Dagblaðið Vísir - DV - 28.08.2009, Page 14
Brösótt byrjun á Alþingi
Svo fór að hann náði öruggur kjöri á
Alþingi. Það var mikill hugur í hin-
um nýja þingmanni þegar hann flutti
jómfrúarræðu sína á Alþingi í vor. Þar
ræddi hann um væntingar þjóðar-
innar til þingmanna sinna og spurði
ítrekað: „hvers á þjóðin skilið af okk-
ur,“ sem síðar var reyndar lagfært yfir
í: „hvað á þjóðin skilið af okkur.“ Eitt
af því sem Sigmundur Ernir nefndi í
jómfrúarræðunni var að þingmenn
ættu að spara stóru orðin í sölum
Alþingis. „Já, hvað á þjóðin skilið
af okkur? Við skulum spyrja okkur
þessarar spurningar í hvert einasta
sinn sem við göngum hingað í hús.
Það gengur ekki að lunginn úr ræðu-
tíma þingmanna fari í það að fjarg-
viðrast hverjir við aðra. Hér í þing-
sölum hefur alltof mikill tími farið í
að lítillækka fólk. Og sosum til hvers?
Pólitísk hávaðarifrildi hafa sjaldnast
komið miklu í verk, sakir þess að þau
ala á óheilindum. Nú er lag að spara
stóru orðin og veita fremur kröftun-
um í stóru verkin. Þjóðin á heimtingu
á því,“ sagði Sigmundur.
Sagði ósagt um víndrykkju
En um þremur mánuðum síðar var
Sigmundur kominn í skotgrafirnar.
Fimmtudaginn 21. ágúst tók hann þátt
í golfmóti á vegum MP Banka á Graf-
arholtsvelli. Eftir mótið var blásið til
veislu í golfskálanum, þar sem í þátt-
takendur gátu gætt sér á léttvíni, bjór
og veitingum í boði bankans. Á föstu-
dagsmorgun voru sagðar fréttir af æði
skrautlegri framkomu þingmannsins í
þingsal, seinna um kvöldið, en í sam-
tali við Vísi útskýrði Sigmundur fram-
komu sína sem næturgalsa. Sigmund-
ur flutti mikla eldræðu þetta kvöld,
en þing-salur viðhafði um fimmtíu
frammí-köll á meðan hann flutti sína
ræðu. Svör hans við spurningum ann-
ara þingmanna voru svo sérkennileg,
enda mundi hann ekki spurningar
þingmanna þegar hann kom sjálf-
ur í ræðustól til að svara þeim. Eftir
að myndband á Youtube, sem sýndi
Sigmund í undarlegu ljósi, fór eins og
eldur í sinu um netið, var hann spurð-
ur af fréttamanni RÚV á Austurlandi,
hvort hann hefði verið ölvaður þegar
hann tók þátt í umræðum um Icesa-
ve á Alþingi þetta sama kvöld. Hann
neitaði því, en var því næst spurð-
ur hvort hann hefðir örugglega ekki
bragðað neitt áfengi áður en hann tók
þátt í umræðunum, en hann neitaði
því einnig. Hann neitaði að tjá sig að
öðru leyti um málið og sagði þennan
orðróm ekki réttann.
Veislugestir úr hófi MP Banka
sögðu DV hins vegar allt aðra sögu, en
Sigmundur. Þeir sögðu Sigmund hafa
hellt í sig rauðvíni og slegið um sig við
gesti veislunnar. Einn þeirra sem DV
ræddi við segir að sér hafi brugðið
þegar hann kom heim til sín síðar um
kvöldið og sá Sigmund Erni kominn
í ræðustól á Alþingi, miðað við það
ástand sem hann hafði verið í fyrr um
kvöldið. Þingmaðurinn lét ekkert ná í
sig vegna málsins, ekki einu sinni þeg-
ar blaðamaður bankaði upp á heimili
Sigmundar. Þrátt fyrir að hann hafi
nokkrum sekúndum áður staðið í for-
stofunni og talað í símann, kom eigin-
kona hans til dyra og sagði hann ekki
heima. Á miðvikudag sendi Sigmund-
ur svo frá sér yfirlýsingu þar sem hann
viðurkenndi að hafa í upphafi sagt
ósatt, hann hafi drukkið tvö vínglös,
en ekki kennt áhrifa. Á fimmtudag
bað hann svo Alþingi afsökunnar á
veru sinni í ræðustól fyrr í vikunni.
