingu í lungun. Hann
hefur verið í öndunarvél frá því í byrj-
un júlí.
Sigfús getur ekki tjáð sig með orð-
um en hefur sýnt miklar framfarir síð-
ustu vikur. „Þeir eru byrjaðir að trappa
hann niður, en það er langt í land enn-
þá. Ég tala alveg við hann en fæ engin
orð upp úr honum. Hann reynir að
tala við mig en ég þarf að lesa varirnar
á honum. Hann segir mér líka til með
höndunum svo maður þarf að lesa úr
líkamstjáningunni,“ segir Helga Katr-
ín. Sigfús er þó enn örlítið ruglaður og
þekkir ekki konu sína og barn. „Hann
er byrjaður að hreyfa sig, hann er svo
ákveðinn í því að komast fram úr.
Hann veit ekkert af hverju hann ligg-
ur inni á gjörgæslu, hann man ekkert
eftir stráknum og hann man ekki eftir
hjúkrunarfræðingunum. Hann man
ekkert hvað ég heiti, svo sá hann gift-
ingarhringinn og þá fattaði hann að
ég væri konan hans, þannig að hann
er alveg út úr korti.“
Hjónin eiga von á sínu öðru barni
í desember og segir Helga Katrín að
Sigfús hafi ekki munað eftir því að hún
væri ólétt. „Hann togaði í sloppinn hjá
mér, sem var svolítið illa hnepptur og
hann losnaði. Hann fékk þá bara áfall
þegar hann sá að ég væri ófrísk,“ seg-
ir Helga Katrín. Hjónin fagna eins árs
brúðkaupsafmæli á sunnudaginn og
segir Helga Katrín það eflaust verða
skrítið að fagna því á sjúkrahúsinu, en
hún muni vera hjá honum þá.
bodi@dv.is
Sigfús Þór Sigurðsson
Staðráðinn að komast fram úr
Styður þétt við bakið á eiginmanni
sínum Helga Katrín Stefánsdóttir er hjá
eiginmanni sínum allan sólarhringinn á
meðan hann jafnar sig.
Enn minnkar salan
Fasteignamarkaðurinn virðist
enn vera að hægja á sér eftir mik-
inn uppgang síðustu ára. Velta
fyrstu sjö mánaða ársins er ekki
nema helmingur þess sem var á
sama tíma í fyrra og fimmtungur
þess sem var árið áður. Þá hefur
fasteignaverð lækkað um þrettán
prósent að nafnvirði frá í janúar í
fyrra og enn meir þegar verð-
bólga er tekin með í reikninginn.
Þetta kemur fram í Hagsjá
hagfræðideildar Landsbankans.
Veltan fyrstu sjö mánuði ársins
er minni en nokkru sinni síðan
Fasteignaskráin hóf að halda
utan um hana.
1,7 milljarðar
í bótagreiðslur
Vinnumálastofnun greiddi í gær
út rúma 1,7 milljarða króna í
atvinnuleysisbætur. Alls fengu
rúmlega fimmtán þúsund ein-
staklingar greiddar bætur. Í júní
voru greiddir út tæpir 2,4 millj-
arðar króna til rúmlega sautján
þúsund einstaklinga.
Samkvæmt tölum á vef
Vinnumálastofnunar eru 12.109
án atvinnu á höfuðborgarsvæð-
inu. Fæstir eru hins vegar at-
vinnulausir í fámennasta lands-
hlutanum, á Vestfjörðum eru 73
einstaklingar skráðir á lista yfir
atvinnulausa.
Ólafur Ólafsson, stjórnarformað-
ur Samskipa, er aðaleigandi Suður-
landsbrautar 18 þar sem 259 fyrirtæki
eru skráð til húsa. Meðal fyrirtækja
sem eru skráð í húsinu er lögfræði-
þjónustan Fulltingi, Gift fjárfestinga-
félag og Samvinnusjóðurinn ses.
Hvert þessara fyrirtækja þurfti að
greiða 17.200 krónur í útvarpsgjald
til RÚV eins og allir sem telja fram til
skatts á Íslandi. Því fær RÚV tæpar
fjórar og hálfa milljón króna bara frá
þessu eina húsi á Suðurlandsbraut.
Kom fé undan
Ólafur fór fyrir S-hópn-
um svokallaða sem
keypti Búnaðarbank-
ann á sínum tíma.
Eignarhaldsfélag
Samvinnutrygg-
inga og Ker ehf.
eru meðal þeirra
sem eru einnig
skráð á Suður-
landsbraut 18
en þau, ásamt
Samvinnulífeyr-
issjóðnum og
VÍS, keyptu ráð-
andi hlut í Búnaðar-
bankanum á sínum
tíma fyrir tilstilli S-
hópsins.
