Dagblaðið Vísir - DV - 28.08.2009, Blaðsíða 37
helgarblað 28. ágúst 2009 föstudagur 37
ÞRIGGJA ÁRA GÍSLING
námi hjá sendiskrifstofu framkvæmdastjórn-
ar Evrópusambandsins gagnvart Íslandi og
Noregi í Osló, auk þess sem hann starfað hjá
Bandalagi háskólamanna á námstímanum.
Bjarki hefur alltaf verið virkur í félagslífi
og á námsárunum sat hann meðal annars í
stjórn Politicu, félags stjórnmálafræðinema
við HÍ. Um tíma sat hann einnig í stjórn Fé-
lags ábyrgra feðra. Sem stjórnarmaður þar
ritaði hann greinar um börn og fjölskyldulíf,
og fékk birtar í fjölmiðlum.
Þegar Bjarki og Hrafnhildur bjuggu í Sví-
þjóð fékk hann starf sem fréttaritari Bylgj-
unnar og Stöðvar 2 þar í landi en entist stutt
í því starfi.
Bjarki hefur verið í vinfengi við fjölda
stjórnmálamanna og fjölmiðlafólks, og þegar
þau bjuggu úti voru þau fastagestir í veislum
á vegum íslensku ráðuneytanna.
Óttaðist barsmíðar
Þungur dómurinn yfir Bjarka vakti mikla at-
hygli en engin dæmi eru um átta ára dóm fyr-
ir brot af þessu tagi hér landi. Þau brot sem
Bjarki var dæmdur fyrir vöktu sömuleið-
is óhug en í dóm héraðsdóms segir: „Brot
ákærða eru slík að þau eiga sér enga hlið-
stæðu í réttarframkvæmd hér á landi. Braut
ákærði markvisst niður mótstöðuafl sambýl-
iskonu sinnar og gerði hana sér undirgefna.
Af ótta við barsmíðarnar tók hún þátt í kyn-
lífsathöfnum með fjölmörgum mönnum sem
hún ekki þekkti.“
Eftir að dómur féll gagnrýndu margir að
hinir mennirnir ellefu hefðu ekki sömuleiðis
verið sóttir til saka. Hrafnhildi finnst sú um-
ræða hafa verið á villigötum.
Bjarki hafði þá lýst yfir áhuga á því að fá
aðra karlmenn inn í kynlíf þeirra við slæm-
ar undirtektir hennar. Hann fann þó menn,
bæði á Netinu og á skemmtistöðum, sem
voru tilbúnir að taka þátt. Bjarki hitti menn-
ina fyrir utan heimili þeirra tveggja, hvar sem
það var hverju sinni, og fyldi þeim út á eftir.
Hrafnhildur segist einnig hafa litið á þá
sem fórnarlömb. Henni finnst ekki réttlátt
að þeir séu gerðir að sökudólgum þar sem
þeim mönnum sem sáu að henni leið illa í
aðstæðunum og vildu stoppa var vísað burt
af Bjarka. Hún segir að í lokin hafi hún verið
orðin tilfinningalega frosin og því ekki furða
að margir mennirnir hafi ekki gert sér grein
fyrir líðan hennar.
Í dómnum eru nefnt dæmi þar sem fram
kemur að eftir að Hrafnhildur neitaði því
að tveir menn sem þau hittu á skemmtistað
kæmu með þeim heim þá um kvöldið hafi
Bjarki barið hana.
Í fylgd til læknis
Bjarki og Hrafnhildur kynntust hér á landi í
árslok 2004. Hann var þá í námi í Noregi og
flutti hún til hans snemma árs 2005. Hrafn-
hildur er menntaður hjúkrunarfræðingur og
fékk starf á virtu sjúkrahúsi í Noregi. Sambúð
þeirra hafði aðeins varað í um tvo mánuði
þegar hún fór að efast um sambandið vegna
skapsmuna hans og stjórnsemi. Hrafnhildur
flutti þá út frá honum og leigði sér herbergi,
enda vildi hún fyrir alla muni halda í starfið
á spítalanum.
Bjarki sannfærði hana fjótt um að flytja
aftur til hans. Eftir það fór hún að upplifa
sambúðina sem gíslingu. Fram til ársloka
2007 átti Hrafnhildur eftir að fara frá honum
tvisvar til viðbótar en Bjarki náði alltaf að telja
hana á að koma aftur.
