Dagblaðið Vísir - DV - 28.08.2009, Side 19
fréttir 28. ágúst 2009 föstudagur 19
Örlög Roberts F. Kennedy þau sömu og eldri bróður hans:
RobeRt F. Ráðinn aF dögum
Frá 1961 til 1964 var Robert F. Kenne-
dy yfir dómsmálaráðuneyti Bandaríkj-
anna. Hann átti sæti í öldungadeild-
inni frá 1965 þar til hann var ráðinn af
dögum og var sérlegur ráðgjafi bróður
síns, Johns F., í forsetatíð hans.
Fimmti júní, 1968 hefði átt að verða
einn besti dagur í lífi Roberts F. Kenn-
edy, yngri bróður Johns F. Kennedy.
Daginn áður hafði Robert unnið stór-
kostlegan sigur í forsetaforkosningun-
um í Kaliforníu.
Árla morguns þann fimmta ávarp-
aði Robert stuðningsfólk sitt í danssal
Ambassador-hótelsins í Los Angeles,
Kaliforníu. Þegar hann yfirgaf dans-
salinn stytti hann sér leið í gegnum
eldhús hótelsins, að því sem sagan
segir, þvert á ráðleggingar alríkisfull-
trúans og lífvarðarins Bills Barry, sem
hafði sagt honum að forðast eldhúsið.
Í þrengslum eldhússins ruddist að
honum Shiran Sirhan, 24 ára Banda-
ríkjamaður af palestínsku bergi brot-
inn, og hóf skothríð með tuttugu og
tveggja kalibera skambyssu af stuttu
færi.
Í kjölfar skotárásarinnar var far-
ið í flýti með Robert á Good Samarit-
an-sjúkrahúsið í Los Angeles þar sem
hann lést næsta morgun,
Að sögn móður morðingjans
var ástæða morðsins meint dá-
læti Roberts á aröbum, og sagði
hún að Shiran Shiran hefði fram-
ið morðið fyrir þjóð sína. Shiran
Shiran var dæmdur til dauða en
dómnum breytt í lífstíðarfangelsi
árið 1972. Hann er enn á bak við
lás og slá.
Robert F. Kennedy
Stefndi á forsetaembættið
þegar hann var myrtur.
1941
Rosemary Kennedy, elsta dóttir Josephs og Rose Kennedy, sem
glímt hafði við geðræn vandamál er vistuð á stofnun í kjölfar misheppn-
aðrar skurðaðgerðar á heilablaði.
1944
Joseph P. Kennedy, elsti Kennedy-sonurinn, ferst í flugslysi yfir
Ermarsundi í síðari heimsstyrjöldinni. Hann var 29 ára að aldri.
1948
Kathleen Kennedy Cavendish ferst í flugslysi í Frakklandi 28 ára
að aldri. Eiginmaður hennar, John Robert Cavendish, féll í síðari heimsstyrj-
öldinni.
1963
Patrick Bouvier Kennedy, annar sonur Johns F. Kennedy, forseta
Bandaríkjanna og Jacqueline, eiginkonu hans, deyr 7. ágúst, tveimur
dögum eftir að hann fæðists sex vikum fyrir tímann.
1963
John F. Kennedy, Bandaríkjaforseti, er ráðinn af dögum í Dallas,
22. nóvember, 46 ára að aldri.
1964
Edward M. Kennedy, öldungadeildarþingmaður og yngsta barn
Joseph og Rose Kennedy, sleppur lifandi úr flugslysi sem kostar aðstoðar-
mann lífið.
1968
Robert F. Kennedy er ráðinn af dögum 5. júní í Los Angeles.
Hann var þá, 42 ára, nýbúinn að vinna forsetaforkosningarnar í Kaliforníu.
1969
Edward M. Kennedy keyrir fram af brú á leið heim úr teiti á
Chappaquiddick-eyju í Massachusetts. Aðstoðarkonan, Mary Jo Kopechne,
sem var í bílnum með honum lætur lífið í slysinu.
1973
Edward M. Kennedy yngri missir hægri fótlegg
vegna krabbameins.
1973
Joseph P. Kennedy, annar, sonur Roberts F. Kennedy og Ethel
konu hans, er við stýrið í bílslysi á Cape Cod. Einn farþegi bílsins er lamaður
til frambúðar vegna slyssins.
