Dagblaðið Vísir - DV - 07.08.2009, Side 8

Dagblaðið Vísir - DV - 07.08.2009, Side 8
8 föstudagur 7. ágúst 2009 fréttir Lögfræðistofa Reykjavíkur hefur sent Exista 250 milljóna króna reikning vegna innheimtu á 27 milljarða króna láni sem skilanefnd Landsbankans hefur gjaldfellt á félagið. Upphæðin vekur furðu og hörð viðbrögð ekki síður en hitt að Lárentsínus Kristjánsson, formaður skilanefndar Landsbankans, er einn af eigendum Lögfræðistofu Reykjavíkur. Forstjóri FME segir ljóst að komi upp mál af þessum toga verði það tafarlaust rannsakað. 250 milljóna króna innheimtuþóknun Lárentsínus Kristjánsson, lögfræð- ingur og núverandi formaður skila- nefndar Landsbankans, ákvað fyrir skemmstu, ásamt öðrum samverka- mönnum sínum í skilanefndinni, að gjaldfella 150 milljóna evra lán, sem er í vanskilum af hálfu Exista. Upphæðin jafngildir 27 milljörðum króna á núverandi gengi krónunn- ar. DV greindi frá gjaldfellingu láns- ins 24. júlí síðastliðinn, sama dag og Exista tilkynnti ákvörðun skila- nefndarinnar til Kauphallarinnar. Í tilkynningu félagsins segir að Ex- ista hafi borist erindi frá skilanefnd Landsbanka Íslands um gjaldfell- ingu krafna að fjárhæð um 150 millj- ónir evra og viðræður standi yfir við fulltrúa nefndarinnar. Sendu 250 milljóna króna reikning Við gjaldfellingu vanskilaláns fer málið venjulega til innheimtu hjá lögfræðingum, innheimtu- eða lög- fræðistofum. Ekki er heimilt að hafa samráð um gjaldskrá. Samkvæmt áreiðanlegum heim- ildum DV fól skilanefnd Lands- bankans Lögfræðistofu Reykjavík- ur að annast innheimtu 27 milljarða króna lánsins. Meðal eigenda henn- ar er Lárentsínus Kristjánsson, áð- urgreindur formaður skilanefndar Landsbankans. DV hefur traustar heimildir fyrir því að lögfræðistofan krefjist 250 milljóna króna þóknunar fyrir innheimtuaðgerðirnar en það er rétt innan við eitt prósent af gjald- föllnu láninu. Mun forsvarsmönnum Exista þegar hafa borist reikningur- inn, en þeir neita alfarið að tjá sig um málið við DV. Lögfræðingar, sem DV hefur haft samband við, telja að samkvæmt gjaldskrá og ýtrustu kröfum hefði Lögfræðistofa Reykjavíkur getað inn- heimt mun meira eða allt að hálfan milljarð króna. Slíkt virðist þó ekki vera uppi á teningnum og ef marka má upplýs- ingar DV er innheimtuþóknunin innan við eitt prósent af gjaldfellda láninu. Gunnar Andersen, fostjóri Fjár- málaeftirlitsins, segist ekki geta tjáð sig um einstök mál þegar blaðamað- ur DV bar undir hann 250 milljóna króna reikning frá Lögfræðistofu Reykjavíkur til Exista. „Hitt er ljóst að ef eitthvert mál af þessum toga kæmi upp yrði það tafarlaust skoðað af hálfu Fjármálaeftirlitsins.“ Beggja vegna borðs Á vef Lögfræðistofu Reykjavíkur seg- ir að lögmenn stofunnar hafi víð- tæka og langa reynslu við innheimtu vanskilakrafna. „(Þar) hefur Ólafur Garðarsson hrl. einna mesta þekk- ingu en hann hefur 22 ára reynslu á þessu sviði en aðrir lögmenn frá 4- 20 ára reynslu (...) Gerðir eru fastir samningar við viðskiptavini um inn- heimtu vanskilakrafna og geta við- skiptavinir fengið beinlínuaðgang að kerfi Innheimtustofu Reykjavíkur til að skoða framgang sinna mála hjá stofunni. Jafnframt veita starfsmenn Innheimtustofu Reykjavíkur við- skiptavinum reglulega upplýsingar um stöðu einstakra mála.“ Samkvæmt þessu hlýtur skila- nefnd Landsbankans að hafa gert samning við Lögfræðistofu Reykjavík- ur um innheimtuaðgerðir hjá Exista, en núverandi formaður skilanefnd- arinnar er Lárentsínus Kristjánsson, einn af eigendum lögfræðistofunnar eins og áður segir. Margir á sömu þúfunni Svo vill til að téður Ólafur Garðarsson lögfræðingur er einn af meðeigend- um Lárentsínusar í Lögfræðistofu Reykjavíkur og hefur frá bankahrun- inu verið til aðstoðar við greiðslu- stöðvun gamla Kaupþings. Hann hefur nú verið skipaður formað- ur slitastjórnar gamla Kaupþings. Stærsti eigandi Kaupþings var Exista og er því ekki annað að sjá en Ólafur sé kominn í óþægilega aðstöðu sem formaður slitastjórnar Kaupþings, en um leið reyndasti innheimtustjóri lögfræðistofunnar sem sér um inn- heimtu á 27 milljarða króna gjald- föllnu láni Exista fyrir skilanefnd Landsbankans. Formaður skilanefndar Kaup- þings er Steinar Þór Guðgeirsson lögfræðingur sem einnig á Lögfræði- stofu Reykjavíkur ásamt Ólafi, Lár- entsínunsi, Sveini Andra Sveinssyni og fleirum. Þess má geta að Lárentsínus Kristjánsson er jafnframt