Dagblaðið Vísir - DV - 28.08.2009, Síða 12
12 föstudagur 28. ágúst 2009 helgarblað
Sigmundur Ernir Rúnarsson, þing-
maður Samfylkingarinnar tók þátt í
öðru golfmóti á föstudaginn 21. ág-
úst daginn eftir hið örlagaríka kvöld
á Alþingi, þar sem hann viðurkenndi
síðar að hafa neytt áfengis áður en
hann fór í ræðustól á Alþingi þar
sem umræður um ríkisábyrgð vegna
Icesave fóru fram. Fyrr um kvöld-
ið hafði hann tekið þátt í golfmóti á
vegum MP Banka og drukkið léttvín
í veislu eftir mótið. Á föstudeginum
var það svo árlegt golfmót fjölmiðla-
manna, Media Masters, sem fram fór
á Garðavelli á Akranesi. Þrátt fyrir að
hafa staðið í ströngu kvöldið áður,
vann Sigmundur nándarverðlaun á
þriðju holu vallarins.
Tveir gestir í veislu sem haldin
var eftir mótið segja við DV að Sig-
mundur hafi drukkið bjór og léttvín
í veislunni líkt og flestir aðrir gest-
ir. Hann hafi þó ekki virst vera und-
ir miklum áhrifum. Síðar þann dag,
eða klukkan 22:45 á föstudagskvöld-
ið var Sigmundur svo aftur kominn
niður í þing, á kvöldfund fjárlaga-
nefndar.
Sigmundur hefur staðið í ströngu
í sumar, hann er nýr þingmaður og á
sæti í fjárlaganefnd, sem fjallar um
eitt stærsta mál Íslandssögunnar, rík-
isábyrgð vegna Icesave innistæðna.
Reykur og ritvél
Sigmundur er fæddur á Akureyri
6. mars 1961 og er því 48 ára gmall.
Hann ólst upp á Akureyri, gekk þar í
skóla og útskrifaðist með Stúdents-
próf frá Menntaskólanum á Akureyri
árið 1981. Sjálfur hefur Sigmund-
ur sagt að hann sé af alþýðufólki
kominn og á menntaskólaárum sín-
um var hann mikið í skáldskap. Á
vefsíðu sinni segir Sigmundur um
skólaárin á Akureyri: „Gagnfræða-
skóli Akureyrar breytti mér úr barni
í bærslafullan ungling með undra-
sítt hár. Vinafjöldinn húkandi undir
húsvegg að reykja Viceroy og annan
álíka óþverra milli þess sem hnakka-
kerrtir kennararnir komu fyrir okkur
vitinu. Ég tók landsins fyrsta grunn-
skólapróf á leiðinni upp í dásamleg-
asta skóla lífs míns, Menntaskólann
á Akureyri, sem skilaði mér skrifandi
og skáldmæltum út í fullorðinsárin,
þökk sé einhverjum bestu kennur-
um þessa lands, hrífandi og mann-
eskjulegum á pari við lífið. Hvergi á
ævinni hef ég eignast fleiri vini en í
félagsfræðinni í MA.“
Fyrsta ljóðabók Sigmundar kom
út árið 1980, þegar hann var aðeins
19 ára gamall og heitir Kringum-
stæður. Sama ár og hvíta húfan fór
á loft hófst fjölmiðlaferillinn, þeg-
ar hinn tvítugi norðanmaður réð
sig til starfa sem blaðamaður á Vísi,
sem síðar sameinaðist Dagblaðinu
og varð að DV. Hann starfaði á DV
til ársins 1983, þegar hann færði sig
um set og gerðist ritstjórnarfulltrúi
á Helgarpóstinum sáluga. Sama ár
sendi hann frá sér sína aðra ljóða-
bók. Hinn ungi Sigmundur var mikill
blaðamaður í sér og árið 1986 ræddi
hann í viðtali við DV um upphafið
að fjölmiðlaferlinum og sín helstu
áhugamál, sem voru á þeim tíma að
sitja við ritvélina og reykja sígarettur.
