Dagblaðið Vísir - DV - 28.08.2009, Blaðsíða 8
Geysir Green Energy bauð níu manns
í laxveiðiferð í Grímsá í Borgarfirði um
þarsíðustu helgi. Áin hefur stundum
verið nefnd „drottning íslenskra lax-
veiðiáa“ og var í eigu athafnamanns-
ins Thors Jensens og fjölskyldu hans í
marga áratugi á tuttugustu öld. Dag-
urinn í henni kostar um hundrað
þúsund krónur á stöngina. Hópurinn
var við veiðar í ánni í tvo daga og nam
kostnaðurinn við hana rúmri milljón
samkvæmt forstjóra Geysis, Ásgeiri
Margeirssyni.
Megintilgangur ferðarinnar var
koma kínversks viðskiptafélaga Geys-
is Green hingað til lands, Zhu Jiang,
samkvæmt stjórnarformanni Geys-
is Green, Eyjólfi Árna Rafnssyni, en
Kanadamaðurinn Ross Beaty var
einnig með í för.
Beaty er sem kunnugt er forstjóri
og aðaleigandi Magma Energy sem
hyggst reyna að kaupa 32 prósenta
hlut Orkuveitu Reykjavíkur og Hafn-
arfjarðarbæjar í HS Orku. Talið er að
Magma Energy og Geysir Green En-
ergy vilji eignast sameiginlega HS
Orku að fullu með naumri meiri-
hlutaeign GGE. Beaty hefur í vikunni
fundað með Steingrími J. Sigfússyni
fjármálaráðherra varðandi áform
sín um kaup Magma á hlutnum í HS
Orku. Steingrímur hefur hins vegar
sagt að afstaða hans varðandi eign-
arhald á íslenskum orkufyrirtækjum
liggi alveg ljós fyrir.
Vilja ekki bein ríkisafskipti
Nær öruggt má telja að tilgangurinn
með veiðiferðinni hafi meðal ann-
ars verið að ræða um mögulega sam-
vinnu Geysis Green og Magma En-
ergy í HS Orku. Orkuveita Reykjavíkur
hefur frest þar til í lok mánaðarins til
að gefa Magma Energy svar um hvort
hluturinn verður seldur til félagsins.
Framtíð Geysis Green, sem á 32
prósenta hlut í HS Orku, er hins veg-
ar í höndum Íslandsbanka og þar
með íslenska ríkisins þar sem bank-
inn er rúmlega 40 prósenta hluthafi í
Geysi Green Energy í gegnum Glaci-
er Renewable Energy Fund. Jafnframt
er Íslandsbanki langstærsti kröfuhafi
Geysis Green en skuldir félagsins við
bankann nema yfir 20 milljörðum
króna. Íslenska ríkið er því í þeirri
stöðu að gera leyst Geysi Green til sín
vegna skulda félagsins. Alveg ljóst er
hins vegar að forsvarsmenn Geys-
is kjósa ekki þennan möguleika og
vilja halda eignarhaldinu á félaginu
óbreyttu og án beinnar aðkomu rík-
isins.
Betra að spara spurningarnar
Tveir af stjórnendum Geysis vilja hins
vegar ekki tjá sig um málið. Alexander
Guðmundsson, fjármálastjóri Geysis
Green, neitar aðspurður að tjá sig um
kostnaðinn við veiðiferðina eða af
hverju hún var farin. „Ég hef bara ekk-
ert um þetta að segja; hvort þetta hafi
verið eða annað.“ Þegar blaðamaður
DV sagði við Alexander að hann hefði
heimildir fyrir því að hann hefði ver-
ið í veiðiferðinni í Grímsánni sagði
Alexander að hann vildi ekki komm-
entera á málið þannig að betra væri
að spara spurningarnar um málið.
Framkvæmdastjóri Geysis, Þór
Gíslason, vildi heldur ekki tjá sig um
veiðiferðina eða hvað fór þar fram.