formað- ur Lögmannafélags Íslands. Hann birti á dögunum yfirlýsingu frá Lög- mannafélaginu. „Að gefnu tilefni má í þessu samhengi nefna álitaefni um hæfi einstakra embættismanna. Um hæfi gilda settar lagareglur sem ber að virða,“ segir í ályktuninni. Efnis- lega fjallaði hún um störf rannsókn- arnefndar Alþingis þar sem hansk- inn var tekinn upp fyrir Jónas Fr. Jónsson, fyrrverandi forstjóra Fjár- málaeftirlitsins. Jónas hafði kvartað til formanns rannsóknarnefndarinn- ar vegna ummæla Sigríðar Bene- diktsdóttur, hagfræðiprófessors við Yale-háskóla í Bandaríkjunum. Taldi Jónas að ummæli hennar í skóla- blaði þar ytra gerðu hana vanhæfa til að fjalla um mál sitt sem fyrrverandi forstjóra FME. Nefndin fjallaði sjálf um málið og komst að þeirri niður- stöðu að Sigríður væri ekki vanhæf. Kunningjaveldið Í kjölfar neyðarlaganna, sem sett voru í kjölfar bankahrunsins í októ- ber síðastliðnum var það meðal ann- ars verkefni Jónasar Fr. Jónssonar að skipa menn í skilanefndirnar. Þrír til fimm lögmenn frá Lögferæðistofu Reykjavíkur komu fljótt við sögu nefndanna og þar með um meðferð eigna bankanna. Þeirra á meðal eru Steinar Þór, Lárentsínus og Ólafur. Allir eru þeir flokksbundnir sjálf- stæðismenn og hafa jafnvel gegnt trúnaðarstörfum fyrir flokkinn líkt og Jónas Fr. Jónsson. Í endurreisnarskýrslu Sjálfstæðis- flokksins frá því í mars eru pólitísk- ar stöðuveitingar gagnrýndar: „Sjálf- stæðisflokknum hefur verið legið á hálsi að hafa staðið fyrir pólitískum stöðuveitingum. Hér verður Sjálf- stæðisflokkurinn að taka af skarið og heita því að og sjá til þess að opin- berar stöðuveitingar verði ákveðnar á faglegum og hlutlægum grundvelli. Sjálfstæðisflokkurinn hefði átt að beita sér fyrir því að að skera á tengsl stjórnmálaflokka, ríkisstofnana og viðskiptabanka.“ Mikil afföll í skilanefnd Landsbankans Mikil afföll eru nú þegar orðin í skilanefnd Landsbankans. Lárus Finnbogason endurskoðandi hætti skyndilega að eigin ósk. Hann var upphaflega skipaður í stjórn FME árið 1999 af Finni Ingólfssyni, þáver- andi viðskiptaráðherra. Fjármálaeftirlitið hefur vikið Ár- sæli Hafsteinssyni úr nefndinni, en DV benti á það þegar í byrjun febrú- ar að hann hefði verið yfirmaður lög- fræðisviðs Landsbankans gamla og hæfi hans til setu í nefndinni mætti því vefengja af þeim sökum þótt hæfni hans væri að öðru leyti hafin yfir vafa. Einnig var Sigurjóni Geirssyni gert að víkja úr skilanefnd Lands- bankans í lok júlí. Hann vann við innri endurskoðun í Landsbankan- um fyrir bankahrunið og hæfi hans til setu í nefndinni var sömuleiðis ve- fengjanlegt af svipuðum ástæðum og hæfi Ársæls. Gunnar Andersen, forstjóri Fjár- málaeftirlitsins, segir að þegar séu þrír farnir úr skilanefnd Landsbank- ans og til athugunar sé að ráða einn í stað þeirra þriggja. Ekkert hafi verið ákveðið vegna brotthvarfs manna úr skilanefndum annarra banka. Hægfara ríkisstjórn Stjórnvöld hafa frá bankahruninu sætt gagnrýni fyrir að fara sér hægt við að losa sig við embættismenn og ýmsa sérfræðinga sem gegndu lykilstöðum fyrir bankahrunið og áttu jafnvel hlut að máli. Þorvaldur Gylfason hagfræðiprófessor hnykkti á þessu í Fréttablaðspistli í gær. „Ríkisstjórnin hefur ekki hirt um að marka sér skýra stöðu við hlið fólks- ins í landinu gegn ábyrgðarmönn- um hrunsins. Hún heldur áfram að hegða sér að ýmsu leyti eins og mátt- vana handbendi þeirra, sem lögðu bankana og efnahagslífið í rúst. Þessu ástandi getur fólkið í landinu ekki unað nema skamma hríð.“ DV hefur traustar heim- ildir fyrir því að lög- fræðistofan krefjist 250 milljóna króna þókn- unar fyrir innheimtuað- gerðirnar en það er rétt innan við eitt prósent af gjaldföllnu láninu. Hin nýja valdastétt Fremstur á myndinni er Árni Tómasson, formaður skilanefndar Glitnis. Næstur honum er Steinar Þór Guð- geirsson, formaður skilanefndar Kaupþings. Hann er meðeigandi Lárentsínusar í Lögfræðistofu Reykjavíkur. Myndin er tekin á blaðamannafundi fyrr í sumar með oddvitum ríkisstjórnarinnar. JóHann HauKSSon blaðamaður skrifar: johannh@dv.is Forstjóri FME „Hitt er ljóst að ef eitt- hvert mál af þessum toga kæmi upp yrði það tafarlaust skoðað af hálfu Fjármála- eftirlitsins,“ segir Gunnar Andersen. Skipti við eigin stofu Lárentsínus, formaður skilanefndar Landsbankans, fékk eigin lögfræðistofu til að sjá um innheimtuna.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.