Sérhlífinn og ljúfur
Viðmælendur DV eru á einu máli
um að Sigmundur sé skemmtileg-
ur maður, haldi uppi góðum móral
og að fólk kunni vel við hann. Fyrr-
verandi samstarfsmaður hans lýs-
ir honum sem svo: „Sigmundur er
ljúfur maður að starfa með og eig-
inlega svo ljúfur að það bitnaði á
starfi hans sem yfirmanns. Honum
finnst erfitt að vera vondi gæinn og
vill einhvernveginn vera góður og
notalegur við alla. Stundum væri
ekki ofmælt að segja að hann væri
svolítið sérhlífinn til starfa og á það
til að vera með takmarkaða viðveru
á vinnustað. Það verður ekki af hon-
um tekið að hann er skemmtilegur
að vera í kringum og flestir kunna
vel við hann enda ekki ástæða til
annars.“
Annar viðmælandi DV sem starf-
aði með honum á Stöð 2, tekur und-
ir að hann sé mjög skemmtileg-
ur og velviljaður maður. Hann sé
hins vegar ekki nógu mikill prins-
ipp maður og nefnir sem dæmi að
þegar Sigmundur sagðist vera laus
undan oki auðmanna, eftir að hon-
um var sagt upp störfum á Stöð 2.
Hins vegar að hefði komið til þess að
hann þyrfti verja fréttamenn í erfið-
um málum og leggja sjálfan sig und-
ir í leiðinni, þá væri Sigmundur ekki
líklegur til þess að standa undir því.
„Það er eins og með marga á Íslandi,
hann er góður náungi, en hann er já-
maður og forðast átök. Hann lend-
ir stundum í vandræðum, því hann
vill hafa alla góða. Til dæmis þegar
tveir menn eru á á sitthvorri skoð-
un, þá ræðir hann við þá einslega
í sitthvoru horninu og er sammála
báðum. Það er algjörlega ómögulegt
þegar maður er stjórnandi.“
Gengið fram hjá Sigmundi
Þegar Steingrímur Sævarr Ólafsson,
var ráðinn ritstjóri Íslands í dag, var
það gert að undirlagi Ara Edwald,
forstjóra 365, samkvæmt heimild-
um DV. Á þeim tíma var Sigmund-
ur fréttastjóri og heyrði bæði frétta-
stofan og Ísland í dag undir hans
stjórn. Sigmundur var ekki hafður
með í ráðum. Steingrímur Sævarr
mun hafa hafti samband við aðra á
Stöð 2 og rætt við þá, áður en hann
tók starfstilboðinu. Um það leyti
sem verið var að ganga frá ráðn-
ingu Steingríms, mun Sigmundur
hafa kallað undirmenn sína til fund-
ar og tjáð þeim að hann hefði sjálf-
ur ákveðið að láta Þorstein Joð, þá-
verandi umsjónarmann þáttarins,
fara og ráða Steingrím Sævarr í hans
stað. Fréttamenn stöðvarinnar voru
hissa á þessu, því vissu þegar að Ari
hefði gengið fram hjá Sigmundi með
ráðningu Steingríms, en Sigmundur
engu að síður viljað halda andliti
sínu út á við. Svipuð staða hafi kom-
ið upp þegar Steingrímur Sævarr var
ráðinn fréttastjóri í stað Sigmundar
og hann gerður að forstöðumanni
fréttasviðs. Þá hafi virkilega verið
farið að molna undan honum í starfi.
