Dagblaðið Vísir - DV - 28.08.2009, Blaðsíða 26
Ljóshærða LjóðskáLdið
Sigmundur Ernir Rúnarsson alþingismaður hefur gam-an af því að spila golf og fá sér í glas. Og þetta ljóshærða
ljóðskáld úr Grafarvogi er með allra
skemmtilegustu mönnum þegar það
er ölvað. Þá gneistar beinlínis af skáld-
inu og mögnuð orðkynngin verður
sem flugeldasýning á Menningar-
nótt árið 2007. Alþingi veitir ekkert af
skrúðmælginni í bland við grjóthart
dómadagsrausið sem flæðir þar yfir
hálftóma sali. Með tilkomu Sigmund-
ar Ernis breyttist þetta. Orðræðan,
þrátt fyrir einhverjar beygingarvillur,
færðist á æðra plan. Og hverjum er
ekki sama þótt skáld lyfti anda sínum
með söngvatni. Það ætti ekki að skaða
neinn.
Hýenur hafa elt aumingja Sigmund uppi eftir að hann slysaðist til að drekka innan við lítra af rauðvíni
með mat. Hann fann engin áfengis-
áhrif eftir matinn þegar hann steig
í ræðustól Alþingis og hóf tölu sína
til að bjarga Íslandi. Þvoglumælgin,
samhengisskorturinn og minnisleys-
ið var vegna þess að hann var orðinn
svo þreyttur eftir að hafa staðið vakt-
ina á golfvellinum í Grafarholti við að
bjarga Íslandi og síðan neyðst til að
slökkva þorsta sínum. Sá sem held-
ur því fram að þetta hafi ekki verið
þreyta er annaðhvort sjálfstæðismað-
ur eða vitleysingur.
En Sigmundur Ernir veit að það er sjálfsagt að fjölmiðlar fjalli um áfengisneyslu stór-menna eða annarra þeirra
sem gegna störfum í þágu ríkis eða
þjóðkirkju. Hann var fljótur að skúbba
því á sínum tíma sem fréttastjóri þeg-
ar prestur og þjóðgarðsvörður á Þing-
völlum varð uppvís að því að hafa ekki
ráðið við áfengisneyslu sína. Eftir að
presturinn missti starf sitt og hempu
fjallaði Sigmundur um málið af þunga
og ábyrgð. Yggldur í framan eins og
örn í árásarflugi starði hann á þjóðina
í gegnum ótal sjónvarpsskjái og lýsti
hneykslinu sem var það versta síð-
an Davíð Oddsson hafði sagt: „Skál,
bermúdaskál.“ Presturinn var raun-
ar hættur störfum en missti að auki
mannorðið sem var í senn nauðsyn-
legt og maklegt. Þetta var spurningin
um Jón eða séra Jón.
Mörgum árum síðar stend-ur Sigmundur Ernir sjálf-ur á einum helgasta stað Íslands, í ræðustól Alþing-
is. Örvasa með máttlausa tungu nær
hann ekki heilli hugsun og er borinn
þeim sökum að vera drukkinn. Hann
er maðurinn sem fyrstur fjölmiðla-
manna var rekinn og braust þannig
undan oki auðmanna og fór að vinna
fyrir þjóð sína. En það er með fulltrúa
almennings eins og alla aðra. Þeir
þurfa stundum að njóta lífsins. Sig-
mundur, laus undan oki auðmanna,
kom sér á spena eina bankans sem
ekki féll í hruninu. Náðarsamlegast
féllst hann á að þyggja boð
á golfmót og síðan mat
og áfengi. Allir hljóta að
skilja að stundum verða
þingmenn að slappa af og
sleppa fram af sér beislinu.
Í þeim efnum er Alþingi
kjörinn vettvangur. Skáld
sem dreypt hefur á örlitlu
eldvatni er líklegt til
að sigra allan heim-
inn, eða að minnsta
kosti bæði Breta og
Hollendinga. Og rétt
eins og hann losaði
sjálfan sig undan oki
auðmanna er víst að
hann mun losa þjóð-
ina undan Icesave. Til
þess verður þingmað-
urinn að fá vinnufrið
og slatta af rauðvíni og
bjór. Sú krafa er mæt.