Ólafur
komst á síður DV um helgina vegna
gagna sem DV hefur undir höndum.
Gögnin sýna að Ólafur geymdi fé sitt
í Kaupþingi í Lúxemborg en kom
hluta þess undan rétt fyrir hrunið
síðasta haust með því að fjárfesta í
ríkistryggðum verðbréfum.
Fjögurra mánaða laun
Annað hús sem skilar dágóðum pen-
ingi í útvarpskassann er Laufásveg-
ur 81, aðsetur Kennarasambands
Íslands. Í húsinu eru skráð, auk Kenn-
arasambandsins, fjörutíu einka-
hlutafélög. Flest eru þau menntun-
artengd, eins og til dæmis Bandalag
kennarafélaga, Félag enskukennara
á Íslandi, Félag framhaldsskólakenn-
ara og Félag grunnskólakennara.
Þetta 41 einkahlutafélag í
miðbænum þurfti því
að greiða 705.200
krónur til RÚV.
Byrjunarlaun
grunnskóla-
kennara und-
ir þrjátíu ára
aldri eru rétt
rúmar 190
þúsund
krónur. Út-
varpsgjald-
ið gæti borgað
slíkum kennara
fjóra mán-
uði í
laun.
120 sinnum hringveginn
Síðast þegar DV sá til Páls Magnús-
sonar útvarpsstjóra keyrði hann um
á Audi Q-lúxusjeppa. Nýr jeppi af
þeirri tegund kostar rúmlega átján
milljónir króna og eyðir 13,3 lítrum
á hundrað kílómetra í blönd-
uðum akstri. Fyrir útvarps-
gjaldið frá Kennarasam-
bandshúsinu getur Páll
keyrt rúmlega 28 þús-
und kílómetra eða
um tuttugu sinnum
í kringum Ísland.
Hús Ólafs kemur
bíl Páls ansi lengra
en það, eða 178.300
kílómetra. Fyrir
þann pening gæti
Páll hæglega keyrt
120 sinnum í kring-
um landið og samt
átt nægan afgang
fyrir hamborgara,
frönskum og kók í
öllum helstu vega-
sjoppum landsins.
Útvarpsgjald þessara
tveggja húsa duga samt
skammt fyrir laun-
um Páls, sem eru
samkvæmt
tekjublaði Mannlífs tæpar 1,6 millj-
ónir á mánuði. Nefskatturinn úr
þessum tveimur húsum, rúmlega
fimm milljónir, myndi aðeins dekka
rúmlega þriggja mánaða laun út-
varpsstjórans.
MILLJÓNIr
TIL rÚV Úr EINU HÚSI
Ólafur Ólafsson
lilja Katrín gunnarSdÓttir
blaðamaður skrifar liljakatrin@dv.is
4,5 milljónir í nefskatt
Auðmaðurinn Ólafur
Ólafsson á Suðurlands-
braut 18. Þar eru 259
fyrirtæki skráð til húsa
sem borga 4,5 milljónir í
útvarpsgjald til RÚV.
Hring eftir hring Páll Magnússon
gæti keyrt 127 sinnum í kringum
landið fyrir nefskattinn sem félögin
á Suðurlandsbraut 18 greiða.
MYnd raKel ÓSK SigurðardÓttir
MÆTIR JÓHANNA
Í GAY PRIDE?
„Vonandi sjáum
við hana og Jónínu
með í göngunni eða
á hliðarlínunni.“
„Jóhönnu Sigurðardóttur er alveg
eins og öllum öðrum frjálst hvort
hún mætir í gönguna hjá okkur eða
ekki. Það væri auðvitað gaman að
sjá hana og hún er að sjálfsögðu vel-
komin eins og allir aðrir. En það er
hennar mál eins og allra annarra,“
segir Heimir Már Pétursson, fram-
kvæmdastjóri Gay Pride.
Blaðamaður DV reyndi ítrekað að
fá svar hjá forsætisráðuneytinu við
því hvort Jóhanna myndi taka þátt í
Gay Pride-hátíðinni með einum eða
öðrum hætti. Blaðamanni var vísað
á að senda fyrirspurn til Ragnhildar
Arnljótsdóttur ráðuneytisstjóra sem
hann og gerði tvo daga í röð. Ekkert
svar barst. Þegar blaðamaður fékk
loksins samband við einhvern sem
gat svarað spurningunni fékk hann
þau svör að þessari spurningu yrði
ekki svarað af hálfu ráðuneytisins.
