Dagblaðið Vísir - DV - 07.08.2009, Qupperneq 64
n Miðborgarmaðurinn Jakob Frí-
mann Magnússon situr sjaldan
með hendur í skauti. Eftir anna-
sama verslunarmannahelgi sást
glerfínn Stuðmaðurinn spóka sig
í teinóttum jakkafötum fyrir utan
danska sendiráðið við Hverfisgötu
á fimmtudaginn. Ekki fylgir sög-
unni hvort Jakob var einungis að
virða fyrir sér miðborgina eða hvort
gamlir draumar um frægð og
frama í Dana-
veldi séu farnir
að gera vart við
sig. Stuðmenn
spiluðu fyrir
um 11 þúsund
manns í Hús-
dýragarðinum
um síðustu
helgi
og hafa
sjald-
an verið
betri.
Batnandi mönnum
er best að lifa!
Fréttaskot 512 70 70
DV borgar 2.500 krónur fyrir fréttaskot sem leiðir til fréttar. fyrir fréttaskot sem Verður
aðalfrétt á forsíðu greiðast 25.000 krónur. fyrir besta fréttaskot Vikunnar greiðast allt
að 50.000 krónur. alls eru greiDDar 100.000 krónur fyrir besta fréttaskot hVers mánaðar.
Við, íslenskur almenningur, eigendur
og greiðendur Ríkisútvarpsins, viljum
ráða Kristin Hrafnsson blaðamann í
fullt óritskoðað starf til þess að fjalla
um hrun íslensku bankanna.“ Svona
hljómar áskorun á Facebook sem
rúmlega eitt þúsund manns hafa lagt
nafn sitt við. Þar kemur fram að Krist-
inn sé nú í afleysingum á RÚV. Hann
hafi sýnt að hann kunni að varpa ljósi
á sannleikann og þurfi því að vinna
fyrir ríkismiðilinn í þágu þjóðarinnar.
Páll Magnússon útvarpsstjóri
segir að Kristinn væri ekki í starfi
hjá Ríkisútvarpinu nema vilji væri
til að hafa hann þar. „Að sjálfu leiðir
að hans störf, eins og önnur á RÚV,
eru óritskoðuð, þannig að það er að
minnsta kosti þegar búið að uppfylla
þá óskina,“ segir Páll. Hann segir að
Kristinn sé góður og gegn fréttamað-
ur sem RÚV vildi gjarnan hafa áfram í
starfi en treystir sér þó ekki til að stað-
hæfa neitt um ráðningamál frétta-
stofunnar. Aðspurður segir hann að
Kristinn sé vel til þess fallinn að sinna
málefnum bankahrunsins. „Hann
hefur gert sig gildandi í þeim málum
nú þegar, þennan tíma sem hann hef-
ur verið hér að störfum. Kristinn er
afar reyndur og öflugur fréttamaður,“
segir Páll.
Ljóst er að Kristinn á sér marga
stuðningsmenn því á meðal áskor-
enda á Facebook má finna Birgittu
Jónsdóttir þingmann, Sturlu Jónsson
mótmælanda, Sigurð Þ. Ragnarsson
veðurfréttamann, söngkonuna Helgu
Möller og sjónvarpsmanninn Sölva
Tryggvason.
baldur@dv.is
Draumar
StuðmannS
Hópur á netinu þrýstir á Pál Magnússon útvarpsstjóra að ráða Kristin Hrafnsson:
Vilja KriStin í fullt Starf á rÚV
n Rúnar Ben Maitsland, sem árið
2002 var dæmdur í fimm ára fang-
elsi fyrir aðild að smygli á 27 kíló-
um af hassi til landsins, er einn af
þeim sem veitt hafa athygli þungum
dómum yfir smyglurum í Papeyjar-
málinu. Rúnar var dæmdur ásamt
tvíburabróður sínum Davíð Ben
og voru dómarnir yfir þeim þeir
þyngstu sem þá höfðu fallið í fíkni-
efnamáli á Íslandi. Rúnar hefur nú
snúið við blað-
inu og heldur
sig réttum
megin við
lögin. Hann
gerði í gær
tengil á Face-
book-síðu
sína á frétt DV-
.is um dóma í
Papeyjarmálinu
með orðunum:
„Svona verður
þetta ef maður
er ekki góður
strákur :)“
ÓþeKKir StráKar
fara á Hraunið
n Sjónvarpsmaðurinn og gleðipinn-
inn Ásgeir Kolbeinsson slær ekki
slöku við í skemmtunum þó vel á
fertugsaldurinn sé komið. Ásgeir,
sem er 34 ára, sló ekki slöku við á
Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum um
verslunarmannahelgina. Hann lét
ekki bjóða sér að gista í tjaldi í daln-
um heldur var með herbergi á Hótel
Eyjum, þar sem hann dvaldi í góðra
vina hópi. Ásgeir lét ekki gott heita
þegar tónlistin í dalnum þagnaði
heldur hélt eftirpartí á
hótelinu þar sem
vinum og kunn-
ingjum var boð-
ið. Ásgeir, sem
var með 204
þúsund krón-
ur á mánuði
árið 2008
samkvæmt
Tekjublaði
Mann-
lífs, hefur
greinilega
lagt fyrir í
góðærinu.
með eftirpartí
í eyjum
Sló í gegn kristinn vakti mikla athygli
með frétt sem leiddi til lögbanns á rÚV.
„Flottir
dagar“
í ágúst