Dagblaðið Vísir - DV - 07.08.2009, Page 52
Nýr veitiNgastaður á akureyri Nýr
grænmetisveitingastaður hefur verið opnaður við
hlið Hótel Norðurlands á Akureyri en staðurinn heitir
Vegi-terian. Matseðillinn er í anda grænmetisstaðarins
Staðurinn en þar verður þó einnig að finna fisk, pasta
og pizzur. Að sögn eiganda Vegi-terian, sem var annar
eigandi Staðarins, er matseðillinn stærri og fjölbreytt-
ari en hollustan er vissulega enn í fyrirrúmi.
UMSjóN: HANNA eiríkSdóttir, hanna@dv.is
Karlmenn
þurfa líKa
sólarvörn
„Gott er að bera á sig sólarvörn
hálftíma áður en farið er út í sól-
ina og gera það reglulega,“ segir
Björg Alfreðsdóttir, förðunar-
meistari hjá MAC, og bætir við að
því hærri sem sólvarnarstuðullinn
sé því betri sé vörnin fyrir húðina.
Björg segir að húðin taki alveg
jafnt lit þótt sólarvörn sé notuð.
Liturinn verður jafnari og endist
lengur. „Ísland trónir á toppnum
þegar kemur að húðkrabbameini
á Norðurlöndunum og því meg-
um við ekki gleyma sólarvörn-
inni. Ekki karlmenn heldur.“
52 föstudagur 7. ágúst 2009 lífsstíll
BrúnKuKrem
í stað ljósa-
BeKKja
„Til að fríska upp á útlitið er hægt
að nota gott brúnkukrem í stað þess
að nota ljósabekki,“ segir Alexandra
Helga Ívarsdóttir, ungfrú Ísland 2008,
þegar hún er spurð út í sniðug útlits-
ráð. Alexandra mælir líka með fjöl-
breyttum æfingum svo við fáum ekki
leiða á ræktinni. „Síðan er um að gera
að skella sér út að hjóla, á línuskauta
og í sund í góða veðrinu. Loks vil
ég endilega mæla með maskara frá
Lancôme sem heitir Hypnose. Ég er
oft spurð hvaða maskara ég noti því
þessi er algjör snilld.“
Rakel Ársælsdóttir vildi vera sinn eigin herra til að geta varið meiri tíma með dætrum
sínum svo hún stofnaði skóvefverslunina desire.is. Rakel segir tækifæri í kreppunni
því konur hætti aldrei að versla heldur breyti þær einfaldlega verslunarmunstrinu.
selur skó í aNda
sex aNd the City
„Ég elska tísku og er búin að lifa og
hrærast í þessum heimi frá ungaaldri
og nú langaði mig að bjóða konum
upp á flotta pæjuskó í anda Sex and
the City,“ segir Rakel Ársælsdóttir
sem rekur skóvefverslunina desire.
is. Rakel rak tískuverslunina Mangó
um árabil í Keflavík og er því ekki
ókunn verslunarrekstri. Hún segir
desire.is ganga vonum framar og að
kreppan hafi ekki sett strik í reikn-
inginn, nema síður sé. „Kreppan er
tækifæri fyrir mig því þótt það herði
að hættum við konur ekki að versla.
Við breytum bara munstrinu og það
hefur sannað sig því það er brjálað að
gera hjá mér,“ segir Rakel sem rekur
einnig stórt heimili en hún og kær-
asti hennar eiga þrjár dætur sam-
anlagt. „Mig langaði að gera eitthvað
sem hægt væri að gera heiman frá
mér til að geta eytt meira tíma með
dætrunum en sú yngsta er að verða
fjögurra ára og það er sko nóg að gera
á þessu heimili. Við skvísurnar erum
allar miklar tískudrósir svo það eru al-
veg jólin þegar ég fæ sendingar. Þær fá
að máta en eru of ungar til að ganga á
svona hælum,“ segir hún brosandi og
bætir við að heitustu skórnir í dag séu
platform-skór og að stígvélin komi
sterk inn með haustinu. „Hermanna-
tíska, Gladiator-tíska og bara ofboðs-
lega töff skór eru málið.“ Slóðin að
verslun Rakelar er www.desire.is og
það er vel þess virði að kíkja.
Indíana Ása Hreinsdóttir
Rakel Ársælsdóttir Vildi starfa
sjálfstætt til að geta verið meira
með dætrum sínum.
Elskar tísku „...langaði að bjóða konum
upp á flotta pæjuskó í anda Sex and the City.”
trimform eftir meðgöNgu
Ragnheiður Guðfinna með góð ráð fyrir nýbakaðar mæður:
Ragnheiður Guðfinna Guðnadóttir
kom með ráðleggingar handa nýbök-
uðum mæðrum í síðasta Helgarblaði
DV en Ragnheiður eignaðist sinn
annan son fyrir tveimur mánuðum.
„Ég þurfti að taka það rólega fyrst um
sinn og maður hleypur ekki langt frá
ungu barninu sínu. Því ákvað ég að
skella mér til stelpnanna í Trimformi
Berglindar og var hæstánægð með
það. Þetta er frábær hugmynd sem
ég vil endilega lauma að nýbökuðum
mæðrum sem vilja losna við app-
elsínuhúð, vinna á slappri húð eftir
meðgöngu og slöppum vöðvum og
fá hjálp við að þjálfa grindarbotns-
vöðvana eftir meðgönguna.“
Ragnheiður Guðfinna Segir trimform
góða leið til að losna við appelsínuhúð
og vinna á slappri húð.