Dagblaðið Vísir - DV - 07.08.2009, Page 27
Hver er konan? „Kristín Ýr
Bjarnadóttir, fótbolta- og tónlistar-
kona.“
Hvar ertu uppalin? „Í Breiðholtinu.“
Uppáhaldsstaður utan Íslands?
„Ameríka.“
Hver er uppáhaldsmaturinn
þinn? „Pítsa.“
Hvaða húsverk leiðist þér mest?
„Það er erfitt að velja því þau eru
mörg svo leiðinleg. Ætli að þrífa
klósettið sé ekki þar einhvers staðar
mjög ofarlega á lista.“
Hver voru fyrstu viðbrögð þín
við fréttunum um landsliðsval-
ið? „Ég var mjög ánægð með að ná
settum markmiðum en ég trúði
þessu ekki alveg.“
Bjóstu við að vera kölluð í
hópinn? „Nei, eiginlega ekki en mér
fannst ég eiga það þannig séð skilið
eins og margar úr þessum 40 manna
æfingahópi. En þetta kom svolítið á
óvart þar sem þjálfarinn hefur ekki
valið mig í neina æfingaleiki en hann
sér náttúrlega alla leiki á Íslandi og
mér hefur gengið vel hér heima.“
Hverju þakkarðu þetta tækifæri
og gott gengi í sumar? „Öllum
þeim sem koma að Valsliðinu. Þeim
sem spila með, þjálfurunum og
sjúkraþjálfaranum. Ég er náttúrlega
alltaf í sjúkraþjálfun.“
Ertu komin til að vera í landslið-
inu? „Já, auðvitað.“
Er tónlistarferilinn alveg kominn
á hilluna? „Nei, ég er að gefa út eitt
lag sem fór á sumarstjörnuplötuna.
Ég er náttúrlega búin að vera mikið í
fótboltanum undanfarið og hann
búinn að vera í 1.-10. sæti. Ég er samt
ekkert hætt og þó ég hafi ekki gert
tónlist sjálf hef ég unnið fullt við
músík.“
Myndirðu skipta á BMV fyrir
glænýjan BMW? „Nei, minn BMV-
inn er bestur..“
Hver er draumurinn? „Hann er að
ná árangri með íslenska landsliðinu.
Verða svo atvinnumaður í landi þar
sem ég fæ borgað fyrir að spila og
BMV er frægur tónlistarmaður.“
Ætlar þú á Gay Pride?
„Já, auðvitað. Ég verð líklegast æðsti
Strumpur. Ég er í ungliðahópi
samtakanna ‘78 og við verðum með
sérstakt kvikmynda- og sjónvarps-
þáttaþema.“
Kjartan Þór Ingason
17 árA NEMi
„Nei, ég verð ekki í bænum.“
soffÍa gUðMUndsdóttIr
42 árA NEMi Í NorEgi
„Já, ég á bleika fiðrildavængi sem ég
ætla að fara með.“
gUðrún ÁstrÍðUr
„Já, ég ætla að vera í mínum fínustu
fötum. Ég þekki nokkra samkyn-
hneigða og ætla að styðja þá með því
að fara í pilsi og sokkabuxum niður í
bæ.“
HlÍðar BErg KrIstjÁnsson
19 árA og AtViNNulAuS
Dómstóll götunnar
KrIstÍn Ýr BjarnadóttIr
knattspyrnukona var óvænt valin í
íslenska landsliðið í knattspyrnu sem
tekur þátt í lokakeppni EM. Kristín er
einnig afbragðs tónlistarmaður og er
gift útvarps- og tónlistarmanninum
Brynjari Má Valdimarssyni, BMV.
minn bmv
er bestur
„Það gæti vel verið. Það er ekki alveg
ákveðið.“
EInar sVErrIr tryggVason
21 árS NEMi
maður Dagsins
Íslendingar eru ekki eina þjóðin sem
þekkir hugmyndina um stríðsgróða.
Í fyrri heimsstyrjöld græddu Norð-
menn svo mikið á skipaflutning-
um að hálfgert æði braust út. 1.600
hlutafélög og 80 viðskiptabank-
ar voru stofnaðir á stríðsárunum. Í
gamanleikritinu „Bör Börson jr“ frá
1920 er titilpersónan sveitastrákur
sem flytur til stórborgarinnar til að
taka þátt í ævintýrinu.
Raunveruleikinn var þá þegar
kominn langt fram úr nokkurri sat-
íru. Ungir milljónamæringar höfðu
það fyrir sið að hella úr kampa-
vínsflöskum yfir parketið og láta sig
renna eftir því á sokkaleistunum eins
og væru þeir að skauta. Líklega var
enn ekki búið að finna upp gullrís-
ottóið, svo að greyin urðu að gera sér
slíkar kúnstir að góðu.
