Dagblaðið Vísir - DV - 28.08.2009, Blaðsíða 39
Andlegur leiðtogi
og lifandi goðsögn
helgarblað 28. ágúst 2009 föstudagur 39
Helgarblað DV leitaði til áhugafólks um íþróttir í leitinni að besta íþrótta
manni landsins. Margir komust
á blað en úrslitin þykja nokkuð afgerandi. Handboltahetjan Ólafur Stefán
sson er langbesti íþróttamaður
Íslands að mati álitsgjafa blaðsins en ekki langt undan er hin magnaða M
argrét Lára Viðarsdóttir.
Helena Sverrisdóttir körfuboltakona
„Hefur verið fremsta íslenska körfuknattleikskon-
an í nokkur ár þrátt fyrir ungan aldur og hefur
gert það gott í háskólaboltanum í Bandaríkjun-
um. Verður væntanlega kjölfestan í landsliðinu
næstu 5-10 árin.“
Ragnheiður Ragnarsdóttir sundkona
„Alltaf sama harkan í henni.“
Jón Arnar Magnússon tugþrautarkappi
„Alltaf snillingur og verður það ávallt.“
Grétar Rafn Steinsson knattspyrnumaður
„Ótrúlegur keppnismaður, vill gera sem mest
fyrir íslenska þjóð í landsleikjum. Fyrirmynd.
Nýtir fjármuni og þekkingu til þess að stofna til
knattspyrnuskóla á Siglufirði.“
Gunnar Nelson bardagaíþróttamaður
„Búinn að feta sig hægt upp heimsmetorðastig-
ann. Verður bráðum á hvers manns vörum hér
á Fróni.“
Hermann Hreiðarsson knattspyrnumaður
„Seigla, húmor og töffaraskapur. Fær mann til að
hrífast með og elska fótbolta.“
Logi Geirsson handboltakappi
„Ljóshærði geimgengillinn sem er svo brosmild-
ur og hress að maður gleymir því oft hversu
ótrúlega stór og sterkur hann er. Glaði jaxlinn.“
Þóra Helgadóttir knattspyrnukona
„Landsliðsmarkvörður og hetja.“
Katrín Jónsdóttir knattspyrnukona
„Mikill leiðtogi og frábær leikmaður, algjör
lykilmaður með Val og íslenska landsliðinu sem
er búið að ná frábærum árangri.“
Sveinbjörn Sveinbjörnsson þrek-, lífsstíls-
og Crossfit-meistari
„Afburða íþróttamaður á sínu sviði. Agaður og
einbeittur. Hefur einokað þrek- og þolkeppnir
síðustu tvö árin.“
Magnús Bess Júlíusson vaxtarræktarmaður
„Hefur staðið sig með þvílíkum afburðum en ekki
fengið verðskuldaða athygli. Klárlega á toppnum
á sínum ferli núna.“
Edda Garðarsdóttir knattspyrnukona
„Búin að vera lengi að, gamall jaxl - stundum
vanmetin - sem getur haft rosalega góð áhrif á
liðið, á frábærar sendingar, auka- og hornspyrn-
ur.“
Jón Arnór Stefánsson körfuboltamaður
„Einfaldlega vegna þess að hann er bestur ...“
Evert Víglundsson einkaþjálfari og
Crossfit-þjálfari
„Einstaklega fjölhæfur, viðhorf hans einkennist af
sönnum íþróttaanda.“
4. – 5. sæti
HelgA MArgrét Þorsteinsdóttir
frjálsíþróttakona
„Ótrúlega efnileg, hefði getað orðið Evrópu-
meistari um daginn.“
„Setti Íslandsmet í sjöþraut 18 ára og var
aðeins 22 stigum frá því að komast á HM.“
„Sjöþrautarkona með meiru, efst á heimslista í
sjöþraut yngri en 19 ára, aðeins 17 ára.“
„Búin að slá hvert metið á fætur öðru. Stendur
sig með stakri prýði, gengur vel í skóla og
keppir í körfubolta þess á milli. Hún fær
einfaldlega ekki nóg!“
„Mesta efni sem fram hefur komið hér á landi
og er án efa einn fremsti íþróttamaður Íslands í
dag. Talin best í heimi í sínum aldursflokki.
Framtíðarstjarna Íslands ef allt gengur eftir.“
4. -5. sæti
KvennAlAndslið ÍslAnds
í knattspyrnu.
„Íþróttahetjur Íslands í ár.“
„Þetta er sigur liðsheildarinnar, frábær
árangur. Gaman að sjá aðra hópíþrótt en
Strákana okkar ná svona langt.“
„Allt kvennalandsliðið eins og það leggur
sig. Ekki annað hægt.“
„Komust inn á Evrópumeistaramótið sem
er frábært. Þær eru að gera góða hluti.“
„Liðið vinnur eins og einn maður. Ótrú-
lega flott hugarfar. Verða bara sterkari á
næstu árum.“
6. -7. sæti
guðjón vAlur sigurðsson
handboltamaður
„Á hátindi ferils síns og í frábæru liði í
Þýskalandi. Okkar besti handboltamaður af
mörgum frambærilegum.“
„Efnilegasti, flottasti og einn af bestu hand-
boltamönnum heims. Ánægðust með hvað
hann er jarðbundinn og góð fyrirmynd.“
„Fullkomið líkan af góðum afreksmanni.
Fyrirmyndaríþróttamaður innan vallar sem
utan. Örugglega góður í öllum íþróttum.“
„Einn allra mesti íþróttamaður þjóðarinnar
og einn besti handboltamaður heims í dag.
Algjör fyrirmynd innan vallar sem utan.“
6.-7. sæti
ÁsdÍs HjÁlMsdóttir
spjótkastari
„Spjótkastari sem skarar fram úr. Setti glæsilegt
Íslandsmet á árinu, hefur hausinn, viljann, getu og
hæfileika til að ná enn lengra.“
„Skákar ekki Óla en er kandídat fyrir næstu ár. Nefni
hana til að hvetja þessa ungu konu áfram í að verða
best í heimi. Ísland þarf á nýrri hetju að halda og
Ásdís er fullkomin í hlutverkið.“
„Fulltrúi nýrrar kynslóðar íþróttamanna á Íslandi. Eins
og hún segir sjálf: Winners never quit, quitters never
win!“
„Ung og efnileg íþróttakona sem á framtíðina fyrir sér,
hefur staðið sig einstaklega vel undanfarið ár.“
8.-9. sæti
HAndboltAstrÁKArnir oKKAr
„Snillingar. Standa sig eins og hetjur og eru
landinu til sóma, ekki veitir af að vera stoltur af
einhverju í sambandi við Ísland þessa dagana.“
„Frábærir drengir. Órtúlegt afrek hjá þeim og
þjálfurum liðsins.“
8.-9. sæti
Annie Mist Þórisdóttir
íþróttakona
„Einungis tvítug frjálsíþróttakona,
hefur unnið bæði lífsstílsmeistar-
ann og Crossfit-leikana í sumar.
Var hársbreidd frá verðlaunasæti
á heimsleikunum af yfir 70
keppendum.“
„Ein efnilegasta íþróttakona
á Íslandi í dag sem stóð sig
einstaklega vel á Crossfit-leikun-
um í Bandaríkjunum sem voru
fyrr á árinu.“
ÞAu voru lÍKA nefnd: