Dagblaðið Vísir - DV - 07.08.2009, Blaðsíða 6
6 föstudagur 7. ágúst 2009 fréttir
Sandkorn
n Gleðiganga samkynhneigðra
í miðborg Reykjavíkur og
Fiskidagurinn mikli á Dalvík
tröllríða væntanlega fjölmiðla-
umfjöllun landsins og skemmt-
analífi landans á laugardag.
Ljóst má telj-
ast að marg-
ir eiga eftir
að fylgjast
grannt með
því hvort
Jóhanna Sig-
urðardóttir
forsætisráð-
herra verði
meðal göngumanna, eins og
fjallað er um annars í blaðinu.
Annars hefur það vakið athygli
margra og ergelsi sumra hversu
lítið áberandi Jóhanna hefur
verið síðan hún varð forsætis-
ráðherra og látið Steingrími J.
Sigfússyni og í einhverjum máli
Össuri Skarphéðinssyni eftir
að verja flest mál stjórnarinnar.
Þannig að út frá því telja sumir
að ekki sé mikil ástæða til að
ætla að Jóhanna birtist fólki í
gleðigöngunni á laugardag.
n Gera má ráð fyrir að fastafull-
trúar í Gay Pride göngunni á
laugardag veki athygli. Þannig
hefur Inácio Pacas da Silva
Filho, betur
þekktur sem
helmingur-
inn af Begga
og Pacasi,
alltaf vakið
mikla athygli
í göngunni
fyrir litskrúð-
uga búninga.
Páll Óskar er auðvitað viss kap-
ítuli í þessari miklu göngu með
söng sínum og diskói. Spurn-
ingin er bara hver á eftir að slá
í gegn með mögnuðustu fram-
komunni og búningunum og
svo að sjálfsögðu hvaða mark
kreppan setur á gönguna. Víst
er að styrkir eru minni en áður
þó óvíst sé hvort það hafi áhrif
á ímyndunarafl þátttakenda og
framkvæmdagleði þeirra.
n Umræðan um skýrslu Hag-
fræðistofnunar Háskóla Ís-
lands um mat Seðlabankans
á áhrifum Icesave-skuldbind-
inga sýnir
kannski öðru
fremur fram
á hvernig
menn lesa
skýrslur
heldur en
hvað stend-
ur í henni.
Þannig geng-
ur Sigmundur Davíð Gunn-
laugsson, formaður Framsókn-
arflokksins, og talar um hversu
harðorð skýrslan sé þar sem
varað er við hættu á fólksflótta
úr landi og kaupmáttarhruni.
Mörður Árnason, varaþing-
maður Samfylkingar, tjáir sig
um sömu skýrslu og segir að
þar sé ekkert nýtt sem ekki hafi
komið fram í skýrslu Hagfræði-
stofnunarinnar. Sama skýrsla,
tvær ólíkar útkomur.
Fjárlaganefnd Alþingis ætlar að ljúka
umfjöllun sinni um ríkisábyrgð á Ice-
save-lánunum um helgina.Í raun er
Alþingi í fullum rétti til þess að gera
fyrirvara við samninginn um leið og
það samþykkir frumvarpið um ríkisá-
byrgðina. „Fyrirvararnir verða að vera
það sverir að þeir haldi ef á reynir,“
sagði Ögmundur Jónasson heilbrigð-
isráðherra í umfjöllun DV um málið í
síðustu viku.
Í sinni einföldustu mynd var samn-
ingurinn um Icesave-skuldirnar gerð-
ur á vegum framkvæmdavaldsins; lög-
gjafarvaldið átti þar ekki hlut að máli. Á
þeim grundvelli hafa nefndir Alþingis,
einkum fjárlaganefnd, unnið að því að
semja fyrirvara sem meirihluti þing-
heims gæti hugsað sér að styðja. Þeir
lúta fyrst og síðast að því að greiðslu-
getu þjóðfélagsins verði ekki ofboðið
og greiðslubyrðin verði ekki svo þung
að innviðir þjóðfélagsins sligist undan
henni.