„Ég var með Helgarblað DV í a.m.k.
tvo ár. Það var æðisleg vinna, á við
30 ára kúrs í blaðamennsku en árin
á helgarblaðinu gerðu mig að þeim
blaðamanni sem ég er í dag.“ Sig-
mundur sagði í viðtalinu frá því að
hann hefði þyngst um 10 kíló síðan
hann hætti að reykja. Í greininni var
uppáhaldsstelling Sigmundar sögð
að sitja fyrir framan ritvélina með
iðandi reykinn upp úr öskubakkan-
um og svo hulinn reykjarmekki að
ekki sást nema móta fyrir útlínunum
á líkama hans. „Ég er búinn að vera
ómögulegur maður síðan ég hætti
að reykja, blaðamannsímyndin horf-
in. En ég hef komið mér upp öðrum
kæk, sem er að núa saman höndun-
um i gríð og erg,“ sagði blaðamaður-
inn ungi.
Sigmundur Ernir er giftur Elínu
Sveinsdóttur, fyrrverandi útsend-
ingastjóra á Stöð 2. Þau eiga fjögur
börn saman, en fyrir átti Sigmundur
tvö börn úr fyrra hjónabandi. Elsta
barn Sigmundar, Eydís Edda Sig-
mundsdóttir lést í mars á þessu ári
eftir ævilanga baráttu við fötlunar-
sjúkdóm sem dró hana til dauða að-
eins 24 ára gamla.
Í sjónvarpi með Ómari og
Agnesi Braga
Á Helgarpóstinum starfaði hann til
ársins 1985, þegar hann færði sig yfir
til Ríkissjónvarpsins og fékk eldskírn
sína í sjónvarpi. Stýrði hann meðal
annars þættinum á Líðandi stundu
með Ómari Ragnarssyni, sjónvarps-
manni og Agnesi Bragadóttur, blaða-
konu á Morgunblaðinu. Þóttu þau
mynda athyglisvert þríeyki í sjón-
varpssal. Hann lýsti því í sama viðtali
að hann hefði legið í flensu heima
þegar honum var boðið starfið.
Á þessum sömu árum skrifaði
hann einnig greinar í Alþýðublað-
ið og Sjómannablaðið Víking. Árið
1987 réð hann sig til starfa hjá Stöð 2,
sem var að slíta barnskónum, í starf
varafréttastjóra. Hann starfaði óslitið
á stöðinni til ársins 2001, þegar hann
snéri aftur á DV, í þetta sinn sem rit-
stjóri. Því starfi gengdi hann í tvö ár.
Veturinn 2003 til 2004 stýrði hann
svo viðtalsþættinum Maður á mann
á Skjá Einum og árin 2004 til 2005
var hann fréttastjóri á Fréttablaðinu.
Hann snéri síðan aftur til Stöðvar
2 árið 2005 sem fréttastjóri og síðar
forstöðumaður fréttasviðs, í eitt ár á
NFS og aftur á Stöð 2, allt þar til hon-
um var sagt upp störfum.
Sigmundur er almennt vel liðinn
af fólki sem þekkir til hans og hefur
unnið með honum. Einn fyrrverandi
samstarfsmaður Sigmundar, lýsir
honum sem mjög viðkunnalegum og
kammó manni, en það verði að segj-
ast eins og er að hann sé frekar latur
í vinnunni. „Það var einhverju sinni
sagt um hann að hann væri dýrasti
„high-five“ maður Íslandssögunn-
ar,“ segir viðmælandi DV og vísar
til launa hans. „Hann er fyndinn og
skemmtilegur. Kemur með mikið af
„one-liner“ bröndurum og er mjög
sterkur í mannlegum samskiptum.
Að því leytinu til er hann mjög góður
maður að hafa á vinnustað, því hann
er mikill peppari og góður fyrir mór-
alinn.“
Kurteis, húmorískur og ístöðu-
laus
Annar viðmælandi DV sem einn-
ig hefur starfað náið með honum
segir að kostirnir hans séu, að þrátt
fyrir frægðina, þá sé hann ekki eins
upptekinn af henni og margir halda.
