Dagblaðið Vísir - DV - 07.08.2009, Qupperneq 4
„Þessi nefskattur í sambandi við út-
varpsgjaldið finnst mér óhæfa eins
og er verið að gera þetta núna. Þetta
er bara vitleysa og ekki í lagi. Það er
verið að hygla einum fjölmiðli og svo
er hann á fullu á auglýsingamark-
aðnum líka. Það er ekkert í lagi. Ann-
aðhvort á fjölmiðill að vera á frjáls-
um markaði og verður að standa sig
á eigin verðleikum eða hann nýtur
styrks frá ríkinu og þá er hann ekki
á auglýsingamarkaði,“ segir Helgi K.
Hjálmsson, formaður Landssam-
bands eldri borgara.
Þeir sem urðu sjötugir í árslok
2008 sluppu við að borga nefskatt-
inn til Ríkisútvarpsins í ár sem nem-
ur 17.200 krónum. Þeir sem verða
sjötugir á þessu ári þurfa hins vegar
að borga nefskatt fyrir allt árið sama
hvenær þeir eru fæddir. Þannig þarf
einstaklingur sem verður sjötugur
31. desember 2008 ekki að borga en
sá sem fagnar sjötugsafmælinu 1.
janúar á þessu ári þarf að borga þess-
ar rúmlega sautján þúsund krónur.
Miða við lífaldur
Helgi segir þessa reglu svipaða og
viðgengst í skólakerfinu. Hann er
samt sem áður ekki hliðhollur því
að útvarpsgjaldið sé innheimt með
þessum hætti.
„Mér finnst þetta helvíti hart.
Reglan er svona til dæmis í skóla. Þá
eru það áramótin sem skipta
máli. Tvíburar sem fæðast til
dæmis með korters millibili,
annar tíu mínútur fyrir tólf og hinn
fimm mínútur yfir tólf, eru ekki á
sama árinu og lenda ekki einu sinni í
sama bekk. Þetta er alveg hliðstæða.
Okkur finnst samt eðlilegast að þetta
útvarpsgjald væri miðað við þann
dag sem menn verða þetta gamlir og
þeir borgi bara þangað til þeir verða
þetta gamlir. Mér finnst langeðlileg-
ast að þetta gjald sé miðað við raun-
verulegan lífaldur. Við lifum jú frá
degi til dags. Við skulum hafa það í
huga.“
Þúsunda sparnaður
Ef útvarpsgjaldinu er deilt niður
á mánuði ársins borgar hver ein-
staklingur rúmlega fjórtán hundr-
uð krónur fyrir mánuðinn. Ef reglan
fyrir sjötuga einstaklinga væri sú að
gjaldið miðaðist við fæðingardaginn
þyrfti sá sem á afmæli í janúar aðeins
að borga rúmlega fjórtán hundruð
krónur og spara sér þannig tæplega
sextán þúsund. Ef tveir eru í heimili,
sem báðir fagna sjötugsafmæli í jan-
úar, er sparnaðurinn kominn upp í
rúmlega þrjátíu þúsund á ári. Fyrir
þann pening gætu þessir tveir farið
tuttugu sinnum saman í bíó yfir árið
eða fengið sér 53 stóra ísa með dýfu
hvor.
Sandkorn
n Hreiðar Már Sigurðsson,
skattakóngur Íslands, hefur nú
bæst í hóp þeirra auðmanna sem
orðið hafa reiði mótmælenda að
bráð. Rauðri málningu var skvett
á hús hans í vikunni en áður
höfðu heimili Steingríms Wern-
erssonar, Hannesar Smárason-
ar, Björgólfs Guðmundssonar
og Birnu
Einarsdótt-
ur orðið
skótspónn
ósáttra Ís-
lendinga.
Menn velta
því nú fyrir
sér hvort
Finnur
Sveinbjörnsson, bankastjóri
Kaupþings, verði næst fyrir barð-
inu á mótmælendum, en hann
þykir hafa bakað sér nokkrar
óvinsældir með lögbannsein-
leiknum um síðustu helgi.
n Í gær var sagt frá því í fréttum
að Fjármálaeftirlitið hefði sent
tvö mál til sérstaks saksóknara.
Þau varða lán Kaupþings til Tort-
ola-félaganna Holly Beach í eigu
Skúla Þorvaldssonar og Trenvis
LTD í eigu Kevins Stanford, sem
hafa verið í fréttum eftir að skjali
frá Kaupþingi var lekið á netsíð-
una Wikileak.org. Seinagangur
FME er athyglisverður. Sigðurð-
ur Einars-
son gaf það
í skyn í grein
í Fréttablað-
inu dag-
inn áður að
skjalinu hefði
verið lekið
eftir hrun af
öðrum en
starfsmönn-
um Kaupþings. Auk þess tók
hann það fram að FME hefði haft
skjalið undir höndum. Það vekur
því furðu að fjölmiðlaumfjöllun
þurfi til að FME sendi málið til
sérstaks saksóknara.
n Eftir að lögbannsbeiðni Kaup-
þings gegn fréttaflutningi RÚV
var dregin til baka þykir Finnur
Sveinbjörnsson bankastjóri valt-
ur í sessi.
Pressan
greindi frá
því í vikunni
að stjórn
Nýja Kaup-
þings hafi
sett ofan í
við Finn.
Í yfirlýs-
ingu til allra
starfsmanna segist stjórnin ekk-
ert hafa haft með þá ákvörðun
að gera að krefjast lögbanns auk
þess sem það hafi ekki þjónað
hagsmunum bankans. „Stjórn-
in harmar þann skaða sem af
málinu hefur hlotist fyrir orðspor
bankans,“ segir þar enn fremur.
4 föstudagur 7. ágúst 2009 fréttir
Allir einstaklingar sem urðu sjötugir fyrir árslok 2008 sleppa við að borga nefskatt
til Ríkisútvarpsins. Allir þeir sem verða sjötugir á þessu ári þurfa hins vegar að
borga fullt útvarpsgjald sama í hvaða mánuði þeir eru fæddir. Helgi K. Hjálmsson,
formaður Landssambands eldri borgara, segir þennan nefskatt óhæfu.
„HELVÍTI HART“
„Mér finnst langeðli-
legast að þetta gjald
sé miðað við raun-
verulegan lífaldur.“
Útvarpsgjaldið ekki í lagi
Að mati Helga er útvarps-
gjaldið vitleysa þar sem RÚV
er virkur fjölmiðill á hinum
frjálsa auglýsingamarkaði.
Mynd Karl Petterson
lilja Katrín Gunnarsdóttir
blaðamaður skrifar liljakatrin@dv.is
Borga allt árið Þeir sem verða sjötugir í ár
borga fullt útvarpsgjald til RÚV sama í hvaða
mánuði þeir eru fæddir. Mynd stefán Karlsson
Tvær íkveikjur á einni viku á Vatnsstíg 4:
Langþreyttur á skemmdarvörgum
„Það er djöfullegt að þurfa að hafa
svona yfir sér,“ segir Ágúst Friðgeirs-
son, eigandi Vatnsstígs 4 í miðborg
Reykjavíkur. Á einni viku hefur tvisv-
ar verið reynt að kveikja í húsinu,
fyrst föstudagskvöldið 31. júlí og svo
aftur á fimmtudag í þessari viku.
Ágúst keypti húsið árið 2004 og
hefur það staðið autt síðan. Það hef-
ur verið hálfgert athvarf fyrir úti-
gangsfólk síðan þá en í vor bjó hópur
hústökufólks um sig í húsinu og end-
aði það með því að lögreglan hand-
tók 22 einstaklinga.
„Húsið er ónýtt,“ sagði Ásgeir þeg-
ar blaðamaður náði tali af honum eft-
ir að eldurinn kom upp á fimmtudag.
Þá hafði verið kveikt í rusli sem var í
anddyri hússins en eldurinn sem kom
upp í fyrra skiptið var öllu meiri og
urðu verulegar skemmdir á húsinu.
Þegar Ásgeir keypti húsið árið
2004 stóð til að reisa þar stórt versl-
unarhúsnæði með íbúðum á efri
hæðum. Ekkert hefur hins vegar
orðið úr þeim áætlunum. Ágúst seg-
ir að nú sé verið að fara yfir það hvað
verði gert við húsið en það fari ekki
á milli mála að það verði rifið þegar
tækifæri gefst til. Ágúst segir að efna-
hagsástandið á Íslandi hafi valdið
því að ekki sé búið að rífa húsið og
byggja nýtt í stað þess gamla. Hann
segist ekki geta svarað því hvenær
ráðist verði í niðurrif hússins og ný
bygging líti dagsins ljós.
einar@dv.is
Vatnsstígur 4 Ágúst segir að ekki
fari milli mála að húsið verði rifið.
Mynd Heiða HelGadóttir