Allur þingflokkur Samfylkingarinn-
ar styður afgreiðslu frumvarpsins. Mik-
ið hefur verið gert úr andstöðu innan
þingflokks VG. Samkvæmt heimild-
um DV er andstaðan þó ekki meiri en
svo að líkur til þess að frumvarpið nái
fram að ganga verða að teljast góðar.
Lilja Mósesdóttir hagfræðingur hefur
lýst andstöðu við óbreyttan samning
og gert fyrirvara um greiðsluþol þjóð-
arinnar. Ögmundur Jónasson og Guð-
fríður Lilja Grétarsdóttir hafa lýst mikl-
um efasemdum og gert sína fyrirvara.
Af þeim sökum er beðið með óþreyju
eftir niðurstöðu fjárlaganefndar um
málið, en fyrirvararnir geta ráðið úr-
slitum um endanlegan stuðning þess-
ara þingmanna.
Óvissa um stjórnarandstöðuna
Óljóst er um afstöðu stjórnarandstöð-
unnar þegar til kastanna kemur. Bjarni
Benediktsson, formaður Sjálfstæðis-
flokksins, er á milli steins og sleggju.
Á aðra höndina róa andstæðingar ESB
og Icesave-samninga gegn ríkisstjórn-
inni öllum árum. Á hina róa hófsam-
ari öfl innan flokksins sem telja illa
nauðsyn að semja um Icesave; mestu
hagsmunir þjóðarinnar felist í því að
semja um Icesave þó með þeim hætti
að dregið verði sem mest úr útstreymi
fjár frá landinu. Fyrir þessu sjónarmiði
tala öfl innan flokksins sem tengjast
fyrirtækjum og atvinnurekstri en þau
telja viðunandi að gera fyrirvara um
greiðsluþol íslensku þjóðarinnar.
Sama er að segja um krafta innan
Famsóknarflokksins, einkum úr röð-
um eldri framsóknarmanna, sem ekki
eru sáttir við herskáa afstöðu nýja for-
mannsins Sigmundar Davíðs Gunn-
laugssonar og fylgismanna hans í
Icesave-málinu. Þeim þykir ekki fýsi-
legur kostur að fella frumvarpið; það sé
áhættusamt varðandi lánafyrirgreiðslu
erlendis frá og viðskipti við aðrar þjóð-
ir á næstu misserum og uppbyggingar-
starf innanlands almennt.
Innan Borgarahreyfingarinnar er
andstaða við Icesave-ríkisábyrgðir að
óbreyttu.
Gæti gjaldfallið
Yfir þjóðinni vofir að verði ekki búið
að ganga frá samningum fyrir októ-
berlok gjaldfellur Icesave-reikningur-
inn á tryggingasjóð innistæðueigenda
í heilu lagi og þá blasir við að þjóðin
þarf að semja um greiðslur á 600 til 700
milljörðum króna. Krafa erlendu þjóð-
anna hverfur með öðrum orðum ekki
þótt Íslendingar neiti að greiða. Miklir
hagsmunir eru því í húfi. Könnun DV
bendir til þess að samstaða stjórnar-
flokkanna hafi þó hvergi bilað vegna
málsins. Steingrímur J. Sigfússon, for-
maður VG og flutningsmaður frum-
varpsins um ríkisábyrgðina, þykir hafa
sýnt mikið úthald undir vaxandi and-
stöðu þjóðarinnar og þverrandi fylgi
við ríkisstjórnina. Guðbjartur Hann-
esson, formaður fjárlaganefndar, hefur
stutt málið og unnið höðrum höndum
að afgreiðslu þess og býst við að um-
fjöllun fjárlaganefndar ljúki um helg-
ina.
