Dagblaðið Vísir - DV - 28.08.2009, Qupperneq 30
um helgina
Pýróníur í díst og doll Dr. Vísi Bjarna H.
Þórarinssonar opnar sýningu á Kaffi kletti í Biskupstungum á laugardag.
Yfirskrift sýningarinnar er Sjónþing Faxa – Pýróníur í díst og doll. Sjón-
þingið er sett saman úr ljósmyndaverkum og málverkum sem höfund-
urinn vann að í sumar. Bjarni segir díst og doll standa fyrir nálgun með
jákvæðni, húmor, hollustu og virðingu fyrir sköpunarverkinu og auga
fyrir gildi þess og þýðingu.
oPið hús í Borg-
arleikhúsinu
Opið hús verður í Borgarleikhúsinu
á laugardaginn milli klukkan 13 og
16. Verður þar eitthvað fyrir alla á
öllum sviðum og í forsalnum verður
skemmtidagskrá allan daginn. Fyrir
þá sem vilja svipast um baksviðs og
kynnast því sem gerist bak við tjöld-
in verða skoðunarferðir um húsið í
leiðsögn leikara og munu óvæntir
hlutir gerast á leiðinni. Þær Skoppa
og Skrítla ætla að flytja inn í Borgar-
leikhúsið með stæl og fá hjálp barn-
anna við að koma sér fyrir í nýjum
heimkynnum. Boðið verður upp á
vöfflur og kaffi.
í túninu heima
Bæjarhátíð Mosfellsbæjar, Í tún-
inu heima, verður haldin um
helgina og er dagskráin að vanda
fjölbreytt. Hátíðin verður sett á
Miðbæjartorgi í kvöld, föstudag,
klukkan 20 og verður gengið í
karnivalskrúðgöngu að lokinni
setningarathöfn yfir í Ullarnes-
brekkur þar sem varðeldur verð-
ur tendraður og brekkusöngur
sunginn. Lokaatriði hátíðinnar
verður í Íþróttamiðstöðinni að
Varmá á sunnudaginn klukkan
15. Þá mun Stórsveit Reykjavíkur
ásamt Ragga Bjarna og Kristjönu
Stefánsdóttir skemmta Mosfell-
ingum. Dagskrána er að finna á
mosfellsbaer.is.
samstarf ash-
kenazy-feðga
Miðasala er hafin á tónleika Sinfón-
íuhljómsveit Íslandsar sem Vladimir
Ashkenazy stjórnar föstudaginn
í næstu viku, 4. september. Son-
ur hans, Vovka Ashkenazy, verður
einleikari á tónleikunum. Hann hef-
ur getið sér gott orð fyrir píanóleik
sinn víða um heim. Þetta er í fyrsta
sinn sem þeir feðgar koma fram
með hljómsveitinni og vel við hæfi
að þeir skuli flytja hina stórkost-
legu Wanderer-fantasíu Schuberts
í útsetningu Liszts þar sem bæði
einleikari og hljómsveit njóta sín
til fulls. Á efnisskrá tónleikanna er
einnig Manfreð-sinfónían eftir Tsjaj-
kovskíj. Miðasala fer fram í Háskóla-
bíói, í síma 545 2500 og á sinfonia.is.
Melodica Acoustic Festival haldin um helgina:
Þriðja hátíðin á einu ári
30 föstudagur 28. ágúst 2009 fókus
Undercover Music Lovers á Íslandi
standa nú þriðja sinni fyrir tónlistar-
hátíðinni Melodica Acoustic Festival
sem fram fer á Café Rósenberg, Kaffi
Hljómalind og Nýlenduvöruverslun
Hemma og Valda um helgina. Til-
gangur hátíðarinnar er að fagna og
efla grasrótarstarf og alþjóðlegt sam-
starf tónlistarmanna þar sem áhersl-
an er lögð á samhjálp og vináttu.
Ekki síður er tilgangurinn að hjálpa
ungu og upprennandi tónlistarfólki
að kynnast reyndari aðilum í brans-
anum, öðlast reynslu í framkomu og
skapa tengsl, eins og segir í tilkynn-
ingu.
Meðal þeirra sem fram koma
á hátíðinni eru Insol, trúbador úr
Kópavogi sem ku á hraðiri leið á
toppinn, Lights on the Highway, Árs-
tíðir, Mysterious Marta, Heiða Dóra,
Elín Ey og Elíza. Alls taka um fjörutíu
listamenn þátt í hátíðinni. Aðgangur
á hátíðina er ókeypis, enda koma all-
ir listamenn ókeypis fram og allt starf
við hátíðina unnið í sjálfboðavinnu.
