Dagblaðið Vísir - DV - 28.08.2009, Side 64
n Formaður Framsóknarflokksins,
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson,
hefur í nógu að snúast á þingi. Svo
miklar eru annirnar að hann sér sér
ekki lengur fært að svara tölvupóst-
um frá fjölmiðlum. Ef sendur er póst-
ur á tölvupóstfang hans á Alþingi ber-
ast þau svör frá ónefndum aðila að
Sigmundur Davíð sé búinn að „drag-
ast mjög afturúr í tölvupóstsamskipt-
um sínum og bað mig að láta vita að
hann hefði líklega ekki svigrúm til að
svara erindum fyrr en Icesave-málið
væri frá á þinginu. Þegar því er lok-
ið mun hann leggja sig fram við að
sinna öðrum erindum.“ Ekki
fylgir póstinum hver
sér um að svara fyrir
Sigmund en líklegt er
að það sé í höndum
aðstoðarmanns hans,
Benedikts Sigurðs-
sonar, fyrrverandi
upplýsingafulltrúa
Kaupþings.
Dansa þeir ekki
Doggy Style?
Fréttaskot 512 70 70
DV borgar 2.500 krónur fyrir fréttaskot sem leiðir til fréttar. fyrir fréttaskot sem Verður
aðalfrétt á forsíðu greiðast 25.000 krónur. fyrir besta fréttaskot Vikunnar greiðast allt
að 50.000 krónur. alls eru greiDDar 100.000 krónur fyrir besta fréttaskot hVers mánaðar.
„Það er hundur að smala öndum
hérna hjá okkur. Þetta er í rauninni
bara smalahundur en hann smalar
öndum því við gátum ekki fengið roll-
ur hingað út af riðuveikismithættu.
Þannig að við tókum bara það næsta,“
segir Jóna Theodóra Viðarsdóttir, for-
maður Hundaræktarfélags Íslands,
sem hélt afmælishátíð sína með í
Reiðhöllinni í Víðidal í gærkvöldi í til-
efni 40 ára afmælis félagsins. Það var
mikið um dýrðir á hátíðinni þar sem
boðið var upp á fyrirlestra, fróðleik og
ýmiskonar hundakúnstir. Meðal þess
sem boðið var upp á var hundadans,
tískusýning smáhunda og andasmöl-
un. Jóna segir hundadans vera þekkt
fyrirbæri erlendis þar sem keppt er í
slíkum kúnstum. „Þar dansa eigend-
ur með hundana. Það er sett tónlist
á og þeir stíga sporin. Þetta er í raun
hlýðniþjálfun þar sem hundum er
kennt að dansa „freestyle“ við músík,“
sagði Jóna í samtali við DV í gær þegar
hátíðin stóð sem hæst. Þá voru ýmis-
konar vinnuhundar sem sýndu hvers
þeir eru megnugir, meðal annars í að
rekja spor. mikael@dv.is
Hefur ekki tíma
ÍS
LE
N
SK
A
/S
IA
.I
S
/N
A
T
4
45
83
1
2/
08
Hundaræktarfélag Íslands hélt upp á fertugsafmæli sitt með pompi og prakt:
Hundar dönsuðu „freestyle“
n Mikið var um dýrðir þegar leikkon-
an íðilfagra Maríanna Clara Lúth-
ersdóttir var gæsuð á dögunum.
Hún mun ganga í það heilaga með
sínum heittelskaða, tónlistarmann-
inum Ólafi Birni Ólafssyni, innan
skamms og því ákváðu vinkonur
hennar að koma henni hressilega
á óvart með eftirminnilegri gæsun.
Það þarf varla að spyrja að því að
mikið stuð var í gæsuninni þar sem
Maríanna á annálaðar stuðpinna-
vinkonur eins og leikkonuna Unni
Ösp Stefánsdóttur. Maríanna og
Ólafur hafa verið saman um nokkurt
skeið og eru svo sannnarlega afar
listræn. Hann hefur unnið með lista-
mönnum á borð við Emilíönu Torr-
ini, múm og BennaHemmHemm.
Hún útskrifaðist frá
leiklistardeild LHÍ
vorið 2003 og var
meðal annars
tilnefnd til
Grímuverð-
launanna árið
2006 fyrir Full-
komið brúð-
kaup og 2007
fyrir Killer Joe.
maríanna
gæsuð
n Aroni Pálma Ágústssyni var ekki
skemmt í vikunni þegar hann frétti
af prófinu Hvað stendur við rúmið
þitt á næturnar? á samskiptasíð-
unni Facebook. Ein möguleg niður-
staða úr prófinu var nefnilega hann
sjálfur og var lýsingin sem fylgdi
með afar ósmekkleg. Þar var Aron
sagður ganga um herbergi þess sem
prófið tók og gera alls kyns klúra
hluti á meðan viðkomandi svæfi.
Aroni fannst þetta ekki par fyndið,
sérstaklega ekki þar sem hann fékk
að frétta þetta frá átta ára frænda
sínum. Hann fór strax í það að finna
þann sem bjó til prófið
og tóku Facebook-vinir
hans þátt í leitinni sem
að lokum bar árangur.
Nú hefur niðurstað-
an sem sýnir Aron
verið fjarlægð úr
prófinu, hon-
um til mik-
illar gleði.
Ofsóttur á
facebOOk
Hundalíf Úr sýningu
hundaræktarfélagsins.
Mynd RóbeRt Reynisson