„Hann kynnir sig alltaf kurteisislega,
hann veit að hann er þjóðþekktur
maður, en getur ekki ætlast til þess
að hann þurfi ekki að gera grein fyr-
ir sé og kynna sig eins og annað fólk.
Það á hann alveg. Hann er líka mjög
skemmtilegur maður og húmorískur
og vill alltaf mjög vel.“
En Sigmundur á sína galla að mati
viðmælandans sem nefnir að hann
eigi það til að ráðast í stærri verk-
efni heldur en hann sé raunverulega
maður til að klára. Hann afkasti þess
vegna ekki miklu í vinnu. „Hann tal-
ar um að gera meira en hann gerir.
Það vantar ekki greindina eða neitt
slíkt, en hann er ístöðulaus. Hann er
ákvarðanafælinn og ef það eru erfið
mál, þá finnst honum mjög gott að
komast undan þeim. Að því leytinu
til er hann já-maður, því hann segir
alltaf já. Hann vill vera góði maður-
inn,“ segir sami viðmælandi. Undir
þetta tekur annar fyrrverandi sam-
starfsmaður hans og bætir því við að
Sigmundur hafi alltaf viljað forðast
átök í vinnunni.
„Hent út eins og glæpamönn-
um.”
Það var svo í janúar á þessu ári sem
spilastokknum var stokkað upp
á nýtt, þegar Sigmundur og Elín
Sveinsdóttir, eiginkona hans voru
skyndilega rekinn af fréttastofu
Stöðvar 2. Sigmundur hafði um ára-
bil verið einn frægasti fréttalesari og
dagskrárgerðamaður landsins. Upp-
sögnin var sögð liður í sparnaðar-
aðgerðum, en Sigmundur tók henni
illa og sagði meðal annars í sam-
tali við DV: „Okkur var hent út eins
og glæpamönnum. Það eru þakk-
irnar. Það lá í loftinu að við hefðum
gert eitthvað stórkostlegt af okkur.“
Yfirboðarar hans vönduðu honum
heldur ekki kveðjurnar. Óskar Hrafn
Þorvaldsson, fréttastjóri Stöðvar 2,
sagði af þessu tilefni: „Ég hef haft
Sigmund Erni sem yfirmann. Ég hef
líka starfað við hliðina á honum. Ég
hef aldrei lært neitt af honum. Hann
hefur aldrei haft neitt fram að færa
sem hefur gagnast mér og á þessum
fjórum mánuðum sem ég hef starfað
sem fréttastjóri Stöðvar 2 hefur hann
aldrei ausið millilítra út brunni sinn-
ar miklu visku.“
Raunar var athyglisverð staða
komin upp, þegar Óskar Hrafn var
ráðinn yfirmaður Sigmundar síðasta
haust, en sá fyrrnefndi var í eldlín-
unni sem fréttastjóri DV þegar mik-
il andstaða var gegn blaðinu eftir
að maður sem það hafði fjallað um,
fyrirfór sér. Sigmundur Ernir var þá
í hópi þeirra sem gagnrýndu stefnu
DV mest á þeim tíma. Í ljósi þeirrar
sögu var uppsögn Sigmundar Ernis
ekki sérlega óvænt, enda kærleikur-
inn ekki mikill þeirra á milli. Sömu
sögu má segja um Frey Einarsson,
ritstjóra Opna gluggans, sem Ís-
land í dag og Mannamál Sigmund-
ar, heyrði undir. Freyr var samstarfs-
maður Óskars Hrafns á DV á þeim
tíma sem Sigmundur var mjög and-
snúinn blaðinu.
Síðasta kryddsíldin
Vormánuðirnir voru örlagaríkir í lífi
Sigmundar Ernis. Hann hafði ný-
verið misst vinnuna á Stöð 2 og ver-
ið úthrópaður sem hirðfréttamaður
auðvaldsins, sérstaklega eftir Krydd-
síldarþáttinn á gamlársdag, þar sem
Sigmundur Ernir stýrði hátíðlegum
umræðum stjórnmálamanna á Hótel
Borg, á meðan valdamönnunum var
þjónað til borðs af prúðbúnum þjón-
um - eins og alltaf hafði verið gert.