Verður ekki í bænum
Óvissa ríkir því um hvort Jóhanna sjái
sér fært að mæta á hátíðina en Gay
Pride-gangan verður gengin á laug-
ardag. Gangan hefur stækkað frá ári
til árs og í fyrra töldu skipuleggjend-
ur Hinsegin daga að um níutíu þús-
und manns hefðu tekið þátt í henni.
Aðspurður hvort rætt hafi verið
við Jóhönnu um að vera með ávarp
eða taka einhvers konar þátt í Gay
Pride-hátíðinni segir Heimir Már
það ekki hafa verið gert með form-
legum hætti. Þeim hjá Hinsegin dög-
um hafi skilist sem svo að hún yrði
ekki í bænum þennan dag og því ekki
rætt það frekar.
Meðal fræga fólksins
Fjölmargir erlendir gestir heimsækja
Ísland gagngert til að taka þátt í hátíð-
inni og mætti halda að fleiri myndu
leggja leið sína til landsins í ár þar
sem embættistaka Jóhönnu vakti svo
sannarlega heimsathygli. Og ekki að
ástæðulausu enda í fyrsta sinn sem
opinberlega samkynhneigður ein-
staklingur gegnir þessu embætti.
Þá skrifuðu virt blöð á borð við
Berlingske Tidende og breska Times
greinar um þessa kankvísu, fyrrver-
andi flugfreyju sem myndi bjarga
Íslandi á erfiðum tímum. Fleiri dag-
blöð og tímarit um allan heim sýndu
Jóhönnu áhuga en einnig stjörnu-
bloggarinn Perez Hilton. Perez þessi
heldur úti bloggsíðu sem lesin er af
milljónum manna á degi hverjum
og sérhæfir hann sig í því
að skrifa fréttir og
slúð- ur af
fræga fólkinu. Þannig skip-
aði Jóhanna sér í hóp með
stjörnum á borð við Vict-
oriu og David Beckham,
Britney Spears og Brad
Pitt.
Mikill spenningur
Lárusi Ara Knútssyni, fram-
kvæmdastjóra Samtakanna
78, þætti vissulega ánægjulegt
ef Jóhanna myndi mæta á Gay
Pride um helgina.
„Ég er ekki málkunnugur Jó-
hönnu og veit ekki hvað hún hef-
ur planað. Það eru nú ærin úrlausn-
arverkefni hjá henni myndi ég halda
þannig að ég veit ekki hvaða tíma
hún hefur. En auðvitað væri gaman
að sjá Jóhönnu Sigurðardóttur og
alla landsmenn á Gay Pride. Von-
andi sjáum við hana og Jónínu með
í göngunni eða á hliðarlínunni,“ seg-
ir Lárus.
Þegar Jóhanna tók við forsæt-
isráðherraembættinu fengu Sam-
tökin 78 fjölmargar fyrirspurn-
ir víðs vegar að úr heiminum,
meðal annars frá fjölmiðlum,
sem þótti þessi viðburður stór-
merkilegur og leituðu eftir
viðbrögðum samtakanna.
„Það var til dæmis hald-
ið alþjóðlegt knattspyrnu-
mót samkynhneigðra um
páskana þar sem kom
fram mikill áhugi er-
lendra keppenda að hitta
og sjá Jóhönnu. Þetta hef-
ur vissulega vakið mikla
athygli og menn eru
spenntir fyrir
þessu.“
Tugþúsundir mæta Tugþúsundir
mæta í Gay Pride-gönguna á ári
hverju. Ætli Jóhanna verði ein af
þeim? MYND GuNNar GuNNarSSoN
Ekkert svar Forsætisráðuneytið svarar
því ekki hvort Jóhanna mæti á Gay Pride í
ár. MYND rakEl ÓSk SiGurðarDÓTTir
Jóhanna velkomin Heimir Már býður Jóhönnu
velkomna í Gay Pride en hefur heyrt að hún verði
ekki í bænum. MYND GuNNar GuNNarSSoN
Smiðjuvegi 34 - gul gata Kópavogi • Sími 544 5151 • biljofur@biljofur.is
SÉRHÆFÐ ÞJÓNUSTA FYRIR
BIFREIÐAVERKSTÆÐI
Velkomin í Hólaskóg
Skemmtilegar skoðunarferðir
á götuskráðum fjórhjólum um
náttúruperlur Þjórsárdals og
nágrennis, jafnt sumar sem vetur.
Sími: 661-2503
eða 661-2504
www.icesafari.is