Aðspurður hvort hann hann hefði far-
ið í ferðina sagði Þór að betra væri að
heyra í Ásgeir Margeirssyni, forstjóra
Geysis, um það. „Heyrðu bara í Ásgeir
með það... Ræddu endilega við Ásgeir
um það,“ en samkvæmt heimildum
DV voru eiginkonur stjórnendanna
þriggja einnig með í för í Grímsánni
ásamt Magnúsi Bjarnasyni, fram-
kvæmdastjóra Capacent Glacier, sem
unnið hefur verðmat á HS Orku fyrir
Magma Energy og veitt félaginu ráð-
gjöf. Magnús var framkvæmdastjóri
hjá Glitni fyrir bankahrunið og átti að
leiða orkuútrás bankans á alþjóða-
vettvangi í gegnum skrifstofu bank-
ans í New York. Orkuarmur Glitnis
var sameinaður Capacent og úr varð
Capacent Glacier og eru tengsl fé-
lagsins við fyrrverandi stjórnendur
Glitnis náin.
Ross Beaty kíkti í mat
Ásgeir Margeirsson segir aðspurður
um hverjir hafi verið með í för í veiði-
ferðinni í Grímsá að það hafi ver-
ið stjórnendur félagsins, Kínverjinn
Zhu Jiang og svo nokkrir gestir sem
hann nefnir ekki á nafn: „... svo komu
nokkrir gestir svona og kíktu á okkur í
mat og hittu okkur aðeins.“ Aðspurð-
ur hvort Ross Beaty hafi ekki verið
einn þeirra segir Ásgeir að hann hafi
borðað með þeim eitt kvöldið: „Jú,
hann borðaði með okkur eitt kvöldið.
Hann kom hins vegar ekki til að veiða
heldur til að hitta okkur,“ segir Ásgeir
og bætir því við að Beaty hafi svo að-
eins tekið í stöng í Grímsánni dag-
inn eftir, áður að hann hélt á braut úr
Borgarfirðinum, en að hann hafi því
miður ekki fengið neitt.
Ásgeir segir að félagarnir hafi ekk-
ert fengið í Grímsánni í túrnum þrátt
fyrir að áin sé rómuð fyrir mikla og
góða veiði en að þó hafi það verið bót
í máli að Zhu Jiang fékk einn lax, sjálf-
an maríulaxinn, sem síðan var eldað-
ur ofan í mannskapinn um kvöldið.
Jiang át svo að sjálfsögðu uggann á
laxinum eins og öllum sönnum veiði-
mönnum ber að gera þegar þeir fanga
sinn fyrsta lax. „Þeir eru farnir að gera
það „guidarnir“ að þeir skera uggann
af fyrir menn og færa þeim hann svo
á fati,“ segir Ásgeir.
Gagnkvæm ánægja
Aðspurður af hverju Ross Beaty hafi
verið með í för í Grímsánni segir Ás-
geir að Geysir Green hafi einfaldlega
boðið honum að koma. Beaty hafi
verið staddur hér á landi vegna samn-
ingaviðræðna við Orkuveitu Reykja-
víkur og stjórnendur Geysir Green
hafi boðið honum að koma til að hitta
sig. „Við erum nýbúnir að ljúka samn-
ingum við Magma um kaup á 11 pró-
senta hlut í HS Orku eins og frægt er
orðið. Við buðum honum því bara að
kíkja á okkur,“ segir Ásgeir.
Aðspurður hvort Geysir vilji eiga
HS Orku að fullu með Magma seg-
ir Ásgeir: „Okkur er mikið í mun að
þeir sem eiga þetta með okkur geti
byggt þetta upp með okkur og skorti
hvorki vilja né getu til þess. Hver það
nákvæmlega er er ekki okkar stóra
mál... Hvort það er Magma eða ein-
hver annar er ekki okkar að segja,“
segir Ásgeir.
