Dagblaðið Vísir - DV - 28.08.2009, Qupperneq 31
m
æ
li
r
m
eð
...
Múlakaffi
Fyrir-
myndar-
matur í
testó-
sterón-
umhverfi.
EinEygða kEttinuM kisa
og ástandinu:
flóttanuM frá
rEykjavík
Hugleikur er enn í
sókn. Besta og flottasta
Kisa-bókin til þessa.
drag ME to HEll
Ógeðslega
fyndin í
tvöfaldri
merkingu
þess orðs.
stElpunuM okkar
Mikilvæg
mynd
sem á
erindi við
alla.
Bókinni
HEitar laugar
á íslandi
„Löngu tímabær
bók,“ segir
gagnrýnandi
funny gaMEs
Tilgangs-
lítið
sársauka-
klám.
m
æ
li
r
eK
Ki
m
eð
...
fóKus 28. ágúst 2009 föstudagur 31
Akureyrarvaka 2009 fer fram um helgina:
Brjóstahöld og flugdrekar
föstudagur
n stuð á nasa
Raftónlistarhópurinn DO-ONE er
einn sá heitasti um þessar mundir og
trónir á toppi klúbbasenunnar. Hóp-
urinn ætlar að heiðra Íslendinga með
nærveru sinni og rífa þakið af Nasa.
Heimsfrægir DJ-ar verða með þeim
í för svo sem, Kanio, The Equalizers
og Spencer Vallance. Forsöluverð er
2.500 krónur og miðaverð við hurð
er 3.000 kr. Hægt er nálgast miða á
midi.is
n silfur á Hressó
Hljómsveitin Silfur ætlar að halda
uppi stemningunni á Hressó og spila
frá 22.00 til 01.00. Það er öllum boðið
og það er frítt inn. Silfur hefur verið
á fljúgandi siglingu og náði nýlega
laginu sínu, Lífið, inn á vinsældarlista
Rásar 2.
n stemning á prikinu
Á Prikinu mun Húsbandið spila frá
klukkan 22 og svo tekur DJ Danni
Deluxee við og þeytir skífum langt
fram eftir nóttu. Danni er alveg með
réttu tónana á hreinu og fær alveg
ótrúlegasta fólk til að hressa sig
aðeins við og dansa almennilega.
n sýning í Hafnarborg
Ný sýning verður opnuð klukkan
20.00 í Hafnarborg, menningar- og
listamiðstöð Hafnarfjarðar. Á sýning-
unni, sem ber yfirskriftina Lífróður
- Föðurland vort hálft er hafið, eru
verk eftir tæplega þrjátíu listamenn
sem endurspegla hafið á ýmsan
hátt. Undanfarið ár hefur hafið leikið
stærra hlutverk meðal þjóðarinnar
en mörg fyrri ár og má eflaust leita
skýringa í gjörbreyttum aðstæðum
eftir hrun efnahagslífsins.
laugardagur
n sálin á 800Bar
Sálin hans Jóns míns mun loka
sumrinu á 800BAR á Selfossi. Sálin
lék síðast fyrir
troðfullu húsi
á Nasa en það
þarf varla að
taka það fram
að Sálin er
ein skemmti-
legasta
ballhljómsveit landsins. Ballið hefst
klukkan 23.00 og verður langt fram
eftir nóttu.
n stuð í sjallanum
Félagarnir úr akureysku hljómsveit-
inni Comet & Bravo bítlarnir og
Hljómsveit Ingimars Eydal verða sam-
an með dansleik á laugardagskvöldið
í Sjallanum Akureyri. Húsið opnar
klukkan 24.00 og verður opið til
klukkan 04.00. Snyrtilegur klæðnaður
æskilegur og er aldurstakmark 30 ár.
Miðaverðið er 1.000 krónur.
n áhöfin á Halastjörnunni á
kringlukránni
Skipstjórinn Gylfi Ægisson mætir
ásamt Hemma Gunn og Ara Jóns
á Kringlukrána á laugardaginn. Þar
ætla þeir að rifja upp gamla takta og
skemmta gestum með sínum bestu
lögum. Hljómsveitin Arizona verður
þeim til halds og trausts og ætla þeir
að halda stuðinu gangandi eitthvað
fram eftir kvöldi.
n prikið
Þriðja og síðasta Streetballmót
sumarsins mun fara fram þennan dag
og svo munu Gísli Galdur og Benni B-
Ruff halda útgáfupartí um kvöldið. Ef
þið ætlið að hrista bossann og dansa
af ykkur vitið er gott að vera mættur
tímanlega, enda drengirnir þekktir
fyrir allt annað en rólegheit.
n rokk og ról á dillon
Íslenska blúsrokk hljómsveitin
Missing spilar á Dillon Laugavegi
ásamt Bad Carburetor on Thingtak.
Það verður frítt inn og er 20 ára
aldurstakmark. Fyrsta hljómsveit fer á
svið klukkan 22.30.
Hvað er að
GERAST?
