Dagblaðið Vísir - DV - 28.08.2009, Síða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 28.08.2009, Síða 10
10 föstudagur 28. ágúst 2009 fréttir Borghildur Guðmundsdóttir á tvo syni, Brian sem er níu ára og Andy fjögurra ára, með bandarískum manni, Richard Colby Busching. Þau bjuggu saman í Bandaríkjunum og voru skilin að borði og sæng þegar hún í janúar 2008 fór með drengina til Íslands. Eftir átján mánaða lögfræði- baráttu komst Hæstiréttur að þeirri niðurstöðu að hún skyldi fara aftur til Bandaríkjanna með drengina. Borghildur, eða Bogga eins og hún er kölluð, og drengirnir kvöddu Ís- land 15. ágúst. Í síðustu viku mætti hún fyrir rétt í Kentucky-ríki í Banda- ríkjunum þar sem kröfu Colbys um forræði til bráðabirgða yfir drengjun- um var hafnað. Borghildur hefur for- sjá drengjanna þar til réttað verður í hinu eiginlega forsjármáli 15. októ- ber. Varnarlaus í Bandaríkjunum Bogga segist vera með mikla heimþrá og finnur mikið fyrir varnarleysi vest- an hafs. „Það voru mjög blendnar tilfinn- ingar að koma aftur til Kentucky. Mér þótti vænt um allar móttökurn- ar frá vinum mínum sem voru yndis- legar. En heimþráin situr í mér. Þetta er allt svo öðruvísi enda líka allt aðr- ar aðstæður. Hérna finn ég svo mikið hvað ég er varnarlaus. Ég er bara út- lendingur númer ??? sem hefur eng- an rétt. Svo held ég bara í vonina um að verða ekki lasin og þurfa á læknis- hjálp að halda því ég gæti ekki borg- að fyrir það. Ég er sjúkratryggingalaus hérna en sem betur fer eru strákarn- ir tryggðir. Það er fyrir mestu,“ segir Bogga. Útlitið svart Þegar mál hennar stóð sem hæst hér á Íslandi fyrir stuttu var sett af stað söfn- un og stofnuð Facebook-síða henni til stuðnings. Í söfnuninni safnaðist fé sem Bogga lifir á en núna eru pening- arnir af skornum skammti enda lög- fræðikostnaður mikill í Bandaríkjun- um. Bogga veit hreinlega ekki hvernig hún mun lifa af fram í október. „Ég held í vonina að mér verði veitt aðstoð heima. Ég get bara vonað að fólk geti séð af nokkrum krónum og lagt okkur lið. Það hljómar kannski skringilega en ég bara get ekki gefist upp þó útlitið sé svart fjárhagslega. Vinir mínir heima eru að finna leiðir til að safna peningum fyrir okkur og sú tilhugsun gefur mér styrk. Frá því við komum hingað til Ken- tucky hefur þetta kostað um eina og hálfa milljón og á eftir að kosta alla- vega annað eins ef ekki meira. Það safnaðist fyrir startkostnaðinum til dagsins í dag en svo eru málin aftur farin að vandast. Ég hef reynt að taka lán í þeim bönkum sem ég er í við- skiptum við en þar eru læstar dyr eins og hjá flestum eflaust á Íslandi. Fyrstu spurningarnar hjá bönkunum eru oftast hvernig og hvenær ætlarðu að borga og hvenær kemur þú heim?“ Getur sjálfum sér um kennt Þó að réttað verði í máli Boggu í októ- ber eru líkur á að deilan geti dreg- ist mun lengur, jafnvel í nokkur ár. Bogga er með landvistarleyfi sem gildir í tvö ár en má bara vera í land- inu í sex mánuði í einu. Eftir sex mán- uði þarf hún að koma aftur til Íslands og vera hér í sex mánuði áður en hún fær að fara aftur út. Á meðan forræð- ismálið er í gangi er henni óheimilt að fara með drengina sína úr Kentucky- ríki og því mættu drengirnir ekki fara með henni til Íslands. Bogga og Colby deila forræðinu en Bogga hefur ekkert samband við hann nema í gegnum lögfræðinga. Colby hefur hitt strákana sína einu sinni í tvo og hálfan sólarhring síðan þeir komu til Bandaríkjanna og hefur ekki áætlað að hitta þá aftur fyrr en í október. Bogga vill endilega að strák- arnir hitti föður sinn. „Ég stend ekki í vegi fyrir því að þeir hittist, mæli frekar með því til að byggja upp allavega einhver sam- bönd þeirra á milli. Pabbinn þarf bara að sækjast eftir því. Ég hef alltaf haldið því opnu að strákarnir væru í sambandi við pabba sinn. Þegar ég var á Íslandi bauð ég honum að koma og hitta strákana og hann hefði getað umgengist þá þegar hann gat. Hann gat verið í internet- og símasambandi en nýtti sér það aldrei. Hann hringdi í þá nokkrum sinnum rétt eftir að við komum en síðan ekki meir. Ef hann hefði haldið sambandi við yngri strákinn væri hann ekki ókunnugur pabba sínum. Mér finnst hann geta sjálfum sér um kennt.