Þó voru blikur á lofti. Í maí 1920
fóru hlutabréf að lækka á heims-
mörkuðunum, en í Noregi hélt
veislan áfram eins og ekkert hefði í
skorist. Fyrst í júlí sendi ríkisbankinn
Norges Bank út tilkynningu um að
nú væri það skylda allra norskra karla
og kvenna að lifa nægjusömu lífi og í
ágúst var innflutningur bannaður
á lúxusvörum eins og bílum, skart-
gripum, leikföngum og úrum. Þetta
dugði þó ekki til, því að öll vöruhús
voru þegar full af vörum sem höfðu
verið fluttar inn í góðærinu.
Erfiður október
Í september og október hófst hrunið
fyrir alvöru. Árið 1920 urðu helmingi
fleiri gjaldþrot en árið áður og 1921,
þegar botninum var náð, höfðu
þau aftur þrefaldast. Það ár fóru
1.030 fyrirtæki á hausinn. Atvinnu-
leysi jókst frá tveimur prósentum í
24. Norski blaðamaðurinn Christi-
an Christiansen taldi skömmu síð-
ar fram nokkrar ástæður þess að
Noregur varð sérstaklega illa úti.
Eftir að stríðinu lauk og grundvöll-
ur góðærisins var horfinn, var því
haldið gangandi með því að eyða
gjaldeyrisvaraforða ríkisins. Mikið
af seðlum var prentað, sem leiddi til
þess að allt hækkaði úr hófi fram. Í
um tvö ár hafði því aðeins verið um
sýndargóðæri að ræða.
Mótmæli urðu algeng, og var
þess meðal annars krafist að banka-
svindlararnir yrðu settir í fangelsi.
Norska ríkið dældi hins vegar pen-
ingum í bankana. Margir hafa velt
því fyrir sér hvort betra hefði verið
að láta kreppuna skella á með fullum
þunga strax, í stað þess að reyna að
milda hana og ef til vill draga hana
á lokin. Árið 1927, þegar krísan var
loks að ganga yfir, sagði bankastjóri
Norges Bank að ómögulegt hefði
verið fyrir Norðmenn að skipta svo
snögglega um lífsstíl. Blaðamaður-
inn Christiansen er sammála þessu,
og segir að erfitt hefði verið að venja
Norðmenn af kampavíni og aftur yfir
á lefsur á einni nóttu. Annar banka-
stjóri, Sandberg, sagði haustið 1920
þegar kreppan var að bresta á: „Ný-
bakaðir auðmenn okkar vöktu og
vekja enn athygli erlendis fyrir rík-
mannlegan lífsstíl og eyða mörgum
milljónum á dag.“
ríkisstjórnin fyrir rétti
Í byrjun árs 1921 samþykkti norska
þingið að veita 15 milljónir norskra
króna í banka sem áttu í erfiðleikum.
Bankastjóri Norges bank sagði af því
tilefni að engin ástæða væri til að ef-
ast um að bankarnir myndu hafa það
af. Árið eftir kom hins vegar í ljós að
einkabankarnir höfðu þurft að af-
skrifa 118 milljónir í skuldir. Ríkið
lét þó 50 milljónir til viðbótar til að
halda stórbönkunum Forenings-
banken og Centralbanken gangandi.
Allt kom fyrir ekki, þeir fóru á haus-
inn með dagsmillibili og ríkið varð
að taka þá yfir.
Mánuði síðar skrifaði bankastjóri
Handelsbanken Berge forsætisráð-
herra bréf og sagðist þurfa aðstoð.
Ríkisstjórnin var þá búin að fá nóg
og hafnaði beiðninni. Bankastjórinn
sagði að stjórnmálamennirnir gætu
gert eins og þeir vildu, en þá myndi
hann einfaldlega loka bankanum.
Ríkisstjórnin ákvað að svo búnu að
ekki væri ráðlagt að leggja málið fyrir
þingið, heldur lét með leynd Hand-
elsbanken fá 25 milljónir.
Þetta leiddi til þess að þremur
árum síðar voru Berge, fyrrverandi
forsætisráðherra, og kollegum hans
stillt fyrir dómstóla, sakaðir um að
hafa brotið bæði gegn stjórnarskrá
og lögum um ábyrgð. Það tók nokkur
ár að gera norska hrunið upp, en ekki
var hægt að skorast undan ábyrgð
endalaust.
Bankakreppan mikla í Noregi
mynDin
Bílastæðaparadís Stórfengleg uppbygging heldri manna hverfis í Setbergslandi við urriðakotsvatn hefur sannarlega ekki gengið sem skyldi. Kristinn Magnússon ljósmynd-
ari sá að þar var heldur fátæklegt um að litast þegar hann flaug yfir byggingu ikea sem er þar við. Örfá hús hafa verið byggð á svæðinu og aðeins flutt inn í eitt eða tvö þeirra.
Hitaveitan þarf hins vegar að dæla heitu vatni um allt hverfið til kyndingar með tilheyrandi himinháum kostnaði. Samkvæmt deiliskipulagi var gert ráð fyrir tæplega 15 húsum
á hektara og að meðaltali 3,9 bílastæðum á hverja íbúð. Mnd KrIstInn Magnússon
kjallari
umrÆða 7. ágúst 2009 föstudaGur 27
ValUr
gUnnarsson
rithöfundur skrifar
Í Noregi hélt
veislan áfram eins
og ekkert hefði í
skorist.