Hann kom einstaklega vel fyrir og hreif
alla upp úr skónum í kring um hana. Fjöl-
skyldu Hrafnhildar var þó farið að gruna að
eitthvað væri að vegna þess hversu einangr-
uð hún var orðin. Hún fékk ekki að hringja,
senda tölvupóst eða fara í heimsóknir án eft-
irlits. Bjarki fylgdi Hrafnhildi þegar hún fór til
læknis og átti hún í raun ekkert einkalíf. Einn-
ig fylgdi hann henni til og frá vinnu.
Hrafnhildi finnst hún í raun hafa verið í
gíslingu í þau þrjú ár sem þau bjuggu sam-
an og getur illa útskýrt af hverju hún yfirgaf
Bjarka aldrei fyrir fullt og allt. Hræðslan hafi
þar spilað stórt hlutverk. Hún vissi ekki hvað
hann myndi taka til bragðs ef hún gerði það,
og óttaðist hvað hann gerði við myndirnar
og myndböndin. Hrafnhildur skoðaði aldrei
myndirnar en vissi vel af tilvist þeirra.
Þegar Hrafnhildur kom í Kvennaathvarf-
ið opnuðust augu hennar fyrir því að hún
var ekki ein í heiminum. Eftir samtöl henn-
ar við aðrar konur sem komu úr ofbeldis-
samböndum varð henni ljóst að hegðun of-
beldismanna gagnvart maka sínum fylgir oft
ákveðnu mynstri sem felur í sér markvisst
niðurbrot og stöðugt eftirlit.
Líf án ofbeldismannsins
Hún býr nú í íbúð sem er skráð á nafn
hennar og Bjarka. Hún hefur ekki heyrt frá
honum eftir að dómurinn féll. Hins vegar
fékk hún þær fregir frá lögmanninum sín-
um að sama dag og hún flutti lögheimil-
ið sitt þangað þar sem hún býr núna hafi
Bjarki einnig flutt sitt lögheimili þangað.
Hún veit hins vegar ekki hvar hann er bú-
settur.
Hrafnhildur er enn að vinna í að byggja
upp sjálfstraustið og gat lengi vel ekki farið
ein út úr húsi. Góður vinur hennar býr hjá
henni og er hennar stoð og stytta. Hann
fylgir henni flest sem hún fer, þar sem það
veitir henni meira öryggi, en hún er þó far-
in að fara ein út í búð í hverfinu.
Í sambandinu við Bjarka fór hún að nota
áfengi sem deyfilyf og hefur gert síðan en er
edrú þegar blaðamaður nær tali af henni.
Hún er bjartsýn á framtíðina þó hún viti
ekki enn hversu langan tíma hún þarf til að
vinna sig út úr þeirri erfiðu reynslu sem hún
á að baki. Hún vill koma þeim skilaboðum
til kvenna í ofbeldissamböndum að hennar
reynsla sýni að það er hægt að losna. Hún veit
nú að það er hægt að upplifa lífið á ný og fá
sjálfstraust, og að það er hægt að lifa án of-
beldismannsins.
Bíður Hæstaréttar
Hilmar Ingimundarson er lögmaður Bjarka
og þegar hann ákvað að áfrýja málinu sagð-
ist hann reikna með því að aðalkrafan verði
að upphaflegri ákæru verði vísað fá vegna
vanhæfis ríkissaksóknara og setts saksóknara
sem gaf út ákæruna í málinu.
Röksemdir Hilmars byggja á því að Sig-
ríður Hjaltested, lögfræðingur hjá kynferðis-
brotadeild lögreglunnar, er eiginkona Valtýs
Sigurðssonar ríkissaksóknara. Auk þess er
Hulda Elsa Björgvinsdóttir, settur saksóknari
í málinu, dóttir Björgvins Björgvinssonar, yf-
irmanns kynferðisbrotadeildar lögreglunnar.
Ekki er ljóst hvenær Hæstiréttur tekur
málið fyrir.
Blaðamaður DV náði ekki tali af Bjarka við
vinnslu greinarinnar.
Hrafnhildur vildi ekki láta hafa neitt eftir
sér í beinni ræðu af ótta við að skaða málsstað
sinn fyrir Hæstarétti.
erla@dv.is
Sandkorn
Agnes Bragadóttir, pistla-
höfundur Moggans, liggur lágt
í umræðunni eftir drottning-
arviðtalið
við Davíð.