Þó er hönd ekki slegið móti frjálsum
framlögum.
Fyrsta Melodica hátíðin hér á
landi fór fram í ágúst í fyrra við góðar
undirtektir og var önnur haldin í jan-
úar á þessu ári. Voru undirtektirn-
ar þar ekki síðri og vonast samtökin
til að hróður hátíðarinnar fari sífellt
vaxandi. Áætlað er að hátíðin verði
árviss viðburður héðan í frá.
Hátíðin hefst á föstudag klukk-
an 18 með tónleikum á Hemma
og Valda og Hljómalind. Klukkan
21 færist stuðið yfir á Rósenberg. Á
laugardag hefst tónlistin kl. 16 á H&V
og Hljómalind en byrjar svo aftur á
Rósenberg kl. 21.
Mysterious
Marta Kemur
fram á Melodica
Acoustic Festi-
val um helgina.
„Ég myndi segja að þetta væri fyrsta
mynd sinnar tegundar hér á Íslandi,“
segir Júlíus Kemp leikstjóri myndar-
innar Reykjavik Whale Wathching
Massacre sem frumsýnd verður á
föstudaginn næsta. Eins og nafnið
gefur til kynna er um spennutrylli að
ræða en þær eru fáar ef einhverjar í
íslenskri kvikmyndasögu sem falla í
þann flokk.
Júlíus Kemp hefur verið áber-
andi í íslenskri kvikmyndagerð síð-
an hann leikstýrði og framleiddi sína
fyrstu mynd árið 1992, Veggfóður:
Erótísk ástarsaga. Þá var Júlíus aðeins
24 ára en myndin skartaði fjölmörg-
um landsþekktum einstaklingum og
leikurum svo sem Baltasar Kormáki,
Steini Ármanni, Flosa Ólafssyni og
Rósu Ingólfsdóttur.
Á eftir Veggfóðri kom myndin
Blossi árið 1997 en síðan þá hefur
Júlíus einbeitt sér að hlutverki fram-
leiðanda og fært okkur myndir eins
og Íslenski draumurinn, Maður eins
og ég, Strákarnir okkar, Astrópía og
nú síðast finnsku skrímslamyndina
Dark Floors með Eurovision-sigur-
vegurunum Lordi í aðalhlutverki.
Skemmtilegt en dýrt
„Það er mjög gaman að gera svona
mynd,“ segir Júlíus og á þá við Reykja-
vik Whale Wathching Massacre
eða RWWM eins og hún er stund-
um nefnd. „Það er samt mjög krefj-
andi og menn segja að þetta séu erf-
iðustu myndirnar til að taka að sér.“
Það er ekki einungis krefjandi að gera
spennutrylli heldur kostar það líka
sitt. „Það er mun dýrara að taka upp
svona mynd miðað við svona hefð-
bundna mynd.“
Þó ekkert framboð hafi verið
af myndum af þessu tagi í íslensk-
um kvikmyndaiðnaði þá segir Júlíus
enga ástæðu til þess að íslenskir kvik-
myndagerðarmenn fari að einbeita
sér sérstaklega að þeim. „Mér finnst
ekki að það þurfi að fókusera eitthvað
sérstaklega á það. Íslenskar mynd-
ir eru bæði mjög góðar og eins mjög
ólíkar og fjölbreyttar,“ segir Júlíus sem
telur iðnaðinn hér á landi ekki þurfa
brjóta sig út neinu föstu formi.
En um hvað fjallar fyrsti íslenski
spennutryllirinn og hvar gerist hann?
„Myndin segir frá hópi ferðamanna
sem fara í hvalaskoðun við strend-
ur Íslands, en óvænt deyr skipstjóri
hvalaskoðunarbátsins af slysförum.
Hinn áhafnarmeðlimurinn flýr þá
frá borði á eina björgunarbátnum
og ferðamennirnir sitja eftir einir og
fyrsti íslenski
Júlíus Kemp leikstýrir myndinni Reykjavik Whale Wathching Massacre sem frumsýnd
verður í næstu viku. Myndin er sú fyrsta sinnar tegundar hér á landi og fyrsta mynd
Júlíusar í ein 12 ár. Langar dimmar nætur í Hvalfirði reyndust erlendum leikurum
myndarinnar erfiðar á meðan þeir íslensku hörkuðu að sér.
Júlíus Kemp Fyrsta
myndin eftir 12 ára hlé
frá leikstjórn.
sPennutryllirinn