Dagblaðið Vísir - DV - 07.08.2009, Síða 31

Dagblaðið Vísir - DV - 07.08.2009, Síða 31
m æ li r m eð ... Bókinni Heitar laugar á Íslandi „Löngu tíma- bær bók,“ segir gagnrýnandi. Bókinni laura og Julio Það virðist hægt að ganga að því sem vísu að ef bók er hluti af neon-bóka- flokki Bjarts er hún ýmist góð, virkilega góð eða frábær. árstÍðum með sam- nefndri HlJómsveit. Frábær fyrsta breið- skífa. B13-ultimatum Yfirnáttúru- legur hasar byggður á reyfarakenndu handriti Lucs Besson. tölvuleiknum Harry Potter and tHe Half-Blood Prince Leikirnir um galdrakallinn hafa hingað til verið slak- ir og þessi er engin undantekning. m æ li r eK Ki m eð ... fóKus 7. ágúst 2009 föstudagur 31 Dagskráin að skýrast á Alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Reykavík: Hátt í 400 myndir vildu á RIFF föstudagur n Breezer-kvöld á selfossi Á föstudaginn verður Bacardi Breezer-kvöld á 800 Bar á Selfossi. Frítt verður inn allt kvöldið og Breezer að sjálfsögðu á tilboði alla nóttina í bland við frábæra tónlist. Hefur þú smakkað allar tegundirnar af Breezer? Ef ekki þá veistu hvert þú átt að fara á föstudaginn. n afmæli thorvaldssen Skemmtistaðurinn Thorvaldssen er sjö ára gamall og vill að þú takir þátt með sér í gleðinni. Á föstudags- kvoldið verða léttar veitingar í boði, bæði matur og drykkur, milli 21 og miðnættis. Einn heitasti plötusnúður bæjarins mætir svo í hús og heldur uppi fjörinu alla nóttina. n addi intro á Prikinu Hið frábæra Húsband Priksins hefur leik á Prikinu á föstudaginn klukkan 22 en Húsbandið hefur svo sannarlega slegið í gegn í hvert einasta skipti sem það stígur á svið. Hinn mikli meistari Addi Intro mætir svo með vel ferska hip hop-músík eftir Húsbandið og sér um að fólk hristi á sér rassinn fram á nótt. n egó á Players Stórhljómsveitin Egó verður með ball á Players á föstudaginn en Egó er heldur betur í stuði í sumar. Bæði hefur hljómsveitin verið að túra með Pöpunum en nú eru Egóistarnir vel heitir eftir að hafa rokkað feitt í Eyjum á Þjóðhátíð. laugardagur n 16 ára ball Yngri kynslóðin fær svo sannarlega eitthvað fyrir sinn snúð á 800 bar á Selfossi á laugardagskvöldið. Þar verður 16 ára ball - og árið gildir - á milli kl. 22 og 02. Sjálfur DJ Ramirez mun halda uppi stuðinu en 1.500 krónur kostar á ballið. n Boðsmiðaball dalton Hin geysivinsæla hljómsveit Dalton verður með stórdansleik á SPOT í Kópavogi á laugardagskvöldið. Sért þú bæði aðdáandi SPOT og Dalton á Facebook eða gerir eitthvað í því fyrir klukkan 16.00 á laugardaginn getur þú tryggt þér boðsmiða á ballið. Skráðu þig og sendu póst á daltonbandid@gmail.com og þú færð miða. n Hommar heiðraðir Prikið elskar alla og heldur uppi heiðri hornsins á Gay Pride á laugardagskvöldið. Samkynhneigðir og aðrir geta þar mæst undir dillandi undirspili Danna Deluxxx sem sér um tónlistina á staðnum það kvöldið. n Jólaball á Zimsen Já, þetta er ekkert grín. Kaffi Zimsen fer snemma af stað í ár og helgina 7. og 8. ágúst verður haldið alvörujólaball. Að sjálfsögðu verður alvörujólaglögg á staðnum og tilboð á jólakokteil. Jólabjór í flösku býðst á 100 krónur. Dansað verður í kringum jólatréð og jólasveinninn mætir í heimsókn. Hvað er að GERAST? figHting Slagsmála- atriðin í myndinni eru ekki bar- dagamynd til framdráttar. Dagskrá RIFF, Alþjóðlegrar kvik- myndahátíðar í Reykjavík sem hefst 17. september næstkomandi, er óðum að taka á sig mynd. Lokað var fyrir umsóknir nýlega og bárust hátt í 400 kvikmyndir alls staðar að. Fjöldi nýrra kvikmynda verður tek- inn til sýninga þar sem áherslan er lögð á splunkunýjar og framsækn- ar kvikmyndir. Von er á fjölda gesta erlendis frá en hátt í 100 kvikmyndir verða sýndar á hátíðinni í mismun- andi flokkum og í mörgum tilfellum er um að ræða heimsfrumsýningar, Evrópu- eða Norðurlandafrumsýn- ingar. Norskir kvikmyndagerðarmenn hafa lengi verið í skugga nágranna sinna í Svíþjóð og Danmörku en undanfarin misseri hefur verið fá- heyrð