Hún gaf
yfirlýsingu
um að hafa
haft rangt
eftir Davíð
í óbeinni
ræðu
varðandi
OECD-nefnd sem teldi ekki að
Íslendingum bæri að greiða
Icesave vegna þess að alhrun
hefði orðið. Ef rangt var haft
eftir Davíð er ljóst að Agnes hef-
ur beinlínis logið upp á Davíð
beinum ummælum. Í viðtalinu
segir hann innan gæsalappa:
„Þessi nefnd á vegum OECD,
sem Jean-Claude Trichet, sem
nú er orðinn seðlabankastjóri
Seðlabanka Evrópu stýrði, seg-
ir í skýrslu sinni að innstæðu-
tryggingakerfið gildi ekki ef um
algjört bankahrun er að ræða í
viðkomandi landi ...“
Nýi bæjarstjórinn í Kópavogi,
Gunnsteinn Sigurðsson, er
með rólegri mönnum. Hann tók
við þegar Gunnar I. Birgisson
hrökklaðist úr starfi í framhaldi
þess að DV upplýsti um kær-
leiksrík viðskipti bæjarins við
dóttur Gunnars. Vefritið Pressan
segir frá því að Gunnsteinn hafi
tekið við starfinu um mánaða-
mótin. En hann er þó fjarri góðu
gamni því fyrsta embættisverk
hans var að fara í sumarfrí.
Eitt svakalegasta varnarrit allra
tíma kom út í vikunni. Þar rís
Vogar, blað
sjálfstæð-
ismanna í
Kópavogi,
upp á átta
síðum til
varnar fölln-
um leið-
toga sínum.
Fjallað er um
Gunnar Birgisson á öllum síðum
blaðsins undir formerkjum frétta-
skýringa og frétta. Niðurstaða
ritstjórans Óttars Felix Hauksson-
ar er í öllum tilvikum sú sama.
Gunnar er alsaklaust fórnarlamb
ofsókna blaðamanna, pólitíkusa
og endurskoðenda.
Einn helsti skotspónn Voga og
Gunnars Birgissonar er Guðríð-
ur Arnardóttir, oddviti Samfylk-
ingar. Hún er sökuð um að bera
fallna bæjarstjórann saklausan
sökum og hlífa sínum mönnum.
Þar er vísað til Flosa Eiríkssonar
sem er samsekur Gunnari varð-
andi Lífeyrissjóð starfsmanna
Kópavogsbæjar. Leggur ritstjórn
Voga til að Guðríður segi sínum
mönnum að hypja sig í stað
þess að búa til hneykslismál um
gamla, góða bæjarstjórann.
4 föstudagur 10. júlí 2009
fréttir
NíðiNguriNN uNdir
glaNsmyNdiNNi
„Ég þekki ekki bakgrunn þessar-
ar konu en það getur verið erfitt
fyrir hana að eiga venjuleg dagleg
samskipti við fólk eftir að hafa orð-
ið fyrir svona grófu ofbeldi,“ seg-
ir Kolbrún Baldursdóttir, sálfræð-
ingur og sérfræðingur í klínískri
sálfræði, beðin um að leggja mat
á þau áhrif sem hrottalegt ofbeldi
og ítrekaðar nauðganir geta haft á
fólk til lengri tíma.
Fallegar myndir en ljótur
raunveruleiki
Karlmaður, fæddur árið 1972, var
í Héraðsdómi Reykjavíkur á mið-
vikudaginn dæmdur í 8 ára óskil-
orðsbundið fangelsi fyrir fjölmarg-
ar árásir og og fimmtán alvarleg
kynferðisbrot gagnvart fyrrver-
andi sambýliskonu sinni. Maður-
inn er háskólamenntaður og hef-
ur tekið þátt í opinberri umræðu
þar sem hann hefur meðal ann-
ars látið sig varða hagsmuni barna
og fjölskyldna. Hann neyddi kon-
una til að hafa samræði og önn-
ur kynferðismök við ellefu aðra
karlmenn. Kynlífsathafnirnar átti
hann svo til að ljósmynda eða taka
upp á myndbönd. Konan vill ekki
að maðurinn verði nafngreindur
í fjölmiðlum og virðir DV þá ósk
hennar.
Maðurinn, sem bjó með kon-
unni í Danmörku, Svíþjóð og Nor-
egi á árunum 2005 til 2007, var
einnig dæmdur fyrir að hafa geng-
ið í skrokk á föður sínum og hót-
að honum lífláti. Fyrir vikið fékk
hann átta ára fangelsisdóm og
skal greiða konunni 3,8 milljónir
í miskabætur. Parið hélt úti blogg-
síðu þar sem það sagði frá ferðum
sínum og dvöl á Norðurlöndunum.
Þar birtu þau einnig fjölskyldu-
myndir sem sýndu þau í góðra vina
hópi, úti að grilla og skemmta sér.