Skál, Icesave, skál.
Sandkorn
n Lýður Guðmundsson, stjórn-
arformaður Exista, fór mikinn
í ræðu sinni á aðalfundi fé-
lagsins. Hann hundskammaði
fjölmiðla fyrir að hafa fjallað
um mál af ósanngirni. Þá talaði
hann um
samfélag
hugleys-
ingja í
bloggheim-
um. „Sóða-
kjaftur
þeirra sem
þar skýla
sér undir
dulnefnum á samt sinn þátt í
því andrúmslofti sem daglega
er kynt undir,“ sagði Lýður. Ekki
stóð á viðbrögðum nafnleys-
ingja Eyjunnar: „Óþjóða-Lýður,
drullastu bara til að borga lán-
in þín eins og við hin,“ var at-
hugasemd eins sem þar þrífst.
n Sigmundur Ernir Rúnarsson
alþingismaður á ekki sjö dag-
ana sæla eftir að hann mætti
þvoglumæltur í þingið til að
fjalla um Icesave. Hann þrætti
í fyrstu fyrir drykkjuna en viðr-
kenndi síð-
ar að hafa
drukkið
rauðvín
með mat en
þrætti enn
fyrir áfeng-
isáhrif.
Sigmundur
hefur mikið
úthald því
daginn eftir golfmót MP Banka
sem gaf honum rauðvínið
var hann mættur á golfmót
tengt 365 uppi á Skaga. Þar fór
hann algjörlega á kostum þótt
höggin hafi ekki verið sérlega
markviss og kúlan leitað út og
suður. Að kveldi mætti hann
síðan á nefndarfund til að ræða
Icesave.
n Fjölmiðlastjarnan Sigríður
Arnardóttir hefur gert það gott
á Rás 2 í sumar með þætti sín-
um Sirrý á sunnudagsmorgn-
um. Hermt er að stóraukin
hlustun
hafi orðið á
þessum út-
sendingar-
tíma í sum-
ar þegar
þátturinn
hóf göngu
sína. Ekki
var ætlun-
in að þátturinn yrði nema yfir
sumartímann en nú hefur orð-
ið breyting á. Hlustendur Sirrý-
ar geta glaðst yfir því að ákveð-
ið hefur verið að Sirrý verði
með þátt sinn áfram í vetur.
n Það dynur ýmislegt á Georg
Lárussyni, forstjóra Landhelg-
isgæslunnar, þessa dagana.
Stofun hans var borin þeim
sökum ómaklega að hafa neit-
að að senda þyrlu norður í land
til að sækja lík. Og þyrlumál-
in eru viðkvæm því nú hellast
málsóknir yfir Georg og félaga
vegna ráðninga á þyrluflug-
mönnum. Telja umsækjend-
ur sem var hafnað að frænd-
hygli og ættartengsl hafi ráðið
við nýráðningar. Fyrsta málið
verður tekið fyrir í héraðsdómi
á mánudag.
LyngháLs 5, 110 Reykjavík
Útgáfufélag: Útgáfufélagið Birtíngur ehf.
Stjórnarformaður: hreinn Loftsson
framkvæmdaStjóri: elín Ragnarsdóttir
ritStjórar:
jón Trausti Reynisson, jontrausti@dv.is
og Reynir Traustason, rt@dv.is
fréttaStjórar:
Brynjólfur Þór guðmundsson, brynjolfur@dv.is
og Þórarinn Þórarinsson, toti@dv.is
auglýSingaStjóri:
elísabet austmann, elisabet@birtingur.is
dv á netinu: dv.is
aðalnÚmer: 512 7000, ritStjórn: 512 7010,
áSkriftarSími: 512 7080, auglýSingar: 512 70 50.
umbrot: dv. Prentvinnsla: Landsprent. dreifing: árvakur.
dv áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu
formi og í gagnabönkum án endurgjalds.
Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð.
Frá stjórninni til þín
Leiðari
Nú er í aðsigi annar vetur efnahags-kreppunnar. Við þau tímamót er vert að athuga hver skilaboð stjórnvalda eru til hins dæmigerða
kjósanda.