„Það var búin til einhver ný staða
fyrir hann, þegar honum var spark-
að sem fréttastjóra. Þessi störf, að
vera yfirmaður á fréttastofu og einn-
ig stjórnmálamaður, ég er ekki alveg
viss um að það henti hans karakter,“
segir einn þeirra sem DV ræddi við.
„Hann reyndi að spila sig stærri en
hann var. Það var byrjað að molna
undir honum tveimur árum áður en
hann var rekinn. Ef hann hefði verið
alvöru nagli, þá hefði hann vafalaust
farið á fund með Ara og spurt hvort
hann væri að taka þennan þátt af
honum án þess að tala við sig. Hann
lét hins vegar alla halda að hann
stýrði þessu áfram.“
Jafn ósannfærandi
fullur og edrú
Enn annar fyrrverandi samstarfs-
maður Sigmundar segir að hann
sé með fréttamennskuna í blóð-
inu, en segist efast um hann sem
stjórnmálamann. „Ég sá Sigmund
Erni aldrei fyrir mér sem þingmann.
Hann er fæddur fréttamaður sem er
í rauninni að setja sig í ólík hlutverk
og skoða umhverfi sitt með krítískri
hugsun. Hann er fínn í að þefa upp
sögur og segja þær, hvort sem það
er á prenti eða í sjónvarpi. Þetta er
ekki til í pólitík. Þannig að þetta út-
spil hans fannst mér alveg stór-
furðulegt. Í pólitíkinni eru menn að
múra sig inn í einhverja flokks- og
kerfishugsun sem hentar Sigmundi
alls ekki. Mér fannst Sigmundur því
jafn ósannfærandi fullur í ræðustól á
þingi og þegar hann var edrú,“ segir
samstarfsmaðurinn fyrrverandi.
„Hann er frábær vinnufélagi.
Skemmtilegur og hugmyndaríkur.
En hans helsti veikleiki er kannski
bara fljótfærni; hann sést ekki fyrir
og bara kýlir á hlutina. Hann er mik-
ill stemningarmaður. Það er alltaf
ögrandi og skemmtilegt að vinna í
kringum hann,“ segir hann.
„Hann er snarpur penni og menn
þurfa ekki annað en að lesa það sem
hann var að skrifa á Helgarpóstinum
í gamla daga til að sjá að þarna fer
maður sem hefur skoðanir á hlut-
unum. En undir það síðasta, þegar
hann var á NFS og Stöð 2, vissi mað-
ur varla hvort hann var að stefna
í sveitaprestinn eða pólitíkusinn.
Orðfærið hjá honum var orðið allt
uppskrúfað og hann var kominn inn
á eitthvert hlutlaust svæði þar sem
hann var sennilega bara að reyna að
halda friðinn við sína vinnuveitend-
ur. Ég held reyndar að hvorugt henti
honum nokkurn skapaðan hlut;
hvorki presturinn né pólitíkusinn.
Þetta gerist með marga ritstjóra. Það
sem gerist þegar menn eru komnir í
vaktstjórn og annað slíkt þá er þetta
bara orðið að skrifstofustarfi, þeir
grána í vöngum og verða alveg grút-
máttlausir og -leiðinlegir. Sigmund-
ur er alls ekki skrifstofumaður.“
14 föstudagur 28. ágúst 2009 helgarblað
Fjölhæfur Sigmundur Ernir stýrði spjallþætti á Skjá Einum fyrir nokkrum árum. Þessi
skemmtilega mynd birtist í auglýsingum dagblaða.
Sigmundur og Elín Hjónin störfuðu saman á Stöð 2 en var báðum sagt upp í janúar.
Bókhneygður Sigmundur hefur skrifað nokkrar bækur á ferlinum. Meðal annara ævisögu Guðna Ágústssonar, fyrrverandi
formanns Framsóknarflokksins.