gróska í norskri kvikmynda- gerð. Sjónum verður sérstaklega beint að norskum bíómyndum þetta árið og verður sérstakur sýningar- flokkur tileinkaður norskum mynd- um. Þar verða sýndar fimm myndir, grínmyndir og spennumyndir, ást- arsögur og fjölskyldudrömu. Myndirnar fimm eru Norður eft- ir Rune Denstad Langlo sem hefur notið mikilla vinsælda undanfarna mánuði á hátíðum og sópað að sér verðlaunum, Engill eftir Margreth Olin og Saman eftir Matias Armand Jordal, Ískossinn eftir Knut Erik Jen- sen og Dauður snjór eftir leikstjór- ann Tommy Wirkola. Allar mynd- irnar eru frá árinu 2009 fyrir utan Ískossinn sem var frumsýnd í Noregi í fyrra. Hrönn marinós- dóttir, fram- kvæmdastjóri riff. Hátíðin hefur verið haldin fimm sinnum áður undir styrkri stjórn Hrannar. hún er samansafn sýninga, listvið- burða, fyrirlestra og vinnustofa sem hafa það að markmiði að efla ný- sköpun í íslenskri sviðslist. Miðstöð hátíðarinnar, sem stendur allan ág- ústmánuð, heitir Leikhús batteríið og er til húsa í Hafnarstræti 1. „Við hittum sýningagesti fyrst í Batteríinu en við röltum svo þaðan upp í Þingholtin þar sem verkið verð- ur sýnt í heimahúsi.“ Eins og gefur að skilja kemst takmaðurfjöldi fólks á hverja sýningu. „Þetta eru á bilinu 20 til 25 manns á hverri sýningu.“ Hlyn- ur segir þetta ekki í fyrsta skipti sem verk sé sýnt í heimahúsi en þeir hafi viljað gera það því slíkt sé sögusvið verksins. „Við vildum með þessu gera umgjörð verksins en raunsærri.“ nakinn fyrir séð og heyrt Fyrir fáeinum árum fór af stað aug- lýsingaherferð fyrir Séð og heyrt með yfirskriftinni „Nekt selur“. Ýmsar skvísur voru fengnar til þess að sýna kroppinn en vinsælasta fyrirsætan úr herferðinni var án efa Hlynur sjálfur. Hann lék meðal annars í sjónvarps- auglýsingu þar sem hann hljóp um á Adamsklæðunum með gula hár- kollu. Hann prýddi einnig hulstur hins magnaða safndisks Megamúsík Séð og heyrt sem kom út árið 2002. „Vinkona mín var að vinna hjá fyrirtækinu sem framleiddi þessa auglýsingu og þau vantaði einhvern frjálslega vaxinn náunga til þess að leika í henni.“ Hlynur segist ekki sjá eftir neinu og hann hlæi frekar en nokkuð annað þegar hann hugsar til auglýsingarinnar. „Ég lagði bara í þetta og þetta vakti bara ágætis lukku. Auglýsingin var meira að segja leng- ur í sýningu en áætlað var þannig að ég fékk aukalega greitt.“ mamma æpti Þegar auglýsingin var sem vinsæl- ust var fólk farið að þekkja Hlyn úti á götu. „Þegar maður var á Lauga- veginum var fólk farið að segja „Hey, þarna er nakti gaurinn“.“ Hlynur fór hins vegar fljótlega eftir þetta til Ind- lands þar sem hann dvaldi í fjóra mánuði. „Þannig að þetta hefur ekk- ert elt mig neitt þar sem ég fékk fína fjarlægð frá þessu þegar ég fór þarna út.“ Ekki voru þó allir sem tóku þessu jafnlétt og Hlynur. „Ég sagði eiginlega engum frá þessu þannig að mömmu brá nokkuð í brún þegar hún var í sal eitt í Regnboganum og sá son sinn hlaupa berrassaðan um. Hún æpti meira að segja upp fyrir sig.“ trúður í indlandi Áður en Hlynur hélt til Indlands hafði hann einnig tekið þátt í samnorrænu og norður-afrísku menningarverk- efni. „Eins flókið og það nú hljómar. Við vorum sem sagt krakkar frá Ís- landi, Finnlandi, Marokkó og Tún- is. Það voru tveir úr leiklist, tveir úr myndlist, danslist og tónlist. Þessum fjórum höfuðlistgreinum. Við flökk- uðum svo um þessi lönd og sýndum verk okkar.“ Þegar hópurinn var staddur í Mar- okkó var stoppað í barnaþorpi SOS. „Ég og Ólafur Egill Egilsson settum þar á laggirnar stutta leiksýningu sem trúðar. Við skemmtum þarna í sirka þrjú korter og þetta var svo ótrúlega gefandi. Það var kveikjan að því að mig langaði til þess að fara til Indlands og skemmta þessum krökk- um sem höfðu það ekki jafngott og við kannski þekkjum.