Frysting lána fer smám saman að þiðna og
stökkbreyttar afborganir flæða yfir fólk. Fall
krónunnar er eins og ól sem þrengist hægt
og hljótt utan um háls fólks og kæfir það. Evr-
an er nú á svipuðu gengi og í mestu hörm-
ungunum þegar bankahrunið varð. Meiri
líkur eru á að því gengi krónunnar lækki en
hækki í vetur. Verðlag mun halda áfram að
hækka, sem veldur því að húsnæðisskuld-
ir þínar hækka ennþá meira. Fasteignaverð
mun halda áfram að hrynja á sama tíma.
Stjórnin mun hækka neysluskatta meira,
sem eykur verðbólguna og hækkar húsnæð-
islánið þitt enn meira.
Skorið verður niður í allri þjónustu við
almenning. Fækkun lögreglumanna veldur
því að þeir sem verða fyrir glæpum geta síð-
ur fengið aðstoð. Glæpum fjölgar og örygg-
istilfinning fólks minnkar. Niðurskurður í
heilbrigðiskerfinu veldur því óumflýjanlega
að fleiri munu deyja og færri verða læknað-
ir sem veikjast. Stjórnvöld munu innheimta
hærri skatta af tekjum þínum, sem leggst
ofan á hækkandi afborganir, hækkandi verð-
lag og lækkandi laun.
Ef þú átt mikla peninga eru líkur á að
þér hafi þegar verið bjargað fyrir horn með
hundruð milljarða króna innspýtingu í pen-
ingamarkaðssjóðina og tryggingu á inni-
stæðum þínum í banka.
Ef þú ert hinn venjulegi Íslendingur og
lagðir sparnað þinn í fasteignakaup verður
sparnaðurinn étinn upp með verðtrygging-
unni og fasteignahruninu. Ef þú átt eitthvað
ennþá verður það tekið af þér, mánuð fyrir
mánuð. Þegar þú átt ekkert krefjast stjórn-
völd þess að þú borgir bankanum meira. Lát-
um vera þótt húsnæðislán hafi verið afskrif-
uð innan bankanna sjálfra, þú borgar samt.
Þínar skuldir verða ekki leiðréttar því þú
getur borgað. Og ef þú getur það ekki verð-
ur tryggt að þú getir það. Stjórnvöld munu
draga þig fyrir dóm og lengja lánin fram yfir
andlát þitt. Þú, eins og allir, ert vinsamlegast
beðinn um að borga skuldir eigenda bank-
anna í leiðinni.
Stjórnin fer fram á einn greiða frá þér til
viðbótar. Hún vill að þú sýnir samstöðu um
þessar aðgerðir gegn þér, af því að við erum
Íslendingar og Íslendingar eru stoltir og dug-
miklir.
Skilaboð stjórnarinnar til þín eru mjög
skýr. Flýðu ef þú getur. Farðu til Noregs, Sví-
þjóðar, Bandaríkjanna eða hvert sem þú
kemst, þar sem stjórnvöld munu ekki skipu-
lega ræna þig aleigunni og elta þig uppi ef
hún reynist ekki nóg.
jón TrausTi reynisson riTsTjóri skrifar. Þú, eins og allir, ert vinsamlegast beðinn um að borga skuldir eigenda bankanna í leiðinni.
bókStafLega
Sukkaðir sökudólgar
Núna eru þeir báðir komnir út úr
skápnum, Hólmsteinn Gissurar-
son og Kjartan Gunnarsson, þeir
einu sem eftir eru í söfnuði Davíðs
Oddssonar, fyrrverandi bankastarfs-
manns. Samfarir þeirra verða eflaust
góðar þar sem þeir troða marvað-
ann í forarvilpu frjálshyggjunnar. Nú
svamla þessi einstöku eðalmenni
um og lofa dýrð drottins í upphæð-
um. Hinn dásamlegi leiðtogi, Davíð
Oddsson, fyrrverandi bankastarfs-
maður, þarf að stíga niður til lýðs-
ins, hann einn er syndlaus og hann
einn mun bjarga okkur frá vitfirrtri
vinstrimennsku sem gerir ekki ann-
að en sverta þá yndislegu menn sem
stálu hér öllu steini léttara og skildu
þjóðina eftir í sárum.