Tónleikar í portum, óperur í leikhús-
inu, sirkus á götum úti, danskennsla
á torgum, útitónleikur í Gilinu, ljós-
myndasýningar, drauga- og gaura-
gangur. Allt þetta og meira til verður
hægt að sjá og upplifa á Akureyrar-
vöku sem fer fram um helgina. Dag-
skrá hátíðarinnar hefur aldrei verið
viðameiri.
Akureyrarvaka verður sett í Lysti-
garðinum í kvöld, föstudagskvöld,
fyrir sjálfan hátíðisdaginn. Garður-
inn er þá skrautlýstur og þykir mörg-
um rölt um garðinn í rökkurró hinn
eini sanni hápunktur Akureyrarvöku.
Þá er orðinn fastur liður á hátíðinni
að miðbærinn breytist í útileikhús.
Að þessu sinni mun Sirkus Sannleik-
ur leiða mannfjöldann eftir stórtón-
leika í Gilinu og koma brjóstahöld
við sögu, bleik birta og Eikarbátur-
inn Húni ll. Af öðrum dagskrárlið-
um má nefna drama- og grínóp-
erurnar The Telephone og Biðin í
flutningi Alexöndru Chernyshovu,
Michael Jóns Clarke og Daníels Þor-
steinssonar, tónleika Hljómsveitar
Ingu Eydal á Græna hattinum, hin-
ar ýmsu myndlistasýningar víða um
bæ, að ógleymdum flugdrekadegin-
um sem stendur frá klukkan 14 til 16
á laugardaginn. Áhugafólk um flug-
dreka er þá hvatt til að mæta á tún-
ið sunnan við Verkmenntaskólann
og er ætlunin að sýna mismunandi
gerðir flugdreka og veita fróðleik um
flugdreka og flugdrekahlaup. Dag-
skrána má lesa í heild sinni á visita-
kureyri.is.
Akureyrarvaka er nú haldin í sjö-
unda sinn en hún fer iðulega fram
þann laugardag sem næst liggur
afmæli Akureyrarbæjar, 29. ágúst.
Hátíðin markar jafnframt lok Lista-
sumars, listahátíðar sem stendur frá
Jónsmessu til ágústloka.
frá akureyrarvöku
2008 Anna Richards
í gervi Furðufugls
Mynd ragnar HólM
ráðalausir.“ Til þess að vekja athygli
á sér skýtur fólkið upp neyðarblysi
en þeir einu sem verða þess varir eru
fjölskylda hvalveiðimanna. „Og fjöl-
skyldan kann ekkert sérstaklega vel
við hvalaskoðunarfólk, svo vægt sé til
orða tekið.“
íslendingarnir harðari
Það er SJÓN eða Sigurjón B. Sigurðs-
son sem skrifar handrit myndarinnar
en það er byggt á hugmynd hans og
Torsten Metalstein Hvas. Með helstu
hlutverk fara svo Helgi Björnsson,
Stefán Jónsson, Ragnhildur Steinunn
Jónsdóttir, Guðrún Gísladóttir, Pihla
Viitala, Þorvaldur Davíð Kristjáns-
son, Snorri Engilbertsson, Terrence
Anderson, Nae Yuki, Aymen Hamd-
ouchi.
Júlíus segir tökuferli myndarinnar
hafa verið nokkuð sérstakt þar sem
myndin gerist að mestu leyti úti á sjó
.„Við vorum náttúrulega stanlaust úti
á sjó. 40 manns húkandi úti á flóa í
einhverjum litlum bát.“ Júlíus viður-
kennir að það hafi reynt á þolrifin og
sérstaklega þegar verið var að taka
upp í hvalveiðiskipinu. „Við skutum
það allt í Hvalfirði og yfirleitt á nótt-
unni.“ Næturnar í Hvalfirði voru ansi
svartar og varla ljósglætu að sjá. „Við
vorum þarna í kolniðamyrkri í heilan
mánuð.“
Júlíus segir það hafa komið fljótt
í ljós að íslensku leikararnir voru
þó nokkuð harðari af sér en þeir er-
lendu. „Íslendingar komu mjög vel
út og voru mun harðari af sér. Er-
lendar leikkonur geta verið mjög
hvekktar þegar þær eru látnar gera
erfiða hluti eins og að stökkva í sjó-
inn. Það var mun meira vesen á þeim
en Íslendingarnir bitu bara á jaxlinn
og kláruðu þetta.“
Júlíus segir vinnuferlið í kringum
myndina líka hafa verið þéttara en
þekkist á flestum stöðum. „Vinnutím-
inn var lengri en fólk að utan þekkir
kannski. Það er ekki alveg vant því að
standa vaktina í tólf til fjórtán tíma.“
skipstjórinn heimsfrægi
Það er einn heimsfrægur leikari sem
fer með hlutverk í myndinni. Það
kannast eflaust ekki allir við nafn
hans og enn færri við andlit kappans
en hann er þekktur um allan heim
í hlutverki sínu sem Leatherface í
hryllingsmyndinni Texas Chainsaw
Massacre frá árinu 1974. Leikarinn
er hinn íslenski Gunnar Hansen sem
hefur verið búsettur í Bandaríkjun-
um frá fimm ára aldri. Hann fer með
hlutverk skipstjóra hvalaskoðunar-
bátsins.