Pólitískt mál en ekki lagalegt
Margir hafa orðið til þess að taka und-
ir þau orð Evu Joly rannsóknardóm-
ara, að Hollendingar, Bretar og ESB
hafi sýnt Íslendingum vægðarlausa
harðdrægni í Icesave-samningun-
um. Einn þeirra er Friðrik Pálsson,
hótelrekandi og fyrrverandi forstjóri
Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna. Í
Morgunblaðsgrein taldi Friðrik væn-
legast að færa málið upp á hæsta pól-
itíska plan ef Alþingi teldi sig ekki geta
samþykkt samning um ríkisábyrgð á
Icesave óbreyttan. „Ég legg jafnframt
til að ríkisstjórn Íslands óski eftir því
við Sameinuðu þjóðirnar að skipaður
verði sáttasemjari í þessu máli. Alþjóð-
legir sáttasemjarar hafa verið skipaðir
í mörgum veigaminni málum en því
sem hér um ræðir.“
Þeir eru líka til sem líta til þess
að Icesave-samningurinn hafi sínar
sterku hliðar. Þannig hafi ríkisábyrgð
á tryggingasjóði innistæðna ekki ver-
ið sjálfgefin og einmitt þess vegna hafi
þurft að afla samþykkis Alþingis. Það
sé út af fyrir sig jákvætt og færi löggjaf-
anum aukin völd.
Fyrirvarar
Þeir sem lengst vilja ganga í röðum
stjórnarliða vilja að fyrirvararnir, sem
nú er verið að móta, lúti að þremur
meginatriðum. Í fysta lagi gefi þeir Ís-
lendingum kost á að fara með málið
fyrir dómstóla og beita öllum þeim
réttarúrræðum sem völ er á.
Í öðru lagi verði gerð krafa um að
Íslendingar beri ekki meiri byrðar en
lög kveði á um eða umfram skuldbind-
ingar. Þótt röksemdir Ragnars H. Hall
lögfræðings hafi í vakið spurningar og
efasemdir um gæði samningsins hafa
nú komið fram mótrök við málflutning
hans, sem meðal annars snúa að því
að kröfur innistæðueigenda og kröfur
tryggingasjóða innistæðueigenda hafi
lögformlega mismunandi stöðu eftir
löndum.
Í þriðja lagi er vilji til þess að hnykkt
verði á fyrirvara um upptöku Icesave-
samningsins reynist ákvæði samn-
ingsins harðdrægari en upphaflega var
gert ráð fyrir.
Þjóð í spennitreyju skulda sýnir vaxandi andstöðu við að ábyrgjast Icesave-lánin. „Allt-
af hefði niðurstaðan orðið erfið í þessu ólánsmáli,“ segir Steingrímur J. Sigfússon
fjármálaráðherra. 600 til 700 milljarða króna Icesave-skuld gjaldfellur á tryggingasjóð
innistæðueigenda í október verði ekki búið að ganga frá málinu fyrir þann tíma.
Icesave gjaldfellur
hafnI þIngIð samnIngI
Bjarni Benediktsson,
formaður Sjálfstæð-
isflokksins, er á milli
steins og sleggju.
JÓhann haukSSon
blaðamaður skrifar: johannh@dv.is
leiðréttingar
Athafnamaðurinn Skúli Þorvalds-
son er ekki lengur eigandi hús-
næðis Hótel Holts. Í DV á mið-
vikudag var því haldið fram að
Skúli væri einn eigenda hússins.
Nú er það hins vegar aðeins í eigu
Geirlaugar Þorvaldsdóttur, systur
Skúla. Í sama blaði var fullyrt að
félagið Holly Beach, sem er í eigu
Skúla, væri skráð í Lúxemborg.
Holly Beach er hins vegar skráð á
Tortola eyjum. Beðist er velvirð-
ingar á þessu.
Elín Sigfúsdóttir, fyrrverandi
bankastjóri Landsbankans, var
ranglega nefnd einn stjórnenda
bankans í smáfrétt á baki DV á
miðvikudag. Ásmundur Stefáns-
son tók við starfinu af henni.
oddvitarnir Mjög mæðir á fjármálaráð-
herra í Icesave, endurreisn bankanna og rík-
isfjármálum. Hann svarar einnig fyrir ýmis
mál í innlendum og erlendum fjölmiðlum á
meðan forsætisráðherra heldur sig til hlés.
Tortryggir aGS
Lilja Mósesdóttir
hefur miklar
efasemdir um
Icesave og
skuldaþol þjóðar-
innar. Spurning
er hvort hún,
Ögmundur
Jónasson og
Guðfríður Lilja
Grétarsdóttir
sættist á fyrirvara
við frumvarpið.