Dagblaðið Vísir - DV - 07.08.2009, Page 22
TilviljunarkennT
fórnarlamb
n Föstudaginn 3. desember árið 1999 var eiturlyfjasjúk-
lingur áttræðri konu að bana með hnífi í Espigerði 4.
Tilviljun réð því að konan varð fórnarlamb hans. Hann
sagði lögreglu að hann hefði viljað drepa einhvern til að
hafa ástæðu fyrir vanlíðan sinni sem stafaði af langvinnri
eiturlyfjaneyslu. Maðurinn var dæmdur til sextán ára
fangelsisvistar.
22 föstudagur 7. ágúst 2009 fréttir
mOrÐ Á ÍSlanDi
Ísland er í 42. sæti á lista yfir fjölda morða miðað við höfðatölu í gagna-
grunninum Nation Master. Á eftir okkur, með færri morð miðað við
höfðatölu, eru lönd á borð við Chile, Indónesíu og Ítalíu. Það er því eng-
inn óhultur, hvorki hér heima né að heiman. Íslensk glæpasaga hefur
sýnt okkur að morð á Íslandi eru alveg jafnhrottaleg og það sem sjá má
í svæsnustu spennumyndum. DV rifjaði upp íslensk morð sem hafa í
gegnum tíðina vakið gríðarlegan óhug meðal landsmanna.
Neyðaróp fórNar-
lambsiNs efldu
ódæðismaNNiNN
n Árið 2000 framdi ungur Keflvíkingur hrottalega
glæpi og var dæmdur í átján ára fangelsi í Héraðsdómi
Reykjaness í desember það ár fyrir manndráp, kyn-
ferðisbrot og líkamsárás. Maðurinn beitti fyrrverandi
kærustu sína kynferðislegu ofbeldi í tvígang, í febrú-
ar og mars árið 2000. Í fyrra skiptið neyddi hann hana
til munnmaka hjá fiskitrönum á afviknum stað á milli
Keflavíkur og Sandgerðis. Í seinna skiptið nauðgaði
hann henni fyrir framan myndbandsupptökuvél. Mað-
urinn greindi fólki frá því að eigin frumkvæði að hann
hefði nauðgað stúlku og tekið allt upp á myndband.
Um einum og hálfum mánuði seinna, 14. apríl, fór
maðurinn út að skemmta sér á Ránni í Keflavík þar sem
hann sá bestu vinkonu stúlkunnar sem hann nauðgaði.
Vinkonan hafði vitnað gegn honum í nauðgunarmál-
inu. Þegar maðurinn var á heimleið um nóttina ákvað
hann að ráðast inn á heimili hennar og sambýlismanns
hennar. Hann fór inn á baðherbergi íbúðarinnar með
hníf í hendi í því skyni að þagga niður í vinkonunni
sem hljóðaði inni á baðherberginu. Hann stakk hana
28 sinnum í höfuð, háls, bringu og víðar í líkama henn-
ar. Hróp hennar og köll efldu manninn við ódæðisverk
sitt. Maðurinn veitti sambýlismanni hennar einnig
áverka með hnífnum. Geðlæknir sagði fyrir dómi að
ekkert hefði komið fram sem benti til þess að maður-
inn væri haldinn alvarlegum geðsjúkdómi eða alvar-
legu þunglyndi eða kvíðaröskun en hann var metinn
með ýmis einkenni persónuleikaröskunar, sérstaklega
andfélagslegrar.
kOmu DeyjanDi manni
ekki Til hjÁlpar
n Þrítugur Lithái hlaut fjögurra ára fangelsi fyrir stórfellda líkamsárás sem leiddi til
dauða manns í sumarbústað í Grímsnesi í nóvember í fyrra. Hann réðst á manninn og
veitti honum banvæna áverka með hnefahöggum og spörkum. Þrennt til viðbótar var
í bústaðnum, tvær konur og einn maður. Þau voru ákærð fyrir brot gegn lífi og líkama
með því að hafa ekki komið hinum látna undir læknishendur. Þau leituðu ekki hjálpar
fyrr en daginn eftir en það var of seint. Konurnar voru báðar sýknaðar af ákæru en karl-
maðurinn sakfelldur og dæmdur til að sæta sex mánaða fangelsi. Þau eru öll frá Litháen.