Sérstaklega ber okkur, sem þjóð,
að þakka Hólmsteini fyrir það, að
benda okkur á eina skaðvaldinn í
íslenskri stjórnmálasögu síðustu
áratuga - Steingrímur J. sem valdi
flokksbróður sinn í samninga-
nefnd. Já, prófessor sem frægur er
fyrir dómgreindarskort og ritstuld,
hlýtur að vera með stjórnmála-
söguna alveg á hreinu. Ekki fékk
Hólmsteinn Gissurarson neina fyr-
irgreiðslu þegar hann var ráðinn í
embætti prófessors við Háskóla Ís-
lands. Og ekki var það á pólitískum
forsendum að þessi mógúll mann-
gæskunnar fékk að sitja í bankaráði
með yfirnáttúrulega gáfuðu fólki
einsog Halldóri Blöndal og öðrum
sjálfstæðismönnum.
Núna verður Steingrímur J.
að biðjast afsökunar, vegna þess
að hann er að reyna að bæta fyr-
ir skaða þeirra sem lögðu hér allt
í rúst. Því næst verður Sigmundur
Ernir að biðjast afsökunar, vegna
þess að hann var fullur í ræðustól
Alþingis. Sigmundur Ernir er sá eini
sem er fullur á landi voru í dag. En
fyrir nokkrum mánuðum var þjóðin
á svo brjáluðu fylliríi að guðaveig-
arnar láku útum eyru þeirra sem við
stjórnvölinn sátu. Hér fengu blind-
fullir menn að pakka eigum ríkis-
ins í gjafapappír og sukkið var slíkt
að Danir urðu skelþunnir og Bret-
ar fengu timburmenn af því einu að
fylgjast með byttuháttum siðblind-
ingjanna sem hérna réðu öllu.
Hættum að leita að söku-
dólgum. Hættum að minnast á þá
sem brutu hér allt og brömluðu.
Verum góð hvert við annað og
refsum þeim sem reyna að sverta
hina siðblindu sökudólga. Munum
að sælir eru siðblindir! Hjálpum
Björgólfi Guðmundssyni að borga
þær 15 milljónir sem hann skuld-
ar tannlækninum fyrir gullslegnar
geiflurnar!
Þótt tannlaus þjóð með veika von
varla muni ná sér
þá gleður Björgólf Guðmundsson
að geta bitið frá sér.
kristján hreinsson
skáld skrifar
„Sigmundur
Ernir er sá eini
sem er fullur á
landi voru í dag.“
SkáLdið Skrifar
26 föstudagur 28. ágúst 2009 umræða
„Ég ætla ekki að
vera hérna í
þessum hávaða.“
n Hannes Hólmsteinn Gissurarson fyrir utan
Alþingishúsið. Mótmælendur börðu búsáhöld
stíft í kringum Hannes, sem var með nýju bókina
sína meðferðis að mótmæla. - mbl.is.
„Hann er í verri
málum vegna
þess.“
n Gunnar Helgi Kristinsson,
stjórnmálafræðingur um neitun
Sigmundar Ernis Rúnarssonar þegar hann var
spurður um áfengisneyslu sína. - Fréttablaðið.
„Alltof algengt er, að edrú
þingmenn bulli út í eitt.
Verri en meinta ölvunin
eru frammíköllin.“
n Jónas Kristjánsson , um drykkju Sigmundar
Ernis á Alþingi. - Jonas.is.
„Aðeins sá sem stundar
víðavangshlaup getur
skilið vonbrigði mín að
fullu.“
n Stuart Hill flaug alla leið frá Noregi en mætti
of seint í Reykjavíkurmaraþonið. - Fréttablaðið.
„Hvernig heldur Þór Saari
við útliti sínu sem
nýfætt barn?”
n Konráð Jónsson bloggari
sendi Vísindavefnum spurningu,
sem umsjónamenn vefsins töldu
utan síns verksvið - kj.is.