Dagblaðið Vísir - DV - 07.08.2009, Page 37

Dagblaðið Vísir - DV - 07.08.2009, Page 37
helgarviðtal 7. ágúst 2009 föstudagur 37 Stendur sterkari eftir áföllin hverfi en það er lítið í gangi núna. Ætli það endi ekki með því að ég fari að gera eitthvað sjálf. Ég og vinkona mín erum að vinna saman að „pilot“-þætti og ef vel gengur fer hann í sýningar jafnvel í haust,“ segir hún spennt en þátturinn snýr að ástandinu í dag og því hvernig fólk getur nýtt, breytt og bætt ýmislegt á heimilinu. „Það hefur alltaf blundað í mér að gera eitthvað sjálf og vonandi verður það að veru- leika. Ef ekki stefnir maður kannski í frekara nám. Mig langar að fara í eitt- hvað tengt arkitektúr eða hönnun og það væri gaman að prófa að búa í öðru landi. Annars hugsa ég lítið fram í tímann þótt ég hafi gaman af því að skipuleggja,“ segir hún og bætir við að hún hafi gaman af því að ferðast. „Mig langar að fara til Afríku og Ástralíu og til þess að ferðast meira um Banda- ríkin og vonandi hef ég einhvern tím- ann tækifæri til þess. Eins þykir mér ofsalega gaman að elda, vera í kring- um vini mína og halda matarboð. Ég á stóran og góðan vinahóp sem hitt- ist reglulega og borðar saman. Ég þarf alltaf að vera að gera eitthvað og get ómögulega hangið og gert ekki neitt,” segir hún og viðurkennir að hún sé heldur betur búin að þrífa, breyta og bæta heimilið síðan hún varð heima- vinnandi. „Systir mín hefur haft á því orði að það sé hægt að borða upp af gólfinu hjá mér. Ég vil bara hafa hreint í kringum mig og fer ekki að sofa nema uppþvottavélin sé tóm og ekki út úr húsi nema búið sé um öll rúm. Maðurinn minn reynir reglulega að minna mig á að þetta fari ekkert frá mér en það gerir lítið gagn, mamma er svona líka.“ Hlæja að sömu vitleysunni Þórunn og Brandur hafa verið saman í 18 ár en þau giftu sig árið 2000. Þau kynntust í gegnum sameiginlegan vin en höfðu lengi vitað hvort af öðru. „Við vorum oft í sama partíinu og mér fannst hann alltaf voða sætur en ég hélt hann væri svo feiminn. Svo allt í einu gerðist eitthvað. Hann er yndis- legur maður sem stóð eins og klettur við bakið á mér þegar ég missti bróð- ur minn og datt niður í svartnættið. Ég held að margir hefðu nú gefist upp og gengið út en hann var alveg ótrúleg- ur.“ Hún segir að þau Brandur passi sig að eiga góðar stundir saman og þau geti auðveldlega hlegið að sömu vitleysunni. „Við mættum örugglega gera meira í því að viðhalda neistan- um en við förum samt reglulega út að borða, á hótelin hér í borginni og jafnvel til Akureyrar í helgarferðir. Við erum ofsalega góð við hvort annað, það er mikill húmor í okkur báðum og hann getur enn fengið mig til að veltast um að hlátri,” segir hún bros- andi og bætir við að það mikilvægasta í lífinu séu börnin, fjölskyldan, heils- an og það að geta lifað sómasamlegu lífi. „Ég er mjög hamingjusöm og á æðislega vini og yndislegri fjölskyldu en nokkur getur beðið um,“ segir hún og bætir við að hún hafi lært margt af þeim áföllum sem hún hefur þurft að glíma við í gegnum ævina. „Ég hef lært ofsalega mikið á því sem ég hef gengið í gegnum og met lífið öðruvísi en áður og ég er þakklát fyrir það sem ég hef. Maður veit aldrei hvað fram- tíðin ber í skauti sér og í dag eyði ég ekki tímanum í pirring eða fýlu. Það er ekki þess virði að reiðast yfir hlut- um sem skipta engu máli. Ég stend sterkari eftir áföllin.“ „Mér fannst svolítið ópersónulega staðið að þessu því ég hafði unnið við þáttinn svo lengi og leit á hann seM barnið Mitt.“ Lífhrædd Þórunn segist í kjölfar áfalla sem hún hafi orðið fyrir á lífsleiðinni hafa orðið ofsalega lífhrædd og að hún óttist sífellt að eitthvað komi fyrir hennar nánustu. Mynd KarL Petersson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.