1984
David A. Kennedy, sonur Roberts F. deyr vegna ofneyslu
eiturlyfja á hótelherbergi á Palm Beach í Flórída. Hann var 28 ára.
1986
Patrick Kennedy, táningssonur Edwards Kennedy öldungadeild-
arþingmanns, fer í meðferð vegna kókaínfíknar.
1991
William Kennedy Smith, sonur Jean Kennedy Smith, er sakaður
um nauðgun á sumarleyfisheimili fjölskyldunnar á Palm Beach. Réttað er
yfir honum og hann sýknaður.
1997
Michael Kennedy, sonur Roberts F., lætur lífið í skíðaóhappi í
Aspen í Colorado. Hann var 39 ára. Fyrir slysið komst hann í fréttir fyrir að
hafa átt í meintu ástarsambandi við barnfóstru barna hans.
1999
John F. Kennedy, yngri, Carolyn Bessette Kennedy eiginkona
hans, og tengdasystir hans, Lauren Bessette, láta lífið þegar flugvél
þeirra brotlendir í sjónum fyrir utan Martha‘s Vineyard. Kennedy var við
stjórnvölinn.
2002
Michael Skakel, frændi Ethel Kennedy, var sakfelldur fyrir
morðið á Martha Moxley sem framið var árið 1975. Þau voru bæði fimmtán
ára á þeim tíma og hafði Martha verið barin til dauða. Michael fékk tuttugu
ára til lífstíðar dóm í ágúst 2002.
2005
Rosemary Kennedy andast 86 ára að aldri 7. janúar.
2008
Edward M. Kennedy öldungadeildarþingmaður greinist með
illkynja heilaæxli 20. maí.
2009
Eunice Kennedy Shriver, systir Edwards, andast 11. ágúst.
2009
Edward M. Kennedy öldungadeildarþingmaður deyr 25. ágúst.
Edward Kennedy alltaf í skugga Chappaquiddicks:
Chappaquiddick-slysið
Allt frá árinu 1969 hvíldi eitt at-
vik líkt og skuggi yfir Edward „Ted“
Kennedy. Atvikið er kennt við
Chappaquiddick, litla eyju við Mart-
ha‘s Vineyard í Massachusetts. Á
leið heim úr hófi frá Chappaquidd-
ick, ásamt Mary Jo Kopechne, sem
hafði verið aðstoðarkona Roberts,
bróður hans, ók Edward út af brú
með þeim afleiðingum að bíllinn
endaði í sundi sem liggur á milli
Chappaquiddick og Martha‘s Vin-
eyard.
Edward Kennedy tókst að kom-
ast á þurrt og af slysstað en Mary
Jo Kopechne drukknaði í sokkinni
bifreiðinni. Enn er margt á huldu
um ástæður slyssins, en Edward til-
kynnti ekki um það fyrr en næsta
dag og í kjölfarið vöknuðu margar
spurningar sem fá svör hafa feng-
ist við. Að eigin sögn kallaði Edward
ítrekað á Mary Jo og gerði fjölda til-
rauna til að bjarga henni.
Síðar játaði Edward sig sekan um
að hafa yfirgefið slysstað og hlaut
tveggja mánaða skilorðsbundinn
dóm.
Þetta atvik átti eftir að verða
honum fjötur um fót síðar meir og
varð ekki til að létta honum róður-
inn árið 1980 þegar hann bauð sig
fram til forsetaembættisins gegn
Jimmy Carter, sitjandi forseta. Þá
varð ljóst að ekki hafði fennt yfir
Chappaquiddick-slysið og skirrtust
andstæðingar hans ekki við að
nudda honum upp úr því.
Ferja á leið til Chappaquiddick-eyju
Enn er mörgum spurningum ósvarað
vegna Chappaquiddick-slyssins.
Óhætt eR að segja að Kennedy-ættinni, einu
elsta og áhRiFamesta ættaRveldi í bandaRísKum
stjÓRnmálum, haFi eKKi alltaF Fylgt lán. FRá
1941 heFuR saga ættaRinnaR litast dauðsFöll-
um og hneyKslismálum, stÓRum eða smáum.„ljÓnið“ Fallið FRá
Á góðri stundu Edward
Kennedy ásamt Barack
Obama sem naut stuðn-
ings „frjálslynda ljónsins“.