framdi sjálfsmorð eftir
hroðalegaN ástríðuglæp
n 35 ára lífefnafræðingur var að skipta um sprungið dekk á Ford Taurus-bifreið á Sæ-
brautinni í grennd við Kirkjusand um hádegisbil 29. júlí árið 2007. Þá kom kunnug-
legur maður aðvífandi vopnaður nýjum 22 kalibera veiðiriffli og skaut hann í brjóstið.
Maðurinn lést á slysadeild stuttu seinna. Eftir nokkra leit fannst ódæðismaðurinn lát-
inn í bifreið á Þingvöllum. Hann hafði skotið sig með sama riffli og hann notaði til þess
að myrða manninn á Sæbrautinni. Árásarmaðurinn skildi eftir bréf handa lögreglu. Sá
myrti hafði nýverið tekið upp samband við fyrrverandi eiginkonu morðingjans. Sama
dag kallaði lögreglan til blaðamannafundar og upplýsti að á ferðinni hefði verið hroða-
legur ástríðuglæpur.
rÁnS-
Tilraun
enDaÐi Í
mOrÐi
n Um klukkan fjögur laugardagsnótt-
ina 2. mars árið 1991 ákváðu tvö ung-
menni, sautján ára strákur og fimmt-
án ára stelpa, að ræna mann. Stúlkan
lokkaði hann inn í húsasund við und-
irgang hússins Bankastræti 14 þar sem
strákurinn tók á móti honum og lamdi
hann í höfuðið. Fórnarlambið féll til
jarðar og skall með höfuðið í þrep sem
liggja hægra megin þegar gengið er inn
í portið og að íbúð á annarri hæð. Eftir
það rændu þau manninn. Áverkarnir
leiddu manninn til dauða. Drengur-
inn fékk fimm ára fangelsi en stúlkan
þriggja ára.
mölbrauT hauSkúpu
fórnarlambSinS
n Árið 1929, 30. nóvember um klukkan níu að morgni,
kom lögreglan að líki í herbergi á bifreiðaverkstæði við
Laugaveg. Hauskúpa hins látna var mölbrotin, enda voru
um tuttugu sár á höfðinu. Áverkar voru á hálsinum, blóð-
slettur um allt herbergið og blóðpollur og heilaslettur um
höfuð líksins. Skammt frá líkinu lá blóðug koparstöng sem
hafði verið notuð við morðið. Peningakassi hafði einn-
ig verið sprengdur upp og úr honum stolið. Það sem kom
lögreglunni á sporið í leitinni að morðingjanum var að
inni í herberginu fundust bílstjóragleraugu á gólfinu sem
enginn kannaðist við. Lögreglan taldi víst að morðinginn
hefði verið kunnugur staðháttum og því hóf hún rann-
sókn á þeim sem unnu eða höfðu unnið á verkstæðinu.
Heima hjá morðingjanum fann lögreglan ný gleraugu og
ný verkamannaföt sem voru enn þá í pakkningunum frá
versluninni. Eftir að fleiri sönnunargögn fundust játaði
morðinginn á sig verknaðinn. Hann sagðist hafa ætlað að
ræna verkstæðið og klæðst verkamannafötunum og verið
með gleraugun til þess að þekkjast síður ef maðurinn inni
vaknaði. Þegar fórnarlambið vaknaði við bröltið í morð-
ingjanum sagðist hann hafa gripið til koparstangarinnar
sem var á verkstæðinu. Vitnisburður hans þótti ekki sann-
færandi. Morðinginn hlaut nítján ára fangelsisdóm.