Á myndunum virðast þau ljóma af
hamingju og af þeim er ekki ann-
að að sjá en líf þeirra hafi verið í
miklum blóma. Veruleikinn var þó
heldur nöturlegur og undir glans-
mynd hins að því er virtist ástríka
kærasta leyndist níðingur. Blogg-
síðunni var lokað í nótt.
Ævilöng vinna
Kolbrún segir að sú vinna sem
konan á fyrir höndum sé ævilöng.
Ómögulegt sé að segja til um það
hversu miklum bata hún geti náð.
„Maður veit ekki hvaða styrkleikar
eru í bakgrunni konunnar, tengsla-
neti og þess háttar. Ég hef heyrt í
fréttum að þetta mál eigi sér engin
fordæmi, þetta hafi verið eins svart
og hægt var að hugsa sér. Bara það
eitt að fara út á vinnumarkaðinn
og taka þátt í samfélaginu getur
reynst mönnum erfitt eftir svona
lagað,“ segir hún.
Kolbrún sér fyrir sér að röð við-
tala og mikla meðferð þurfi til að
ná bata eftir að hafa orðið fyrir
svona meðferð. „Fyrsta skrefið er
samt alltaf að stöðva ofbeldið. Það
hefur verið gert en ég get ímyndað
mér að mikil hræðsla og kvíði fylgi
því að Hæstiréttur geti hugsanlega
mildað dóminn þannig að gerand-
inn sleppi fyrr út.“
Biðin erfið
Í fjölmiðlum hefur komið fram að
niðurstöðu Héraðsdóms Reykja-
víkur verði áfrýjað til Hæstaréttar.
Kolbrún segir að biðin eftir endan-
legri niðurstöðu í málinu geti tek-
ið sinn toll. „Ég get ímyndað mér
að það sé erfitt að byrja að slaka
á og fá bata fyrr en málið er búið
í kerfinu. Það skiptir miklu máli
að hún hafi samfélagið með sér
í þessu. Það er mikilvægt að fólk
styðji hana,“ útskýrir Kolbrún og
bætir því við að þeir sem vinni við
að aðstoða fólk sem verður fyrir
miklu ofbeldi, finni stundum fyr-
ir tortryggni eða fordómum í garð
fórnarlamba ofbeldisins. „Fólki
finnst stundum að þetta sé fórn-
arlambinu að kenna að hluta til,“
segir Kolbrún sem leggur til að fólk
láti dómstóla um að dæma í svona
málum.
Ánægð með réttarkerfið
Gunnhildur Pétursdóttir, rétt-
argæslumaður konunnar, segir
spurð um líðan konunnar, að hún
sé ekkert í mjög góðu jafnvægi
þessa dagana. „Hún er mjög fegin
og ánægð að það sé komin niður-
staða í málið enda hefur hún beðið
eftir því lengi,“ segir hún og bætir
því við að umfjöllun um málið og
hennar hagi taki auðvitað á. „Þetta
hefur verið mjög erfitt. Það hafa
verið margar skýrslutökur og mikil
vinna. Hún er engu að síður mjög
ánægð með hvernig tekið var á
málinu á öllum stigum réttarkerf-
isins,“ segir Gunnhildur.
Kolbrún Baldursdóttir
Dómstólar sjái um að dæma
Kolbrún Baldursdóttir sálfræðingur
segir mikilvægt að konan finni
stuðning í samfélaginu.
„Hún er engu að síð-
ur mjög ánægð með
hvernig tekið var á
málinu á öllum stigum
réttarkerfisins.“
BALDUR GUÐMUNDSSON
blaðamaður skrifar baldur@dv.is
Hrottalegt ofbeldi Sambýlismaður konunna
r
neyddi hana til samræðis við 11 aðra karlm
enn.
SviðSett mynd dv
10. júlí 2009
Stjórnmálafræðingur Bjarki Már Magnússon er með háskólapróf í stjórnmálafræði. Hann sat í stjórn félags stjórnmálafræðinema
við Háskóla Íslands og var stjórnarmaður í Félagi ábyrgra feðra.
„Af ótta við barsmíðarnar
tók hún þátt í kynlífsathöfn-
um með fjölmörgum mönn-
um sem hún ekki þekkti.“
EINkENNI fóRNARLAmbS
hEImILISofbELdIS
* Vanlíðan
* Tíðar heimsóknir til lækna vegna smákvilla
* Höfuðverkur
* Svefntruflanir
* Þreyta
* Meltingaróþægindi
* Átröskun
* Þunglyndi
* Kvíði
* Ótti
* Spenna
* Kynlífsvandamál
* Áráttuþráhyggjuhegðun
* Áfengis- og lyfjamisnotkun
* Sjálfsvígstilraunir
* Einangrun