Aðspurður hvernig það kom til
að Gunnar fékk hlutverk í myndinni
segir Júlíus það hafa verið uppá-
stunga handritshöfundarins. „SJÓN
kom þessa uppástungu og við höfð-
um bara upp á honum. Við sendum
Gunnari handritið og hann svarði já
strax um hæl. Hann fær helling af
allskonar handritum send af þessu
tagi og svo þegar það kemur eitt-
hvað vandað sem er skrifað af alvöru
manni eins og SJÓN þá held ég að
honum hafi bara brugðið.“
framleiðslan tók við
„Það er aðallega vegna þess að ég hef
verið svo upptekinn við að framleiða
myndir,“ segir Júlíus um ástæðu þess
að tólf ár eru liðin frá því að hann leik-
stýrði síðast mynd. „Svo er það ann-
að í þessum bransa. Það er hvað það
tekur langan tíma að fjármagna svona
verkefni. Það tók til dæmis fjögur ár
að fjármagna RWWM.“
Júlíus segir að í heimi kvikmynd-
anna séu aðalega tvær tegundir fram-
leiðenda. Þeir sem komi einungis að
fjármögnun mynda og svo þeir sem
fylgi myndum frá hugmyndastiginu
og alveg þangað til búið er að frum-
sýna og jafnvel áfram eftir það. „Það
kallast að vera svona „hands on“
og það er það sem við hjá Kisa höf-
um verið að gera. Þar er maður mun
tengdari hverju verkefni og lifir og
hrærist í því.“
Júlíus segir engan vafa liggja á því
að reynsla hans sem framleiðanda
undanfarin ár hafi hjálpað honum við
gerð myndarinnar. „Ekki spurning.
Við höfum líka verið með sama hóp-
inn núna í nokkrum myndum þannig
að fólk er orðið mjög þjálfað og vinn-
ur vel saman. Það er valinn maður í
hverri stöðu.“
Að mati Júlíusar hafa gæði íslenskr-
ar kvikmyndagerðar aukist gríðarlega
á undaförnum árum og fullt sé til af
frábæru fagfólki sem gefi starfsbræðr-
um sínum erlendis ekkert eftir.
stóra Heroes-málið
Það vakti mikla athygli fyrir nokkru
þegar atriði úr myndinni Astróp-
íu var stolið af hinum heimsfrægu
sjónvarpsþáttum Heroes sem sjón-
varpsstöðin NBC framleiðir. Júlíus og
samstarfsmenn hans voru ekki lengi
að benda á þennan augljósa stuld og
fóru myndbrot úr myndinni og þátt-
unum sem eldur um sinu á netinu.
Júlíus segir að verið sé að vinna í mál-
inu en svo virðist sem fleiri hafi orðið
fyrir barðinu á NBC.
„Það er verið að fylgjast með þessu
máli en núna er verið að taka saman
hversu margar senur eru bein tilvís-
un í myndina. Svo fékk ég mjög skrít-
ið símtal frá Bandaríkjunum í gær
en það var frá manni sem var í sömu
stöðu og við. Hann sagði að Heroes
hefði líka stolið hugmynd frá sér og
var að spyrja hvort við vildum sam-
eina krafta okkar í að berjast gegn
NBC. „You are dealing with a serious
criminal“, eins og hann orðaði það.“
Einnig er verið að vinna í því að
selja endurgerðarréttinn af Astrópíu til
Bandaríkjanna en talið var í fyrstu að
stuldur NBC gæti haft neikvæð áhrif
á þá sölu. „Það er bara allt í vinnslu
ennþá og á eftir að koma í ljós.“
Ekki 25 ára að leika 16
Næsta verkefni sem Júlíus og fyr-
irtæki hans Kisi ehf tekur að sér er
að framleiða myndina Óróa. „Það
er unglingamynd sem að Bald-
vin Z leikstýrir. Myndin er byggð
á bókum Ingibjargar Reynisdótt-
ur og það verður mjög spennandi
verkefni.“ Unglingamyndir, líkt og
spennutryllar, eru myndir sem ekki
mikið framboð hefur verið af í Ís-
landi. „Það gerir þetta ennþá meira
spennandi. Þetta er mynd um 15, 16
ára krakka sem eru leikin af krökk-
um á þeim aldri. Ekki einhver 25 ára
að leika 16 ára.“
Júlíus segir bjart yfir íslenskum
kvikmyndaiðnaði og það þarf ekki
að líta lengra en til áramóta til þess
að sjá sönnun þess, því átta íslenskar
myndir verða frumsýndar fyrir ára-
mót. „Þetta er vaxandi iðnaður og
eftir að lögunum um endurgreiðsl-
una var breytt erum við aftur orðin
samkeppnishæf. Fram að því vorum
við ekki einu sinni upp á borðinu.“
asgeir@dv.is
fyrsti íslensKi
rWWM Verður frum-
sýnd næsta föstudag.
Helgi Björns Er
ógnvekjandi í hlutverki
hvalveiðimanns.
spennutryllirinn