“ Hlynur segir það hafa verið mik- ið menningarsjokk að koma út til Indlands þar sem atvinnuleysi hafi á þeim tíma verið í kringum 40%. „Þetta er svo algjörlega ólíkt öllu sem við þekkjum. Við vitum ekki hversu gott við höfum það fyrr en eftir að hafa upplifað og séð hvernig hlut- irnir eru annars staðar í heiminum. Það var mikið kúltúrsjokk að kynnast svona mikilli fátækt.“ Hlynur ferðaðist um landið og skemmti krökkum í SOS-þorpun- um og segir hann það ógleymanlega lífsreynslu. „Börnin í þessum þorp- um höfðu það samt mjög gott. Þetta eru alveg frábær samtök,“ en Hlyn- ur heimsótti ein 15 þorp. „Þau hafa sín eigin heimili og foreldra í þess- um þorpum. Við fengum að gista hjá þeim og borða þeirra mat.“ Hlynur segir hápunktinn í hverju þorpi svo hafa verið þegar hann skemmti krökkunum sem trúðurinn Nói. „Það þurfti nú ekki mikið til þess að skemmta þessum krökkum. Það var nóg að þarna væri bara mættur hvítur, þybbinn karl með rautt nef. En maður lék nú samt ýmsar listir eins og að blása eldi og halda á lofti boltum.“ Böðull Jóns arasonar Trúðahlutverkið og strípileikurinn er hins vegar ekki það eina sem Hlynur hefur afrekað. Áður en hann kláraði Fræði og framkvæmd í Listaháskól- anum lauk hann B.A. í bókmennta- fræði frá Háskóla Íslands. „Áður en ég fór út til Indlands var ég að vinna við að gera Sögusafnið í Perlunni. Ég var að vinna við að gera brúður fyrir safnið en þar sem ég var búinn með bókmenntafræðina líka var ég settur í að skrifa alla texta fyrir safnið.“ Stytturnar í safninu eru ótrúlega raunverulegar en þær eru sílikon- afsteypur og í fullri stærð. Afsteypa af Hlyni var notuð fyrir eina stytt- una sem er að finna í safninu. „Ég er þarna í fullri stærð sem böðull Jóns Arasonar biskups. Með eitthvað geð- veikisglott, öxina á lofti að undir- búa mig undir að hálshöggva síðasta kaþólska prestinn á landinu.“ eins manns her Eftir útskirft fór Hlynur upp í Borg- arleikhús þar sem hann leitaðist eft- ir stöðu aðstoðarleikstjóra í húsinu. „Mér fannst það eðlilegt framhald því að það er ekki boðið upp á neitt leikstjóranám hérna heima og mað- ur er ekki að fara út í framhaldsnám svona í miðri kreppu. Því væri það gott að fylgjast með öðrum leikstjór- um og læra af þeim.“ Magnús Geir Þórðarson leikhús- stjóri bauð Hlyni þá stöðu umsjónar- manns litla sviðsins sem hann ákvað að taka að sér. „Ég ákvað að slá til en það verður nokkuð strembið verk- efni. Hingað til hafa verkin á litla sviðinu verið samstarfsverkefni milli hússins og utan að komandi leik- hópa sem hafa séð um það að mestu leyti sjálfir en nú er svo mikið að gera að það þarf einhvern til að hafa yfir- umsjón með hlutunum.“ Þrjú til fjögur verk verða frum- sýnd á litla sviðinu fyrir jól og því mikil keyrsla. „Ég verð eins konar eins manns her þarna. Ég verð teng- iliður leikstjóra við allar stoðdeild- ir, sviðs- og sýningarstjóri auk þess að þurfa að sjá um að keyrslan gangi vel fyrir sig.“ Hlynur þarf því að vera viðstaddur allar æfingar og sýningar. Álagið verður eftir því. „Ég geri ekki ráð fyrir því að eiga mikið líf fyrir ára- mót en þetta veður bara spennandi.“ Fyrsta verkið sem frumsýnt verður á sviðinu í haust er Harry og Heimir með þeim Erni Árnasyni og Karli Ág- ústi Úlfssyni úr Spaugstofunni í aðal- hlutverkum. lókal í kúlunni Hlyni og tveimur öðrum útskriftar- nemum var boðið að sýna útskrift- arverk sín á leiklistahátíðinni Lókal sem fram fer í Reykjavík í september. „Sýningin fer fram í Kúlunni í Þjóð- leikhúsinu sem er undir Kassanum,“ en Hlynur er nú að þýða allt verkið til þess að geta sýnt það á ensku. „Það er svo mikið af erlendum gestum að koma á hátíðina að við ákváðum að sýna það á ensku,“ segir þessi fjölhæfi maður að lokum en hægt er að finna allar upplýsingar um Ellý alltaf góð á .artfart.is. Það borgar sig að hafa hraðar hendur þar sem verkið verður aðeins sýnt í eina viku. asgeir@dv.is Strípalingur, böðull, trúður og leikstjóri ellý alltaf góð Einleikur eftir Þorvald Þorsteinsson. Hlynur og Ævar Unnu einnig saman að útskrifarverkefni Hlyns.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.