“ „Mamma þú fannst mig“ Bogga segir strákana tvo hafa verið stressaða þegar þeir hittu pabba sinn í fyrsta sinn eftir þennan langa að- skilnað. „Ég sjálf hafði miklar áhyggjur af Andy. Hann var allt í einu á hóteli með bróður sínum og nánast ókunnugum manni sem hét „daddy“ og þurfti að fara í nýjan skóla þar sem enginn tal- aði íslensku. Þegar ég náði í þá hljóp hann í fangið á mér, fullur af óöryggi og sagði „Mamma, þú fannst mig“. Ef það er ekki til að rífa úr manni hjartað þá veit ég ekki hvað. Hann er auðvit- að svo lítill ennþá. Brian greyið reyndi að vera sterkur bæði fyrir mig og litla bróður en það er mikil byrði fyrir níu ára dreng. Ég hef reynt eftir bestu geta að halda þeim frá alvöru málsins. Ég vil ekki fara nánar út í það sem þeir hafa sagt mér um þessa heimsókn fyrr en eftir réttinn í október.“ Bogga segir íslenska réttarkerfið hafa komið sonum sínum í hrikalega stöðu með því að senda þá úr landi. „Verndarréttur okkar á Íslandi var hundsaður. Í Haag-samningum seg- ir að ef fjölskylda er sett í óbærilega stöðu beri íslenskum stjórnvöldum ekki að senda hana úr landi. Ég hefði ekki getað trúað því að nokkur dómur myndi taka svona mál, rétt lesa yfir og stimpla. Í mínum huga er það ljóst að verið er að stefna börnunum í hættu með því að senda þau með auralausri mömmu til Bandaríkjanna. Núna getum við ekki fjárhagslega staðið undir þessu nema með hjálp Íslend- inga og safnana. Það er erfitt að flytja eftir svona langan tíma og það hef- ur svipt mig því öryggi að geta barist fyrir mínu. Á Íslandi hefði ég getað barist með jafn mörgum vopnum og pabbinn. Hér er hann með fleiri vopn en ég og það er ósanngjarnt.“ Í hæfum höndum Bogga er hæstánægð með lögfræðing sinn í Bandaríkjunum og segir hann hafa gert mun meira en lögfræðing- ur hennar á Íslandi, Sveinn Andri Sveinsson. „Lögfræðingurinn minn hérna úti sýnir málinu mínu mikinn áhuga og hefur óendanlega þolinmæði til að útskýra fyrir mér allt sem ég spyr um. Hann er mjög skipulagður og ákveð- inn. Það veitir mér mikið öryggi. Mér finnst ég hafa lent í hæfum og góðum höndum. Lögfræðingurinn minn á Íslandi stóð sig ekki í stykkinu. Ég er ekki að segja að hann hafi ekki gert neitt en mistökin eru að hann fór ekki nógu ítarlega í alla hluti og aflaði sér ekki nægra upplýsinga til að vinna mál- ið í heild sinni. Hann hefði vel getað unnið þetta mál. Ég hef ekki hitt eina einustu manneskju sem er ósam- mála því.“ Getur ekki gefist upp Systir Boggu, Sigrún Guðfinna Björnsdóttir, oftast kölluð Ninna, fór með Boggu út og dvelur hjá henni fram á laugardag. „Án hennar veit ég hreinlega ekki hvar ég væri. Hún heldur mér í fókus. Það er mikill húmor í henni og hún er óhrædd við að segja sína skoð- un og standa með mér. Tveir heilar eru betri en einn í flestum tilfellum og það er svo sannarlega satt,“ segir Bogga. Hún sækir styrk til að halda áfram hjá börnunum sínum. „Stundum tek ég bara einn dag í einu. Stundum bara eina mínútu í einu. Ég veit að ég er að gera það eina rétta. Ég leyfi mér hreinlega ekk- ert annað en að einbeita mér að því sem er í gangi. Allt annað er í öðru sæti. Börnin mín gefa mér styrk. Ég gæti aldrei bara gefist upp. Þetta eru börnin mín og þau eiga allt það besta skilið. Framtíðin er enn óráðin en ég mun reyna allt sem ég get til að hún verði sem best fyrir okkur.“ Borghildur Guðmundsdóttir stendur í forræðisdeilu við barnsföður sinn Richard Colby Busching. Hún dvelur nú á heimili þeirra í Kentucky nánast peningalaus. Hún tekur bara einn dag í einu til að tapa ekki vitinu og segir börnin sín gefa henni styrk til að gefast ekki upp. Borghildur segir íslenska réttarkerfið hafa sett drengina hennar í hrikalega stöðu með því að senda þau aftur til Bandaríkjanna. Í Bandaríkjunum er hún algjörlega varnarlaus. „Börnin mín gefa mér styrk“ „Ég veit að ég er að gera það eina rétta.“ lilja KatrÍn Gunnarsdóttir blaðamaður skrifar liljakatrin@dv.is ókunnugur pabba sínum Borghildur segir yngri strákinn sinn vera ókunnugan pabba sínum þar sem hann hafi ekki haft mikið samband við strákana þegar þeir voru á Íslandi. Ekki peningar til fyrir leigubíl Bogga á ekki bíl í Bandaríkjunum og hefur ekki efni á leigubíl þannig að hún ferðast með sonum sínum tveimur á hjóli um hverfið í Kentucky.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.