Dagblaðið Vísir - DV - 07.08.2009, Blaðsíða 32
32 föstudagur 7. ágúst 2009 helgarviðtal
ÁRNA JOHNSEN
Tennisleikarinn frægi John McEnroe lítur út
eins og maður sem lét sig lítið varða um hvort
hann ynni eða tapaði leikjunum sem hann
spilaði þegar hann er borinn saman við knatt-
spyrnumanninn Hermann Hreiðarsson. Þessi
þrjátíu og fimm ára gamli Eyjamaður hefur svo
sem ekki verið sá sigursælasti á knattspyrnu-
vellinum í gegnum tíðina, en þegar hann
gengur inn á knattspyrnuvöll er enginn af hin-
um leikmönnunum tuttugu og einum sem er
reiðubúinn að leggja meira á sig til að vinna
leikinn en Hermann.
Hápunkturinn á ferli Hermanns hingað til
var vafalaust bikarmeistaratitillinn sem hann
vann með Portsmouth í fyrravor, auk frábærs
árangurs í deildinni, þar sem kappinn var einn
af lykilmönnum liðsins. Gengið á síðasta tíma-
bili var hins vegar ekki nærrum því jafn gott og
var Portsmouth ekki fjarri því að falla úr úr-
valsdeildinni eftir afleitt gengi framan af vetri.
Hermann þurfti þá að sætta sig við að verma
bekkinn í flestum leikjum, nokkuð sem lands-
liðsfyrirliðinn hefur ekki átt að venjast á sín-
um ferli, en það breyttist líkt og gengi liðsins
eftir að knattspyrnustjórinn Tony Adams fékk
reisupassann.
Skotland kitlaði
Samningur Hermanns við Portsmouth rann
út í sumar en hann framlengdi hann nýverið
um eitt ár. Áður höfðu nokkur lið sýnt varar-
manninum sterka áhuga, meðal annars Celtic
og Rangers sem hafa einokað Skotlandsmeist-
aratitilinn síðasta aldarfjórðunginn, og segir
Hermann alveg hafa verið inni í myndinni hjá
sér að skipta um lið.
„Já já, en það kom í rauninni aldrei form-
legt tilboð. Þetta voru viðræður sem fóru aldrei
almennilega af stað. Það var verið að bíða eftir
möguleikum á sölu á öðrum leikmönnum og
fleira og því fóru viðræðurnar aldrei lengra en
það,“ segir Hermann þar sem hann er staddur
á æfingasvæði Portsmouth þegar blaðamaður
ræðir við hann símleiðis síðastliðinn fimmtu-
dag. Vegna meiðsla sem hann hlaut nýverið á
læri hefur Hermann ekki æft með liðinu síð-
ustu daga en hleypur þess í stað sjálfur.
„En það voru líka klúbbar í deildinni fyrir
neðan sem voru með tilboð upp á tveggja ára
samning,“ heldur Hermann áfram eftir smá
þögn. „Ég ákvað samt að vera áfram hjá Port-
smouth, enda búinn að eiga góðan tíma hérna.
Fyrra árið var stórkostlegt og eftir áramót á síð-
asta tímabili frábært. Ég byrjaði einhverja tut-
tugu leiki og var þátttakandi í tuttugu og þrem-
ur leikjum þannig að maður spilaði svo sem
helling á síðasta „seasoni“.
Vildi ekki fara út í óViSSuna
Hermenn segir að nokkur lið utan Bretlands
hafi einnig borið víurnar í sig. „Já já, en það
kom aldrei til greina að fara frá Bretlandi. Mað-
ur er búinn að vera hérna það lengi að maður
vill ekki fara að rífa upp alla fjölskylduna og
fara út í óvissuna annars staðar.“
Hefði það verið mikið átak? „Það hefði svo
sem ekki verið eitthvað vandamál en það var
alltaf fyrsti kostur að vera áfram. Eins og ég
segi hef ég átt hér góðar stundir, Portsmouth
er skemmtilegur klúbbur og ég er í fínu formi
og vil því helst vera áfram í bestu deild í heim-
inum. Mér finnst ég hafa getu í það og því vill
maður vera í þessari deild eins lengi og maður
getur. Þótt tilboð frá klúbbum í neðri deildum
hafi verið betri þá lét maður viljann fyrir því að
vera í efstu deild ráða för.“
Hermann hefði getað farið til annars liðs
frítt þar sem samningur hans við Portsmouth
var útrunninn. Spurður hvort hann hafi tekið
á sig launalækkun við undirritun nýja samn-
ingsins segist Hermann ekki vilja ræða sín
launamál. „En ég var mjög sáttur við samning-
inn. Ef maður hefði ekki verið það hefði maður
bara farið eitthvað annað.“
Er engin kreppa í fótboltanum? „Ja, það
virðist alla vega ekki mikil kreppa hjá Real
Madrid og Manchester City,“ segir Hermann.
Blaðamanni virðist ljóst að hann fái ekki meira
upp úr honum um þessi mál og lætur því þar
við sitja.
í kolVitlauSu boxi
Meiðslin sem Hermann glímir nú við eru
ekki stórvægileg. Tognun aftan í læri sem hann
nældi sér í æfingaleik við smáliðið Eastleigh.
„Þetta er mjög lítið þannig séð. Fyrsta gráða
bara. Ég er byrjaður að jogga og ætti að geta
verið farinn að æfa af krafti með liðinu seinni
partinn í næstu viku. Ég ætla að sjá til hvernig
ég verð á sunnudaginn áður en ég útiloka eitt-
hvað með landsleikinn,“ segir Hermann og vís-
ar þar til vináttulandsleiks Íslands og Slóvakíu
næsta miðvikudag. Þremur dögum seinna er
svo á dagskrá fyrsti leikur Portsmouth í ensku
úrvalsdeildinni á tímabilinu sem framundan
er. Liðið mætir þá Fulham og er einnig óvíst
hvort Hermann verði orðinn klár fyrir hann.
„Þetta er svona „fiftí-fiftí“ með báða leiki.
Þetta eru svolítið lúmsk meiðsli, þér líður
kannski ágætlega en svo finnurðu fyrir þessu
þegar þú ferð í snarpa snúninga og eitthvað.
Annars held ég að ég hafi aldrei tognað áður
þannig að ég þekki þetta ekki nógu vel.“
Þrátt fyrir að reiða sigurviljann í þverpok-
um hefur Hermann húmor fyrir sjálfum sér
þegar honum verður á inni á vellinum. Hann
segir meiðslin hafa gert vart við sig þegar hann
var að reyna eitthvað sem hann á kannski að
láta vera, inni í vítateig mótherjanna.
„Já, ég var í kolvitlausu boxi og þá fer náttúr-
lega allt í vitleysu,“ segir Hermann og hlær. „Ég
var að setja boltann fyrir hægri fótinn, þóttist
ætla að skjóta en þá kemur hafsentinn og renn-
ir sér og ég kippi löppunni upp úr tæklingunni.
Þá fann ég aðeins til í lærinu. Svo kemur hinn
hafsentinn og ég hoppa upp úr þeirri tæklingu
líka. Og þá fann ég aðeins meira.“
TEK VIÐ AF
Stoltur faðir Hermann með dætrum
sínum, Thelmu Lóu , níu ára, og Ídu
Marín, sjö ára. Myndin er tekin á
góðgerðargolfmóti sem Hermann stóð
fyrir ásamt fleirum í Eyjum fyrr í sumar.
MYnd óSkar Pétur