Ásgeir segir að forsvarsmenn
Geysis hafi hitt Ross Beaty oft á þessu
ári en að ekki sé hægt að taka neinar
ákvarðanir fyrr en eftir að Orkuveitan
ákveði hvort hlutur hennar í HS Orku
verði seldur til Magma. „Auðvitað
ræða menn um hvað getur síðan gerst
og hvernig hlutirnir geti síðan þró-
ast, þannig að við höfum bara verið
að spá. En við hins vegar getum ekk-
ert ákveðið fyrr en við vitum hvern-
ig framtíðin verður,“ segir Ásgeir og
bætir því við að ágætis samband sé á
milli Geysis og Magma. „Augljóslega
líst honum ágætlega á okkur og okk-
ur fannst gott að fá hann þarna inn
því hann hefur getu til þess að byggja
þetta upp með okkur. Þannig að það
er ágætis stemning í því hvað sem
síðar verður,“ segir Ásgeir.
Boltinn hjá ríkisvaldinu
Ásgeir segir að hann geti ekki haft
skoðun á því hvort Íslandsbanki muni
leysa Geysi Green til sín og ráðstafa
hlutnum í HS Orku; framtíðin verði
að segja til um það. „Ég veit ekkert
um það, það er svo mikil óvissa í því
máli. Ég verð bara að vinna að því að
byggja Geysi Green upp, sem og HS
Orku, ásamt þeim sem henta í sam-
starfið,“ segir Ásgeir.
Þráspurður hvernig hann telji að
framtíð Geysis Green og HS Orku
verði segist hann ekki vita neitt um
það. „Málið er í höndum fjármála-
ráðherra og ríkisstjórnarinnar. Ég get
alveg eins spurt þig að því hvað muni
gerast. Ég veit ekkert hvað fjármála-
ráðherra er að hugsa í þessu máli.
Hann hefur örugglega vilja til að
koma inn í þetta sem opinber aðili,“
segir Ásgeir og bætir því við að hann
hafi ekki hugsað svo langt fram í tím-
ann um hvað muni gerast inni í Geysi
Green ef Íslandsbanki tekur Geysi
Green yfir.
8 föstudagur 28. ágúst 2009 fréttir
Geysir Green bauð níu manns í veiðiferð í Grímsá, drottningu íslenskra laxveiðiáa, um þarsíðustu helgi. Með
í för var kanadíski auðmaðurinn Ross Beaty frá Magma Energy sem gert hefur tilboð í tæplega 17 prósenta
hlut Orkuveitu Reykjavíkur í HS Orku. Geysir og Magma vilja eignast HS Orku að fullu. Forstjóri Geysis
Green segir að rætt hafi verið um HS Orku en að veiðin hafi ekki fengið vel. Samskipti Geysis Green og Mag-
ma eru góð segir forstjórinn. Framtíð Geysis Green er í höndum ríkisstjórnarinnar segir forstjórinn.
GEYSIR OG MAGMA
SAMAN Á VEIÐUM
„Málið er í höndum
fjármálaráðherra og
ríkisstjórnarinnar“
InGI F. VIlhjálmsson
blaðamaður skrifar ingi@dv.is
VeIðIFélaGaRnIR í GRímsánnI:
n ásgeir margeirsson, forstjóri Geysis
n alexander K. Guðmundsson, fjármálastjóri Geysis
n Þór Gíslason, framkvæmdastjóri Geysis
n Eiginkona Ásgeirs
n Eiginkona Alexanders
n Eiginkona Þórs
n Zhu jiang, starfsmaður Geysis Green í Kína
n Ross Beaty, forstjóri Magma Energy sem vill kaupa hluti í Orkuveitu Reykjavíkur
n magnús Bjarnason, framkvæmdastjóri ráðgjafafyrirtækisins Capacent Glacier
sem unnið hefur verðmat á HS Orku fyrir Magma
ásgeir margeirsson, forstjóri Geysis
Green Energy, segir að ágætis stemn-
ing sé á milli Geysis Green Energy og
Magma Energy, fyrirtækis kanadíska
auðmannsins Ross Beaty. Beaty tók í
stöng í Grímsá en fékk ekki lax.
Valdið hjá fjármálaráðherra. Steingrímur J. Sigfússon hefur úrslitaáhrif um
framtíð Geysis Green Energy