Nema þetta var enginn venjulegur
gamlársdagur, hópur mótmælenda
barði á glugga fyrir utan Borgina og
gerði hvað hann gat til þess að stöðva
útsendinguna. Svo fór á endanum
að sjónvarpssnúrur voru brenndar í
sundur og útsendingin rofnaði. Hann
var svo sagður hafa sakað Egil Helga-
son, sem átti leið fram hjá, um að
hlakkað hafi í honum við að sjá mót-
mælendur. Það var síðar borið til baka
af Sigmundi sjálfum.
Annað atvik var þegar Sigmundur
rak Einar Má Guðmundsson, rithöf-
und úr þætti sínum Mannamáli, en
sá síðarnefndi fullyrðir að yfirboður-
um Stöðvar 2 hafi ekki þótt boðskapur
Einars Más þóknanlegur.
Í ljósi þess sem síðar hefur gerst
má segja að uppsögnin hafi hins veg-
ar komið á besta tíma fyrir Sigmund,
aðeins þremur mánuðum fyrir kosn-
ingar til Alþingis og enn styttra var í
prófkjör Samfylkingarinnar.
Strax og Sigmundur hætti spunn-
ust sögusagnir um að hann ætlaði að
snúa sér að stjórnmálum og var Fram-
sóknarflokkurinn strax nefndur, enda
Sigmundur góðvinur Guðna Ágústs-
sonar, eftir að hafa skrifað ævisögu
hans. Sjálfur talaði hann hins vegar
um að setjast niður við skriftir. „Ég á
annars svo mikið af óskrifuðum ljóð-
um og sögum að ég hugsa að ég byrji
nú á að koma einhverjum skikk á það,“
sagði hann við DV.
Sigmundur ákvað hins vegar að
taka þátt í prófkjöri Samfylkingarinnar
í Norðausturkjördæmi, þar sem hann
á rætur sínar að rekja til Akureyrar.
Sigmundur náði þeim árangri sem
hann stefndi að, öðru sæti, sem er ör-
uggt þingsæti. Sigmundur vakti mikla
athygli í prófkjörsbaráttunni, fyrir að
birta á vefsíðu sinni skýra grein um
fjárhag sinn, eignir, skuldir stjórnar-
setu og félagatengsl. Hlaut hann mik-
ið lof fyrir. Annað sem vakti athygli var
að í prófkjörsbaráttu sinni hafði hann
afnot af jeppa á vegum Stöðvar 2, en
jeppann fékk hann að nota á upp-
sagnarfrestinum. DV greindi svo frá
því á dögunum að Sigmundur hefði
skilað jeppanum aftur til 365, en hann
hafi verið óökufær, þar sem vélin hefði
brætt úr sér. Bíllinn er af gerðinni
Ford Escape og er viðgerðarkostnaður
sagður vera um 1,5 milljónir króna.
Sigmundur Ernir Rúnarsson hefur staðið
í ströngu. Hann viðurkenndi að hafa sagt
ósatt um víndrykkju sína áður en hann
steig í ræðustól Alþingis í síðustu viku. Eftir langan fjölmiðlaferil var hann kjörinn
á þing í fyrstu atrennu. Gamlir vinnufélagar eru allir sammála um að Sigmundur sé
ljómandi skemmtilegur og góður maður, en átakafælinn, sérhlífinn og eigi til að vera
frekar latur í vinnu. Daginn eftir þingfundinn fræga var hann á golfmóti á Akranesi
þar sem gestir segja hann hafa drukkið bjór áður en hann fór á fund fjárlaganefndar
Alþingis síðar um kvöldið.
VELVILJAÐUR En SÉRHLÍFInn
Þingmaður
Sigmundur Erni er lýst
sem miklu ljúfmenni
og góðum félaga.
Hann sé hins vegar
ákvarðanafælinn.